Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Qupperneq 58
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 JjV
70
•/A / fréttum
Ásmundur G. Vilhjátmsson
Asmundur Guðberg Vilhjálmsson
lögfræðingur er höfundur bókarinn-
ar Skattur á fjármagnstekjur og
eignir sem nú var að koma út.
Starfsferill
Asmundur fæddist í Sandgerði
4.2. 1954. Hann er alinn þar upp til
sex ára aldurs en flutti þá til Kefla-
víkur.
Ásmundur lauk stúdentsprófi frá
MH 1974, stundaði nám í lögfræði
við HÍ og var gistinemi við lagadeild
Kaupmannahafnarháskóla 1976-77,
lauk embættisprófi í lögfræði við HÍ
1981 en lokaritgerð hans fjallaði um
vinnustöðvanir: - verkfoll og verk-
bönn, stundaði nám í viðskiptafræði
við HÍ 1980-81, stundaði framhalds-
nám í skattarétti, vinnurétti og EB-
rétti við Árósaháskóla 1989-90 og í
skattarétti við Lundúnaháskóla
1991-93.
Ásmundur var lögfræðingur
vinnumálanefndar ríkisins 1981-84,
dómarafulltrúi hjá bæjarfógetanum
á Akranesi 1984-86, starfsmaður hjá
launadeildinni frá 1986, deildarstjóri
í launadeild fjármálaráðuneytisins
1986-88, deildarstjóri í tekju- og laga-
deild ráðuneytisins 1988-91, stund-
aði rannsóknir á tekjuhugtaki ís-
lenskra skattalaga, álagningu og
framkvæmd með styrk úr Vísinda-
sjóði á árunum 1991-93. í framhaldi
'mæli
af því gaf hann út ritin
Skattaréttur 1, útg. 1994;
Skattaréttur 2, útg. 1994;
Skattaréttur 3, útg. 1995,
og Skattaréttur 4, útg.
1996. Frá þeim tíma hef-
ur hann stundað fræði-
störf í lögfræði en
starfar nú sjálfstætt
sem skattalögfræðingur
hjá endurskoðunarfyr-
irtækinu Þema ehf.,
sem er aðildarfélag Gr-
ant Thomton Inter-
national, alþjóðasam-
taka endurskoðunarfyr-
irtækja.
Asmundur G.
Vilhjálmsson.
húsmóðir í Reykjavík.
Alsystkini Ásmundar
eru Sigríður, f. 1.9. 1951,
hótelstýra á Geysi í
Haukadal; Axel Amdal,
f. 2.6. 1959, sjómaður í
Sandgerði.
Foreldrar Ásmundar:
Vilhjálmur Ásmunds-
son, f. 20.5. 1926, fórst
með mb. Rafnkeli 4.1.
1960, vélstjóri á Borg í
Sandgerði, og k.h., Gróa
Axelsdóttir, f. 21.10.
1924, húsmóðir á Borg
og síðar ráðskona í
Keflavík.
Fjölskylda
Ásmundur kvæntist 1.8. 1989
Ragnheiði Björnsdóttur, f. 26.12.
1952, handlistakonu. Hún er dóttir
Bjöms R. Einarssonar, f. 16.5. 1923,
hljóðfæraleikara og fyrrv. hljóm-
sveitarstjóra í Reykjavík, og k.h.,
Ingibjargar Gunnarsdóttur, f. 28.3.
1925, hárgreiðslumeistara og fyrrv.
umsjónarkonu.
Sonur Ásmundar og Ragnheiðar
er Vilhjálmur, f. 20.2.1985, nemi.
Dóttir Ragnheiðar og stjúpdóttir
Ásmundar er Ragnheiður Bogadótt-
ir, f. 22.1. 1977, lögfræðinemi við HÍ.
Hálfsystir Ásmundar er Þorbjörg
Ágústa Birgisdóttir, f. 16.2. 1946,
Ætt
Vilhjálmur var sonur Asmundar,
b. á Kvemá í Grundarfirði, Jó-
hannssonar, smiðs á Pumpu og
Kverná, Dagssonar, útvegsb. á
Skerðingsstöðum í Eyrarsveit, Þór-
arinssonar. Móðir Jóhanns var Ingi-
björg Bjarnadóttir frá Skerðings-
stöðum. Móðir Ásmundar var Halla,
systir Guðrúnar, langömmu Helga
E. Helgasonar, varafréttastjóra rik-
issjónvarpsins. Bróðir Höllu var
Runólfur, oddviti og verslunarstjóri
í Grafamesi, faðir Guðmundar út-
gerðarmanns og afi Soffaníasar
Cecilssonar útgerðarmanns. Halla
var dóttir Jónatans, b. á Mýmm og
Vindási, Jónssonar, og Halldóm
Daníelsdóttur, b. á Haukabrekku
Sigurðssonar, bróður Sigurðar
langafa Daða, föður Sigfúsar skálds
Móðir Halldóm var Halla Sigurðar
dóttir, b. í Syðra-Skógarnesi, Guð-
brandssonar, bróður Þorleifs, föður
Þorleifs, læknis í Bjamarhöfn.
