Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Síða 27
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
DV
27
Helgarblað
Bubbi Morthens rokkar meö Stríöi og friöi dv-mynd kk
Bandiö er aö byrja á núlli, rótaralaust og allslaust en meö gleöina af því aö
rokka í fyrirrúmi.
Bubbi
byrjar á núlli
- Stríð og friður á Gauknum
Það er kominn nýr Gaukur. Fíkn-
in í nýjungar hefur rekið húsráð-
endur á þessum elsta pöbb Reykja-
víkur til þess að skipta um innrétt-
ingar og henda öllu þvi gamla. Það
var orðið 15 ára. Algjör safnmatur.
Einu sinni voru miðvikudags-
kvöld þurr á reykviskum börum en
nú eru öll kvöld jafnblaut. Þetta
miðvikudagskvöld hrifsa gamlir
rokkhundar leðurjakkann ofan úr
skáp og skunda á Gaukinn til að
hlusta á Bubba Morthens sem þar
stigur á svið í fyrsta sinn með nýja
hljómsveit. Hún heitir Stríð og frið-
ur og spilar rokk. Ekki bara til að
kynna nýjan disk heldur til að spila
fyrir fólk og loka sig síðan inni í
hljóðveri eftir áramótin og búa til
tónlist. Eitthvað nýtt.
Hver er hvað?
Bubbi er auðvitað í framlínunni,
með ferskan skallann, gamalvanur
á þessum slóðum í þessum stelling-
um. Við hlið hans stendur Jakob
„góði“ Magnússon eins og Bubbi
kallar hann i kynningu. Jakob er
margþvældur rokkbassaleikari sem
hefur hoppað á sviðum islenskra
skemmtistaða í tæplega 20 ár með
Björk í Tappa tíkarrassi fyrst en
síðan lengi með SS Sól og Helga
Björnssyni. Yst stendur lágvaxinn,
öróttur snoðkollur með gítar sem
heitir Pétur Hallgrímsson. Það er
eitthvað demónískt við það hvernig
hann rekur út úr sér tunguna og
grettir sig þegar desibélin flæða.
Bak við settið situr piltur sem
heitir Arnar Ómarsson og hefur sér
það helst til frægðar að hafa tromm-
að fyrir hljómsveitina Ham sem
hefði áreiðanlega getað lagt heim-
inn að fótum sér en einhvern veg-
inn komst aldrei til þess.
Og svo Guðmundur
Svo er Guðmundur Pétursson.
Guðmundur stendur eins og svolitið
utan og ofan við þessa misjafnlega
sjúskuðu rokkhunda á sviðinu.
Hann fer ekki í leðurjakka. Það
myndi einhvem veginn ekki passa
við hann, segir Bubbi. Guðmundur
spilar á gitar eins og hann sé af til-
viljun með hann i fanginu en með-
höndlar hann eins og ofíitusjúkling-
ur gaffal. Af fullkomnu öryggi. Guð-
mundur stappar ekki í sviðið eða
grettir sig af innlifun. Öll tjáning
Guðmundar kemur gegnum gítar-
inn.
„Fyrir 20 árum hefði ég verið meö
tvo rótara. Ég hefði sagt þeim að
standa klárir með spegil báðum
megin við sviðið. Þeir speglar hefðu
verið láréttir en ekki lóðréttir," seg-
ir Bubbi þegar Pétur slítur streng.
Svo heldur hann áfram og rifjar upp
ágreining spíttflkla og hasshausa á
árum áður sem hver hélt með sínu
fíkniefni. Svo sendir hann eftir
vatnsglasi á barinn. Það er allt og
sumt því rokkið er víman.
16 ára þogn rofin
Sum lögin sem Stríð og friður
spilar hafa ekki heyrst í nærri 16
ár í lifandi flutningi. Hér veður
hvað innan um annað. Viðkvæm
blóm af Konuplötunni, Blindsker
og ísbjarnarblúsar og gamlir
rokkstandardar. Það er orðið
þröngt og heitt á Gauknum og lýð-
urinn æpir og syngur með í miðri
viku þvi allir kunna alla textana.
