Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Blaðsíða 7
ekkert rninm
Myndir: {■
Kiístjál,
HERNAM ISLANDS I NYJU LJOSI
I bókinni Bretarnir koma lýsir dr. Þór White-
head á lifandi hátt einhverjum örlagaríkustu
vikum íslandssögunnar. Hann styðst við
upplýsingar úr innsta hring og byggir á fjöl-
mörgum skjölum sem ekki hefur verið vitnað til
áður. Þór hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin
fyrir síðustu bók sína um ísland í síðari heims-
styrjöld, Milli vonar og ótta.
OPINSKA OG HRESSILEG BOK
Ólafur Ólafsson segir í bráðskemmtilegum
og fróðlegum endurminningum sínum
frá eftirminnilegu fólki, atburðum og mál-
efhum ffá löngum og stormasömum ferli.
Hann er einlægur og opinskár, einnig gagn-
rýninn, en á afar auðvelt með að sjá broslegu
hliðarnar - jafhvel á alvarlegustu málum.
Bók sem vekur athygli!
VISNABOK GUÐRUNAR
Guðrún Helgadóttir sýnir á sér nýja hlið í bókinni
Handagúndavél og ekkert minna! Texti bókarinnar
er allur í bundnu máli með skemmtilegu rími sem
börnin hafa gaman af. Hér fær einstök kímni
Guðrúnar að njóta sín en einnig skörp sýn á tilveru
bamanna. Falleg bók, skreytt vönduðum
litmyndum eftir Freydísi Kristjánsdóttur.
FlÐmDANNA
OLAjy* ióhann
ÓIAFSSON
„SANNARLEGA ÓMISSANDI“
í öðru bindi ævisögu Steingríms Hermannssonar er fjallað
um litríkan stjórnmálaferil hans og hlífir hann hvorki sjálfum
sér né öðrum. „Enn á ný hefur Degi B. Eggertssyni tekist að
gera ákaflega fróðlega og skemmtilega bók um Steingrím
Hermannsson þar sem kostir þessa merka stjórnmálamanns,
ekki síður en gallarnir, birtast Ijóslifandi. Hún er sannarlega
ómissandifyrir alla sem hafa snefil af áhuga á stjórn-
málum.“~ Össur Skarphéðinsson, DV
BOK SEM MÆLT ER MEÐ
Slóð fiðrildanna eftir Ólaf Jóhann Ólafsson hefur
hlotið einróma lof gagnrýnenda, auk þess sem
útgáfuréttur á henni hefur nú þegar verið seldur
til Bandaríkjanna og Bretlands. Þetta er örlaga-
saga íslenskrar konu sem fléttuð er inn í sögu
Evrópu um miðja öldina.
„Eg rtiœli eindregið meðþessari bók.“ A
- Kolbrún Bergþórsdóttir, Degi
s| “S “‘"l FCí j i “V
_ L lak-.,-
I