Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Síða 4
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
Fréttir
DV
Fundur miðstjórnar Famsóknarflokksins:
Rangt að útiloka aðild
- segir formaðurinn, Halldór Ásgrímsson, um ESB
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði á
fundi miðstjórnar í gær að flokk-
urinn væri nú albúinn undir
kröftuga kosningabaráttu og þar
ætluðu framsóknarmenn sér stóra
hluti.
Hann sagði rangt að útiloka að-
ild að ESB um aldur og ævi; það
væri vanræksla við framtíðina.
Halldór fór víða í ræðu sinni um
þann árangur sem hann sagði hafa
náðst í stefnumálum Framsóknar-
flokksins á kjörtimabilinu. Hann
kom m.a. inn á skattamál og þá
gagnrýni sem dunið hefur á ráð-
herrum, ekki síst heilbrigðisráð-
herra, að undanförnu. Um stór-
iðjumál sagði Halldór að þau væru
liður í áherslum Framsóknar-
flokksins. - „Eins og öllum er
kunnugt hefur Framsóknarflokk-
urinn lagt mikla áherslu á þetta
mál þrátt fyrir mikla mótspymu
úr ýmsum áttum. Stefna flokksins
í þessu máli er skýr og frá henni
hefur hvergi verið hvikað.“
Halldór kom einnig inn á sölu
ríkisbankanna og sagði hana mik-
il tímamót á íslenskum fjármála-
markaði. Málefni dreifbýlis voru
honum líka hugleikin. Sagði hann
að eitt meginmarkmið stefnu rík-
isstjórnarinnar í byggðamálum
væri að treysta búsetuskilyrði á
Miðstjórnarskraf
Hjálmar Árnason og Halldór Ásgrímsson stinga saman nefjum á
miöstjórnarfundi Framsóknarflokksins í gærdag. Halldór sagöi þaö
vanrækslu viö framtíöina aö útiloka aöild aö ESB um aldur og ævi.
landsbyggðinni, með því m.a. að
efla þau byggðarlög sem eru fjöl-
mennust, hafa mest aðdráttarafl
fyrir fólk og besta möguleika til
uppbyggingar.
Stækkun ESB
Þá kom Halldór inn á stækkun
ESB og sagði m.a.:
„Stækkun Evrópusambandsins
hefur verið mikið í fréttum, enda
full ástæða til. Með stækkun Evr-
ópusambandsins er verið að stíga
risavaxið skref og þetta eru svo
sannarlega tíðindi sem varða okk-
ur íslendinga. Með mikilli vinnu
og nánu samstarfi við EFTA-þjóð-
irnar höfum við náð samningum
um fríverslun við umsóknarþjóð-
irnar sem við höfum hins vegar
ekki að fullu gagnvart samband-
inu. Á þessum mikilvægu kross-
götum eru settar fram kröfur um
að við greiðum til sameiginlegra
sjóða ESB eins og við værum aðil-
ar, án þess að njóta réttinda aðild-
arríkja. Ef ekki tekst á næstu vik-
um og mánuðum að semja um ann-
að er hluti þeirrar fríverslunar
sem hefur tekist að semja um liðin
tíð.
Þessar aðstæður krefjast endur-
mats á okkar stööu. Þetta endur-
mat verður að fara fram, hvort
sem okkur líkar það betur eða
verr.
- Ef það liggur fyrir okkur að
gerast aðilar að Evrópusamband-
inu verður það að gerast á okkar
eigin forsendum, ekki í nauðvörn.
Það verður að gerast að vandlega
athuguðu máli. Þess vegna er um-
ræðan lífsnauðsynleg.
- Við þessar aðstæður er rangt
að útiloka aðild um aldur og ævi;
það er vanræksla við framtíðina."
-HKr.
Smáauglýsingar DV fá nýtt og betra útlit:
Einfaldari, öruggari
og aðgengilegri
DVA1YND E.ÓL.
Tilnefnd til tónllstarverölaunanna
Bubbi Morthens og hljómsveitirnar
Leaves og Sigur rós fengu flestar til-
nefningar til Islensku tónlistarverö-
launanna í ár en tilnefningarnar voru
kynntar í Borgarleikhúsinu síödegis í
gær. ístensku tónlistarveröjaunin
veröa afhent eftir áramót. Á mynd-
inni eru Bubbi Morthens og Hera
Hjartardóttir. Bubbi er tilnefndur
sem flytjandi ársins og sem besti
söngvarinn í flokknum þOþþtónlist
en einnig fyrir lag og plötu ársins.
