Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 DV Tilvera Ferðir út í geiminn árið 2001: Geimferðir fyrir almenning - sama hæð og Alan Shephard, fyrsti ameríski geimfarinn, fór í árið 1961 Þyngdarleysi Strangt tiltekið eru menn ekki komnir á braut um jörðu en samt sem áöur er útsýnið stórkostlegt og farþegarnir njóta þyngdarleysis í fimm til tíu mínútur. Fronskunámskeið /■-jtbo hddin 15. janúar. 2. £912. janúar. Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna, námskeið fyrir börn og eldri borgara, taltímar, einkakennsla. Tökum aS okkur kennslu í fyrirtækjum. Alliance Francaise Hringbraut 121 • Sími 552-3870 • Fax 562-3820 netfang af@ismennt.is • veffang http://af.ismennt.is Árið 1968 spáði kvikmynda- gerðarmaðurinn Stanley Kubrick því i myndinni 2001: A Space Odyssey að fljótlega eftir aldamót myndu flugfélög bjóða upp á reglubundnar ferðir út I geiminn. í myndinni er sena þar sem flug- freyjur frá PanAm ganga um með tehettur á höfðinu og færa farþeg- um fljótandi flugvélamat á meðan þeir tala í myndsíma sem er í bakinu á sætinu fyrir framan þá. Sumt af því sem Kubrick spáði á sínum tíma hefur ræst en ann- að ekki. Það eru enn þá flugfreyj- ur um borð i flugvélum en þær eru ekki meö tehettur á höfðinu. Flugvélamatur er óætur og í sum- um flugvélum er hægt að horfa á sjónvarp en það er ekki boðið upp á reglubundnar ferðir út í geim- inn og PanAm er farið á hausinn. Blikur á lofti Þrátt fyrir að spáin hafi ekki ræst eru blikur á lofti um að það muni gerast á næstu áratugum því stórfelldar áætlanir eru á lofti um að bjóða almenningi upp á ferðir út í geiminn. Menn eins og Buzz Aldrin, annar maðurinn til að stiga fæti á tunglið, eru ötulir baráttumenn fyrir geimferðum handa almenningi. Hann heldur því fram að framtíð geimferða byggi á slíkum ferðum og hvetur til fjárfestinga í fyrirtækjum sem ætla að bjóða upp á slíkar ferð- ir. 100 kílómetra hæð Nú þegar er byrjað að skip- leggja ferðir þar sem fólki er boði upp á ferðir með sérhönnuðum Sumarfrí í dönsku sumarhúsi Nýr verðlisti frá dönsku sumar- húsaleigunni Dan Center kom út á dögunum en þetta er í 44. sinn sem staðið er að þessari útgáfu. í frétta- tilkynningu með listanum segir að búast megi við verðlækkun á tíma- bilinu júní til júlí. Þá séu mörg til- boð í gangi og þess dæmi að aðeins þurfl að greiða tíu daga leigu fyrir afnot af sumarhúsi i tvær vikur. Þeir sem hyggja á ferðalag til Dan^o merkur geta fengið listann sendan heim sér að kostnaðarlausu og einnig er hægt að skoða sig um á heimasíðu íslenska umboðsmanns- ins www.fylkir.is á Netinu. Á heimasíðunni er hægt að skoða hvort hús eru laus, hvað þau kosta og einnig má ganga frá bókun á Net- inu. Þá er einnig að finna upplýsing- ar um sumarhús í Svíþjóð og Noregi eða fá sérstakan lista þar um send- an heim. Rugfreyjur með tehettur Flugfreyjur færa farþegum fjótandi flugvélamat á meðan þeir tala í myndsima. þotum sem flytja fólk upp í 100 kílómetra hæð. Það er sama hæð og Alan Shephard, fyrsti amer- íski geimfarinn, fór í árið 1961. Strangt tiltekið eru menn ekki komnir á braut um jörðu en samt sem áður er útsýnið stórkostlegt og farþegarnir njóta þyngdarleys- is í fimm til tíu mínútur. Allir sem fara í slíka ferð verða að vera í góðu líkamlegu formi og fá sérstaka þjálfun sem tekur um fjóra daga. Enn sem komið er þykir ferðin nokkuð dýr en hún kostar um 100 þúsund dollara. Geimhermir Þeir sem ekki hafa ráð á svo dýru flugi geta notið þess næst- besta og farið í flughermi sem lik- ir eftir ferð út í geiminn. Ferö í geimhermi þykir stórkostleg reynsla, ótrúlega eðlileg og kost- urinn við hana er að hún áhættu- laus. í Bandarikjunum er einnig boð- ið upp á sumarbúðir fyrir börn þar sem þau fræðast um geim- ferðir. Frægir geimfarar á borð við Buzz Aldrin, Alan Bean og John Glenn halda fyrirlestra og börnin fá þjálfun svo að þau geti tekið þátt í geimferðum framtíð- arinnar. -Kip INNANHÚSS- 72 ARKITEKTÚR í frítíma yðarmeð bréfaskriftum Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list. Þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, góiflagnir, veggklæðningar, vefnaðarvara. Þar tilheyrir gólfteppi, húsgagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl. Ég óska, án skuldbindingar, að fá sendan bækling yðar um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ Nafn.............................. Heimilisfang.................... Akademisk Brevskole A/S Jyllandsvej 15 ■ Postboks 234 2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.