Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Page 2
2
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
Fréttir DV
Upplýsingar sem liggja fyrir hjá dómsmálaráðuneytinu og héraðsdómi:
Áberandi fjölgun forsjár-
mála á Reykjanesi
- feður virðast farnir að taka meiri þátt í uppeldi en áður og krefjast forsjár
Forsjármálum hefur fjölgað mik-
ið hjá Héraðsdómi Reykjaness á ár-
inu. Samkvæmt upplýsingum frá
dómsmálaráðuneytinu og dómstól-
unum eru málin í dag nánast jafn-
mörg og þau voru í stærsta umdæm-
inu, Reykjavík, allt síðasta ár. í
Reykjaneskjördæmi búa um 85 þús-
und manns en til samanburðar eru
um 112 þúsund ibúar i Reykjavík.
Meiri harka en áður
Forsjármálin hjá Héraðsdómi
Reykjaness hafa öll verið í höndum
Jónasar Jóhannssonar héraðsdóm-
ara. Hann hefur dæmt eða fjallað
um 25 mál það sem af er ári - meira
en tvö í hverjum mánuði aö jafnaði.
Jónas segir að miðað við tilhneig-
inguna áður fyrr - þegar oftast tókst
að sætta foreldra vegna forsjár og
umgengni - sé meiri harka farin að
færast í málin ef svo megi segja.
„Ágreiningurinn virðist orðinn
meiri en áður var. í dag tekst okkur
að leysa færri mál með dómsátt þar
sem ákveðið er að annað foreldrið
fái forsjá eða að sameiginleg forsjá
var ákveðin. Nú er meira um að
dæma þurfi öðru foreldrinu forsjá."
Jónas segir að hann hafi á árinu
þurft að dæma i flestum forsjármál-
unum.
- En af hverju þessi aukna harka?
„Skýringin á því að málunum hef-
ur fjölgað gæti verið sú að feður virð-
ast koma sífellt meira að uppeldi
barnanna - þeim flnnist jafneðlilegt
að þeir fái forsjá og mæður. Þannig
hefur ágreiningur stundum orðið.“
Jónas segir að þegar ljóst sé að
skera þurfi úr forsjármálum með
dómsuppkvaðningu í snúnum mál-
um séu sérfróðir meðdómendur, oft-
ast sálfræðingar, kallaðir til.
„Niðurstöður matsmanna eru oft-
ar en ekki á þann veg að báðir for-
eldrar reynast forsjárhæfir. Þetta
gerir málin enn erfiðari og styður
þá skoðun manna að feður séu sí-
fellt að koma meira að uppeldinu."
Samkvæmt upplýsingum DV hef-
ur álit margra verið að flest mál-
anna komi frá þeim grunni að sam-
eiginleg forsjá hafi ekki gengið upp
og því hafi foreldramir leitað tU
dómstóls.
Mestar deilur í þéttbýli
Á síðasta ári voru 26 forsjármál í
Héraðsdómi Reykjavíkur en sex
fyrstu mánuði ársins höfðu 14 mál
borist dómstólnum. Á Suðurlandi
voru 7 forsjármál í fyrra en 3 voru
afgreidd á fyrri helmingi þessa árs.
Hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra
(m.a. Akureyri) varð einnig fjölgun.
Þar voru 4 mál afgreidd á fyrri
helmingi ársins en voru 3 allt árið í
fyrra. Ekkert forsjármál hefur kom-
ið upp hjá Héraðsdómi Norðurlands
vestra, hvorki í ár né í fyrra, en töl-
ur liggja ekki fyrir um Héraðsdóm
Vesturlands og Austurlands en eitt
mál var þingfest bæði framangreind
tímabil á Vestfjörðum. -Ótt
Vegageröin:
Allir þjóðvegir
landsins færir
Allir þjóðvegir landsins eru fær-
ir, hvergi er snjór og aðeins á Lág-
heiði, milli Ólafsfjarðar og Fljóta,
eru einhverjir hálkublettir. Ófært
er þó um Þorskafjarðarheiði, norð-
ur á Hólasandi en rennifæri um
Kjöl, þó mælt sé með því að Kjalveg-
ur sé aðeins farinn á jeppum og
helst ekki einbíla. Þoka var í gær á
Hellisheiði, milli Héraðs og Vopna-
fjarðar, Brekknaheiöi og Öxnadals-
heiði, en heiðamar færar.
