Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2000, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
Fréttir_____________________________________________DV
Ólympíuleikarnir í Sydney voru settir í gærmorgun:
Eydís ríður á vaðið
- sundkeppni Ólympíuleikanna hefst í dag
DV-MYND PJETUR
Brian Marshall sundþjálfari var á fullu aö fylgjast með íslenska sundfólkinu í gær. Eydís Konráösdóttir syndir fyrst
allra í dag.
DV, SYDNEY:________________________
Það verður Eydís Konráðsdóttir
sundkona sem verður fyrst íslensku
keppendanna til að keppa á Ólymp-
Fæst i Apótekinu, Lytju, Lyl og heilsu og apðtekum landsins.
íuleikunum í Sydney en hún syndir
í 100 metra flugsundi sem er þriðja
sundgreinin á fyrsta opinbera
keppnisdegi leikanna. Hjalti Guð-
mundsson syndir einnig á fyrsta
degi en hann tekur þátt í 100 m
bringusundi
„Já, stóra stundin er runnin upp
og það verður Eydís sem ríður á
vaðið,“ sagði Benedikt Sigurðarson,
flokksstjóri islenska sundlandsliðs-
ins og formaður sundlandsliðsins, í
samtali við DV eftir síðustu æflngu
fyrir stóru stundina.
„Þetta leggst bara vel í mig. Við
erum búin að vera hér í um tvær
vikur, æft vel og sloppið við meiri
háttar áföll vegna tímamismunar og
því höfum við fulla ástæðu til að
vera bjartsýn. Það hefur aðeins bor-
ið á því að smákveisur hafi verið að
angra okkur, en ekkert alvarlegt,"
segir Benedikt.
Brian Marshall landsliðsþjálfari
er hæfilega bjartsýnn. „Ég er
ánægður ef sundfólkið getur sagt
eftir að það kemur upp úr að það
hafi gefið allt 1 þessa keppni og það
er mitt að sjá til þess að það gefi allt
í keppnina. Ef þetta rætist kemur
hitt á eftir og við getum farið að
líta á klukkuna og bera okkur að
einhverju leyti saman við aðra
keppendur.
Það er greinilegt að Brian bindur
helst vonir sínar við Öm Arnarson.
„Öm hefur auðvitað möguleika á
að komast í undanúrslitin en við
verðum að stíga eitt skref í einu og
hugsa fyrst um riðlakeppnina.
Hann er alveg ákveðinn í því að ná
góðum árangri hér í Sydney en við
vitum náttúrlega ekkert hvemig
keppinautarnir koma til leiks. Sem
dæmi getur Öm átt frábært sund en
samt ekki komist í úrslitin því
sundið er þannig að viðkomandi
getur aðeins gert sitt besta og það
fer svo eftir því hvað aðrir gera
hvar þeir lenda í röðinni. Þetta er
ekki eins og fótbolti."
Það er ljóst að það er á brattann
að sækja, bæði fyrir Eydísi og
Hjalta, og þaö eru miklar líkur á þvi
þau hafi lokið keppni á hádegi á
morgun en undanúrslit og úrslit
fara fram annað kvöld. Bæði þurfa
þau að öllum líkindum að synda á
tíma sem er talsvert frá því besta
sem þau hafa gert hingað til.
-PS
Krafturinn liggur í vatninu!
Landsvirkjun cskar Ólympíuland&liðinu í sundi gcðs gengis í Sidney