Móðir Vilhjálms var Steinunn
Guðbjörg Þorsteinsdóttir frá Gröf,
systir Bárðar, dbrm. í Gröf.
Gróa er dóttir Axels, kaupmanns í
Sandgerði, hálfbróður Kristjáns
Linnets, bæjarfógeta í Vestmanna-
eyjum, afa Guðrúnar Svövu Svav-
arsdóttur skáldkonu og Vemharðar
Linnets jassunnanda. Axel var son-
ur Jóns, skósmiðs á Akranesi, Guð-
mundssonar og Gróu Jónsdóttur, b.
í Vallarhúsum, Guðmundssonar.
Móðir Gróu var Guðrún, systir
Helgu, langömmu Inga R. Helgason-
ar hrl. og og Bjöms R. Einarssonar,
tengdaföður Ásmundar. Önnur syst-
ir Guðrúnar var Katrín, langamma
Þorvalds, föður Guðlaugs ríkissátta-
semjara og Tómasar útgerðar-
manns. Guðrún var dóttir Þórðar, b.
á Járngerðarstöðum, Einarssonar,
og Gróu Jónsdóttur, ættföður Jáiji-
gerðisstaðaættar Jónssonar.
Móðir Gróu var Þorbjörg Ágústa,
dóttir Einars Jónsssonar og Önnu
Soffiu Jósafatsdóttur.
Guðmundur Heiðreksson
Guðmundur Heiðreksson, deild-
arstjóri hjá Vegagerð ríkisins á Ak-
ureyri, til heimilis að Lerkilundi 6,
Akureyri, er fimmtugur i dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist á Akureyri
og ólst þar upp í foreldrahúsum á
Eyrinni. Hann stundaöi nám við
Tækniskólann í Reykjavík og lauk
þaðan námi í byggingatæknifræði
1972.
Að námi loknu starfaði Guð-
mundur á verkfræðistofu í Reykja-
vík í eitt ár en flutti síðan aftur
norður á Akureyri þar sem hann
hefur starfað hjá Vegageröinni frá
1973.
Guðmundur hefur starfað að
íþróttamálum á Akureyri. Hann sat
m.a. í stjóm KA og var formaður fé-
lagsins 1984-89.
Fjölskylda
Kona Guðmundar er Magga Alda
Magnúsdóttir, f. 10.3. 1953, hjúkmn-
arfræðingur. Hún er dóttir Magnús-
ar Magnússonar, lengst af sjómanns
í Reykjavík, og Lára Eiríksdóttur,
húsmóður og starfskonu hjá SÍBS.
Börn Guðmundar og Möggu Öldu
eru Heiðrekur Guðmundsson, f. 5.9.
1976, mælingamaður hjá Vegagerð
rikisins, búsettur á Akureyri; Ragn-
heiður Kristrún Guðmundsdóttir, f.
5.11. 1979, nemi við VMA; Guð-
mundur Birkir Guðmundsson, f.
25.4. 1992.
Systkini Guðmundar: Völundur,
f. 16.4.1940, d. 1978, verslunarmaður
á Akureyri; Ragnheiður, f. 2.2. 1942,
kennari við Kvennaskólann í
Reykjavik; Hólmgrímur Kristján, f.
17.11.1955, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Guðmundar: Heiðrekur
Guðmundsson, f. 5.9. 1910, d. 1988,
skáld og verslunarmaður á Akur-
eyri, og k.h., Kristín Kristjánsdóttir,
f. 21.6. 1911.
Ætt
Meðal föðurbræðra Guðmundar
má nefna Bjartmar, skáld og fyrrv.
alþm. og hreppstjóra á Sandi, og
Þórodd, rithöfund og fyrram skóla-
stjóra.
Heiðrekur var sonur Guðmundar
Friðjónssonar, skálds og b. á Sandi í
Aðaldal.
