Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Blaðsíða 43
51
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001
DV Tilvera
'BYLG J A Ni
tunglinu
- þess hefur verið farid á leit að kaþólska kirkjan geri
hann að dýrðlingi
Elvis á
Þjóðsögur eiga sér margar og
merkilegar birtingarmyndir. Flestir
tengja þær fortíðinni og gamla
bændasamfélaginu, álfum, draugum
og tröllum. Þrátt fyrir þetta eru nýj-
ar þjóðsögur alltaf að verða til og í
kringum sumar persónur verða til
svo margar sögur að það líkist fári.
Sögur um Elvis Presley eru dæmi
um þetta, frægðarstjama hans hefur
aldrei risið hærra en í dag, rúmum
tuttugu árum eftir að hann lést.
Vinsældir Elvisar og sala á tónlist
hans eru þvílíkar að það mundi
sæma hvaða lifandi tónlistarmanni
sem væri. Það er því ekki úr vegi
að rifja upp nokkrar sögur
um hann í tilefni þess
að afmælisdagur
kóngsins í
Graceland er 8.
janúar.
Ævi Elvisar
er klassískt
dæmi um fá-
tækan
dreng sem
brýst til
frægðar af
eigin
rammleik.
Hann eign-
ast allt sem
hugurinn
girnist en
fær leiða á
öllu saman,
tapar sér í
frægðinni og
glatar öllu, eða
eins og hann sagði
sjálfur: „a rat race at
a snail’s pace“.
Sögurnar öðlast líf
Skömmu eftir að frægðarsól Pres-
leys tók að risa fóru af stað sögur.
Ein er á þá leið að eftir að eigandi
Sun-útgáfufyrirtækisins heyrði
fyrstu upptöku hans á hann að hafa
sagt að það væri mun betra fyrir El-
vis að halda áfram að keyra vörubil
en að reyna fyrir sér í tónlist. Önn-
ur saga er á þá leið að Elvis hafi
verið mikill kynþáttahatari og hafi
lýst því yfir að það eina sem negrar
gætu gert fyrir sig væri að kaupa
plöturnar sínar og bursta skóna.
Báðar sögurnar verða að teljast
mjög vafasamar þar sem eigandi
Sun gaf út fyrstu Elvis-plötuna og
hann var undir sterkum áhrifum
frá trúartónlist þeldökkra suður-
ríkjamanna.
dag er hann kominn með bjórvömb,
skegg og skalla. Hann segir að sér
líði ágætlega en iðrast þess að hafa
svikið aðdáendur sína með þessum
hætti: „Ég ætlaði mér ekki að særa
neinn, ég gat bara ekki meira.“
í annarri frétt í sama blaði segir
að í staðinn fyrir Elvis hafi verið
búin til nákvæm vaxmynd af kóng-
inum og hún höfð til sýnis meðan
líkið stóð uppi og að þaö hafi verið
lík óþekkts Englendings sem fór í
gröfma. í öðru blaði er því haldið
fram að Elvis sé geimvera og það
hafi sést til hans á tunglinu. Þessi
- hugmynd kemur reyndar líka fram
í kvikmyndinni Men in
Black þar sem sagt er að
Elvis hafi ekki dáið
heldur farið heim.
Heilagur
Elvls
Frá dauða
Presleys
hafa verið
stofnuð trú-
félög sem
hafa tekið
hann í
guðatölu.
Sumir halda
þvi fram að
hann sé frels-
arinn endur-
fæddur og þess
hefur verið far-
á leit að
kaþólska kirkjan
taki hann í tölu
dýrðlinga. The Church
of Elvis í Portland Oregon
er opin allan sólarhringinn og
þar er hægt að ganga í hjónaband og
Elvis-líki syngur við brúðkaupið.
Önnur birtingarmynd Elvis-dýrkun-
arinnar er að á hverju ári er keppt
út um allan heim þar sem menn
leitast við að líkjast goðinu í útliti
og háttum. Það eru því til taílensk-
ir, japanskir, norskir og íslenskir
Elvisar.
Fyrir nokkrum árum heiðraði
bandaríska póstþjónustan rokkgoð-
ið með því að setja mynd af honum
á frímerki og kraftaverkin gerast
enn. Stuttu seinna lýsti bandarísk
kona því yfir að hún hefði læknast
af krabbameini í hálsi eftir að hafa
sleikt Elvis-frímerki. Og frá
Hollandi hafa borist þær fréttir að
stytta af Elvis gráti blóði eins og
Maríumyndir gera annað slagið.
Gat ekki meira
Eftir að tilkynnt var um dauða El-
visar 16. ágúst 1977 hafa gengið sög-
ur um að hann sé langt frá því að
vera dauður og sé við góða heilsu. Á
hverju ári berast fréttir víðs vegar
úr heiminum um að til hans hafi
sést allt frá Kópaskeri til Kalkútta.
Vikublaðið World Weekly News
hefur verið einstaklega duglegt við
að birta frásagnir af þessu. Blaðið
hefur t.d. greint frá því að Elvis búi
á Hawaii, ásamt núverandi eigin-
konu sinn, undir nafninu John
Burrows. Elvis mun hafa greint frá
því í viðtali ekki alis fyrir löngu að
hann hafi verið að bugast undan
frægðinni og álaginu sem henni
fylgdi og dauði sinn hafi verið sett-
ur á svið svo að hann gæti lifað eðli-
legu lífi. Hann segist reyndar búa
sjaldan lengi á sama stað því hann
sé á stanslausum flótta undan því
að þekkjast. Elvis hefur reyndar
breyst talsvert með aldrinum og í
Helgidómurinn Graceland
Líkt og aðrir dýrlingar á Elvis
sinn helgireit þangað sem dýrkend-
ur hans sækja í stríðum straumum
aiia daga ársins þótt fjöldinn sé
mestur í kringum fæðingar- og dán-
ardag hans. Margir líta á Graceland
sem helgidóm og telja sér skylt að
fara í pílagrímsferð þangað að
minnsta kosti einu sinni á ævinni,
líkt og múslímar sem verða að fara
til Mekka.
Dagbækurnar
Fyrir nokkrum árum héit banda-
rískur blaðamaður því fram að
hann hefði fundið dagbækur Elvisar
og að síðasta færslan væri dagsett
tveimur árum eftir dauða hans.
Fréttin vakti mikla athygli og þótti
óræk sönnun þess að Presley hefði
ekki látist 1977 eins og haldið er
fram opinberlega. Sagan af dagbók-
unum minnir óneitanlega á Dag-
bækur Hitlers á sínum tíma og það
sem meira er, þær hurfu á dularfull-
an hátt áður en blaðamaðurinn gat
sýnt þær eöa birt nokkuð úr þeim.
Aldrei vinsælli en núna
Sé litið tO vinsælda og æðisins í
kringum Elvis Presley á undanfóm-
um árum er engu líkara en að hann
hafi snúið aftur frá dauðum og sé
ódauðlegur. Sala á tónlist hans hef-
ur aldrei verið meiri og talið er að
búið sé að selja rúmlega milijarð
eintaka, sem þýðir að sjötta hver
manneskja á jörðinni á plötu með
Elvis, hann lifir. -Kip
Sest hefur til Elvisar Presleys á tunglinu
Er Elvis geimvera sem kom til jaröarinnar til aö skemmta mannfólkinu?
stemmmngu
með frábærum
skemmtikröftum!
ogBroadway
kynna: ^
Síöan 1Í9F9