Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Side 14
14
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
fáðtal
Hrannar B. Arnarsson gerir upp sakirnar við andstæðinga sína úr kosningabaráttunni:
Revndu að breyta ævi
minni i samfelldan glæpaferil
- nýti mér þessa erfiðu reynslu til góðs og hlakka til að takast á við ný verkefni í borgarstjóm
„Mér leið hrœðilega eftir atlöguna í kosningabaráttunni.
Mér hefur aldrei liðið verr og vissi hreinlega ekki að hœgt
vœri að berja mig svona langt nióur. Eftir að hafa lagt mik-
ið á mig til aö forða fyrirtœkinu frá gjaldþroti og fjölda við-
skiptavina frá fjárhagslegum skaða var afskaplega sárt aö
upplifa að á tveggja vikna tímabili væri öllu því starfi snúið
á haus og gerð markviss tilraun til að breyta öllum mínum
æviferli í samfelldan glæpaferil. “
Það er Hrannar Bjöm Amarsson,
borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, sem
mælir þessi orð nú þegar hann er loks-
ins sestur í stólinn sinn í borgarstjóm
Reykjavíkur og lítur til baka. Úrskurð-
ur yfirskattanefndar hefúr fallið á
þann veg að honum er gert að greiða
450 þúsund krónur í sekt vegna skatt-
skila á árunum 1992 og 1993. Síðasta
hálfa mánuðinn fyrir síðustu borgar-
stjómarkosningar snerist baráttan
nær eingöngu um Hrannar og fjár-
málavanda hans. Hann segist hafa orð-
ið var við „undirbúninginn og kjafta-
ganginn" talsvert löngu áður. En svo
hafi allt orðið vitlaust.
„Ég hef sannfærst æ betur um það
eftir því sem lengra hefúr liðið ffá
kosningunum, að þessu var stjómað í
herbúðum Sjálfstæðisflokksms,“ segir
hann. „En það þjónar engum tilgangi
að eltast við einhver nöfn i þeim efn-
um. Þetta var skipulagt og framkvæmt
sem hluti af kosningabaráttu þeirra.
Menn væm menn að meiri ef þeir
hreinlega viðurkenndu það.“
Þá kom sjokkið
Hrannar segir að það hafl ekki
runnið upp fyrir honum fyrr en
nokkra eftir kosningar hvað hefði í
rauninni gerst, andstæðingam-
ir hefðu reynt að koma glæpa-
mannsstimph á hann. „Sjokkið
kom ekki fyrr en þá. Fram að
kosningum var þetta spuming-
in um að halda sjó og klára
dæmið. Á því tímabiU leit ég á
mig og mína ffamtíð sem al-
gjört aukaatriði og hefði nánast
gert hvað sem er til að forða fé-
lögum mínum í Reykjavíkur-
listanum frá skaða út af mín-
um málum, hvort heldur hefði
verið að segja mig af listanum
eða halda áfram. Framtíð
Reykjavíkurlistans virtist
hvíla á mínum erfiðleikum og
ég veit satt að segja ekki hvað
hefði gerst ef Reykjavíkurlist-
inn hefði ekki haldið borginni.
Ég þori ekki að hugsa þá hugs-
un til enda. Eftir kosningamar
sneri þetta hins vegar eingöngu
að mér. Þá varð erfiðara að
brynja sig fyrir áhrifúnum eins
og ég gat gert í kosningabarátt-
unni sjálff i.
Oft hvarflaði að mér að það yrði
erfitt fyrir mig að fá uppreisn æm. Um
tíma sá ég ekki hvemig það gæti gerst.
