Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001
DV
27
Helgarblað
Laugarbakki í Miðfirði:
Þriðja
vetursetan
„Hún kom hingað fyrst fyrir
tveimur árum og þá var hún hérna
fyrir neðan gróðurhúsin, en við
sáum hana ekki mikið þann vetur-
inn. En síðan kom hún aftur síðasta
vetur og var þá mikið meira og svo
kom hún á jóladag núna og hefur
verið síðan" sagði Ólöf Sigurbjarts-
dóttir á Laugarbakka í Miðfirði í
samtali við DV í gær. En álft hefur
tekið sér bólfestu á Laugarbakka
yfir veturinn og fer hvergi, þrátt
fyrir að hún sé farfugl og hafi bland-
að geði við aðrar áftir, sem hafa við-
komu við Miðfjarðará á sumrin.
„Það eru nokkir sem gefa henni
að borða hérna og hún tekur til mat-
ar síns, þegar hún er svöng. Þegar
hún sást fyrst var hún hálfræfilsleg,
en braggaðist fljótlega en hún átti
sér skjól hérna í hitavatnslæk rétt
fyrir neðan hjá okkur. I fyrra var
hún mikið héma á staðnum og hún
beið eftir dóttur minni þegar hún
kom heim úr skólanum og fylgdi
henni heim. Svo kom hún á jóladag
en ég var hérna fyrir neðan húsið
og þá heyrði ég í henni hinu megin
við Miðfjarðará. Ég kallaði í hana
og hún kom skömmu seinna yfir
ána til okkar,, sagði Ólöf um leið og
hún gaf álftinni brauð.
Álftin færði sig sig lítið úr stað
þrátt fyrir að að óboðnir gestir
væru mættir og undi vel sínum hag
við húsið númer 8 á Gilsbakka á
Laugarbakka í Miðfirði, þegar við
áttum þar leið hjá. Er við fómm
kúrði hún og fátt virtist trufla hana
nema einn og einn hundur, sem
henni var frekar illa við.
„Þetta gerist þónokkuð héma að
áftir hænist að fólki og stundum
hafa þær verið til vandræða, því
það getur verið erfitt að losna við
þær,“ sagði Ævar Petersen hjá Nátt-
úrufræðistofnun islands.
-G.Bender
í boði fyrir þá sem vilja hætta að reykja:
Námskeiö og
endurg j aldslaus
símaþjónusta
DV-MYND G. BENDER
Mannelsk álft
Ólöf Sigurbjartsdóttir á Laugarbakka gefur álftinni.
Þeir sem strengdu það áramótaheit
að hætta að reykja geta fengið ráðgjöf
um meðferðar- og stuðningsúrræði í
apótekum fram til 2. febrúar. Það em
félagsmenn í Samtökum hjúkrunar-
fræðinga og ljósmæðra gegn tóbaki
sem veita reykingaráðgjöflna og að
sögn Dagmarar Jónsdóttur, formanns
verkefnisins, hafa móttökumar verið
mjög góðar. Dagmar segir að full þörf
sé á slíkri ráðgjöf þar sem margar
leiðir era í boði fyrir þá sem vilja
hætta að reykja. Til að mynda séu til
reykingalyf, hægt sé að hringja í nýja
reykingalínu sem veitir endurgjalds-
lausa símaþjónustu fyrir þá sem vilja
hætta reykingum og ýmis námskeið
séu í boði. „Það er mjög einstaklings-
bundið hvað leiðir hentar fólki við að
hætta að reykja, „ segir Dagmar.
Leita meira eftir ráðgjöf
Arndís Guðmundsdóttir sér um
reykinganámskeið hjá Krabbameins-
félaginu og segir hún að aukning hafi
verið á því að einstaklingar sem era
að hætta að reykja leiti eftir ráðgjöf
hjá félaginu. Félagið býður upp á 6
skipta námskeið sem taka fimm vikur
og einnig heldur það námskeið i fyrir-
tækjum.
Arndís segir að á námskeiðunum sé
boðið upp á margs konar fræðslu um
reykingar, áhrif þeirra og heilbrigt lif-
erni. Þá sé reynt að finna út hvaða
leið hentar best fyrir hvem og einn. í
fjórða tímanum sem kallaður sé H-
dagurinn sé drepið í og siðustu tveir
fundirnir séu notaðir sem stuðnings-
fundir. „Við fylgjum námskeiðunum
eftir með því að hringja í fólk og það
hjálpar til, „ segir Amdís.
