Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Blaðsíða 10
10 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aöalritstjóri: Óli Bjöm Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Fróttastjóri: Birgir Guðmundsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, simi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer. Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Ritsfjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Þjóðin og þingið Nú er svo komið í íslenskri stjórnmálasögu að taka þarf sérstaklega fram í sölum Alþingis að enginn íslensku stjórnmálaflokkanna á Alþingi stefni að Evrópusam- bandsaðild. Formaður utanríkismálanefndar tók reyndar af skarið i nokkuð tilfmningaheitri ræðu sinni á fimmtu- dag og sagði fullum fetum að það væri ekki - og lesist alls ekki - stefna ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar að sækja um aðild að ESB. Formaðurinn kvaðst vilja taka þetta fram að marggefnu tilefni. Umræða íslenskra stjórnmálamanna um Evrópusam- bandið er orðin með hreinum ólíkindum. Það hefur sann- ast á siðustu dögum og vikum að pólitík er oftar en ekki iðkuð af meiri tilfinningum en rökum. Orðavalið er víða með þeim hætti að líkja verður við hreina geðshræringu. Að líkindum er það rétt sem formaður Samfylkingarinn- ar sagði fyrir tveimur dögum á Alþingi að skil væru að verða á milli þings og þjóðar í þessu einu mikilvægasta hagsmunamáli landsmanna á seinni árum. Og ef til vill færi betur á því að tala um gjá fremur en skil í þessum efnum. Annarsvegar er mestur hluti ís- lensku þjóðarinnar sem lýsir því yfir í hverri skoðana- könnuninni af annarri að fýsilegt sé að sækja um aðild að ESB til að kanna kosti sambandsins og galla. Hinsvegar er hópur hnipinna alþingismanna í nagandi óvissu um það hvort rétt sé að halla sér að meginlandinu i austri eða vera áfram í túninu heima. Þar eru á ferð atvinnumenn í orðsins brandi og halda vopnum sínum til hlés. Gaman er að fylgjast með þessu og eins getur það ver- ið sárt á köflum. í skemmtilegustu tilvikunum verður ekki betur séð en að þingmenn ranghvolfi í sér augunum í leit sinni að hæfilegri þögn um málið. í öðrum tilvikum freistast menn til að losa lítillega um tæpitunguna og eru umsvifalaust staðnir að landráðum í hugum þeirra sem segja málið ekki umræðunnar virði. Niðurstaðan er furðuleg. Eitt af allra stærstu utanríkismálum samtimans er orðið að nokkurskonar goðgá. Það er verðugt verkefni fyrir atorkusama stjórnmála- fræðinga og ef til vill sálfræðinga að rannsaka þetta póli- tíska atferli og háttalag sem að öllum líkindum á ekki sinn líka í heiminum. Hvernig má það vera að jafn stóru og áleitnu umfjöllunarefni í evrópskum stjórnmálum hef- ur samviskusamlega verið haldið utan dyra Alþingis? Hvernig má það vera að í hvert sinn sem þjóðin svarar samviskusamlega hverri könnunni af annarri um þetta efni er hún ekki sögð vera marktæk? Evrópusambandsmálin eru á dagskrá íslensku þjóðar- innar. Hún hefur margsinnis sýnt það og sannað í vönd- uðum könnunum virtra fyrirtækja á þessu sviði. íslenska þjóðin er þegar allt kemur til alls ágætlega upplýst um Evrópusambandið. Blaðamenn hafa verið ólatir við að skrifa hverja fréttaskýringuna af annarri um allar hliðar málsins og ekki verður í fljótu bragði kastað tölu á þann óheyrilega fjölda viðtalsþátta í útvarpi og sjónvarpi sem fjallað hafa um málið. íslendingar kjósa gjarna með buddunni. Rækilega hef- ur komið fram á síðustu dögum að mikill hluti lands- manna sér hag sínum best borgið með því að ganga í sam- band Evrópuríkja. Landsmenn þekkja ávinninginn af samningnum um evrópska efnahagssvæðið og virðast sannfærðir um að enn meiri tengsl við Evrópu færi þeim enn meiri hagsæld. Vera kann hinsvegar að Evrópuum- ræðan sé of stór fyrir þann pínulitla minnihluta þjóðar- innar sem alþingismenn eru. Sigmundur Ernir LAUGARDAGUR 23. MARS 2002 ^ LAUGARDAGUR 23. MARS 2002 DV Þörf fyrir tvö skrúfjárn Laugardagspistill sjá.