Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Blaðsíða 58
LAUGARDAGUR 24. JUNI 2000
DV
Tilvera
11 f iö
WT?Wr fr vJJfc *m. Hj... u
■ BYLGJULESTIN A SELFOSSI
Það er alltaf húllumhæ og sjúddiræ
þegar Bylgjulestin kemur { bæinn.
Nú er henni parkerað fyrir framan
Inghól á Selfossi.
■ JÓNSMESSUGANGA í ÖND-
VERÐARNES Þór Vigfússon,
Straumum í Olfusi, leiðir Jóns-
messugöngu í Öndverðarnes með
sögum, fróðleik og skemmtilegheit-
um í dag kl. 14-16. Lagt verður upp
frá Alviöru og þar verður boðið upp
i»> á kakó og kleinur að göngu lokinni.
■ MENNINGARDAGUR BARNA
Karlinn í tunglinu - menningardagur
barna er haldin hátíölegur á Seyöis-
firði. Opnuð verður sýning á al-
heimsverkefninu Karlinn í tunglinu -
börnin á jörðinni í Skaftfelli. Menn-
ingarmiöstöö kl. 11 um morguninn.
Kabarett
■ HUNbÁSÝNING Á ÁKUREYRI Nú
um helgina verður hin árlega hunda-
sýning Hundaræktarfélags íslands
og svæðpfélags HRFÍ haldin á Norð-
urlandi í íþróttahöllinni á Akureyri.
Alls verða sýndir 170 hundar af 30
tegundum og hefst sýningin klukkan
10. Keppni ungra sýnenda verður í
dag um klukkan 15.
T
Opnanir
■ GALLERI HLEMMUR Kl. 16 opn-
ar Ragnar Gestsson sýningu á
vinnubeltum með ofhlaðin notagildi.
Sýningin stendur til 16. júlí og gall-
eríið er opiö fimmtudaga til sunnu-
daga frá 14-18.
■ GULA HÚSIÐ Ásmundur Ás-
mundsson opnar í Gula húsinu, á
horni Frakkastígs og Lindargötu,
myndlistarsýningu kl. 16.
■ LISTASAFN ÍSLANDS I Listasafni
íslands er veriö aö opna sýningu á
úrvali íslenskra verka í eigu safns-
ins.
Síðustu forvöð
■ HLATURGAS A EGILSSTOÐUM
Farandsýningin Hláturgas er að klár-
ast á Heilbrigðisstofnun Egilsstaða.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísl.is
Fjölskyldudagur
í Laugardal
í tilefni þess að sumaríþrótta-
vikuimi, sem haldin er í sam-
starfl við Íþróttahátíð ÍSÍ og fjöl-
marga aðra skipuleggjendur,
lýkur 1 dag verður haldinn Fjöl-
skyldudagur í Laugardalnum.
Frítt verður inn í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn. Fjöllistamenn,
tónleikar og götuleikhús í Laug-
ardalnum.
Djass
■ DJASS A JOMFRUNNI Tríó saxó
fónleikarans Siguröar Rosasonar
kemur fram á fjórðu sumartónleik-
um veitingahússins Jómfrúrinnar við
Lækjargötu frá kl. 16-18. Aðrir með-
limir tríósins eru Hommond-orgel-
leikarinn Þórir Baldursson og
trommuleikarinn Pétur Östlund en
hann kemur hingað tillands sérstak-
lega til aö taka þátt í stuttri tónleika-
ferð tríósins.
Klassík
■ HARMONIKUTONLEIKAR I
NORDWEST Harmónikutónleikar
Léttsveitar Harmonikufélags
Reykjavíkur verða um borð í sýning-
arskiplnu Nordwest í dag kl. 14.30.
Sveitin
Er maöur svingsins
- segir Geir Ólafsson sem fer á vit klassískra dægur- og djasslaga
„Það má segja að það hafi ver-
ið stór stund í lífi mínu þegar ég
fékk fyrst tækifæri til að syngja
með Ragga Bjarna og ekki var
verra að hljómsveitin á bak við
okkur skyldi vera sú sögufræga
sveit KK-sextettinn,“ segir Geir
Ólafsson söngvari en hann
ásamt Ragnari Bjarnasyni og
hljómsveitinni Furstunum
skemmtir á Naustkránni i kvöld
og hefja þeir leik kl. 22.30. Geir,
sem hefur vakið athygli á undan-
förnum misserum fyrir söng og
að fara aðrar leiðir en ungir
söngvara á hans aldri, hefur
haldið sig við þekkt djasslög sem
söngvarar á borð við Frank
Sinatra, Tony Bennett og Nat
King Cole gerðu ódauðleg á sín-
um tíma, lofar miklu stuði í
kvöld og segir að það sé nóg
pláss i Naustkránni fyrir dans-
þyrsta íslendinga sem vilja tjá
sig í sveiflunni. í Furstunum eru
þaulreyndir tónlistarmenn af
sömu kynslóð og Ragnar Bjarna-
son, Árni Scheving á bassa, Carl
Möller á píanó, Þorleifur Gísla-
son á saxófón og Guðmundur
Steingrímsson á trommur, allt
þekktir spilarar sem eru jafnvíg-
ir á dægurlög og djass.
