Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Blaðsíða 33
JDV LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
Mikill meirihluti landsmanna
er því fylgjandi að Dorrit
Moussaieff verði forsetafrú
á íslandi. í skoðanakönnun sem
DV hefúr gert segjast 78% þeirra
sem afstöðu tóku vera þessarar
skoðunar en 22% eru andvíg ráða-
hagnum. Enn fleiri eru sáttir við
núverandi samband Ólafs Ragnars
Grimssonar, forseta íslands, við
ungfrú Moussaieff. Þegar lands-
menn voru spurðir hvort þeir
væru fylgjandi sambandinu sögð-
ust níu af hverjum tíu af þeim sem
tóku afstöðu vera það en aðeins
einn af hverjum tiu var aridvígur
sambandi forsetans við demanta-
drottninguna Dorrit.
Örfáir andvígir
Könnunin var gerð miðviku-
dagskvöldið 20. október og var leit-
að til 600 manna, 300 karla og 300
kvenna, eftir áliti þeirra á málinu.
Nokkur munur var á svörum eft-
ir kyni svarenda og voru karlar af-
dráttarlausari en konur í stuðningi
sínum við samdrátt Ólafs Ragnars
og Dorrit. Þetta á sérstaklega við
um þá hugmynd að hefðarkonan
erlenda verði næsta húsfreyja að
Bessastöðum en af þeim sem tók
afstöðu sögðust 26% kvennanna
vera andvíg þvi en aðeins 17,5%
karlanna höfðu athugasemdir við
það fyrirkomulag.
nærmynd
Samband Olafs og Dorrit
- niðurstöður könnunar
Komdu fagnandi, Dorrit
Svör allra
- niöurstöður
Fylgjandi
Andvígir
Óákveðnir
Neita að svara
Samtals
54,0%
6,2%
29,2%
10,6%
100%
89,8%
Fylgjandi
Fylgjandi
Andvígir
Dorrit sem forsetafrú
- niðurstöður könnunar
Heildartölur
. Andvígir
21,8%
Svör allra
- niðurstöður
Fylgjandi
Andvígir
Óákveðnir
Neita að svara
Samtals
50,8%*
14,2%
24,8%
10,1%
100%
Fylgjandi
Andvígir
Átta af hverjum tíu vilja að Dorrit Moussaieff verði forsetafrú:
styðja Ólaf og Dorrit
Af þerin 600 sem voru 1 úrtakinu
svöruðu 390 spumingunni mn Dor-
rit sem forsetaffú og 361 spuming-
unni um samband forsetaparsins. 62
neituðu að svara fyrri spuming-
unni og 142 vom óákveðnir en 305
sögðu já en 85 nei. Seinni spuming-
unni neituðu 64 að svara og 175
vom ákveðnir eri 324 svöraðu ját-
andi og 37 neitandi. Sé því litið til
allra sem þátt tóku í könnuninni
em þaö aöeins 6,2% landsmanna
sem beinlínis segjast andvig sam-
bandi forsetans og Dorrit.
Dorrit er þekkt í samkvæmislífinu í
London og tekur mjög virkan þátt í
því. Hér sést hún f samkvæmiskjól
eins og hana ber sennilega oftast
fyrir augu Ijósmyndara sem starfa í
samkvæmislífinu þar.
Vilja hafa hana íslenska
Þrátt fyrir að fjölmargir hafi lýst
sig fylgjandi sambandi og hugsan-
legu hjónabandi Ólafs og Dorrit
vom þeir þó margir sem létu sér
fátt um finnast. „Hvað kemur mér
það við hvað Ólafur Ragnar Gríms-
son er að gera í sínum prívatmál-
um?“ sagði karl í Reykjavík. „Þetta
er einfaldlega þeima mál,“ var al-
gengt viðkvæöi þátttakenda í könn-
uninni.
Sumir höfðu hins vegar meiri
áhuga á málinu. „Mér fmnst Dorrit
falleg og að það sé bara hið besta
mál ef Ólafur finnur hamingjuna
með henni,“ sagði til dæmis karl-
maður í Reykjavík og tóku reyndar
margir undir það.
Eins og áður segir voru það frek-
ar konur en karlar sem settu fyrir-
vara við dýpkun á sambandi Dorrit
og forseta íslands. „Dorrit er greini-
lega vænsta stúlka og ég hef ekkert
á móti sambandi hennar við forset-
ann. En ef hann ætlar að kvænast
aftur vildi ég heldur að konan væri
íslensk," sagði kona á Suðurlandi
og samsinnti þar með nokkrum
kynsystrum sínum.
-GAR