Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001
Helgarblað
DV
Leiðbeiningar fyrir blanka:
Það er sælt að
vera f átækur
- elsku Dísa mín
Út að borða
með
eftirlifendum
í kirkjubransan-
um er líka að finna
jarðarfarir og erfi-
Lifað meö blankheitum drykkjur. Hópurinn
Trúin er nærandi og þaö er messukaffiö líka. Safnaöarstarf er ótrúlega öflugt og ekki sem safnast í kirkj-
óeölilegt aö leita til kirkjunnar í blankheitum. ur er þá yfirleitt
“ mun fjölbreyttari en
brúð-
kaupa-
hópur-
inn. Því er
mjög ólík-
legt að á þig
verði gengið og
þú beðinn um
upprunavottorð.
Um morguninn er
hægt að undirbúa sig
vel með lestri minning-
argreina. Svo allt sé á hreinu þá
er hægt að segjast hafa unnið
með einhverjum frekar fjarskyld-
um og hann hafi talað mikið um
þann látna.
í erfidrykkjum jafnt og brúð-
kaupsveislum ber að varast að
hafa sig mikið í frammi og sneiða
algerlega hjá pólitískri umræðu
og öllu tali um áramótaskaup.
Þurfi fyrir röð óheppilegra tilvilj-
ana að tjá sig eitthvað á að ræða
um eitthvað sem er pólitískt rétt,
s.s. veðurfar og hvað Hófí hafi
verið sæt.
Ferðalagablús
Ferðalög eru frekar dýr, sér-
staklega þegar veskið er tómt.
Einfaldasta og ódýrasta ferðatil-
högunin er að ganga eða hlaupa.
Það er líka heilsusamlegt en auð-
vitað ekki jákvætt þegar hver
hitaeining er dýrmæt eins og er á
krepputímum. Umferð í Reykjá-
vík er mjög mikil og því ætti að
vera einfalt mál að fara á puttan-
um milli bæjarhluta.
Til að vinna sér í haginn er
gott að skokka á næsta bílaum-
boð og fá að reynsluaka bílum.
Þá er hægt aö erindrekast og ef
menn vilja þá er hægt að fá
sendibíl til að skutlast með
þvottavélina hennar mömmu í
viðgerö.
Vellyktandi og í klæöum
Til að teljast sómasamlegur
borgari verða að hanga utan á
manni einhverjar fatapjötlur og
lyktin má ekki vera slík að um-
hverfisnefndir bæjarfélaga telji
skylt að láta málið til sín taka.
Til að bjarga lyktinni er hægt að
fá prufur i flestum ef ekki öllum
snyrtivöruverslunum. Síðan er
þeim úðað á að morgni en helst
bara einni í einu - ólíkar ilmteg-
undir vilja verða vondar og
stækar ef þeim er att hverri
gegn annarri.
Hægt er að þræða vefnað-
arvöruverslanir og fá sýnis-
horn af ýmsum gerðum efna
sem síðan er hægt að safna
saman til að sauma í búta-
saumsteppi eða „avant-gar-
de“ jakkaföt og kjóla. Þennan
gjörning er gott að tengja fyrr-
nefndum reynsluakstri því
vefnaðarvöruverslanir eru vítt
og breitt um bæinn.
Lúin bein hvíld
Fasteignaverð og leigukostnað-
ur hefur rokið upp á undanförn-
um misserum og því getur verið
erfitt að fá húsaskjól til að rækta
svefnhæfileika sína. Ekki er leng-
ur mögulegt að leggja sig í
strætóskýlum því þau gefa álíka
mikið skjól og græna kortið. í
gegnum tíðina hefur sýnt sig að
fólk sem telur sig blankt hefur
hafst við í bílum sínum. Það er
ágætur kostur en ef blankheitin
ná út yfir bílamörkin þá er úr
vöndu að ráða.
Þrautalendingin getur verið sú
að ráfa um um nætur en leita sér
skjóls yfir daginn til hvíldar. Þá
er nauðsynlegt að hugsa til þess
að oft er sofandi fólk ekki vel-
komið og kemur fyrir að mönn-
um er hent út fyrir slíka iðju. Því
þarf að finna sér stað þar sem
ekki er athugavert að augun séu
lokuð og flest skilningarvit með-
vitundarlítil. Háskóli íslands og
aðrir skólar eru góður kostur þar
sem ekki stingur í stúf að liggja
sofandi fram á borðið. Þennan
ótvíræða kost hefur einnig Þjóð-
arbókhlaðan og önnur bókasöfn.
Ekki má gleyma að sumar hús-
gagnaverslanir eru svo stórar að
ólíklegt er að nokkur maður rati
á afskekkt svæði þeirra þar sem
oft er hægt að finna þægilega og
draumsæla sófa.
Tómstundlr og
skemmtanir
Ódýrasta tómstundagamanið
fer mjög vel saman við ferðamáta
blankra. Göngutúrar og náttúru-
skoðun er andlega nærandi og
hefur skáldskapur oft kviknað á
slíku vappi.
Pöbbarölt er frekar ódýrt í
framkvæmd. Þegar komið er inn
á barina hefjast sníkjur og þá er
gott að skima yfir salinn í leit að
stjórnmálamönnum. Þeir eru
alltaf í leit að nýjum vinum og
eru jafnvel reiðubúnir að greiða
fyrir ævilanga vináttu með bjór-
glasi eða því um liku.