“ „Ósamansett," át ég upp eftir honum. „Eigiö þiö þá ekki eftir aö vinna vinnuna ykkar, minn kæri?“ sagði ég og reyndi að sýnast róleg- Jónas ur þótt reyndin væri önnur. „Ég Haraldsson kom hingað til þess að ná í skrif- aöstoöarritstjóri borð en ekki einhverja kubba.“ „Það er einhver misskilningur, góði maður," sagði lagermaðurinn ungi. Það vottaði fyrir pirringi í röddinni. „Við seljum bara ósam- ansett. Þess vegna getum við boðið vöruna á svona góðu verði." „Biddu aðeins,“ sagði ég eins og dæmdur maður sem á aðeins rétt á einu símtali. Ég greip símann og hringdi í kon- una. „Hér er eitthvað galið,“ sagði ég þegar hún svaraði, „þetta er ekki borð heldur Hvað skal gera þegar konan hringir í vinnuna og segist vera búin að kaupa skrifborð handa dóttur okkar? Það væri hægt að vísa í almennt efnahagsástand og samdrátt í þjóðfélaginu og því væri betra að bíða með fjárfestinguna. Það er hins vegar óraunhæft. Það er ekki hægt að segja nei við þessar aðstæður enda j liti það illa út gagnvart konu og þó einkum bami. Ég gat ekki neitað því að gamli skrifborðsræfillinn væri lélegur, bæri ekki nú- tímabúnað og þörf væri á nýju borði. Því sagði ég já og bætti því við að þetta væri ekki nema sjálfsagt. „Fínt,“ sagði konan, „renndu þá við í búðinni þegar þú ert búinn aö vinna og kipptu því með heim. Ég lét taka það frá.“ Kubbar Hlýðinn gerði ég það sem fyrir var lagt, fór í búðina og lagði áður niður aftursætin í bílnum svo ég kæmi skrifborðinu í öllu sínu veldi í vagninn. Þegar inn kom var mér vísað á lagerinn. Búðarlokan tók mér vel og benti strax á borðið. Það fór minna fyrir því en ég hafði ætl- að. Við mér blasti tiltölulega þunn- ur pappakassi. „Er þetta ekki bara borðplatan, góði minn?" sagði ég af reynslu þess manns sem áður hafði keypt skrifborð. „Ég átti að sækja heilt borð. Það hlýtur að fara meira fyrir því en þetta.“ „Þaö er allt þama,“ sagði ungi maðurinn og horfði á mig. „Borðið er ósamansett, eins og þú hlýtur að glotti. „Eskan mín,“ sagði konan á hinum enda línunnar, „kipptu með þér borðinu. Ég fékk það á frábæru verði. Það er ekkert mál að setja það saman. Það fylgir teikning." 114 fylgihlutir Ég bar kassann út í bíl og inn heima. Mæðgumar tóku mér fagn- andi og stelpan reif kassann þegar upp. Út úr honum komu fleiri hlutir en ég fékk talið í fljótu bragði. Mér féllust osam- settir kubbar. Átti ég ekki að sækja skrifborð?" Lagermaðurinn hnippti í félaga sinn og hvíslaði einhverju að hon- um og benti á mig. Sá síðarnefndi hendur. „Ég kiki á þetta á morg- un,“ sagði ég til að vinna tíma. Það var fóstudagskvöld og ég vissi að þær voru á leið Sciman á barnakóra- mót utan bæjarmarkanna. Mótið átti að standa alla helgina. „Ósamansett,“ át ég upp eftir honum. „Eigið þið þá ekki eftir að vinna vinnuna ykkar, minn kœri?“ sagði ég og reyndi að sýnast rólegur þótt reyndin vœri önnur. „Ég kom hingað til að ná í skrifborð en ekki ein- hverja kubba.