Hugarfarsbreyting mikilvæg
Heilsustofnun Náttúrulækningafé-
lags Islands er með vikimámskeið fyr-
ir fólk sem vill hætta að reykja og að
sögn Bee McEvoy verkefnisstjóra, er
fullbókað í fyrsta námskeiðið sem
hefst þann 14. janúar og byrjað er að
bóka í það næsta. „Fólk viil helst
hætta að reykja á þessum tima, „ seg-
ir Bee. Hún segir að haldið sé sam-
bandi við þá sem koma á námskeiðin
út árið t.d. með því að bjóða þeim í
heimsókn einu sinni í mánuði og með
því að hringja í það. Á námskeiðun-
um sé lagt áherslu á að fólk geri breyt-
ingar á lífstíl sínum og hugafari. Bee
segir að fólki gangi vel að hætta að
reykja á námskeiðunum og það megi
meðal annars rekja til þess að um-
hverfið er rólegt og jákvætt. „Fólk fær
líka mikla líkamlega útrás sem hjálp-
ar til við að takast á við fráhvarfsein-
kennin," segir Bee.
Guðjón Bergmann, sem hefur hald-
ið námskeið fyrir reykingamenn í
fjögur ár með góðum árangri, segir að
þegar fólk vilji hætta aö reykja sé
hugafarsbreyting mikilvægust. „Lyf
eru óþörf því það eina sem þau gera
er að draga úr einkennunum, „ segir
Guðjón. Námskeið hans byggja á per-
sónulegri reynslu því hann reykti
sjálfur í 12 ár og er markmiðið með
þeim að losa fólk endalega við tóbakið
þannig að það þurfi ekki að halda í
sér innan um reykingafólk. Á þessu
ári mun Guðjón aðeins halda eitt opið
námskeið í samstarfi við SGA, Sí-
mennt sem hefst þann 9. janúar og
tekur fjögur kvöld. Námskeiðið bygg-
ir á fyrirlestrum og verkefnum og síð-
an er árangurinn undir hverjum og
einum kominn. -MA
Fyrsti heiðursborgarinn í Garðabæ:
Bragi útnefndur
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur
samþykkt að gera séra Braga Frið-
riksson að heiðursborgara Garðá-
bæjar. Með þvi vill bæjarstjóm láta
í ljós þakklæti sitt fyrir mikið og
gott starf séra Braga í þágu bæjar-
búa og bæjarfélagsins um áratuga
skeið.
Séra Bragi Friðriksson starfaði
sem sóknarprestur i Garðabæ á ár-
unum 1966-1997. Hann var ekki ein-
ungis prestur bæjarbúa heldur
vann hann einnig að mörgum fram-
faramálum í þágu bæjarfélagsins,
einkum á sviði fræðslumála,
iþrótta-og æskulýðsmála.
Bæjarstjórn Garðabæjar útnefnir
séra Braga sem sinn fyrsta heiðurs-
borgara sem er vel við hæfi á 25 ára
afmæli bæjarins. -DVÓ
QUELLE
2ja hluta
buxnadragt
Stretch, 100%
polyester.
Má þvo i
þvottavél.
K Plómu
og grá.
'&nU frúi5 dfi ^ntn/ííi 4 ÞÍriíUfin vcrí'i!
Blússur kr. 990,-
, Jakkar kr. 1.590,- /á
í Peysur kr.990,- m
Buxur kr.790,- W
B Pils kr.090,- L
Töskur - töskur
✓ i bæinn
✓ í sundið
✓ í leikfimina
✓ Eða hvert sem er
Hnífasett - 18 hlutir.
12 hluta borðbúnarður
✓ 5 hnífar til allra verka
✓ Brýni
✓ ! góðri tösku
✓ Ryðfrítt eðatstát
litsala
kr. 5.900
3ja hluta baðsett
✓ Fallegt og notadrjúgt
✓ Fyrir sápu
✓ Fyrir sápukrem
✓ Fyrir tannbursta
Handklæðasett
✓ Mjúk og þægileg
✓ Frottier úr hreinni bðmull
✓ 4 handklæði 58 x 100 cm.
✓ 2 baðhandklæði 70 x 140 cm.
Tölva sem gott
er að nota!
✓ í vönduðu veski
með blokk og penna
✓ Umreiknar i Evrur
✓ Notar sólarorku
✓ Stór gtuggi, stórir starfir.
✓ Fín til að eiga, gðð til að gefa!
QUELLE
Verslun Dalvegi 2 Kópavogi
Sími5642000