Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1999, Side 61
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999
Bjargræðistríóið flytur söngtexta
Jónasar Árnasonar í Kaffileikhús-
inu.
r
Oskalög landans
Kafíileikhúsið mun í vetur
standa fyrir tónleikaröð sem heitir
og inniheldur Óskalög landans.
Þema tónleikanna verða íslenskir
höfundar. Fyrsta kvöldið var til-
einkað söngtextum Jónasar Árna-
sonar, m.a. úr hinum síelskuðu
leikritum, Þið munið hann Jörund,
Delerium Bubonis, Allra meina bót
og Járnhausnum. Vegna fjölda
áskorana verða tónleikamir endur-
teknir í kvöld, kl. 20. Mörg þessara
Tónleikar
laga voru geysivinsæl í flutningi
sönghópsins Þrjú á palli en á fóstu-
dagskvöldið er það hópur sem kall-
ar sig Bjargræðistríóið sem flytur
lögin. Hópinn skipa Aðalheiður
Þorsteinsdóttir, píanó, Anna Sigríð-
ur Helgadóttir, söngur, og Örn Arn-
arsson, gítar, en þó mun að auki
heyrast í ýmsum öðrum hljóðfær-
um og söngröddum og þá mun
Bjargræðistríóið fylgja eftir húmor
og gleði laganna.
Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna
Á morgun, kl. 17, heldur Sinfón-
íuhljómsveit áhugamanna tónleika
í Neskirkju. Stjómandi á tónleikun-
um er Gunnsteinn Ólafsson og ein-
leikari á selló er Sigurður Halldórs-
son. Á efnisskránni er konsert fyrir
seOó og hljómsveit eftir Edward
Elgar og sinfónía í d-moU eftir Cés-
ar Franck. Þetta eru fyrstu tónleik-
ar á tíunda starfsári Sinfóníuhljóm-
sveitar áhugamanna. Sveitina skip-
ar áhugafólk í hljóðfæraleik, auk
nokkurra tónlistarkennara og nem-
enda. Hljómsveitin kemur fram op-
inberlega nokkrum sinnum á ári,
ýmist á sjálfstæðum tónleikum,
með kóram eða við önnur tækifæri.
Diddú og
Skálholtskórinn
Á tónleikum í
Fríkirkjunni á
morgun, kl. 16,
mun Sigrún
Hjálmtýsdóttir
flytja ásamt Skál-
holtskórnum Qöl-
breytta dagskrá
með kirkjulegri
og veraldlegri tónlist. Dagskráin
er hluti dagskrár sem flutt var á
tónleikaferðalagi í Frakklandi og
á Ítalíu. Á tónleikunum verða
meðal annars flutt eftirtalin verk:
Hallelújakórinn úr Messíasi,
Hear My Prayer eftir Mendels-
sohn og dúett sem hjónin Diddú
og ÞorkeU Jóelsson flytja.
Kór Snælandsskóla
Kór Snælandsskóla heldur tón-
leika í Salnum í Tónlistarhúsi
Kópavogs í dag, kl. 16. Tónleik-
arnir eru útgáfutónleikar geisla-
disks sem kórinn vann að síðast-
liðiö vor og kemur út um þessar
mundir. Á diskinum, sem nefnist
„Fagur er Fossvogsdalur", eru 19
lög, bæði innlend og erlend.
Stjómandi Kórs Snælandsskóla
er Heiðrún Hákonardóttir.
w
Arnesingakórinn
Náttmál er nafn á nýrri geisla-
plötu Ámesingakórsins í Reykja-
vík. Efnisskrá plötunnar er fjöl-
breytt úrvM íslenskra og erlendra
laga, allt frá hefðbundnum kórlög-
um til kirkjulegra verka. Á tón-
leikum í Bústaðakirkju í dag, kl.
16, mun kórinn kynna lögin. Að-
gangur er ókeypis.
Skúrir eða slydduál
Norðvestan 8-13 m/s og skúrir
eða slydduél norðaustan til fram að
hádegi en annars hæg breytileg átt
Veðrið í dag
og víðast léttskýjað. Hiti 2 til 8 stig,
hlýjast sunnan til.
Höfuðborgarsvæðið: Hæg aust-
læg átt, léttskýjað og hiti 5 til 8 stig.
Sólarlag í Reykjavik: 18.06
Sólarupprás á morgun: 08.22
Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.51
Árdegisflóð á morgun: 11.28
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri léttskýjaö 3
Bergstaðir léttskýjaö 4
Bolungarvík alskýjað 6
Egilsstaðir 8
Kirkjubœjarkl. skýjaó 8
Keflavíkurflv. skýjaö 8
Raufarhöfn skýjað 6
Reykjavíit skýjað 9
Stórhöfði rigning 8
Bergen skýjað Helsinki 8
Kaupmhöfn alskýjað 7
Ósló skýjað Stokkhólmur 6
Þórshöfn skúr 8
Þrándheimur hálfskýjaó 7
Algarve skýjað 21
Amsterdam rign. á síð. kls. 11
Barcelona skýjaö 22
Berlín hálfskýjað 11
Chicago heiðskírt 9
Dublin skúr á síó. kls. 13
Halifax lágþokublettir 4
Frankfurt skýjaö 13
Hamborg skýjaö 10
Jan Mayen skýjað 4
London skýjað 16
Lúxemborg skýjað 11
Mallorca skýjað 23
Montreal heiðskírt 8
Narssarssuaq skýjaö 1
New York hálfskýjaö 11
Orlando hálfskýjaö 17
París rigning 13
Róm hálfskýjað 20
Vín skýjaö 8
Washington þokumóöa 4
Winnipeg skýjaö 1
Listasafn íslands:
Norðurljós
Á morgun hefst í Listasafni ís-
lands tónlistarhátíð Musica Ant-
iqua, Norðurljós, með tónleikum
hins kunna strengjakvartetts Qu-
atuor Mosai'ques sem hingað kem-
ur sérstaklega af þessu tilefni.