Hannes Már Sigurðsson, forstöðu-
maður fjárreiðu hjá Vegagerðinni,
segir að ekki hafi sparast svo mikl-
ir fjármunir vegna þess að ekki sé
mikið um snjómokstur. Aurskriður
um allt Austurland hafi verið kostn-
aðarsamar. Rétt áður en hlýinda- og
vætukaflinn hafi skollið á hafi kom-
ið gott skot sem orsakaði snjómokst-
ur. Venjulega er rólegt fram til jóla
en febrúar og mars erfiðastir.
Spáð er rigningu eða súld um allt
land á næstunni og hlýindum. -GG
DV-MYND HARI
Lenti úti i á
Bílslys varö viö Hólmsá, rétt viö Geitháls, seinnipartinn í gær. Ökumaöur, sem var meö þrjú börn í bílnum, missti
stjórn á honum á leiö sinni til Reykjavíkur. Fór bíllinn yfir brúarhandriö og hafnaöi á hvolfi úti í ánni. Vegfarendur náöu
ökumanni og börnunum þremur út úr bílnum. Tókst aö endurlífga ökumanninn, konu, og eitt barn. Tvö börn viröast
hafa sloppiö lítiö meidd. Voru þau öll flutt í sjúkrahús. Vegurinn viö Hólmsá var lokaöur um stund vegna slyssins.
H J A RTA,
TUNGL
OG BLÁIR
FUGIAR
nór.
<: jgr'
Srsfr #§r
ViGDIS GRIMSDD TT
Seiðmagnaður
frásagnarstíll
Vigdísar Gríms-
dóttur nýtur sín
hértil fulls þegar
fólkið úr síðustu
bók hennar,
Frá Ijósi til Ijóss,
tekst á við nýjan
veruleika í litriku
5
É
s
umhverfi-þarsem
bláfuglar verpa
í trjám
og kraftaverkin
gerast.
2. PRENTUN VÆNTANLEG
„Litrík og seiðandi... afburðavel gert
... (Vigdís) skapar heillandi heim.“
Þorgeröur E. Siguröardóttir/ KASTJÓS
„ ... sterkt andrúmsloft hennar á sér varla
hliðstœðu í annarri íslenskri skdldsögu.“
Soffía Auöur Birgisdóttir/ MORGUNBLAÐIÐ
„Þetta er
frdbœr bók.“
Gísli Marteinn
SJÓNVARPIÐ
„Þetta er alveg yndisleg bók sem maður vill ekki
að endi ...ótrúlega skemmtilegtpersónugallerí.“
Súsanna Svavarsdóttir / STÖÐ 2
JPV ÚTGÁFA
Bræðraborgarstígur 7 • Sími 575 5600
óvissan að baki
Viöskiptavinir Kolaportsins geta glaöst þar sem samkomulag hefur tekist um
áframhaldandi leigu í Tollstöövarhúsinu.
Kolaportið:
Farsæl lending
Óvissuástandi um framtíð Kola-
portsins í Tollhúsinu hefur verið
afLétt með nýjum samningi milli
Þróunarfélags Reykjavíkur og Mark-
aðstorgsins ehf. Tekist hefur sam-
komulag um uppgjör leiguskuldar
Markaðstorgsins ehf. vegna Kola-
portsins viö Þróunarfélag miðborg-
arinnar. Gerður hefur verið nýr
leigusamningur milli aðila og mun
starfsemi Kolaportsins vera óbreytt
hér eftir, enda er það eindreginn
vilji beggja aðila,“ segir í fréttatil-
kynningu frá lögmönnum aðilanna.