Bróðir Guðmundar á
Sandi var Sigurjón,
skáld, alþm. og oddviti
að Litlu-Laugum, faðir
Halldóru, fyrrv. skóla-
stjóra, móður Kristínar
Halldórsdóttur, fyrrv.
alþm., og Halldórs, yfir-
læknis í Kristnesi. Sig-
urjón var einnig faðir
Arnórs skólastjóra,
Braga, fyrrv. alþm. og
ráðherra, og Unnar,
móður Inga Tryggvason-
ar, fyrrv. formanns
Stéttarsambands bænda.
Meðal annarra systkina Guðmund-
ar á Sandi má nefna Erling alþm. og
Áslaugu, móður Karls ísfelds rithöf-
undar. Guðmundur á Sandi var son-
ur Friöjóns, b. á Sílalæk, Jónssonar,
b. á Hafralæk, Jónssonar, b. á
Hólmavaði, Magnússonar, ættföður
Hólmavaðsættar, Jónssonar. Móðir
Guðmundar á Sandi var Sigurbjörg
Guðmundsdóttir, b. á Sílalæk, Stef-
ánssonar, b. á Sílalæk, Indriðason-
ar, ættföður Sílalækjarættar, Áma-
sonar.
Móðir Heiðreks var
Guðrún Lilja, dóttir
Odds, b. í Hrafnsstaða-
seli, Sigurðssonar, b. á
Hálsi í Kinn, Oddsson-
ar. Móðir Guðrúnar
Lilju var Sigríður
Gunnlaugsdóttir, b. í
Flögu í Hörgárdal,
Gunnlaugssonar.
Kristín er dóttir
Kristjáns, b. á Bergs-
stöðum, Davíðssonar,
b. í Hólakoti, ísleifsson-
ar, b. í Hólakoti, Magn-
ússonar, b. í Hólakoti,
Grímssonar, b. að Hafralæk, Björns-
sonar. Móðir Kristjáns var Guð-
björg Jónsdóttir „króks“, b. að Hall-
dórsstöðum í Reykjadal, Jónssonar,
b. í Miðgerði, Jónssonar, b. i Borg-
argerði, Kolbeinssonar.
Móðir Kristínar var Hólmfríður
Jakobsdóttir, af ætt Jóns Sigurðs-
sonar frá Breiðumýri.
Guðmundur og Magga Alda era
erlendis.
Guðmundur
Heiðreksson.
Gunnar Einarsson
-* Jóhann Gunnar Ein-
arsson, fyrrv. stöðvar-
stjóri hjá Pósti og síma
í Reykjavík, Hörgshlíð
8, Reykjavík, verður
sjötugur á morgun.
Starfsferill
Gunnar fæddist i
Reykjavík og ólst þar
upp við Laugaveginn.
Hann'stundaði nám við
Póst- og símaskólann,
lærði símvirkni og lauk
prófum í þeirri grein.
Gunnar starfaði nán-
ast allan sinn starfsferil
hjá Pósti og síma, var lengst af
stöðvarstjóri þar, fyrst í Hafnarfiröi
en síðan í Reykjavík.
Fjölskylda
Eiginkona Gunnars er Ólöf Hólm-
fríður Sigurðardóttir, f. 1.1. 1931,
lengst af fulltrúi hjá
Fasteignamati rikisins
og síöan hjá launadeild
fjármálaráðuneytisins.
Hún er dóttir Sigurðar
Sigurðssonar og Guð-
laugar Bjamadóttur
sem bæði era látin.
Böm Gunnars og
Ólafar era Þór Gunn-
arsson, dr. í lífeðlis-
fræði, starfar hjá Fiski-
stofu, kvæntur Sigrúnu
Sturludóttur, náttúru-
fræðingi hjá íslenskri
erföagreiningu og eiga
þau þrjú börn; Hrafn-
hildur Gunnarsdóttir, f. 17.5. 1964,
margmiðlunarfræðingur, búsett í
San Francisco í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum.
Systkini Gunnars: Katrin Einars-
dóttir, f. 21.7.1925, nú látin, húsmóð-
ir í Garðabæ, var gift Kristbimi
Borgþór Þórarinssyni kafara; Ingv-
ar Einarsson, f. 28.7.1926, símaverk-
stjóri í Kópavogi, kvæntur Önnu
Valgerði Gissurardóttur gæslu-
manni; Jón Egill Einarsson, f. 24.10.
