Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Side 11
X>v LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
11
Fátt gleður landann meira en
aukið verslunarrými. Það sann-
aðist enn og aftur á dögunum
þegar Kringlan þandist út og
suður. Mörgum þótti þar þó
ærið rými fyrir, ekki síst eftir
að Kringlan gleypti Borgar-
kringluna sálugu og tengdist
henni með rana. Iðnaðarmenn i
kringluviðbótinni voru pung-
sveittir við störf sín, bæði inn-
lendir og erlendir. Það þurfti að
fá hjálp að utan til þess að klára
herlegheitin enda stutt til jóla.
Iðnaðarmennirnir voru svo
sendir heim vansvefta með
bauga undir augum en talsverða
uppbót í buddunni. Guðmundm-
rafiðnaðarforingi sagði öll Evr-
ópulög um vinnuvemd og hvíld
hafa verið fótum troðin en
hvern varðar um slíkt þegar
koma þarf stærra og voldugra
molli £if stað áður en jólatrafiik-
in hefst fyrir alvöru.
Kvennaveröld
Ég hef oft komið í Kringluna
líkt og aðrir landsmenn. Þótt ég
byggi ekki á rannsóknum full-
yrði ég þó að talsvert fleiri kon-
ur en karlar leggi leið sína í
hina glæstu miðstöð. Það er
nefnilega hrein undantekning ef
ég fer þangað einn og óstuddur
og svo er með marga kynbræður
mína. Yfirleitt fer ég, líkt og aðr-
ir góðir eiginmenn, þangað í
fylgd með konunni. Hún hefur
þá séð eitthvað fallegt og vill
bera það undir mig áður en fjár-
fest er. Það er ágætur siður þótt
í raim sé hann óþarfur. Ég stend
langt að baki konunni þegar
kemur að því að velja eitthvað
til heimilisins, hvort sem það
eru innanstokksmunir eða fatn-
aður. Það er því til málamynda
að ég mæti og segi já við vali
konunnar.
Við íslendingar erum eyöslu-
klær. Það er eitthvað í þjóð-
arsálinni sem segir okkur að ef
við kaupum ekki í dag þá fáist
hluturinn ekki á morgun. Hann
sé okkur eilíflega glataður. Þetta
kann að vera arfur frá haftatím-
I
himins og jarðar og verslanirn-
ar eru glaesilegri en nokkru
sinni fyrr. í því flotta molli má
því eyða heilu dögunum, skoða,
kaupa og fá sér í svanginn þess
á milli. Það er jafnvel hægt að
bregða sér í bíó í mollinu til
þess að hvíla fætur rétt um
stund svo ganga megi meira á
eftir. Það er einkum nauðsyn-
legt fyrir karlpeninginn sem
verður afar þreyttur í mollum.
Bragð sem konur nota i mollum
í útlöndum er að koma mönnum
símun fyrir á nálægum bar og
sækja þá síðan. Þeim líður þá
behu- um sfund, rétt meðan öl-
kollan gælir við innviðina í
þeim. Þeir verða þá leiðitamir
og allt að því skemmtilegir. Þeg-
ar aftur bráir af þeim þarf að
bæta á svo ástandið verði viðun-
andi. Þetta á síður við í íslenska
glæsimollinu. Þá eru menn á
heimavelli og geta ekki gengið
um sali í léttri vímu. Það er
alltaf hætta á að einhver þekki
þá. Því verða konur oft, eins og
dæmin sanna, að ganga einar
um glersali Kringlunnar.
Annað moll
Kringlan hefur verið stækkuð
og er glæsilegri en nokkru sinni
fyrr. Það gleður menn en enn er
landinn ekki af baki dottinn.
Það á nefnilega að byggja annað
moll og ekki síður glæsilegt í
Smárahvammslandi í Kópavogi.
Þar verða búðirnar margar og
stórar og bílastæðin í breiðum
umhverfis höllina. Kópavogsbú-
ar og ríkisvaldið eru í óða önn
að byggja breiðgötur, brýr og
slaufur til þess að koma öllu
fólkinu í nýja mollið. Þar skal
ekki standa síður að málum en í
Reykjavíkurmollinu í Kringlu-
mýrinni. Þegar hefur verið
samið við helstu stórverslanir
landsins um þátttöku og ekki
síður erlendar verslanakeðjur.