Það sem bjargaði mér var, að ég á mjög
góða að. Ég fékk frábæran stuðning frá
konu minni, móður og öUum öðrum
sem að mér standa. Þegar ffá hefúr lið-
ið hef ég líka sannfærst æ betur um að
meðan ég sjálfur er viss um áð ég hafi
gert mitt besta, og hafi góða samvisku
vegna þess sem ég hef gert, muni ég á
endanum njóta þess. Ég er mjög sáttur
við sjálfan mig.“
Stuðningur fjölskyldunnar
Hrannar á stóra fjölskyldu, sem
studdi hann með ráðum og dáð í bar-
áttunni fyrir mannorði sínu. Foreldrar
hans em Kristín Á. Ólafsdóttir og Am-
ar Sigurbjömsson tónlistarmaður, sem
spUaði m.a. með Brimkló og Flowers á
sínum tima. Hrannar hefur einnig
alist upp hjá tveimur fósturfeðrum,
Böðvari Guðmundssyni rithöfúndi og
Óskari Guðmundssyni. „Ég á miklu
fjölskylduláni að fagna og fengið sitt-
hvað gott frá hverjum." Hann var al-
inn upp við pólitík og félagsmálagenið
lét ekki bíða lengi eftir sér
Þegar Hrannar var 7 ára fluttist
hann tU Akureyrar þar sem hann bjó í
fimm ár. Hann fékk einnig að reyna
sveitasæluna, því hann var í sveit í
Borgarfirði í mörg sumur. Nú er hann
fjölskyldufaðir í Þingholtunum þar
sem hann býr ásamt sambýliskonu
sinnu, G. Rósu Eyvindardóttur, og átta
ára dóttur, Særós Mist, sem er „algjör
perla og gleöigjafi."
Hrannar hóf rekstur eigin fyrirtæk-
is. Upp úr 1991 hófúst fjárhagsvand-
ræði fýrirtækisins og þar með Hrann-
ars. Hann hyggst nú segja skilið við
fýrirtækjareksturinn að mestu leyti
„Alveg frá síðustu kosningum hef ég
verið að gera ráðstafanir tU þess að ég
geta minnkað við mig. Ég hef fengið
nokkra gamla samstarfsmenn tU Uðs
við fyrirtækið og er sjálfúr orðinn al-
gjör minnihlutaaðUi og mun lítið
koma nálægt rekstrinum meðan ég
sinni störfum mínum sem borgarfúU-
trúi. Það er meira en fúUt starf ef
menn heUa sér út í það. Það vU ég
Hrannar ásamt eiginkonu sinni, G. Rósu Eyvindardóttur og dótturinni Særós Mist.
þeir eigi erfitt að
sætta sig við að
málinu sé lokið,
einkum eftir aUt
það púður sem
þeir settu í það.
Þeir hefðu verið
menn að meiri
að láta þar stað-
ar numið. En ég
er alls ókvíðinn.
Ég hef svarað
því sem ég mun
Hrannar fagnar góðum kosningaárangri ásamt móður sinni,
Kristínu Á. Ólafsdóttur, á kosningavöku Reykjavíkurlistans eftir
borgarstjórnarkosningarnar.
gjaman gera, ekki síst tU að vinna upp
þann tíma sem ég hef misst af kjör-
tímabUinu."
Hann segir að nú líði sér mjög vel.
Hann hafi þurft þann tíma sem liðinn
er frá kosningunum tíl að jafna sig.
„Ég held að ég hafi náð aftur fyrri
styrk. Ég hlakka mjög til að ráðast í
þau verkefni sem mér hafa verið falin.
Ég er sannfærður um að ég get nýtt
mér þessa erfiðu reynslu tU góðs. Ég
hef þurft að endurskoða fuUt af hlutum
og hugsa upp á nýtt.“
Hrannar var þó ekki lengi í Paradís
því hann var varla sestur í stólinn í
fyrradag þegar borgarfúUtrúi Sjálf-
stæðisflokksins, Guðlaugur Þór Þórð-
arson, lét hafa eftir sér að Hrannar
ætti að birta úrskurð yfirskattanefnd-
ar. „Ég verð, satt að segja, að viður-
kenna að ég átti síður von á að þeir
reyndu að taka upp merkið þar sem
frá var horfið. En ég hef lagt spUin á
borðið og ég get í sjálfú sér skUið að
svara um þetta
mál. Því er lokið.“
Ámi inni -
Kristín út
Hrannar fékk
kjörfylgi sem á að
nægja honum tU
setu í borgarrráði.
Hann segist eiga
eftir að ræða við
félaga sina um það
hvemig nefndar-
setum verði hátt-
að. Þau mál verði skipulögð á næst-
unni. Hann óttast ekki að verða settur
tU hliðar í borgarstjómarflokki
Reykjavíkurlistans.
