Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2000, Síða 57
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
65
DV
Tilvera
Afmælisbörn
Lauren 76 ára
Hollywood-gyðjan Lauren Bacall
fæddist þennan dag árið 1924.
Lauren lætur aldurinn ekki aftra sér
frá störfum og stundar enn sjón-
varps- og kvikmyndaleik. Eins og
flestir vita var Lauren gift frægasta
kvikmyndaleikara fyrr og síðar,
sjálfum Humphrey Bogart.
Anne 69 ára
Bandaríska leikkonan Anne
Bancroft nálgast sjötugt óðfluga en í
dag heldur hún upp á 69 ára afmæl-
ið. Anne hefur unnið marga leik-
sigra á löngum ferli sínum. Einna
skærast skein stjarna hennar í kvik-
myndinni Mrs. Robinson, þar sem
hún lék titilhlutverkið.
Stjörnuspá
Gildir fyrir sunnudaginn 17. september og mánudaginn 18. september
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.t
Spá sunnudagsins 3 ! Spá sunnudagsins
Þú hefur lengi beðið
eftir því að geta lokið
einhverju og núna er
líklegt að þú náir þeim áfanga.
Spa mánudagsins
Þó þú heyrir orðróm um einhvem
sem þú þekkir ættirðu að taka
honum með fyrirvara. Happatölur
þínar em 5, 19 og 23.
Hfúturinn (21. mars-19. anrih:
m
Spá sunnudagsins 3 í 1 Spá sunnudagsins
Þú ert í góðu jafhvægi
og ættir að eiga auð-
velt með að tala við
fólk og fá það til að hjálpa þér.
Dagurinn verður hamingj urikur
Fyrri hluti dagsins kemur þér á
óvart. Þú þarft að glíma við óvenju-
legt vandamál. Þú verður þreyttur í
kvöld og ættir að taka það rólega.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúni):
Viðkvæmni gætir í fari
wmJ/ vinar þíns og þú þarft
að sýna varkámi í um-
gengni við hann. Þú ættir að eyða
deginum í friði og ró.
Vertu þolinmóður þó að þér Hnn-
ist vinna annarra ganga of hægt.
Það væri góð hugmynd að hitta
vini í kvöld.
Liónið (23. iúlí- 22. áeústl:
r Dagurinn verður
skemmtilegur og þú
hefúr meira en nóg að
gera. Samband þitt við vin þinn er
þér ofarlega í huga.
Spá mánudagsins
Reyndu að halda þig við áætlanir þinar
og vera skipulagöur. Þér bjóðast góð
tækifæri í vinnunni og er um að gera
að grípa gæsina á meðan hún gefst.
Vogin (23. sept.-23. okt.l:
Vertu varkár í við-
\f skiptxun og forðastu að
' JF lofa upp i ermina á
þér. Það er mikilvægt að vera
stundvís.
Fréttir sem þú færð em ákaflega
ánægjulegar fyrir þig og þlna nán-
ustu. Hætta er á smávægilegum
deilum seinni hluta dagsins.
Bogamaður 122. nóv.-21. des.l:
Spá sunnudagsins:
" Einhver þarfhast hjálp-
! ar og leitar til þín. Ef
[ þú sérð þér ekki fært að
veita aðstoð ættirðu að minnsta
kosti að sýna skilning á aðstæðum.
Spá mánudagsins
Viðbrögð þín við því sem þér er
sagt eru mikilvæg. Ekki vera of
gagnrýninn það gæti valdið mis-
skilningi.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsi:
s
• Þessi dagur hentar vel
til að greiða úr deilu-
málum og leiðrétta mis-
skilning sem gæti hafa komið upp.
Happatölur þínar em 12,15 og 27.
Spá mánuriagsins
Dagurinn verður viðburðarríkur og
þú hefur meira en nóg að gera.
Gættu þess að vera ekki of tortrygg-
inn. Happatölur þinar eru 1, 5 og 37.
Nautið (20. apríl-20. maU:
i
Þú flnnur fyrir þrýst-
/ ingi frá vinum sem
W.# vilja stuðning þinn í
ákveðnu máli. Vertu eins hlutlaus
og þú getur.
Spa manuriagsms
Þú þarft að einbeita þér að einka-
málunum og rækta samband þitt við
manneskju sem þú ert að fjarlægj-
ast. Kvöldið verður ánægjulegt.
Krabbinn (22. iúní-22. iúlí):
| Eitthvað kemur þér á
óvart og það gæti haft
í for með sér einhverja
spennu eða ævintýri. Kvöldið
verður skemmtilegt.
Eitthvað sem þú vinnur að um þessar
mundir gæti valdið þér hugarangri.
Taktu þér góðan tima í að íhuga hvað
gera skal. Þú færð bráðlega góðar fréttir.
Mevian (23. ágúst-22. sept.):
/\\AA Þú hugar að fjármál-
^A^unum og kemst að ein-
' hverju óvæntu. Lifðu í
nútlðinni og horfðu ekki of mikið
til liðinna tíma.
Spa mánudagsins:
Ekki taka mark á fólki sem er
neikvætt og svartsýnt. Dagurinn
verður skemmtilegri en þú bjóst
við, sérstaklega seinni hluti hans.
