Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
DV
Utlönd
Thatcher þagnar
Læknar Mar-
grétar Thatcher,
fyrrum forsætis-
ráðherra Bret-
lands, hafa skipað
henni að hætta öll-
um ræðuhöldum
af heilsufarslegum
ástæðum eftir al-
varleg veikindi að
undanfornu. Þetta kom fram í
fréttatilkynningu frá jámfrúnni í
gær eftir að hún hafði fengið snert
af hjartaáfalli á fimmtudaginn. Þar
kemur fram að Thatcher, sem er 76
ára, hafi fengið fleiri minni háttar
hjartaáföll á undanförnum vikum
og sé því hætt að halda ræður og
hvili sig nú á heimili sínu.
Ward saklaus
Norður-írinn Paul Ward, sem ár-
ið 1998 var dæmdur í lífstíðarfang-
elsi fyrir morðið á rannsóknar-
blaðakonunni Veronicu Guerin,
sem skotin var til bana í bil sínum
í útjaðri Dublin sumarið 1996, var í
gær úrskurðaður saklaus eftir að
mál hans hafði verið tekið upp af
glæpadómstóli í Dublin. Sannað
þótti að vitnisburður gegn honum
hefði ekki verið á rökum reistur.
Ward, sem er 37 ára, verður þó
áfram bak við lás og slá þar sem
hann tekur út tólf ára dóm fyrir
þátttöku í óeirðum innan fangelsis-
múranna.
Sætur sigur Schröders
Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands,
vann sætan og mikil-
vægan sigur í þýska
þinginu í gær þegar
umdeild lög varð-
andi innflytjendur
voru samþykkt i efri
deild þingsins með
aðeins eins atkvæðis
mun, 35-34. Tilgang-
ur laganna er að laða sérmenntað
fólk til landsins en herða um leið
reglur almennra innflytjenda. Mikil
átök urðu um málið í þinginu og
gekk hluti stjórnarandstöðunnar út
með látum eftir að hafa sagt kosn-
inguna ólöglega.
Úgandamaöur drepinn
Foringi í her Úganda var skotinn
til bana í suðurhluta Súdan í fyrra-
dag þegar til skotbardaga kom
milli hersveita súdanska stjómar-
hersins og skæruliða LRA-hreyfing-
arinnar sem berst gegn sitjandi
stjómvöldum í Súdan. Foringinn,
Kheril Magara, var á ferð með súd-
önsku hersveitinni þegar um hund-
rað manna liðssveit skæruliða
gerði skyndiárás með þeim afleið-
ingum að 24 féllu úr liði stjómar-
hersins en átta liðsmenn LRA.
Bush ávarpar fátækraþing
George W.
Bush Banda-
ríkjaforseti sagði
í ræðu sinni á
þingi Sameinuðu
þjóðanna gegn
fátækt í heimin-
um, sem nú er
haldið í Monter-
rey í Mexíkó, að
fátækar þjóðir
verði að taka sig
á í pólitískri og efnahagslegri upp-
byggingu til að hljóta aðstoð vest-
rænna þjóða. „Frelsi, lög og tæki-
færi er meðal þess sem þarf til að ná
árangri við uppbygginguna,“ sagði
Bush.
Skartgriparán í London
Grímuklæddir ræningjar létu í
gærmorgun greipar sópa í anddyri
hins fræga Dorchester-hótels i
Lundúnum en þar hafa að undan-
fömu verið til sýnis dýrindis skart-
gripir í eigu tveggja stórfyrirtækja
til yndis fyrir forrika gesti þessa
fimm stjörnu hótels. Ræningjarnir
ruddust fram hjá öryggisvörðum
hótelsins í bítið í gærmorgun, vopn-
aðir skotvopni, og brutu upp sýn-
ingarskápa með slaghömrum áður
en þeir hurfu á braut með feng sinn.
Ekkert hefur verið gefið upp um
verðmæti þýfisins.
Vopnahlésviðræður ísraela og Palestínumanna í hnút:
ísraelar halda að sér höndum
eftir þriðju sjálfsmorðsárásina
Palestínskur sjálfsmorðsliði
sprengdi sjálfan sig í loft upp við
eftirlitsstöð ísraelska hersins í ná-
grenni bæjarins Jenin á Vestur-
bakkanum í gær með þeim afleið-
ingum að fjöldi manns særðist og
þar af einn mjög alvarlega.