Það var sumarið 1989 sem Kola-
portið hóf starfsemi sína í bíla-
geymslunni í Seðlabankahúsinu og
var þá hugsað sem tilraun til að
hleypa nýju blóði í miðbæ Reykja-
víkur. Vel tókst til og strax frá
fyrsta degi fékk Kolaportið frábærar
viðtökur. Það eru ekki bara höfuö-
borgarbúar sem sækja Kolaportið;
fólk af landsbyggðinni sleppir því
ógjaman að heimsækja Kolaportið á
ferð sinni um suðvesturhomið.
Dæmi em um að Kolaportið hafi
reynst stökkpallur yfir í stærri fyr-
irtækjarekstur.
Kolaportið er opið alla laugardaga
og sunnudaga. Mánudaginn 2. des-
ember hefst svo hinn árlegi Jóla-
markaður Kolaportsins og verður
opinn alla virka daga fram að jólum.
Að fullu upplýst
...» upplýst hvernig á
1 2000. Það hafi ver-
ið fyrirframgreiðsla vegna lög-
fræðivinnu hans fyrir fyrirtækið.
Hreinn neitar því að hafa fengið
lán hjá Baugi en slíkt er óheimilt
samkvæmt hlutafélagalögum.
RÚV greindi frá.
Rannsókn hætt
Embætti lögreglustjórans í
Reykjavík hefur lokið opinberri
rannsókn vegna flugslyssins í
Skerjafirði um verslunarmanna-
helgina í hittifyrra. Niðurstaða
rannsóknarinnar er að rannsókn-
argögn gefi ekki tilefni til frekari
aðgerða í málinu og hefur það
verið fellt niður. RÚV greindi frá.
Gagnrýna hækkun
Samtök ferðaþjónustunnar
gagnrýna hækkun áfengisgjalds
sem ákveðið var á Alþingi í fyrra-
kvöld og segir að með þessu
versni starfsumhverfi í ferðaþjón-
ustu.
Best í Ölfusi
Sveitarfélagið Ölfus var í ár
efst á lista Vísbendingar þegar
vegnir voru og metnir nokkrir
þættir i rekstri sveitarfélaga með
fleiri en þúsund íbúa. Garðabær
er í 2. sæti, eins og á síðasta ári,
með 5,8 í einkunn. Seltjarnarnes-
kaupstaður, sem var efstur í
fyrra, er nú í 4. sæti. Reykjavík-
urborg fer úr 14. sæti í það
fimmta.
Ástþór til saksóknara
lögreglustjóra hef-
9 ur sent mál Ást-
\ 'v W þórs Magnússonar
■; ; ;_ b ‘ til ríkissaksókn-
HÉSGfiÍB ara en lögreglan
Wk telur að brot hans
Ólöglegt er að
veita vísvitandi rangar upplýs-
ingar, sem vakið geta ótta, í
tengslum við loftferðaröryggi eða
öryggi í flughöfn.
Fjárnám heimilað
Héraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur úrskurðaö að Samkeppnis-
stofnun sé heimilt að gera fjár-
nám hjá Skífunni hf. fyrir stjórn-
valdssekt og innheimtukostnaði,
að upphæð 12,5 milljónir króna.
Jólaverslun vestra
Jólavertiðin er farin af stað hjá
verslunareigendum á ísafirði, að
visu af mismiklum þunga, þrátt
fyrir að tæpur mánuður sé til
jóla. Bæjarins besta greindi frá.
Hraðaksurssektir
4.538 hraðakstursbrot í Hval-
fjarðargöngum voru kærð á
fyrsta heila árinu eftir að eftir-
litsmyndavélar voru teknar þar í
notkun.
Fjárhagsvandi
■ Tómas Ingi 01-
rich menntamála-
ráðherra hafnar
því að fjárhags-
vanda framhalds-
skólanna megi
rekja til reiknilík-
ans sem ákvarðar
þeim framlög.
Hann sagði RÚV að unnið væri
að því að leysa bráðan fjárhags-
vanda þeirra með fjárframlagi
við 3. umræðu um fjárlög. -hlh