Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Page 23
33 LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 f ennmg 23 $ SUZUKI SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgótu 9, slmi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Ellasson, SUZUKI BILAR HF Grænukinn20.simi 555 15 50. Hvammstangi: Blla-og búvélasalan, Melavegi 17,sfmi451 26 17. (safjörður:Bflagarðurehf., Grænagarði,simi 456 3095. Skeifunni 17. Sími 568 51 OO. Keflavik: BG bílakringlan, Grðfinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. WWW.SUZukibilaf.is íslensk María - Kom það þér á óvart þegar þú varst þeðin að mála altari- stöflu? „Já,“ segir Kristín og þrosir breitt. „Ég hafði aldrei verið beðin um það fyrr. En ég tók tilboðinu fljótlega - með því skilyrði að ég væri frjáls og mætti gera það sem ég vildi. Ég þurfti að vísu að láta verk- ið bíöa í ein tvö ár af því að móðir mín veiktist og lá hérna hjá mér banaleguna, en svo hófst ég handa og lauk mynd- inni á níu mánuðum." Kristín fékk ekki hugmynd- ina að Maríu strax. Hún strit- aði við aðra hugmynd í margar vikur og gerði yfir hundrað teikningar. „Skyndilega - eins og hendi væri veifað - fannst mér svo þessi hugmynd alveg út i bláinn, og á einni helgi fæddist ný hugmynd sem tókst í annarri eða þriðju lotu. Mar- ía kom hreinlega til mín með Jesúbamið og ég sá undir eins hvað hún átti vel heima einmitt í Stykkishólmi með sínu Fransiskusklaustri. Svo fór ég til læknis af því mér leið eitthvað einkennilega og komst þá að þvj að ég var sjálf með barni!“ - Geturðu ímyndað þér hvers vegna María mey er ekki á neinni annarri altaristöflu á íslandi? „Það er lúterskan. í okkar kirkjum er hún í mesta lagi einhvers staðar til hliðar sem gamall kirkjugripur. Við sið- breytinguna var henni bara þakkað fyrir þjónustuna og send heim. En það er mikil- vægt að fólk geri sér grein fyr- ir að María guðsmóðir er ekki einkaeign kaþólsku kirkjunn- ar, og mér finnst kominn tími á móðurorkuna, kvenorkuna, í íslenskri kirkju. Það er íslensk vetramæturstemning í mynd- inni eins og maður upplifír einn úti undir stjömubjörtum himni. Ég hugsaði mér febrú- ekki alveg hvað það var í þeim sem ég heillaðist af. Endurreisnin fannst mér auð- skiljanleg því hún gengur út frá egóinu, út frá manninum. Hugsun nútímamannsins á upphaf sitt þá. Á tímabilinu á undan kem- ur maður inn í helgimyndalist sem er full af dulúð og þörf - og þögn. Innri þögn. Ég sótti í þessa list þau sjö ár sem ég dvaldi í Flórens - og ég var gersamlega ein á báti. Það hafði enginn í akademíunni áhuga á þessu. ítalirnir litu á þessa list sem hluta af þeim klafa listasögunnar sem á þá væri lagður. Þeim finnst myndlistarhefðin íþyngja sér - eins og okkur finnst stundum með fombókmenntirnar eða glímuna.“ í Flórens lærði Kristín að mála með að- ferð sem notuð var öldum saman áður en olíulitirnir vom fundnir upp: eggtempera og gull á tré. Þá setur maður gifs ofan á við- arplötu og málar með blöndu af eggjar- auðu, litadufti og vatni. Svo er notað gull þegar það á við. „Þessa tækni lærði ég af algerum meist- urum í Flórens," segir Kristín, „og hún tengir verkin strax við miðaldir. Hún gefur sérstaka, þurra, gamaldags áferð sem hentar vel litlum verkum. Stór verk málar maður með olíulit- um. Ég hafði alltaf málað stórt, líka í klaustrinu, en 1993 fór ég að mála litlar myndir í fyrsta skipti á ævinni og með þessari gömlu tækni. Þá var eins og ég hefði fundið lykil að öðrum heimi, því að vinna með blað- gull er eins og að vinna með sólina. En það tekur afar mik- inn tíma og þessi tækni verður hrópleg andstaða við nútím- ann þar sem allt gerist á svo miklum hraða.“ Eftir sjö ár í Flórens kom Kristín heim með verkin sín og mætti áhuga og skilningi. „Mér fannst allir yfir sig ánægðir. Annaðhvort verður fólk hrifið af íkonum eða vill ekki sjá þá, en langflestir voru hrifnir," segir hún. „ Aðalat- riðið er að fólk nái persónu- legu sambandi við íkona. Þeir eru hugsaðir sem gluggar að Paradís. Þú horfir á myndina og sérð inn í Paradís.“ í Ráðhúsi Reykjavíkur. Við sjáum oft fæturna á konunni bak við Ingibjörgu Sólrúnu í viðtölum í sjónvarpinu. ar-mars þegar allt er kleprað og blautt og snjórinn veit ekki hvort hann er að koma eða fara. Þá erum við lika full af tilhugsun- inni um að bráðum verði allt fínt og fallegt og við getum farið að taka á móti gestum! Afskaplega íslensk árstíð. Og María svífur yfir islenskum fjöllum þar sem hún réttir okkur barnið sitt, það dýrmætasta sem hún á.“ 7 Kristín heldur áfram að velta fyrir sér hinni himnesku fjölskyldu og er mikið niðri fyrir: „Lúterskan hefur búið til karl- veldi úr kærleikanum og það bara gengur ekki!“ segir hún. „Nú eru tímamir breytt- ir. Við erum að fara inn í nýja öld og nýtt árþúsund og landamæri eru óðum að þurrkast út. Við þurfum svo mikið hvert á öðru að halda, allur heimurinn, að við megum ekki eyða timanum í svona vit- leysu. Okkur veitir ekki af öllum hjálpandi höndum sem bjóðast.“ -SA ABS-hemlavöm* Aðaljós stillanleg úr ökumannssæti Álfelgur* Barnalæsingar Bensínlúga opnanleg úr ökumannssæti Framdrif tengjanlegt á allt að 100 km hraða Geymsluhólf undir framsætum Hæðarstillanleg belti með forstrekkjurum Höfuðpúðar á fram- og aftursætum Litaðar rúður Rafdrifin sóllúga* Rafdrifnar rúðuvindur Rafstýrðir útispeglar Samlæsingar á hurðum Snúningshraðamælir Stafræn klukka Styrktarbitar í hurðum Tveir öryggisloftpúðar Tvískipt, fellanlegt aftursætisbak Upphituð framsæti Útvarp með segulbandi Vökvastýri Þakbogar Þjófavörn Þrívirk inniljós og kortaljós * Aukabúnaður Þægilegur bæjarjeppi Ekta óbyggðajeppi Sjálfstæö grind, hátt og lágt drif, 5 gíra handskipting eða 4 hraða sjálfskipting, 2.0 1 eða 2.5 1V6 vél. Verðfrá 2.179.000 kr. ... og mundu, þú getur alltaf breytt % Grand Vitara í jöklajeppa’

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.