Meðalaldurinn er ekki mjög hár og
barnung óeðlilega grönn stúlka
með sítt hár stendur upp og fer
þegar Bubbi syngur um módelin
með mónulísuglottið. Ég sé út und-
an mér Steinar Berg plötuútgef-
anda standa með fortíðarbros á
vör.
Sum gömlu lögin eru í sinni
fornu útsetningu, önnur ekki en
þetta eru samt ekki Utangarðs-
menn, Egó eða Das Kapital. Þetta
er eitthvað nýtt en samt gamalt.
Þegar Guðmundur Pétursson tekur
gítarinn þeim tökum að það er eins
og skrímsli gangi laust á sviðinu
þá á hann ekkert skylt við þá Poll-
ock-bræður. Ekki þó þeir hefðu
verið þrír.
Það suðar fyrir eyrum þegar síð-
ustu tónar Hírósíma deyja út og
við munum öll deyja. En ekki
núna.
Er heimurinn að farast?
Daginn eftir hitti ég Bubbann á
Kaffi París þar sem hann situr og
drekkur kaffi með Gunnari Dal og
Sigurlaugi Þorkelssyni sem vann í
50 ár hjá Eimskip. Þeir eru að tala
um heimsenda og Bubbi er að lesa
upphátt fyrir þá grein eftir trésmið
sem birtist í Morgunblaðinu. Tré-
smiðurinn hefur lesið í Biblíunni
að heimurinn sé að farast. Að visu
á milli línanna en Gunnar Dal
kannast samt vel við þetta. Bubbi
skrifaði sjálfur í Moggann um dag-
inn og skammaði Siv Friðleifsdótt-
ur umhverfisráðherra eins og
hund fyrir leyfa fiskeldi í Mjóafirði
og níðast á fslenskri náttúru.
„Siv á að segja af sér. Hún lætur
náttúruna aldrei njóta vafans held-
ur er stjómað af hagsmunum Sam-
herja og annarra auðkýfinga. Fyrst
voru þeim gefln miðin en nú fá
þeir strandlengjuna á silfurfati.
Fingrafór Halldórs Ásgrímsson-
ar eru um allt kvótakerfiö og hann
á að fara líka.“
Þetta segir Bubbi og margt fleira
og þegar Helgi Pétursson kemur og
heilsar kumpánlega leggur hann
ekki í að setjast undir þessa
skammadembu um Framsóknar-
menn.
„Það er skylda listamanna að
gagnrýna. Ég segi það sem mér
finnst á hverjum tíma því ég get
ekki annað,“ segir Bubbi.
-PÁÁ
Fyrir konur, karla, börn og kornabörn
100 gerðir af nærbuxum
200 gerðir af nærbolum
• Sokkar
• Ökklahlífar
• Hnjáhlífar
• Mittishlífar
• Axlahlífar
• Únliðahlífar
• Silkihúfur
• Lambhúshettur
úr ull eða silki
• Vettlingar
• Inniskór
o.fl. o.fl.
Allt til að halda hita Irá toppi til táar
Náttúrulækningabúðin
Hlíðasmára 14, Kópavogi, s. 544 4344
,\t t, OKO„lAVAMAt
Nú færðu það þvegið
í hinni fullkomnu Lavamat 74639
AEG
Þvottahæfni A
Þeytivinduafköst B
Orkuflokkur A
Ljósabretti: Sýnir hvar vélin er stödd í
þvottakerfinu
Vindingarhrað: 1400/1200/900/700
/400 sn/mín
Mjög hljóðát: Ytra byröi hljóðeinangrað
Klukka: Sýnir hvað hvert þvottarkerfi
tekur langan tíma. Hægt að
stilla gangsetningu vélar allt
að 19 klst. fram í timann
öll hugsanleg þvottakerfi
íslenskar leiðbeiningar
Þriggja ára ábyrgð
69.900
Heimsending innifalin í verði
á stór Reykjavíkur-svæðinu
stgr.
___rÍT^___
RdDIOriMOST
Geiðlagðtu 14 • slml 462 1300
B R Æ Ð U R N I R
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is