Um styrk Reykjavíkurlistans segir
Hrannar að á kjörtímabilinu hafi kom-
ið upp erfið mál, sem hvUt hafi á hon-
um. Upp hafi komið rót í hópnum.
Talsverð mannaskipti hafi orðið, en
listinn standi sterkur eftir sem áður.
Hann segir það hreina tUvUjun, að
hann komi inn í borgarstjóm um svip-
að leyti og Ámi Þór Sigurðsson segir
sig úr Alþýðubandalaginu. „Úrskurður
yfirskattanefndar er dagsettur 20. októ-
ber og ég gat ekki komið inn fyrr en
hann lá fyrir. Það er ekkert sem teng-
ir þessi tvö mál saman. Því er það
hugsanavilla að verið sé að skáka
Áma Þór út fyrir mig, enda er það
frambjóðandinn fyrir aftan hann á list-
anum, Kristín
Blöndal, sem
víkur úr borgar-
stjóm við niina
innkomu. Ámi
verður áiram
inni. Ég held að
þama sé einfald-
lega verið að
búa tíl samsær-
iskenningu og
sjónarspU úr
einhverju sem
ekkert er.“
Hrannar vUl
ekki kannast við
að það sé vand-
ræðagangur á
Framsókn innan
samstarfsins
Þvert á móti
séu borgarfuU-
trúar Framsókn-
arflokksins mik-
iU styrkur fyrir
ReykjavUmrlist-
ann.
Hrannar B. Arnarsson segist líta
björtum augum til framtíðar og
hlakka til að takast á við ný verkefni
í borgarstjórn Reykjavíkur.
Lúta litíum forystuaga
Um framtíðarmúsík i stjómmála-
ferli borgarstjórans segist Hrannar
sannfærður um að Ingibjörg Sólrún
muni stýra borginni út kjörtímabUið.
„Hvað hún gerir svo veit ég ekkert um.
Ég held að það sé aUtof langsótt að fara
að ræða um arftaka einhvers sem við
vitum ekki einu sinni hvort sé að
hætta. En úr því að þú spyrð um Helga
Hjörvar þá myndi ég treysta honum
fyrir borgarstjóraembætti eins og
öðm. Hann hefur staðið sig mjög vel
sem forseti borgarstjómar og hefur
verið að vinna sér aukið traust með
störfúm sinum í borgarstjóm.
Hins vegar sýnist mér á háttalagi
bórgarstjómarflokks sjálfstæðismanna
að þeir líti svo á að Inga Jóna Þórðar-
dóttir sé ekki þeirra framtíðarforingi.
Þar virðist hver maður hugsa um sig
og þeir virðast a.m.k. vera þrír sem
ætla sér að gera tilkáU tU þessa sætis,
auk hennar. Þeir lúta litlum forustu-
aga Guðlaugur Þór, VUhjálmur VU-
hjálmsson og Júlíus VífUl. Það kæmi
mér mjög á óvart ef ekki verður harð-
ur slagur um leiðtogasætið hjá sjálf-
stæðismönnum fyrir næstu kosning-
ar,“ segir Hrannar sem er greinUega
farinn að spýta í lófana og hlakka tU að
takast á við borgarstjómarglímuna.
En pólitíkin er honum ekki aUt þótt
hún sé mikUvægur þáttur í tUveru
hans. Hann iðkar skák og segist hafa
aukið það á seinni árum. Hann tekur
einnig þátt í félagsstörfum tengdum
skákinni. Svo er hann farinn að
stunda hestamennsku ásamt dóttur
sinni. Þau vom með hesta á húsi síð-
astliðinn vetur og æfia að halda því
áfram næsta vetur.
„Það er unaðslegt að fá að kynnast
borginni og svæðinu í kringum hana í
gegnum hestamennskuna. Það þarf
ekki nema 5 mínútna bUtúr að enda-
mörkum borgarlandsins tU að komast
í hreinar náttúmperlur. Þessi borg ber
án nokkurs vafa höfuð og herðar yfir
aUar aðrar höfuðborgir heimsins að
þessu leyti," segir Hrannar sem segist
vera búinn að losa sig við sárar tilfinn-
ingar vegna atlögunnar að mannorði
hans. Hann verði aldrei sáttur við
meðferðina sem hann fékk en sé þó
hvorki bitur né beiskur. -JSS