Sporðdreki (24. okt.-21. nnvl:
Spá sunnudagsins
Flókið mál verður á
I vegi þínum 1 dag og
1 það er mikiivægt að
hugsa skýrt. Reyndu að ftnna auð-
veldustu lausnina á málinu.
Spá mánudagsins
í dag gætu ólíklegustu aðilar loks-
ins náð samkomulagi um mikil-
væg málefni og þannig auðveldað
framkvæmdir á ákveðnu sviði.
Steingeitin (22. rtes.-19. ian.i:
IBEii
Þú þarft að verja málstað
þinn í dag en gættu þess að
sýna stillingu. Þér býðst
gott tækifæri en verður að vera fljótur
að grípa það því aðrir sækjast efttr þvi.
Þú átt skemmtilegar samræður
við fólk og dagurinn einkennist af
samstöðu milli samstarfsaðila.
Happatölur þínar eru 3, 24 og 36.
Ally Sheedy:
Hæg endurkoma
fyrrum unglingastjörnu
Ally Sheedy er ekki þessi hefð-
bundna kvikmyndastjama. Hún
hefur kosið að halda einkalífi sínu
fjarri augum almennings og í stað
þess að fylgja hlutverki stjörnunnar
hefur Ally fylgt sjálfri sér. Hún bók-
staflega neitaði að vera stanslaust í
fjölmiðlum sem einhver skemmt-
anaglöð og hamingjusöm leikkona.
Ally hafði einfaldlega ekki áhuga á
þessu brjálaða auglýsingalífi leik-
ara. Þetta hefur haft varanleg áhrif
á frama hennar.
Unglingastjarnan
Þó svo Ally Sheedy væri orðin
tvítug þegar hún lék í The Breakfast
Club og St. Elmo’s Fire flokkaðist
hún undir unglingastjömu. Þetta
voru myndir gerðar um unglinga og
náðu tU unglinga. Hins vegar var
gengi St. Elmo’s Fire ekki eins mik-
ið og The Breakfast Club og hafði
það áhrif. Þó nokkrir af sömu leik-
urum léku í þessum tveimur mynd-
um. Hins vegar tóks Ally Sheedy
ekki að fylgja eftir þeim vinsældum
sem þessar myndir hlutu. Og er það
mikið til vegna hlédrægni hennar í
fjölmiðlum og lítillar löngunar til
ímyndarhlutverks í þeim geira.
Það sem er kannski ekki eins al-
mennt vitað er að Ally Sheedy skrif-
aði metsölubamabók þegar hún var
tólf ára sem nefnist She Was Nice to
Mice. Ekki sakaði að mamma henn-
ar var umboðsmaður rithöfunda og
Myndbandagagnryni
Autumn Heart
★★★
Skilnaðaráhrif
og fjölskyldu-
bond
Þegar fólk giftist er um tvær
manneskjur að ræða; þegar þessar
tvær manneskjur hins vegar skilja
er aftur á móti oft um að ræða marga
fleiri sem verða fyrir afleiðingunum
- bömin. Einhvem veginn er það
ekki alltaf til umræðu eða tekið tillit
til hamanna þegar skilið er. Það eru
jú bara tvær manneskjur að skilja!
Stundum telur fólk hins vegar að
skilnaðurinn sé bömunum fyrir
bestu.
Fjögurra barna móðir liggur fyrir
dauðanum á gamals aldri. Hún hefúr
alið upp dætur sínar ein í lengri
tíma - eða frá því hún skildi við eig-
inmanninn. Þau skiptu börnunum á
milli sín þannig að hann tók með sér
soninn og hún sá um dæturnar
þrjár. Það var ekki auðvelt og ekki
mikil efni. Hins vegar tókst fyrrver-
andi eiginmanninum að koma sér
ágætlega áfram. Þegar móðirin ligg-
ur þama á banabeðinum vill hún
vita að allt sé í lagi með son sinn og
biður dætur sínar að hafa upp á hon-
um. Þetta flnnst þeim þungbær ósk
þar sem þær vilja fyrir enga muni
eiga á hættu að rekast á fóður sinn,
manninn sem yflrgaf þær i æsku. En
í öllum skilnuðum eru tvær hliðar
og spumingin er hver hliðin er sönn
og rétt og er nokkuð hægt að velja
milli einnar umfram annarrar.
Þetta er áleitin mynd um áhrif
skilnaðar á böm. Þegar ekki er um
„helgarpabba" eða „helgarmömmur“
að ræða þá verður annað foreldrið
stundum gjörsamlega ókunnugt
barninu/bömunum. Myndin tekur
einmitt á þeim áhrifum. Ally Sheedy
leikur stórvel elstu dótturina og
skemmtileg persónusköpun er í
gangi á nokkuð venjulegu fólki. Vel
þess virði að taka á næstu leigu.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri:
Steven Maler. Aöalhlutverk: Ally Sheedy,
Davidlee Willson, Jack Davidson, Maria
Sucharetza, Marceline Hugot, Lisa Keller
og Tyne Daly. Bandarísk, 1999. Lengd:
101 mín. Leyfö öllum aldurshópum.