Huggun harmi gegn
Það verður því kátt í Kópa-
vogshöllinni þegar iðnaðar-
mennirnir hverfa þaðan ósofnir,
um þegar lítið fékkst og hver sá
sem náði að nýta sinn skömmt-
unarmiða eða leyfi þóttist hafa
himin höndum tekið. Því kaupa
menn i dag umfram þarfir og
raunar umfram getu. Þótt góð-
ærið sé hér og hafi verið undan-
farin ár er einkaneyslan meiri
en nokkru sinni áður. Við lifum
því um efni fram og söfnum
skuldum þótt kaupmáttur hafi
aukist meira hjá okkur en þeim
þjóðum sem við miðum okkur
við.
Það er nefnHega svo gaman að
gera góð kaup, ná vörunni á tfi-
boösverði. Því eigum við flest
slatta af sjónvarpstækjum, sem
sífeUt verða ódýrari, mynd-
bandstækjum, hljómflutnings-
tækjum, aUs konar heimilis-
tækjmn í eldhús, að ógleymdum
tölvunum og öUum fylgifiskum
hennar. Þetta er þó aðeins það
smálega. Það þarf ekki annað en
bregða sér út á götu tfi þess að
líta á stóru hlutina, bfiaflotann.
Hann hefur tekið stakkaskiptum
eftir að við náöum okkur upp úr
efnahagslægðinni. Jeppaflotinn
er glæsfiegur og þýskir eðal-
vagnar að verða jafnalgengir og
í meðalstórri borg í Þýskalandi.
Fasteignasalar muna heldur
ekki aðra eins gósentíð. Það
selst aUt sem á sölurnar kemur
og ekki nóg með það. Ásett verð,
sem svo er kaUað, var áður sett
fram tfi þess aö um það væri
prúttað og veruleg verðlækkun
næðist. Nú staðgreiða menn það
sem upp er sett og oftar en ekki
hækkar verð á íbúðum í sölu. Þá
bítast fleiri en einn um fasteign-
ina og sá sem er að selja bíður
bara með doUaramerkin í aug-
unum.
Lán og raðgreiðslur
Til þess að kaupa aUt þetta
dugar ekki kaupið eitt og sér.
Laugardagspistill
Jónas Haraldsson
aðstoðarritstjórí
Það þarf að slá lán, að minnsta
kosti ef menn eru að kaupa eitt-
hvað stórt. Eðlilegt er að menn
fái lán við íbúðakaup en nú berj-
ast bankar, tryggingafélög og
fjárfestingastofnanir aUs konar
um að lána jafnvel aUt kaupverð
nýrra bfia. Bara að sækja nýja
bílinn og aka út. AUur sá hama-
gangur minnir á fleygt sölutrikk
Loftleiða í gamla daga: „Fly now
- pay later. Sá boðskapur þótti
nokkur tíðindi þá enda var það
venjan þegar menn höfðu minna
umleikis að þeir ættu fyrir flug-
farinu. Nú fljúga menn og borga
miðann á raðgreiöslum korta-
fyrirtækjanna, kaupa vörur hér
og ytra og setja einnig á rað-
greiðslulistann. Kaupum nú -
borgum seinna. Það er mottóið.
Allt að því skemmtilegir
Það er því gaman í nýju
Kringlunni. Þar fæst aUt mfili
kinnfiskasognir og með bauga
undir augum en enn með sæmi-
lega stöðu í buddunni. Þá mun
heldur enginn rifja upp Evrópu-
reglur um hvfid og Guðmundur
rafiðnaðarforkólfur lætur lítið
fara fyrir sér fyrir sér þar tfi
töminni verður lokið. Þá álykt-
ar sambandið eitthvað tfi mála-
mynda. Guðmundur veit sem er
að hans menn vfija standa með-
an stætt er, ekki síður en pípar-
ar, smiðir og múrarar sem að
verkinu koma, innlendir jafnt
sem erlendir.
Við verðum þvi enn að herða
einkaneysluna og skuldasöfnun-
ina. Með sameinuðu átaki tekst
okkur að fyUa moUin tvö. Það er
að visu nokkur gaUi hversu fá-
menn þjóðin er en þó huggun
harmi gegn að bróðurpartur
landsbyggðarinnar er þegar
fluttur eða á leiðinni tfi Reykja-
víkur og Kópavogs.