1929, bifreiðarstjóri í Reykjavík,
kvæntur Hallfríði Guðmundsdóttur
lyfjatækni.
Foreldrar Gunnars vora Einar
Jónsson, f. 28.4.1892, símaverkstjóri
í Reykjavík, og k.h., Jóna Sigríður
Ingvarsdóttir, f. 29.9. 1896, d. 8.6.
1974, húsmóðir.
Ætt
Einar var sonur Jóns, bókbindara
og b. í Steinum undir Steinahlíð,
Einarssonar, b. í Steinum, Jónsson-
ar. Móðir Jóns var Þórunri Sveins-
dóttir.
Móðir Einars var Jóhanna Sigríð-
ur Magnúsdóttir, b. á Amgerðar-
stöðum í Fljótshlíð, Þorvaldssonar,
b. á Stóra-Klofa í Landsveit, Jóns-
sonar, b. í Helli, Jónssonar. Móðir
Þorvalds var Valgerður Jónsdóttir.
Móðir Jóhönnu var Steinunn Gísla-
dóttir.
Jóna Sigríður var dóttir Ingvars,
b. á Bjamastöðum, Guðbrandsson-
ar, b. í Vatnagerði og Miðdal, Árna-
sonar, b. í Galtalæk, Finnbogason-
ar. Móðir Guðbrands var Margrét
Jónsdóttir. Móðir Ingvars var Sig-
ríður Ófeigssonar, ættfóður Fjalls-
ættar, bróður Solveigar, langömmu
Guðnýjar, móður Guðlaugs Tryggva
Karlssonar. Móðir Ófeigs var Ing-
unn Eiríksdóttir, ættföður Reykja-
ættar, Vigfússonar.
Móðir Jónu Sigríðar var Katrín
Kristjánsdóttir Schrams, trésmiðs í
Öndverðarnesi Ellertssonar
Schrams, Christianssonar Schrams,
kaupmanns á Höfðaströnd. Móðir
Katrínar var Hallbjörg Guðmunds-
dóttir.
Gunnar er að heiman.
Gunnar Einarsson.
711 hamingju með afmælið 23. október
85 ára
Guðrún Samsonardóttir, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði.
80 ára
Arnþrúður Kaldalóns, Skipholti 64, Reykjavík.
75 ára
Magnús Guðmundsson, Tröð, Isafjarðarbæ.
70 ára
Guðrún Sigurjónsdóttir, Kóngsbakka 7, Reykjavik. Gunnhildur Jóhannsdóttir, Kirkjusandi 1, Reykjavík. Jón Ámi Sigfússon, Víkurnesi, Skútustaðahr. Kristín J. Sigurðardóttir, Holtagerði 38, Kópavogi. Ólöf Sigurðardóttir, Kársnesbraut 87, Kópavogi. Sigurðxu- Sigmarsson, Stórholti 6a, Akureyri.
60 ára
Ósk Óskarsdóttir, Heiðargerði 21, Vogum. Sigurjón Árdal Antonsson, Seilugranda 2, Reykjavík.
50 ára
Árni Haukur Brynjúlfsson, Lönguhlíð 9, Reykjavík. Bjarni Magnússon, Kvíholti 12, Hafnarfirði. Gunnar Valdimar Johnsen, verkfræðingur, Dalsbyggð 10, Garðabæ. Þorsteinn Ámason, Yrsufelli 8, Reykjavík.
40 ára
Björn Gísli Bragason, Borgarheiði 5h, Hveragerði. Guðmundur Kristján Jónsson, Fálkagötu 12, Reykjavík. Halldóra Margrét Svavarsdóttir, Æsufelli 6, Reykjavík. Hrönn Jónsdóttir, Nátthaga 12, Sauðárkróki. Lovísa Heiðarsdóttir, Eyjahrauni 5, Þorlákshöfn. Nanna Björg Benediktz, Fannafold 160, Reykjavík. Ólafur Barði Kristjánsson, Hvammsgerði 6, Reykjavík. Ólafur Ólafsson, Hverafold 118, Reykjavík. Ruth Melsted, Tjarnarbóli 14, Seltjarnamesi. Stefán Laxdal Aðalsteinsson, Langholtsvegi 73, Reykjavík. Sæmundur Ólason, Hellu, Grímsey. Vignir Kristjánsson, Leiratanga 4, Mosfeflsbæ.
wamma
Dýr kurma «Md umferöarreglur.
Höldum Þeim frá vesunum.
ya;rR°,,<
httpv'/Www.umferd.ls