Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Qupperneq 28
28
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
%ikhús
Ljóni kóngsson og Gleym mér ei í Iðnó:
skyldum sínum og bulla og auðvitað
fer allt vel að lokum eins og í öllum
góðum ævintýrum.
Leikritið er dálítið eins og krakk-
ar hugsa sér leikrit. Það er eins og
einhver hafi farið upp á háaloft hjá
ömmu, fundið rauðar gardínur og
gömul föt og farið að leika.“
Eru krakkarnir virkir áhorfend-
ur?
„Já, þeir þurfa að hjálpa til við að
leysa Ljóna úr álögum og geyma
ýmsa muni.“
Eitthvað að lokum?
„Glimmer, glimmer, glimmer.“
Hvers vegna?
„Tunglið segir það.“
Talar tunglið?
„Já, og sólin og vindurinn."
Leikarar í sýningunni eru þau
Linda Ásgeirsdóttir, Edda Björg
Eyjólfsdóttir, Þrúður Vilhjálmsdótt-
ir, Agnar Jón Egilsson og Kjartan
Guðjónsson. Tónlist er í höndum
Kristjáns Eldjárn og búninga hann-
ar Rannveig Gylfadóttir.
Nornin Vala ætlar sér sjálf að giftast Ljóna.
Gleym-mér-el þarf að leysa ýmsar þrautir til að leysa Ljóna úr álögum.
Draumur um syngjandi
lævirkja
Sýningin tekur fjörutíu mínútur í
flutningi og er fyrir krakka á aldrin-
um frá fjögurra ára og upp úr. En
hver er atburðarásin?
„Kaupmannsdóttirin á sér þann
draum að pabbi hennar gefi henni
syngjandi lævirkja. Hann fer af stað
og finnur syngjandi lævirkja en
fuglinn er í eigu ljóns sem lætur
hann lofa sér því að í staðinn fyrir
lævirkjann verði hann að færa sér
það fyrsta sem Hann sér þegar hann
kemur heim.
Það er auðvitað Gleym mér ei
sem hann sér fyrst.
Hún fer og hittir ljónið sem reyn-
ist vera prins í álögum og þá fara
hlutimir að gerast.
En hún þarf að yfirstiga vissa erf-
iðleika. Vonda nomin, Vala, er ekk-
ert á því að sleppa ljóninu þvi sjálf
vill hún giftast prinsinum. Hún hef-
ur dálítið heimska varömenn sem
Gleym mér ei hittir og þeir gleyma
Ljóni er kóngssonur í álögum.
Ævintýriö um
Ljóna kóngsson
og Gleym mér
ei veröur frum-
sýnt í dag,
laugardaginn
23. október, kl.
14.00. Þetta er
fallegt œvintýri,
einfalt og
skemmtilegt
meö öllum þeim
töfrum sem œv-
intýraleikhúsi
fylgir og segir
frá ungri kaup-
mannsdóttur
sem meö hjálp
frá vindi, sól og
tungli leysir
prins úr álög-
um vondrar
nornar.
„Þetta er leik-
gerð sem við unn-
um upp úr ævin-
týrinu Lævirkinn
syngjandi og er að
finna í Ævintýrum æskunnar,"
segir Edda Björg Eyjólfsdóttir,
einn af leikurum sýningarinnar, í
samtali við DV. „Við sömdum tón-
listina sjálf og fengum Kristján
Eldjárn til þess að útfæra hana
fyrir okkur.“
Það er brostið í söng af minnsta tilefni.
Við brestum í söng
Þjónar tónlistin hlutverki per-
sónu?
„Nei, við syngjum hana. Við
brestum í söng þegar mikið liggur
við.
Þú segir að þið hafið samið leik-
gerðina sjálf en sjáið þið líka sjálf
um leikstjórn?
„Já, það er einmitt það sem er svo
skemmtilegt. Við fengum styrki frá
ÍTR I sumar og Dagvist barna og
sýndum í Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinum og einnig á gæsluvöllum
Reykjavíkurborgar við mjög góðar
undirtektir."
Talandi sól og tungl
og vindur
- ævintýri um kóngsson, kaupmannsdóttur, vonda norn og heimska varðmenn