Kvartettinn er löngu orðinn þekkt-
ur fyrir túlkun sína á verkum
Skemmtanir
klassísku meistaranna Haydns,
Mozarts, Beethovens, Schuberts,
Schumanns og fleiri. Quatuor
Mosa'iques skipa Erich Höbarth og
Andrea Bischof fiðluleikarar,
Anita Mitterer lágfiðluleikari og
Christophe Coin sellóleikari og
em þau þrjú fyrstnefndu frá Aust-
urríki en sá síðastnefndi frá
Frakklandi. Þau hafa haldið tón-
leika víða um heim, gefið út um
tuttugu geislaplötur sem hlotið
hafa lof gagnrýnenda.
Tríó Sipurðar Flosa-
sonar i Múlanum
Annað kvöld er þriðja djass-
kvöld Múlans á haustönn. Þá mun
Tríó Sigurðar Flosasonar stíga á
svið í Sölvasal á Sóloni íslandusi
þar sem Múlinn hefur aðsetm- sitt.
Tríóið mun leika meira og minna
þekkta djassstandarda í opnum og
frjálslegum útsetningum. Tríóið
skipa Sigurður Flosason á altosax-
ófón, Matthías Hemstock á tromm-
ur og Þórður Högnason á kontra-
bassa. Þeir hafa leikið saman í
ýmsum hljómsveitum um árabil
en koma nú fram sem tríó í fyrsta
sinn. Eins og áður hefjast tónleik-
amir kl. 21.
Strengjakvartettinn Quatuor Mosa'iques sem leikur í Lístasafni íslands á
morgun.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 2535:
Trjákrónur
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
dagsönn ™
Noeleen Heyser, framkvæmda-
stjóri UNIFEM, flytur ávarp á Hótel
Loftleiðum..
UNIFEM á degi
Sameinuðu þjóðanna
Til landsins er kominn fram-
kvæmdastjóri alheimssamtaka
UNIFEM, Noeleen Heyser.
Hún mun verða heiðursgestur á
hátíðarmorgunverðarfundi á
morgun, degi Sameinuðu þjóð-
anna, sem haldinn verður í Vík-
ingasal Hótel Loftleiða kl. 10.30.
Formaður UNIFEM á íslandi, Sig-
ríöur Margrét Guðmundsdóttir,
setur fúndinn, því næst er ávarp
Samkomur
Noeleen Heyser. Þá verður brot
úr dansinum ÆSA-ljóð um stríð
eftir Lára Stefánsdóttur við tón-
list eftir Guðna Franzson. Meðal
annarra atriða má nefna að þrír
tónlistarmenn frá Afríku leika á
ásláttarhljóðfæri og Sigriður
Dúna Kristmundsdóttir segir frá
ráðstefnunni, Konur og lýðræði,
og svarar fyrirspurnum.
■v
Marcus og Karen Hilton dansa á af-
mælishátíðinni í Laugardalshöll.
Tíu ára afmælishátíð
Dansskóli Jóns Péturs og Köru
stendur fyrir glæsilegri danskeppni
og sýningu í Laugardalshöllinni í
dag. Danskeppni þessi er haldin K
tilefni af tíu ára afmæli skólans.
Keppt verður í öllum aldursflokk-
um. Margfaldir heimsmeistarar,
Marcus og Karen Hilton frá
Englandi, koma fram með stórglæsi-
Dans
legt sýningaratriði. Hér er um aö
ræða frægasta og eftirsóttasta
danspar í heiminum sem enginn
dansunnandi getur látið fram hjá
sér fara. Auk danskeppninnar fer
fram úrtökumót í suður-amerískum
dönsum i flokki áhugamanna, 16-34
ára, fyrir Evrópumeistaramót sem
haldið verður í febrúar árið 2000. *
Gengið
Almennt gengi LÍ 22. 10. 1999 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 70,040 70,400 72,410
Pund 117,580 118,180 119,320
Kan. dollar 47,220 47,520 49,450
Dönsk kr. 10,1760 10,2320 10,2100
Norsk kr 9,0990 9,1490 9,2890
Sænsk kr. 8,6360 8,6830 8,7990
Fi. mark 12,7209 12,7974 12,7663
Fra. franki 11,5305 11,5998 11,5716
Belg. franki 1,8749 1,8862 1,8816
Sviss. franki 47,4300 47,6900 47,3400
Holl. gyllini 34,3218 34,5280 34,4441
Þýskt mark 38,6717 38,9041 38,8096
ít. líra 0,039060 0,039300 0,039200
Aust. sch. 5,4966 5,5297 5,5163
Port. escudo 0,3773 0,3795 0,3786
Spá. peseti 0,4546 0,4573 0,4562
Jap. yen 0,663400 0,667400 0,681600
írskt pund 96,037 96,614 96,379
SDR 97,750000 98,340000 99,940000
ECU 75,6400 76,0900 75,9000
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270