-GG
gat hjálpað
henni að kom-
ast áfram á því
sviði. Reyndar
voru foreldrar
Ally Sheedy
báðir mjög list-
rænir og hvöttu
börnin sín til að
tjá sig á hverju
því sviði sem
þau vildu.
Einnig skrifaði
hún ljóðabók
sem nefnist
Yesterday, I
Saw the Sun en
það var þó
nokkru seinna
eða 1991.
Endurkoman
Ally Sheedy
hefur hægt og
sígandi verið að
koma til baka í
sífellt áhrifa-
meiri hlutverk-
um. Hún lék
hlutverk í One
Night Stand
(1995) og vakti
það hlutverk
einhvem veg-
inn áhuga á
henni aftur
hvað vinsældir
varðar. Árið
1998 lék hún
svo i High Art
og var það
virkilega það
sem kom henni
Tvær í Cannes
Ally Sheedy ásamt mótieikkonu sinni í High Art á kvik-
myndahátíöinni í Cannes 1998.
alvarlega á skrið. Ally Sheedy hlaut
mikið lof og eftirtekt gagnrýnenda
og kvikmyndaáhugafólks fyrir leik
sinn í þeirri mynd. Var jafnvel
gengið svo langt að orða hana við
tilnefningu til óskarsverðlauna.
Hins vegar var hún ekki tilnefnd til
þeirra. En hlutverk hennar í mynd-
inni hafði víðtæk áhrif og hún vann
m.a. verðlaun fyrir besta aðalhlut-
verk kvenleikara með Independent
Spirit Awards og Los Angeles Film
Critics Association Awards auk
National Society of Film Critics
Awards, U.S.A.
Virkar eins og létttrufluð
manneskja
Ally Sheedy hefur yfirleitt leikið
svonefnd skapgerðarhlutverk og
ósjáifrátt tengir almenningm’ hana
við þá ímynd. Hún hefur aldrei
virkað sem ánægða og lífsglaða týp-
an i fjölmiðlum og meðan það er þá
viðhelst þessi ímynd. Það er hreint
og beint ekki auðvelt að sjá Ally fyr-
ir sér i hlutverkum eins og Mary í
myndinni There’s Something about
Mary og rómantískum eins og því
sem hún hafnaði en Kelly McGillis
lék í Top Gun. Ally sótti um hlut-
verk í myndinni A League of Their
Own en fékk það ekki því hún gat
ekki leikið hafnabolta nægilega vel.
Einhvem veginn kemur það manni
ekki á óvart. Hún er ekki þessi
íþróttatýpa. Ekki kemur heldur á
óvart að hún þurfti að fá hjálp við
að losna undan flkn á svefnlyfjum.
Hins vegar byrjaði Ally að taka þau
lyf til að ná betri árangri í hlutverki
sínu í myndinni Hight Art en
karakterinn hennar þar var háður
lyfjum.
Hún hefur verið tengd við nokkr-
ar þekktar manneskjur svo sem
Eric Stoltz, Woody Harrelson og
Richie Sambora. Hún er hins vegar
gift David Lansbury frá því 10. októ-
ber 1992 og saman eiga þau eina
dóttur er fæddist 1994. Helgaði Ally
sig móðurhlutverkinu fullkomlega
um tíma en hefur nú snúið aftur til
síns starfs. Sjálf er Ally fædd 12.
júní 1962 í New York.
Guðrún Guðmundsdóttir
Myndbandagagnrýni
Taxman ★★★
Skattmann í ham
Skattheimtumenn hafa gjarnan
fremur neikvætt orð á sér í hugum
almennings. Það stendur meira að
segja í Biblíunni að þeir séu syndar-
ar, eins og aðalpersónan í Taxman,
skattrannsóknarmaðurinn A1
Benjamin, segir mæðulega. Hann
dreymir um að koma skattsvikara i
fangelsi, alræmdum maflósa sem er
nógu mikill óvinur þjóðfélagsins til
að A1 öðlist virðingu og viðurkenn-
ingu fyrir verk sin. Hann vill vera
góði gæinn. Hann böðlast gegnum
rannsókn sína af miklu offorsi I
trássi við yfirmenn sína og lög-
regluyfirvöld en hann er staðráðinn
í að hafa sigur, hvað sem það kost-
ar.
Joe Pantoliano er alltaf skemmti-
legur og skapar hér sem endranær
skrautlega persónu í hinum
maníska A1 sem er
svo upptekinn af
vinnu sinni að
hann hefur engan
tíma fyrir flöl-
skylduna sem við
fáum aldrei að sjá í
myndinni. Taxman
er ein af þessum
sjaldgæfu spennu-
myndum með vitrænan söguþráð
og tiltölulega trúverðuga atburða-
rás. Þetta er engin stórmynd en hún
er gerð af fagmennsku, leikhópur-
inn er þéttur og persónumar vel út-
færðar.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Avi
Nesher. Aöalhlutverk: Joe Pantoliano og
Wade Dominguez. Bandarísk, 1999.
Lengd: 104 mín. Bönnuö innan 16 ára.
-PJ