“ einveru laugardagsins horfði ég á kassann á stofugólfmu. Ég horfði á hann um morguninn, síðdegið og kvöldið en fékk mig ekki til að taka á honum. Nokkrar fjalir lágu við hlið hans, þær sem stúlkan hafði handleikið i gleði sinni daginn áður. Ég ákvað að bíða til sunnudagsins og hann leið fram að hádegi áður en ég mannaði mig upp og reif kassann endan- lega í sundur. Það komu hvorki fleiri né færri en nítján hlutir út úr pappakassanum, misstórar fjalir og plötur, járnlappir og síðast en ekki síst tveir pokar sem inni- héldu ótrúlega marga smáhluti. Ég hlunkað- ist niður í stofusófann og reyndi að jafna mig. Loks reis ég upp og greip teikninguna. Leiðbeiningarn- ar voru ekki á einu blaði eins og ég hafði haldið heldur fylgdi tólf blaðsíðna bók með 19 skýring- armyndum. Pokarnir tveir voru ógnvekjandi en ég reif þá samt upp. Út úr þeim komu 114 fylgihlutir. Ég settist aftur. Þegar ég hafði dregið andann djúpt Sjonarhom Bjórn Þorláksson blaöamaöur Hneykslistréö Vinnubrögðin hefðu get- að verið vandaðri í Strætómálinu en þeir sem standa utan stjóm- málaflokkanna eiga erfitt með að grípa að nýtt Landssímamál sé komið upp. því til fjölmiðla að stjóm Strætó hafði ekki verið upplýst um skamm- tíma framkvæmdastjóraráðningar- samning við stjórnarformann Strætó. Þetta mál væri barnaleikur miðað við Landssímamálið. En er það svo? Hnökrar en ekki hneyksli Bæði borgarstjóri og fram- kvæmdastjórtnn fyrrverandi hafa sagt að eftir á að hyggja hefði e.t.v. verið heppilegra ef stjórn fyrirtæk- isins hefði verið kynnt málið með formlegum hætti og hún hefði fengið að sjá launatölur og annað. Með því er viðurkennt að hnökrar hafl komið upp sem er miður. Hins vegar sér maður trauðla hvaða tengsl þetta mál hefur við leyni- samning ráð- herra og fyrrum stjómarfor- manns Lands- símans. Samn- ingur eigenda byggðasamlags- ins Strætó Qall- aði nefnilega að- eins um þá staö- morgun-, hádegis- og kvöldmat. Al- menningi hefur ofboðið siðleysi og sjálftaka valds hjá tUteknum ein- staklingum. Innstæða hefur reynst fyrir upphrópunarmerkjunum en tUvUjun háttað svo tU að leikendur í þessu sjónarspUi hafa flestir tengst Sjálfstæðisflokknum. Landssímamálið kostaði nokkur líf í atvinnulegu, stjórnmálalegu og mannorðslegu tUliti og því var e.t.v. ekki að undra að sjálfstæðis- menn legðust undir feld og spyrðu: Getum við ekki fundið einhverjar svona bombur gegn keppinautum okkar? í striði þarf enda að sýna herkænsku og eftir nokkra yfirlegu komu þeir fram með sprengju um spUlingu hjá Strætó bs. Einn borg- arfuUtrúa Siálfstæðisflokksins kom Það þarf upphrópanir tU að menn nái að kveða sér hljóðs nú um stundir. Þetta á ekki síst við um hið pólitíska landslag í aðdrag- anda sveitarstjórnarkosninganna. Sveitarstjómarkosningar eru nefnUega smá plat. Þar er ekki tek- ist á um utanríkismál líkt og aðUd að ESB eða hvort viðbrögð Banda- ríkjamanna hafi verið viðeigandi í kjölfar hryðjuverkarina 11. september sl. Þar er miklu fremur leitað eftir því hvaöa fuUtrúar séu fram- bærUegustu sendiherrarn- ir tU að afla sínu sveitarfé- lagi brautargengis eða hvort þessi eða hinn sé lík- legastur tU að fara vel með fjármál. Slíkir eiginleikar raðast ekki eftir flokkum og fyrir vikið verður nið- urstaðan sú að menn verja sínu atkvæði ýmist eftir því hvemig þeim líst á leiðtogana eða hvort við- komandi þekkir einhvern frambjóðandanna persónu- lega. Einnig er þekkt að at- kvæðum sé varið genetískt. Einsleit flóra Sveitarstjórnarmálin eru því æði einsleit nú um stundir þótt einhverjar öfg- ar sé með góðum vUja hægt að sjá tU vinstri og hægri í innansveitar- króníkunni. Vinstri græn- ir eru gegn ýmsum breytingum og vUja hlut ríkisins mikinn. Sjálf- stæðismenn ganga hins vegar lengst í alúð við einkaframtakið. Aðrir flokkar eru meira og minna á miðjunni eins og einnig háttar tU um hluta af liðsmönnum „öfga- flokkanna" tveggja. Þá getur