Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2000, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2000
27
DV
Helgarbláð
Jónsmessan býr yfir kynngimögnuðum krafti:
Talandi kýr, óskasteinar
og gjafir frá huldufólki
Jónsmessunótt, aðfaranótt 24.
júni, telst vera ein þeirra fjögurra
nátta sem taldar eru hvað magn-
aðastar í íslenskri þjóðtrú og þá
geta ýmsir dularfullir atburðir
gerst. Hinar næturnar eru jólanótt,
nýársnótt og þrettándanótt. Það er
reyndar ekki bara á Islandi sem
Jónsmessan er talin sérstök því
þjóðtrú tengd nóttinni er að finna
víða í Evrópu.
Upphaflega var Jónsmessan fom
sólhvarfahátíð í Róm en breyttist
síðar í Jónsmessu, messu Jóhannes-
ar skírara. Hér á landi var Jóns-
messan í tölu helgidaga til 1770. I
Suður-Evrópu var Jónsmessan mik-
il alþýðuhátíð með brennum, dansi,
nomamessum og kynsvalli. Hér á
landi var hátíðarhaldið mun minna.
Ekki var hægt að sóa þessum litla
eldivið sem til var í brennur og þar
sem sumarnóttin er svo björt hér á
Fróni þá voru engar illar vættir og
djöflar á ferðinni á Jónsmessunótt
eins og suður í Evrópu þar sem þeir
sækja mest í myrkrið.
Yfirnáttúrlegir steinar
Hjátrú tengd Jónsmessunni sem
hefur verið hvað sterkust hér á
landi er sú að það eigi að vera ein-
staklega heilnæmt að baða sig upp
úr dögginni þessa nótt. Öll manns
mein eiga þá að hverfa en til þess að
döggin virki verður maður að láta
hana þorna af sjálfu sér á líkaman-
um. Fleiri sögur af töfrum
þessarar nætur eru m.a
þær að upp úr tjömum
eigi að fljóta yfimáttúr-
legir steinar sem menn
geta nælt sér í séu þeir
nógu glúrnir. Hægt á að
vera að finna
lausnarsteina sem
geta hjálpað kon-
um í barnsnauð,
óskasteina sem
uppfyfla allar óskir
manns, varnar-
steina sem vemda
mann gegn sér-
hverju illu, líf-
steina sem nota má
til að græða sár og
hulinshjálmssteina
sem gera menn
Já, Búkolla mín,
slettum við ekki
síðast úr klaufun
um á nýársnótt?
firði, Baula í Borgarfirði og Kofta
við Álftafjörð.
Það er einnig gott að tína ákveðn-
ar grastegundir þessa nótt. Ber þar
helst að nefna brönugras sem vakið
getur ástameista milli tveggja ein-
staklinga og einnig leyst hjóna-
-
r
Langt síðan maður
heyrði síðast í þér,
Rauðka!
v__________
ósýnilegan. Ekki er
auðvelt að finna
þessa steina en
fjöll sem þessir
steinar hafa fund-
ist á eru m.a
Tindastóll í Skaga-
bandserjur. Fjögurra blaða smára
er einnig auðveldara að finna á
Jónsmessu en ella og ef maður finn-
ur einn slíkan þá getur maður próf-
að að bera hann að læstum dyrum
og eiga þær þá að ljúkast upp.Aðrar
jurtir með yfimáttúrlegan kraft eru
t.d mjaðurt sem sagt er að geti
komið upp um þjófa og grídus
sem hjálpar manni að dreyma það
sem manni leikur forvitni á.
Gull og gersemar
Einn af þeim átrúnaði sem er
sameiginlegur með Jónsmessu
og hinum þremur kynngimögn-
uðustu nóttum ársins er sá að
kýr tali, selir fari úr hömum sín-
um og að útiseta á krossgötum
gefist vel. Sitji maður á krossgöt-
um þessa nótt á maður t.d að
geta komist í samband við fram-
liðið fólk og fengið að heyra um
óorðna hluti. Einnig getur
huldufólk sem stendur í búslóða-
flutningum orðið á vegi manns
og boðið manni gufl og gersemar
svo það komist fram hjá. Þá er
um að gera að svara því engu
heldur þegja eins og steinn og
sitja sem fastast til morguns ef
maður ætlar sér að hreppa eitt-
hvað af góssinu.
-snæ
verð
Sjónvarp 10”
12/220v sv/hv
9^90.
Borðvifta
Þráðlaus síini með
númerabirti og minni
Skráðu þig
í vefklúbbinn
www.husa.is
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is