Hera er tilnefnd sem söngkona árs-
ins. í flokki sígildrar tónlistar og nú-
tímatónlistar fékk Hamrahiíöarkórinn
tvær tilnefningar sem flytjandi ársins
og fyrir hljómplötu ársins.
Þurrkuð epli
Möndlur
Blandaðir
ÞURRKAÐIR ÁVESTIR
... alltsem þarfí baksturinn!
Smáauglýsingar DV fá nýtt útlit
frá og með deginum í dag, bæði í
blaðinu sjálfu og á veraldarvefnum.
Flokkum smáauglýsinga hefur ver-
ið fjölgað og er flokkunin oröin ná-
kvæmari. Þá er leiðarkerfíð á smá-
auglýsingavefnum nákvæmara og
aðgengilegra en áður. Allt miðar
þetta að því að auðvelda leit að smá-
auglýsingum og gera smáauglýs-
ingaviðskiptin öruggari og aðgengi-
legri.
Jafnframt breyttu og þægilegra
útliti smáauglýsinga DV verður
mun einfaldara og um fram allt ör-
uggara en áður að panta og greiða
fyrir smáauglýsingar á Netinu. DV
er í samstarfi við Skýrr um notkun
öryggiskerfisins VeriSign sem
tryggir að greiðslur og greiðslu-
kortaupplýsingar berist eingöngu
til DV. VeriSign er öryggiskerfi fyr-
ir rafræn samskipti en um eitt þús-
und fyrirtæki og stofnanir á íslandi
nota VeriSign-lausnir í gegnum
Skýrr hf.
DV leggur kapp á að bæta stöðugt
þjónustuna viö auglýsendur. Smá-
auglýsingar DV hafa um árabil ver-
ið markaðstorg þjóðarinnar enda
einfaldar og áhrifaríkar. Þú auglýs-
ir, við birtum og það ber árangur.
Nýr smáauglýsingavefur DV
verður virkur kl. 18.00 í dag. Nálg-
ast má véfinn á slóðinni
www.smaauglysingar.is eða með
því að fara inn á www.dv.is og
smella þar á smáauglýsingatengil-
inn. -hlh
'ji Híl* Ó*»*St**w* Ty 0«*« ttr & Wur*H UHm*r
Smáauglvsingar
www.dv.is
AfijrsfdílutÍHii sini.mqlýsinijrtdeiJdar DV
TeWð er vlð smáaugJýsmoum af vefnum frá
mánudegi til ftmmtuðags «l W19
Pöstudaga ál M. 17 og sunnudaga öl kl. 19
AfgreiðsJuömi
Mánudaga tilfi
Nýr og betri smáauglýslngavefur
Nýr smáauglýsingavefur DV er meö betra leiöarkerfi og aögengilegri á allan
hátt. Viö greiöslu auglýsinga um vefmn er notaöur öryggislykill frá VeriSign
sem tryggir öryggi í greiöslukortaviöskiptum á Netinu.
Fjárlög hefta starfsemi verkmenntaskóla:
Starfsemi VMA með
óbreyttu sniði til vors
Síml:
544 465B
Daivegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
5NJÚKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða
Þeir framhaldsskólar landsins
sem bjóða upp á verknám sjá fram
á niðurskurð á námsframboði á
þeirri önn sem hefst haustið 2003
verði ekki aukning á framlagi til
skólanna á því fjárlagafrumvarpi
sem nú er til umræðu og af-
greiðslu á Alþingi. Hjalti Jón
Sveinsson, skólameistari Verk-
menntaskólans á Akureyri, segir
að alltaf sé verið að horfa til þess
að auka fjölbreytnina í námsfram-
boðinu en ekki sé hægt lengur að
reka skólana með tapi, ljóst sé nú
þegar að framúrkeyrsla frá fjár-
lagaramma sé töluverð, skipti
mörgum milljónum.
Fyrirhugað var að skólameist-
arar framhaldsskólanna hittust í
dag til að ræða fjárhag skólanna,
en fundinum hefur verið frestað
fram í næstu viku.
„Reiknilíkanið fyrir VMA hefur
stórlagast skólanum tU hagsbóta
sem og sambærUegum skólum en
frumvarp til fjárlaga hrifsar tU
baka þann bata sem likanið færir
okkur þannig að þrátt fyrir aUt
stöndum við í svipuðum sporum.