verið erfitt aö ná athyglinni og marka sérstöðu. Vandi ungra og metnað- arfuUra eldhuga í pólitík er ærinn undir þessum kringtnnstæðum. Getum við ekki líka? Ýmis hneykslismál hafa hins vegar dunið á þjóðinni undanfarið og hafa mál Þjóðmenningarhússins og Landssímans verið ofarlega á baugi. í því fári öUu hefur þjóðin innbyrt upphrópunarmerki í bæöi ______n Skoðun Samkeppnisvæðing Elnkavæðing Einkavæöing komandi ára snýst því aö litlum hluta aö því hvort nokkur fyrir- tæki á fjármála- og fjarskiptamarkaöi verði seld. þrisvar sinnum opnað ég bókina. Á fyrstu blaðsíðunni voru myndir af tveimur skrúfjárnum og leiðbeining- ar á sænsku, hvað annað. Svíar eru frægir fyrir að senda þessa hluti frá sér ósamsetta. „De har verktygen behöver du“. Ég skUdi það, einkum af því að mynd fylgdi verkfærunum, skrúfjárnunum tveimur. Leiðbein- ingarnar voru að vísu á fleiri tungu- málum: ensku, dönsku, frönsku, hol- lensku, spænsku og ítölsku. Ég lét mér nægja að glugga í þau skandin- avísku og enskuna. Þessi ósamsettu húsgögn valda greinUega höfuðverk í mörgum þjóðríkjum. Síðan gat að líta myndir af hverri skrúfu, tré- og járn- töppum, klemmum, jámfótum, plast- lokum og handföngum. Ég fann tU skrúfjárnin og byrjaði. Snöggur FaU er fararheUl hugsaði ég eftir að hafa eytt þremur fyrstu korter- unum við að ná málmtöppum upp úr sex götum á borðplötunni. Á teikningunni voru tvær gerðir af þessum töppum. Mér tókst að setja vitlausa tappa í götin, minni tapp- ana sem hurfu niður á botn í holun- um. Það þurfti sérstakt lag og ómælda þolinmæði tU þess að ná þeim upp aftur. Það vUdi tU að eng- inn var heima tU þess að fylgjast með handverksmanninum. Ég fylgdi. hverri mynd i bæk- lingnum, skrúfaði og festi eftir því sem fyrir var lagt. Eftir matar- og kaffihlé fór smám saman að komast mynd á borðið - kubbamir á gólf- inu líktust æ meira alvöruskrif- borði. Samsetningin tók marga klukkutíma og endaði á tveimur skúffum og tölvuborði. í þann mund er ég festi síðustu skrúfuna heyrði ég í þeim mæðgum. Kóra- mótinu var lokið og þær komnar heim. „Sjáðu, mamma," sagði stelpan. „Skrifborðið er tUbúið.“ „Já, ég vissi það,“ sagði móðirin. „Hann pabbi þinn er enga stund að setja svona saman. Varstu ekki snöggur aö þessu, elskan?" spurði hún og leit á mig. „Það margborgar sig að kaupa þetta ósamansett.“ reynd að lögmaðurinn Skúli Bjama- son væri starfandi stjómarformað- ur og staðgengUl framkvæmdastjóra tU skamms tíma. ÖUum ber saman um að hann hafi sinnt störfum sín- um vel. í Landssímamálinu var hins veg- ar talað um sérfræðiráðgjöf en I raun hefur ekki komið almennUega fram hvort það var í raun ráðgjöf eða einfaldlega hluti af sporslum stjómarformannsins. Þar var ekki heldur árangri fyrir að fara heldur voru hver stórmistökin gerð á fætur öðrum. Síðast en ekki síst er grund- vallarmunur á rekstrarformum, Lands-síminn er hlutafélag en Strætó bygðasamlag. Þetta tvennt virðist því ekki samanburðarhæft. Ekki alltaf gaman í Landssímamálinu nýttu and- stæðingar SjálfstæðisOokksins sér tækifærið tU að gera Uokkinn tor- tryggUegan og reyna að koma spUl- ingarstimpli á aUa sjálfstæðismenn. Það var ekki sérlega göfugt enda engin dæmi um nein spUlingargen þar fremur en annars staðar. SpUl- ing þrífst hins vegar í skjóli valds og sjálfstæðismenn fara með mest völd. Það er miður að sjálfstæðismenn hafi svarað í sömu mynt og án þess að ígrunda nægUega vel hvort inni- stæða væri fyrir Strætómálinu. Kannski reiknast það á pirring þeirra vegna skoðanakannana mid- anfarið. Fyrst voru þaö 9-6 tölumar í borginni og síðan ESB-málið. Eftir áralanga