Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2001, Blaðsíða 41
49 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 I>V Tilvera Magga Tígra: Eins og gullgrafari - að finna sinn fyrsta gullmola Það er Margrét Rós Einarsdóttir sem er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Magga er framkvæmda- stjóri Tígra heildsölu sem ílytur inn skart, töskur, snyrti- og baðvörur. Fyrirtækið gengur vel og fer stöðugt vaxandi. „Það er nóg að gera hjá okkur í Tígra þessa dagana enda erum við að flytja í stærra húsnæði á Tangar- höfða. Það er ekki til að bæta ofan á þennan háannatíma. Við erum búnar að vera gjörsamlega á fullu því það er eii\mitt á þessum tíma sem mest selst af okkar vörum. Við erum með bað- vörur í gjafapakkningum og auðvitað vilja allir vera finir á jólunum með fallega skartgripi. Svo við getum ekki kvartað. Við verðum flutt á mánudag- inn og þá er hægt að anda aðeins létt- ar,“ sagði Magga. Ég vildi fá alla þessa gim- steina „Það á mjög vel við mig að selja skart þar sem ég er alveg rosalega glysgjöm og hef verið frá því ég man eftir mér. Mamma minnist þess enn þá þegar hún fór með mig á markað í London þar sem seldir voru skartgrip- ir. Ég hef ekki verið meira en 3 ára og þar stóð hún í stöðugum vandræðum með mig. Ég stóð gjörsamlega stjörf við allt sem glitraði og var ekki til í að fara tómhent heim. Aldeilis ekki. Ég vildi fá alla þessa gimsteina og allt þetta glingur. Hún sagði að ég hefði verið eins og gullgrafari sem var að finna sinn fyrsta gullmola. Þvílík gleði," sagði Magga og hló. Uppskriftrr Humar með eplarjómasósu Fyrir 6 500 g skelflettur humar 50 g smjör Sósa 2 epli, gul 2 skalottlaukar, litlir 1 dl hvítvín 1 peli rjómi salt og pipar 1 tsk. dijon-sinnep 1/2 teningur fiskikraftur (Knorr) 1 súputeningur (Maggi) sósujafnari Meðlæti Hituð gróf smábrauð Lagið sósuna áður en humarinn er steiktur. Afhýðið og kjamhreins- ið eplin, skerið smátt. Bræðið smjörið á pönnu og steikið humar- inn ásamt eplunum í 1-2 minútur. Hellið sósunni á pönnuna og látið sjóða í 1 mínútu. Leggið á diska og skreytið með fallegu salati og tómat- strimlum. Sósa Saxið laukinn og steikið hann glæran í olíu á pönnu. Bætið hvítvíni og rjóma saman við og sjóð- ið við vægan hita í 5 minútur, þykk- ið ögn með sósujafnara. Bragðbætið með súputeningi, salti, pipar og sinnepi. Magga er með fjögurra manna heimili og að hennar sögn getur skipulagið skiljanlega farið aðeins úr skorðum. „Eitt sinn var ég búin að bjóða konu sem ég hafði verið að vinna með og manninum hennar í mat. Þaö var auðvitað nóg að gera eins og fyrri dag- inn og ég var með dætrum mínum að klára að keyra út vörur. Er mér ekki litið á klukkuna og hún er þá 19.30. Ég er ekkert að ýkja þegar ég segi að ég fór í loftköstum heim. Gestimir áttu að mæta kl. 20. Nema hvað, þegar ég var að renna í hlað með úfið hár og á inniskónum sé ég bíl skötuhjúanna fyrir utan heima. Það sem verra er að herrann var á eldhúsglugganum að at- huga hvort við „gestrisna" fólkið vær- um virkilega ekki heima. Hjörtur, maðurinn minn, var auðvitað enn þá að vinna þar sem konan hans hafði gleymt að minna hann á þetta boð. Spurðl hvort ég ætti brauð Ég skammaðist mín svo mikið þeg- ar ég reyndi að brosa til þeirra áhyggjulausu brosi og sagði að ég hefði tafist aðeins í vinnunni. Ég bauð þeim inn í stofu og horfði með samviskubiti á ostakörfuna sem þau höfðu fært okkur. Ég hentist inn í eldhús og þau komu af og til fram til mín og reyndu að spjalla eitthvað. Ég gat ekki einbeitt mér að neinum sam- ræðum því ég átti fullt í fangi með að sinna dætrum mínum og matargerð- inni. Þau sátu inni í stofu og veittu hvort öðru selskap. Ég hringdi í manninn minn um kl. 21.30 og bað Villisveppa- súpa „Cappuccino“ Fyrir 6 8 dl vatn 2 dósir kjötseyði (Campbell’s consommé) 2 súputeningar (Maggi) 11/2 dl rjómi (þeyttur) 30 g þurrkaðir villisveppir salt og pipar 1/2 dl sérrí Setjið vatn og kjötseyðið (consommé) í pott ásamt villisveppun- um og súpu- teningimum. Sjóðið við vægan hita í 10 mín. Tak- ið pottinn af hitanum og látið standa undir loki í 10 mín. Veiöiö sveppina upp meö sigti og