Þetta er þriðja sjálfsmorðárásin
á jafnmörgum dögum og var hún
gerð stuttu áður en fyrirhugaður
framhaldsfundur sáttanefnda ísra-
ela og Palestínumanna átti að hefj-
ast í Tel Aviv í gær en fundinum
hafði verið frestað í fyrradag eftir
sjálfsmorðsárásina á strætisvagna-
biðstöðinni i miðborg Jerúsalem
þar sem þrir ísraelskir borgarar
létu lífið.
Þrátt fyrir allt fór fundurinn fram
og stóð hann i rúmar þrjár klukku-
stundir en þó án þess að nokkur
árangur næðist eins og búist var
við. Að sögn talsmanna ísraelska
utanríkisráðuneytisins mjakaðist
ekkert í vopnahlésátt og virðist nú
Hryðjuverkaæfing al-Aqsa samtakanna
Liösmenn palestínsku al-Aqsa samtakanna, sem staöiö hafa fyrir hverri
sjálfsmorösárásinni af annarri síöustu vikurnar, sjást hér á æfingu.
sem málið sé komið í hnút þar sem
deiluaðilar bíða aðgerða og frum-
kvæðis hvor frá öðrum.
Árásin í gær kemur beint í kjöl-
far loforða Yassers Arafats um að
gera sitt til að binda enda á blóðbað-
ið og sýnir árásin að hann hefur
litla stjórn á vopnuðum hreyfingum
öfgasinnaðra Palestínumanna sem
staðið hafa fyrir hverri sjálfsmorðs-
árásinni af annarri að undanförnu.
Arafat hitti Anthony Zinni á
fundi í Ramallah í gær og er ljóst að
Zinni hefur þar ítrekað kröfur Bush
Bandaríkjaforseta um að hann beiti
sér mun harðar fyrir því að árásum
á ísraelska borgara linni.
Talsmenn israelskra stjórnvalda
sögðu í gær að þrátt fyrir árásina
yrði staðið við fyrri loforð um að
bíða átekta með hefndaraðgerðir en
bættu við að strax yrði gripið til að-
gerða ef framhald yrði á árásum á
ísraelska borgara. Það verði ekki
liðið til lengdar.
„Ungfrú B“ fékk
leyfi hæstaréttar
til að deyja
Hæstiréttur í Bretlandi hefur úr-
skurðað að kona nokkur, sem liggur
í öndunarvél eftir að hafa orðið fyr-
ir því að æð opnaðist í hálsi hennar
fyrir rúmu ári, fái leyfi til að láta
slökkva á vélinni sem heldur í
henni lífinu. Konan, sem er 43ja ára
og gengur undir nafninu „Ungfrú
B“, sótti mál sitt til hæstaréttar eft-
ir að hafa fengið um það úrskurð
sérfræðinga að hún hefði aðeins eitt
prósent möguleika á því að ná bata
og yrði þvi að vera tengd öndunar-
vélinni það sem eftir væri ævinnar.
Úrskurður hæstaréttar var að
læknar gætu ekki lengur neitað
beiðni „Ungfrú B“ um að slökkt yrði
á vélinni og sagði lafði Elizabeth
Butler, sem kvað upp dóminn, að
hann gæfi henni fullt leyfi til að
deyja friðsamlega og með fullri virð-
ingu ef hún vildi það sjálf.
Vatnsburður í Indlandi
Miklum vatnsskorti er spáö í lönd-
um Afríku og Asíu áriö 2025.
SÞ spáir aukn-
um vatnsskorti
í heiminum
Samkvæmt niðurstöðum útreikn-
inga sérfræðinga sem starfa á veg-
um Sameinuðu þjóðanna munu 2,7
milljónir manna þjást af vatnsskorti
í heiminum árið 2025 ef vatnsnotk-
un verður áfram i svipuðum mæli
og hún er i dag. Þetta kemur fram í
skýrslu sem kynnt var í gær í tilefni
„Dags vatnsins" en þar kemur fram
að fimm billjónir manna muni þá
búa á svæðum þar sem erfitt verði
að nálgast ferskt og hreint vatn til
drykkjar.