yfírlegu, ráðherraskipti og Ueira virðist niðurstaðan sú að sjálfstæðismenn í Reykjavík geti að- eins glaðst á fjögurra ára fresti. Að- eins þegar kosið er tU Alþingis en ekki í borgarstjómarkosningunum. Vinnubrögðin hefðu getað verið vandáðri í Strætómálinu en þeir sem standa utan stjómmálaUokk- anna eiga erfitt með að grípa að nýtt Landssímamál sé komið upp. Von- andi kemur sá tími aldrei að hægt verði aö tína hneykslismál af trján- um og hrópa úlfur, úlfur. Ég er einn þeirra sem hef verið talsmaður umfangsmikiUar einka- væðingar á undanfómum áram og ég er í hópi þeirra sem telja að þar haU gengið of hægt. Ég er hins vegar ekki í hópi þeirra sem telja að einkavæð- ingarstefna ríkisstjómarinnar hafi beðið hnekki á undanfómum vikum og misserum. Ég hafna þeirri skoðun að einkavæðingarstefnan hafi beðið sérstakt skipbrot vegna þess að ekki hefur enn tekist að selja Landssím- ann eða ríkisbankana tvo, Búnaðar- banka og Landsbanka, að fullu. Þvert á móti hefur einkavæðingin skUað umtalsverðum árangri á undanfóm- um árum, ekki aðeins í því að losa um eignarhald ríkisins á fyrirtækjum - heldur hefur viðhorf almennings til ríkisrekstrar gjörbreyst á undanfórn- um áram og það er kannski mikU- vægast. Auðvitað hafa verið gerð mistök við einkavæðingu ríkisfyrirtækj- anna. Við getum endalaust dvalið við það sem miður hefur farið. Við getum einnig litið fram á veginn og sett stefnuna. Augu stjómmálamanna, jafnt sem fjölmiðlunga og almennings hafa verið bundin við Landssímann, Búnaðarbanka og Landsbanka þegar kemur að einkavæðingu. Að ein- hverju leyti er þetta skUjanlegt eftir aUt sem á undan er gengið en á sama tíma er sú hætta fyrir hendi að við verðum of þröngsýn og sjáum ekki þau tækUæri sem era allt i kringum okkur - tækifæri sem ekki verða virkjuð nema okkur takist að hrinda af stað umfangsmikUli einkavæðingu og þar með innleiða samkeppni á sem flestum sviðum þjóðfélagsins. 1 þessu sambandi er vert að hafa í huga að samkeppni og einkavæðing eru órjúf- anlegur hluti af því marki sem stefna ber að. Hámarka söluverðið Furðulegt væri ef ekki hefðu verið gerð mistök við einkavæðingu ríkis- fyrirtækja. En ég vU vekja sérstaka athygli á tvennu vegna þess að fæstir leiða að því hugann. í fyrsta lagi hef- ur athyglinni nær eingöngu verið beint aö nokkrum fyrirtækjum í staö þess að beina mnræðunni að hlut- verki ríkisins og hvemig best sé að koma fyrir þeirri margvíslegu þjón- ustu sem opinberir aðUar veita. í annan stað hefur áherslan á að há- marka söluverð ríkisfyrirtækja skyggt á megintUganginn með einka- væðingunni. Markmiðið er ekki að hámarka söluverð - að afla ríkissjóði tekna eða standa straum að jarö- gangagerð og öðrum verklegum fram- kvæmdum - markmiðið er að koma fyrirtækjum og hugsanlega öðrum op- inberum rekstri i hendur einkaaðUa - undir aga markaðarins og tryggja um leið farveg fyrir eðlUega og sann- gjama samkeppni. Hvort ríkisfyrir- tæki eins og Landssíminn er seldur á milljarðinum meira eða minna er aukaatriði - aðeins bónus þegar markmiðinu er náð. Væntanlegar tekjur af sölu rikisfyrirtækja mega aldrei hafa áhrif á ákvörðun um að selja fyrirtæki í eigu hins opinbera. Sala ríkisfyrirtækja má aldrei vera drifin áfram af fjárþörf ríkissjóðs á hverjum tíma heldur af nauðsyn þess að koma fyrirtækjum í hendur einka- aðUum og í eðlUegt rekstrarform í samkeppnisumhverfi. Hugmyndabaráttan Þrátt fyrir allt höfum við orðið vitni að umtalsverðum árangri. AUt frá hljóðlátri einkavæðingu á Skóla- vörabúðinni, tU hávaðasamrar sölu á hlutabréfum rikisins í Fjárfestingar- banka atvinnulífsins. En