síið soðið gegnum dúk (vegna óhreininda sem geta verið á sveppunum). Setjið aft- ur í pott og bragðbætið með salti, pipar og sérríi. Sjóðið upp og setjið í „cappuccino" bolla - upp í ca 3/4 af bollanum. Saxið helminginn af sveppunum smátt og skiptið á milli bollanna. Setjið þeytta rjómann á með teskeið. Berið fram sem um „Cappucino" væri aö ræða - harla óvenjulegur forréttur. Hollráð. Best væri að laga dökkt nautakjötsoð í þennan rétt. Þegar það er ekki til er óhætt að mæla Nýkaup Þar sem ferskleikinn býr Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi þar sem allt hráefni í þær fæst. Magga Tígra: „Hápunktur ömurlegheitanna þetta kvöldiö var samt þegar fyrrum samstarfskona mín kom inn í eldhús um kt. 10.15 og baö mig um brauö. Hún reyndi aö gera þaö kurteislega og sagöist vera svo svöng því hún hafði ekki boröaö neittyfir daginn.“ hann að koma heim hið snarasta. Ég fór inn í stofu og sagði þeim að þetta væri allt að smella saman og Hjörtur væri rétt ókominn. Það var hrikalegt að sjá þau þama uppábúin, hátt og lágt, ein inni í stofu. Ég held meira að segja að herrann hennar hafi verið með linda. Hápunktur ömurlegheitanna þetta kvöldið var samt þegar fyrrum sam- starfskona mín kom inn í eldhús um kl. 10.15 og bað mig um brauð. Hún reyndi að gera það kurteislega og sagðist vera svo svöng því hún hafði ekki borðað neitt yfir daginn. Það var ekki til að bæta það að ég hafði ekki komið við í búðinni á leiðinni heim og ég átti ekki einu sinni skorpu. Hún spurði hvort hún mætti þá ekki opna eina jógúrt sem hún sá í ísskápshill- með tilbúnu kjötseyði eins og því frá Campell’s. Afganginn af villi- sveppunum má frysta og nota við önnur tækifæri. Heit eplarúlla „Strudel“ Fyrir 6 6 blöð blaðdeig (Filodeig) 4 stk. epli, gul 1 dl rúsínur 1 dl saxaðar valhnetur 2 msk. rifið súkkulaði 2 msk. sykur 1 tsk. kanill 11/2 dl brauðrasp 2 msk. smjör, bráðið 11 vanilluís Leggið blaðdeigs- blöðin á dúk og penslið brúnirn- ar með smjöri; látið blöð- in ná hvert inn á annað. Stráið brauðraspi yfir helminginn af blað- deiginu. Afhýðið og kjamhreinsið eplin, skerið í litla bita og setji í skál ásamt rúsínum, hnetum, súkkulaði, kanil og sykri. Blandiö vel saman og dreifið yfir brauðra- spið. Takið í endann á deiginu þeim megin sem fyllingin er og rúllið upp. Setjið á smurða bökunarplötu og penslið með svolitlu smjöri, strá- ið síðan ögn af kanilsykri yfir. Bak- iö í 20 mínútur við 180 C. Berið fram með vanilluís. unni og var einmitt að borða það þeg- ar Hjörtur kom heim í vinnugallanum. Við borðuðum kl. 23 þetta kvöldið en þetta endaði allt saman mjög vel og maturinn var mjög vel heppnaður,” sagði Magga Tígra að lokum. Hvítvínskjúklingur 2 kjúklingar (ca 11/2 kg) 6 hvítlauksrif 100 g smjör 6 dl hvítvín 1/2 bolli kjúklingasoð Steinselja Salt og pipar Hluta kjúklinga og kryddið. Bræðið 2/3 af smjöri. Brúnið bitana með hvít- lauk í ca 10 min. Hellið smátt og smátt hvítvíni yfir á meðan kjúklingurinn er að sjóöa. Borið fram með hrísgrjónum og smábrauði. Salat 1/2 iceberg Lítil dós af gulum baunum 2 avocado (hlutaðir í ferninga) Paprika (rauð og gul) Tómatar Salatsósa: Rauðvínsedik eða balsamiedik, 1 msk. 3 msk. olía Salt af hnífsoddi 1 tsk. franskt sinnep Saltið er látið leysast upp í edikinu. Öllu blandað saman og kryddað með rauðlauk og kryddi. Glæsilegt úrval Glæsilegt úrval af handunnum rúmteppum, dúkum, Ijósum og gjafavörum. Arshótíðadress fyrir börn og fullorðna, samkvæmisveski. Matta rósin 20% afsl. Pelsar í úrvali opid Sigurstjarnan virka dogo 11 -18, [ bláu húsi við Fákafen. lougord. 11-16 Sími 588 4545. Þorrablót Þrítugasta og fyrsta þorrablót brottfluttra Patreksfírðinga og Rauðasandshreppsbúa verður haldið í Versölum við Hallveigarstíg föstudaginn 19. janúar nk. • Húsið opnað kl. 19 og borðhald hefst stundvíslega kl. 20.00. • Miðar verða seldir á sama stað laugardaginn 13. jan. kl. 13-16 og mánudaginn 15. jan. kl. 19-20. • Miðapantanir hjá Lauru í s. 555 1288, Gunnu Jónu í s. 567 3923 og Katli í s. 564 2407. Aldurstakmark 18 ár. Hægt er að greiða með greiðslukortum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.