Þetta er í þriðja sinn sem þeir
Geir og Ragnar troða upp saman
og er Geir spurður hvernig
standi á því að tónlistarsmekkur
þeirra fari svona vel saman, þeir
eru jú sinn af hvorri kynslóð-
inni. „Það var mikið spilað af
djassplötum á heimili mínu í
æsku og einnig mikið talað um
djass, svo segja má að ég hafi
fengið djassinn beint í æð frá því
ég hóf að geta tjáð mig. Ég fór
síðan sjálfur snemma að hlusta á
söngvara á borð við Frank
Sinatra og hreifst af lögum sem
hann söng. Ég lagði einnig eyr-
um við íslenskum söngvurum
sem voru á þessari línu og segja
má að þar séu fyrirmyndir mín-
ar Ragnar Bjarnason og Haukur
Morthens og hef ég lært mikið af
þeim og má segja að þeir hafi að
hluta mótað minn söngstíl. Að
undanförnu hef ég einnig verið í
tímum hjá Sverri Guðjónssyni
söngvara sem hefur kennt mér
ýmislegt og þjálfað mig og hef ég
haft mjög gott af því.“
Geir fer ekki varhluta af því
að hann er ekki á sömu línu í
tónlistinn og jafnaldrar hans:
„Maður verður var við að sumir
jafnaldrar mínir eiga erfitt með
að skilja val mitt á lögum, en ég
verð að segja eins og er, ég hef
mestan áhuga á þessari tónlist,
er fyrir sving og djass. Sú tónlist
sem ungt fólk hlustar mest á í
dag heillar mig ekki og mun ég
því halda ótrauður áfram á sömu
braut og ég er.“
Geir hefur komið viða fram og
meðal annars sungið í Banda-
ríkjunum: „Ég hef með Furstun-
um, sem hafa ekki haft svo lítil
áhrif á mig, sungið víða og í dag
erum við eftirsóttir við ýmis
tækifæri. Þá hef ég verið að
reyna fyrir mér í Bandaríkjun-
um með ágætum árangri, er
kominn í samband við spilara
sem ég hef sungið með og það er
engin spurning í huga mér, ég
stefni á að koma mér áfram vest-
anhafs, hvenær sem það verður."
Á siðasta ári og þessu hefur
Geir verið að vinna að sinni
fyrstu plötu í rólegheitum: „Þeg-
ar maður stendur í þessu sjálfur
er þetta dýrt fyrirtæki og eins
gott að fara rólega i hlutina. Ég
er mjög ánægður með það sem ég
er búinn að gera, en á sumt eftir
ógert, en platan kemur út, það er
aðeins spurningin um tíma og
fjárráð hvenær verður af því.“
-HK
Salurinn:
Þrír brasilískir sellóleikarar
Geir Ólafsson og Ragnar Bjarnason.
Tvær kynstóöir söngvara sem eru á sömu slóöum í tónlistinni.
Geir Ólafsson og Ragnar Bjarnason skemmta á Naustkránni í kvöld:
í mars 1985 hittust þrír sellóleik-
arar, Marcio Carneiro, Matias de
Oliveira Pinto og Peter Dauelsberg,
í stóra sal UNESCO í París. Þar
voru fyrsta og Fimmta Bachiana
Brasileiras leiknar á tónleikum í til-
efni 100 ára ártíðar Heitor Villa-
Lobos. Tónlistarmennimir sem léku
voru allir brasilískir sellóleikarar,
búsettir í Evrópu. Cameiro er pró-
fessor við Tónlistarháskólann í Det-
mold, de Oliveira Pinto kennir við
Listaháskólann í Berlín (HDK) en
Dauelsberg gegnir kennarastöðu við
Ríkisháskólann í Sáo Paulo. Gleðin
og samlyndið í listinni, sem og á
mannlega sviðinu, gaf listamönnun-
um þremur tilefni til ferkari sam-
vinnu og Cello Trio varð til.
Þó í upphafí hafl vinnan ein-
göngu verið helguð ánægjunni af
samspilinu fengu þeir strax á fyrsta
árinu tónleikatilboð sem á næstu
Cello Trio
Marcio Carneiro, Matias de Oliveira Pinto og Peter Dauelsberg,
þrír brasilískir sellóleikarar.
árum þróuðust yflr í tónleikaferðir.
Þetta varð til þess að í dag heldur
Sellótríóið reglulega tónleika í Evr-
ópu og einnig árlega í Brasilíu.
í dag mun þetta þekkta sellótríó
halda tónleika í Salnum, Kópavogi,
og hefjast þeir kl. 17. Efnisskráin
spannar frá Bartock, klassísk og
rómantísk verk yfir í nútíðina (verk
í upprunanlegri en einnig i eigin út-
setningu). Sérstök áhersla er lögð á
tónlist Suður-Amerískra tónskálda
(Krieger, Miranda, Zenamon,
Medaglia, Villa-Lobos, Piazolla).
Auk þess er efnisskráin stöðugt
bætt með verkum nútima evrópskra
tónsmiða.
Fyrsta geislaplata tríósins var
gefln út 1995. í vor var önnur geisla-
plata tríósins tekin upp í tilefni af
500 ára afmæli Brasilíu og eru á
henni eingöngu verk eftir brasilísk
tónskáld.