við höfum einnig séð einkaaðUa taka að sér fleiri verkefni sem áður voru nær eingöngu á herðum opinberra aðUa, frá skólum tU öldrunarþjónustu. Einkavæðing þjóðfélagsins, eöa sam- keppnisvæðing er líklega betra orð, gerist ekki aðeins með sölu ríkisfyrir- Viljum við sjá sam- keppni á orkumarkaði, teljum við að menntun bama okkar sé best tryggð méð því að hleypa auknum krafti inn í skólakerfið? Einkavœð- ing komandi ára snýst um að samkeppnisvœða íslenskt þjóðfélag - þjóð- félag þar sem stærsti hluti efnahagslífsins er í raun í án samkeppni. tækja heldur með því að gefa einkaað- Uum möguleika á að keppa á nýjum vettvangi. Þannig hefur grunnhugsun einka- væðingar náð yfirhöndinni og sú frá- leita hugsanaviUa að nauösynlegt sé fyrir rikið að selja skrifstofuvörur hefur þar með verið leiðrétt. Almenn- ingur jafnt sem flestir stjómmála- menn hafa áttað sig á því að það er álíka gáfúlegt að ríkið stimdi smásölu á skrifstofu- og kennslubúnaði og að það einoki sölu á útvarpstækjum í gegnum sérstaka viðtækjaverslun. En við eigum þó langt í land og það er verkefhi komandi missera og ára að ryðja brautina tU enn frekari land- vinninga á sviði einkaframtaksins - í að samkeppnisvæða landið. Hér skiptir engu hvort Landssíminn eða bankamir era seldir misserinu fyrr eða síðar, þessi fyrirtæki verða seld. Hugmyndabaráttan snýst ekki lengur um það hvort rétt sé að draga ríkið út úr beinum fyrirtækjarekstri, heldur miklu fremur hvort og þá hvemig hægt er að innleiða kosti einkafram- taksins og samkeppninnar á fleiri svið ríkisrekstrarins. Einkavæðingarsinnar hafa unnið fyrrihluta hinnar pólitísku baráttu þó á stundum hafi blásið á móti. Auðvit- að er það áfaU að ekki skuli hafa tek- ist að selja Landssímann eða binda endahnútinn á einkavæðingu bank- anna. En það er langt frá því að vera einhver áfeUisdómur fyrir stefnu rík- isstjórnarinnar. Stjómmálamenn sem og aðrir geta skemmt sér við deUur um hvort hag- kvæmt sé að fela einkaaðUum þjón- ustu í heUbrigðiskerfmu. Slíkar deU- ur skipta litlu og skUa engu. Aðalat- riðið er að einokun og hömlur á sam- keppni hafa jafn skaðvænleg áhrif í þessari grein og á öðrum sviðum þjóðlífsins. Þær hækka kostnað og draga úr framleiðni. Það er kominn timi tU að íslendingar geri sér grein fyrir að það er tvennt ólíkt að ákveða hver og hvemig er greitt fyrir þjón- ustu og hvemig og hverjir eigi að veita hana. íslendingum er það lífsnauðsynlegt að raunveruleg samkeppni verði inn- leidd í heUbrigðisþjónustu. Sam- keppni mun tryggja bestu nýtingu fjármagns, sem þrátt fyrir allt er tak- markað, en um leið laða fram það besta í þeim gífurlega mannauði sem íslenskar heUbrigðisstéttir búa yfir. Og samkeppni verður ekki tryggð með öðram hætti en að gefa einstak- lingum tækifæri tU að keppa á jafn- réttisgrundveUi við ríkið. Einkavæðing komandi ára snýst því að litlum hluta að því hvort nokk- ur fyrirtæki á fjármála- og fjarskipta- markaði verði seld, heldur um það hvaða leiðir við ætlum að fara í ríkis- rekstrinum sjálfum. Ætlum við að lára reka á reiðanum í heUbrigðis- kerfinu eða innleiða þar samkeppni og nýta möguleika einkaframtaksins? VUjum við sjá samkeppni á orku- markaði, teljum við að menntun bama okkar sé best tryggð með þvi að hleypa auknum krafti inn í skóla- kerfið - krafti sem best er tryggður með öflugri samkeppni? Baráttan um einkavæðinguna mun snúast um þessi atriði. Einkavæðing komandi ára snýst um að samkeppnisvæða ís- lenskt þjóðfélag - þjóðfélag þar sem stærsti hluti efnahagslífsins er í raun í án samkeppni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.