Dýrasti hluti ársins fyrir utan
jólin er sumarfríið þegar fjöl-
skyldur vilja oft þvælast um
heiminn í leit að sólinni. Fyrir
blanka er það óneitanlega fremur
þrúgandi árstími. Því er um fáa
kosti að velja. Hægt er að vinna
allt árið eða fara í ódýr ferðalög
með Kjalarnesstrætó en einna
ódýrast er þó líkast til að eyða
sumrinu viö sjóinn í grænum
sloppi á Vogi. -sm
Jólaskrautið skriður niður í
kassa í dag. Hátíðarskapið hef-
ur trosnað nokkuð og krónurnar
sem héldu til í veskjum og banka-
reikningum hafa flestar forðað
sér i vasa kaupmanna og flug-
eldasölumanna. Brátt kemur
kreditkortareikningurinn inn
um lúguna með tölum sem væri
afskaplega freistandi að deila í
eða beita pólitískum sjálfsblekk-
ingum til að kveða niður. En
maður þarf víst að borga þetta
sjálfur sem gerir hlutina afskap-
lega ópólitíska og óspennandi.
Þegar svona er komið er gott
að velta fyrir sér leiðum til að
lifa spart þar til aftur fer að
þyngjast i veskinu. Það er nefni-
lega hægt að gera ýmislegt án
peninga eins og hefur komið
fram í fjölda dægurlagatexta og
kvæða.
Kaffilistamenn
Útgjöld heimilanna eru að stór-
um hluta tengd matvöruverslun-
um en fæða á íslandi er í dýrari
kantinum sé miðað við önnur
vestræn lönd. Tískufatnaður er
aftur á móti talinn ódýr hér á
landi en maður skiptir ekki
hangikjötinu út fyrir vel merktar
nærbuxur.
Það er hægt að borða ódýrt í
Reykjavík og raunar hægt að
komast af án skotsilfurs. Til
dæmis er hægt að fá ókeypis
kaffi í flestum bönkum og í sum-
um verslunum, til dæmis í
Sautján í Kringlunni. Hár-
greiðslustofur bjóða margar
hverjar upp á þessa þjónustu og
þar er hægt að blaða i timaritum
um hár og fegurð og svo í ljóða-
bækur hjá Torfa.
í námunda við andabyggðir er
hægt að laumast inn í bakarí og
sníkja andabrauð sem er kannski
í harðari kantinum en er hægt að
bleyta upp í með vatnsskvettu
hvort sem hún er úr krana á al-
menningssalerni eða andapollur-
inn
sjálfur.
Fyrri kostur-
inn er heilbrigð-
islega æskilegri.
Myndbirting
snittunnar
Svölun kaffiþorsta er kærkom-
in en er ekki nóg til að halda lífi
í janúarkuldum. Til að afla sér
fleiri hitaeininga er nauðsynlegt
að leita í aðra farvegi en nefndir
hafa verið. Þá er gott að muna
eftir stórmörkuðunum sem flest-
ir eru með endalausar kynning-
ar, sérstaklega þegar dregur
nærri helgi. Á þetta sérstaklega
við dýrustu búðirnar þar sem
hinir og þessir valsa um drekk-
hlaðnir drykkjum og matvælum
sem þeir bjóða gestum og gang-
andi að dreypa á og bita í. Oft
getur það fyllt magann bærilega.
Um helgar er oft hægara um
vik að nálgast fæðu en á virkum
dögum. Kemur þar til að fólk er
félagslyndara um helgar og reyn-
ir þá að hrófla upp veislum af
ýmsum tilefnum. Listamenn
opna sýningar sínar og er þar
hægt að fá góðar snittur og ryðja
í sig drykkjum á kostnað lista-
mannanna. Gott er að fylgjast
með i dagblöðum hvaða sýningar
eru opnaðar og hvar og ef hægt
er,
reyna þá að
setja stefnuna á
stærri söfn og þekktari
listamenn þvi oft eru ungir
listamenn skítblankir og þvæl-
ast á milli opnana hjá frægara
fólki.
Boröaö í brúökaupum
Trúin er nærandi og það er
messukaffiö líka. Safnaðarstarf
er ótrúlega öflugt og ekki óeðli-
legt að leita til kirkjunnar í
blankheitum.
Brúðkaup eru mörg haldin á
laugardögum og yfirleitt klukkan
tvö og svo klukkan fimm. Þau
eru oft fjölmenn og því auðvelt
að falla inn í hópinn. Dreifiritum
um brúðhjónin og dagskrá brúð-
kaupsins er yfirleitt dreift við
innganginn og er oft hægt að
finna nytsamlegar upplýsingar
fyrir komandi samtöl og veislu.
1 veislunni ber að varast að
vera hrókur alls
fagnaðar og berja
sér á brjóst sem
fyrrverandi kærasti
eða kærasta brúð-
hjónahelmings. Sér-
staklega er þaö
óæskilegt ef um
gagnkynhneigt par
er að ræða að gefa í
skyn að samkyn-
hneigt samband hafi
verið milli þín og
brúðhjónanna. Það
vekur athygli og það
er ekki þaö sem þú
vilt. Rétt er að hafa
ávallt hugfast að til-
gangur veisluferðar-
innar er að borða og
drekka.