Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001
I>V
15
Helgarblað
Á hverju ári er
Darwin-verðlaunun-
um úthlutað í Amer-
íku. Charles Darivin
setti fyrstur manna
fram kenninguna
um náttúruval og
uppruna tegund-
anna. Þar er því
haldið fram að mað-
urinn sé kominn af
öpum og sé því í
rauninni aðeins þró-
að afbrigði apa.
Þannig sé náttúran
gjörvöll í stöðugri
leit að betri lausnum
og þeir eiginleikar
sem jákvœðir teljast
fyrir afkomu teg-
unda þróist og eflist.
Af þessum ástæðum eru verö-
launin sem hér um ræðir kennd
við Darwin, því þau eru veitt þeim
sem farast af slysforum og er það
skilyrði að heimska viðkomandi
hafi átt sinn þátt i dauða hans.
Með þessu telja verðlaunaveitend-
ur að verðlaunahafar séu að gera
mannkyninu greiða með þvi að
fjarlægja sig úr genabankanum og
tefja þannig fyrir því að heimska
nái yfirhöndinni í geðhöfn manns-
ins.
Á vefsíðunni www.darwin-
awards.com er árlega skýrt frá því
hverjir hreppa Darwin-verðlaunin
sem eru skiljanlega ávallt veitt að
verðlaunahafa látnum. Nú liggur
fyrir úthlutun þeirra fyrir árið
2000 og við skulum líta á nokkur
dæmi.
Kurlaður sigurvegari
Sigurvegari ársins er Michael
nokkur sem rak viðarkurlunar-
þjónustu í bænum Skowhegan í
Maine í Bandaríkjunum. Flagg-
skip fyrirtækisins var gríðarlega
öflugur viðarkurlari sem gat tekið
trjáboli sem voru allt að 70 senti-
metrar í þvermál og spænt þá nið-
ur i kurl þar sem hver bútur var
innan við sentímetri að lengd.
Apparat þetta, sem gekk undir
gælunafninu „Gölturinn", hafði
verið óstarfhæft hluta úr degi
vegna bilunar og því unnu starfs-
menn fram eftir til að ná að kurla
upp í pantanir sem fyrir lágu. Fyr-
irstaða myndaðist í Geltinum af
trjáberki og Michael klifraði upp á
færiband sem fóðraði kurlarann
og hóf að losa stífluna með hrífu.
Honum láðist að stöðva vélina og
um leið og hann losaði börkinn
rann hann sjálfur inn í gin Galtar-
ins og varð þegar i stað að kurli.
Vinnueftirlitsmenn sem komu á
staðinn þurftu áfallahjálp því að-
koman var heldur óhugnanleg og
þurfti DNA rannsókn til að bera
óyggjandi kennsl á hinn látna þar
sem hann var í of smáum bitum til
þess að neinn ættingi treysti sér
til þess.
Þessi fína rafmagnsgirð-
ing
Fátt veitir karlmönnum meiri
gleði en að dytta sjálflr að heimil-
um sínum og smíða sjálflr eitt og
annað. Charles heitinn var múr-
arameistari i Denver og hafði oft
unnið við hlið rafvirkja sem lögðu
rafmagn í hús. Fyrir vikið taldi
Charles sig færan í flestan sjó þeg-
ar rafmagn var annars vegar.
Hann átti hunda sem stundum
sluppu út úr bakgarðinum og
ákvað að setja sjálfur upp raf-
magnsgirðingu til að halda þeim
innan lóðarmarka.
Ekki leið á löngu þar til Charlie
hafði áfallalaust komið 120 volta
straumi á alla girðinguna og lengi
vel gekk allt vel og enginn hundur
Sumt er þannig í fari mannanna að erfitt er að sjá að viö stöndum þessum ættingjum okkar neitt framar að
gáfum.
Heimskan
varð þeim
að falli
- Darwin-verðlaununum fyrir árið 2000 úthlutað
slapp út. Þá kom vorið og Charlie
fór að vinna i garðinum. Hann var
að setja niður tómatplöntur þegar
hann greip um girðinguna til að
styðja sig og lést fljótlega af völd-
um raflostsins. Það sem Charlie
vissi ekki er að allar rafgirðingar
eru með sérstökum búnaði sem
rýfur strauminn á nokkurra sek-
úndna fresti og kemur þannig í
veg fyrir óhöpp. Fyrir þetta fékk
Charlie Darwin-verðlaunin.
í djúpum skít
32 ára gamall íbúi i Maine,
Benjamín að nafni, endaði líf sitt
með óvenjulega heimskulegum
hætti fyrr á árinu. Benjamín ók
Mazda-pallbifreið sinni á ógæti-
lega miklum hraða í ranga beygju.