Helstu ástæður vatnsskortsins
eru taldar illa skipulagður vatnsbú-
skapur í heiminum í dag, mikil
fólksfjölgun og breytingar á veðr-
áttu en talið er að löndin á Sahara-
svæðinu í Afríku og lönd í Asíu
verði verst úti.
Afganskir riddarar í geitaslag
Afganskir riddarar kljást hér á iþróttaleikvanginum i Kabúl í einni af þjóöaríþróttunum sem kallast Buzkashi. Leikurinn er liöakeppni
þar sem tólfriddarar skipa hvert liö oggengur út á þaö aö ná tökum á hauslausri geit sem liöin togast á um meö miklum látum
og reyna aö koma inn í afmarkaöan hring sem gefur stig. Fjögur liö tóku þátt i keþþninni sem fram fór í gær í tilefni nýárs mú-
hameöstrúarmanna og höföu nokkrir úr hverju liöi veriö bornir slasaðir af vígvellinum þegaryfir lauk.
Ekkert lát á blóðsúthellingum í Kasmír:
Fimmtíu manns særðust í
handsprengjuárásum í gær
Ekkert lát er á blóðsúthellingum í
indverska hluta Kasmír, þar sem
sveitir aðskilnaðarsinna berjast
harðri baráttu gegn ríkjandi yfirvöld-
um og að sögn lögregluyfirvalda
særðust að minnsta kosti fimmtíu
manns í tveimur aðskildum hand-
sprengjuárásum í suðurhluta landsins
í gær. Fyrri árásin var gerð í gær-
morgun á fjölförnu markaðstorgi í
bænum Shopian, sem er í um 50 kíló-
metra fjarlægð suður af sumarhöfuð-
borginni Srinagar, en þar slösuðust
allt að 35 manns, allt óbreyttir borgar-
ar. Tveir þeirra særðust mjög illa og
voru fluttir til frekari læknisaðgerða í
Srinagar. Að sögn sjónarvotta fleygðu
árásarmennimir fimm sprengjum inn
á markaðstorgiö með fyrrgreindum
afleiðingum.
Seinni árásin var gerð á strætis-
vagnabiðstöð í bænum Anantnag en
þar slösuðust að minnsta kosti fimmt-
án óbreyttir borgarar auk eins lög-
reglumanns.
Þar með er tala slasaðra í sprengju-
árásum síðustu daga komin yfir sex-
Oöld í Kasmír
Meira en sextíu manns hafa slasast
í sprengjuárásum aöskilnaöarsinna í
Kasmír síðustu daga.
tíu en fyrr í vikunni var gerð hand-
sprengjuárás nálægt strætisvagnabið-
stöð í nágrenni bæjarins Kulgam þar
sem þrettán óbreyttir borgarar og
einn lögreglumaður slösuðust.
Ekki er vitað hverjir stóðu fyrir
árásunum í gær en yfirvöld saka að-
skilnaðarsinna, sem berjast gegn yfir-
ráðum Indverja í landinu, um þær.
Hizbul Mujahideen, hélsta aðskiln-
að£irhreyfing múslíma í landinu, hef-
ur þó fordæmt árásirnar og segir fyrr-
um hermenn úr indverska hemum
bera ábyrgð á þeim.
Fyrr í vikunni voru tveir aðskiln-
aðarsinnar drepnir í skotbardaga við
indverska landamæraverði nálægt
bænum Koimoh í suðurhluta landsins
en tii bardagans kom eftir að sveit
landamæravarða hafði gert áhlaup á
bækistöðvar aðskilnaðarsinna. Að
sögn talsmanna aðskilnaðarsinna
felldu þeir þrjá úr röðum Indverj-
anna.
Þá kom tO skotbardaga á landa-
mærunum við bæina Ganderbal og
Budgam um miðja vikuna og munu
þrír liðsmenn aðskilnaðarsinna hafa
legið þar í valnum, þar af einn úr hópi
íslömsku Jihad-samtakanna sem hafa
bækistöðvar sínar í pakistanska hluta
Kasmírs.