Bíllinn valt og fór yflr lága girð-
ingu umhverfis 1200 þúsund lítra
tank með saur og úrgangi, en end-
urvinnslustöð tengd holræsakerfi
borgarinnar var einmitt staðsett
þama.
Kafarar fiskuðu Benjamin og
bílinn hans upp af fjögurra metra
dýpi þar sem hann hafði sannar-
lega lent í djúpum skít og fékk
Darwin-verðlaunin fyrir.
Charles Darwin settl fram kenning-
una um uppruna tegundanna.
Viö nafn hans eru kennd óvenjuleg
veröiaun sem eru veitt árlega
þeim sem farast vegna eigin
heimsku.
Aö temja hest
Það gerðist í Nevada snemma
síðastliðið vor að ung kona, Andr-
ea að nafni, var við tamningar í
gerði við hesthús sem hún hafði á
leigu. Hestinn hafði hún unnið í
happdrætti og var þetta arabískur
gæðingur, mjög taugaveiklaður
enda aðeins hálftaminn. Andreu
gekk illa að koma beislinu á hann
því hann reisti höfuðið alltaf upp
svo hún náði því ekki yfir eyrun.
Hún ákvað að sjá við þessu með
því að binda reipi um háls hests-
ins og strekkja hinn enda þess um
mittið á sér og hindra þannig
hrossið í að lyfta hausnum en hafa
jafnframt báðar hendur lausar til
að koma beislinu á hann. Hestur-
inn fór létt með að kippa eiganda
sínum á loft og fældist þegar með
hann bundinn um hálsinn og hljóp
hring eftir hring i gerðinu. Reipið
var nógu langt til þess að framfæt-
ur hestsins náðu auðveldlega að
rota eigandann, sem lést á sjúkra-
húsi skömmu eftir að henni var
bjargað frá hestinum.
Jóiatréð mitt
Sextíu og sex ára gömul kona í
Quebec í Kanada fór í ökuferð
skömmu fyrir jólin og keypti sér
jólatré í skógarlundi. Hún ók
heimleiðis með nokkur tré fest á
toppinn á bifreið sinni. Á miðri
leið losnuðu festingar og trén féllu
á akbrautina.
Konan fór út úr bílnum og fór að
tína saman trén þótt dimmt væri
orðiö og brautin væri illa upplýst.
Hún varð á skömmum tíma
tvisvar fyrir bil og lést við þessi
björgunarstörf. Fyrir þetta fékk
hún verðlaun Darwins.
Er þetta hann?
Tveir menn í Brisbane í Ástral-
íu áttu eitthvað verulega sökótt
við þann þriðja, sem bjó í hjól-
hýsagarði þar í borginni. Þeir
ákváðu að læðast að hjólhýsi hans
og lumbra virkilega á honum.
Sennilega hefur þeim verið heldur
heitt í hamsi því báðir voru vopn-
aðir hnifum. Nokkuð ringulreið
skapaðist í myrkri og spennu á
staðnum og íbúi hjólhýsisins slapp
ómeiddur en árásarmennirnir
stungu hver annan mjög illa. Ann-
ar lést af stungusárum en hinn
lifði við örkuml. Þetta var talið
nægja til Darwin-verðlauna.
Ég er farin að sofa
Ung kona í Karólínuríki í
Bandaríkjunum gisti á móteli með
unnusta sínum. Þau hjúin undu
sér lengi kvölds við víndrykkju og
maríjúanareykingar og fannst al-
veg tilvalið að eyða nóttinni á þak-
inu, enda var afar hlýtt i veðri
þennan dag. Þau læddust út seint
um nóttina með teppi og kodda og
tókst að komast upp á þak gisti-
heimilisins. Það reyndist ekki með
öllu hættulaust, því þakið var ekki
alveg lárétt.
Konan valt vel reykt og steinsof-
andi fram af þakinu undir morgun
og lést af fallinu, sem var nokkrar
hæðir niður á götu en unnusti
hennar rumskaði ekki.
Syndur eins og ísbjörn
Það er siður viða í Kanada að
taka sér hressandi sundsprett í
vökum ísilagðra vatna. Heima-
mönnum þykir þetta mikiö
hreystimerki og kenna athæfið við
ísbimi, sem eiga auðvelt með að
synda í vatni og sjó undir frost-
marki. 38 ára gamall heimamaður
í Kingsmere var að leika hokkí
með vinum sínum seint um kvöld
þegar hann ákvað að sýna hreysti
sína og hugðist synda milli tveggja
vaka á vatninu, sem voru aðeins
tvo metra hvor frá annarri. Um
leið og hann fór í kaf í dimmt og
kalt vatnið missti hann allt átta-
skyn og villtist af leið. Hann
fannst látinn í vatninu undir
morgun en fékk þó altént Darwin-
verðlaunin.
PÁÁ