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra hefur unnið í því að
bæta hag verkmenntaskólanna, en
það eru ekki fyrirhugaðar neinar
breytingar á vorönn 2003 sem
hefst eftir áramótin. Ætli við sjá-
um ekki tU hvernig árið kemur út
og hvernig fjárlögin verða í sinni
endanlegu mynd. En við munum
fara mjög vandlega yfir málið í
vor og hvort draga þurfi saman
seglin," segir Hjalti Jón Sveins-
son. -GG
Lausn handan við hornið
Lausn á fjárhagsvanda Raufar-
hafnar er handan homsins, að sögn
Guðnýjar Hrundar Karlsdóttur
sveitarstjóra. Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga hefur gert
samkomulag við hreppinn er felur í
sér hagræðingu í rekstri og endur-
íjármögnun skammtímaskulda. Eft-
irlitsnefndin hefði farið yfir fjármál
Raufarhafnarhrepps og telur félags-
málaráðuneytið ljóst að sveitarfé-
lagið hafi aila burði tU að standa á
eigin fótum. Gangi öll ákvæði samn-
ingsins eftir bendir allt tU þess að
varanleg lausn sé fundin á fjárhags-
vandanum.
Chrysler aftur til sýnis
Fyrstu Chrysler-bUamir koma tU
landsins þann 4. desember næst-
komandi, en að sögn Guðmundar
Baldurssonar, sölustjóra fólksbUa, á
að frumsýna bUana í janúar. Þeir
bUar sem koma hingað í fyrstu lotu
eru Wrangler 2,4, Cherokee Limited
V6, Cherokee Grand Limited V8 og
Cherokee Overland V8 ásamt PT
Cruiser og Liberty V6. Opnunin
kemur á góðum tíma fyrir Ræsi en
Chrysler er að færa út línuna fyrir
PT Cruiser og Voyager. Búast má
við ódýrari dísUbU í janúar og
lúxusútgáfu af Voyager i mars, tU
viðbótar við þá bUa sem era fyrir.
Auk þess verður hemlalæsivöm nú
staðalbúnaður í öUum þessum bU-
um.
Fær nafnið Brimir
Hið nýja sjávarútvegssvið Eim-
skipafélags íslands fær nafnið Brim-
ir samkvæmt samþykkt stjómar-
fundar Eimskips á Akureyri i gær.
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri
Eimskips, segir á heimasíðu ÚA að
stUlt hafi verið upp tugum nafna og
mörg þeirra séu hljómfogur. Hins
vegar hafi komið í ljós að mörg
þeirra voru skráð og í notkun.“Ég
tel hins vegar að okkur haFi tekist
að finna rismikið og framsækið
nafn,“ segir Ingimundur Sigurpáls-
son.
Brimir merkir sverð. Nafnið er
rammíslenskt og kemur m.a. fyrir í
tveimur erindum Völuspár.
Bond-myndin lítill hvati
Engar tölur eru tUtækar um þann
fjölda ferðamanna sem komu tU
landsins sl. sumar og verða væntan-
lega ekki tilbúnar fyrr en í byrjun
næsta árs. Ástæðan er sú að að 31.
desember 2000 var hætt að telja þá
farþega sem tU landsins koma af
Schengen-svæðinu og því era engar
tölur tUtækar fyrir árið 2001. Verið
er að þróa aðferð tU þess að komast
að tölunni fyrir sumarið 2002. Það er
gert með því að telja farþega út úr
landinu í stað inn í landið og þær
eru síðan bomar saman við ýmsar
vísbendingar, en þær hafa ekki
gengið nógu vel upp. Ferðamálaráð
vUl komast að skýringunum áður en
nokkuð er gefið upp.
Tómas Þór Tómasson hjá Ferða-
málaráði segir árið í ár verða svipað
og árið 2001, eða tæplega 300 þúsund
manns. Hann segir að rennt sé blint
í sjóinn hvað varðar ferðamanna-
fjölda árið 2003. Hann segir að áhrif
nýjustu James Bond-kvikmyndar-
innar, Die another day, muni ekki
hafa mjög merkjanleg áhrU á ferða-
mannastrauminn þótt margir voni
að svo verði. Hún muni þó vekja at-
hygli á landinu tU lengri tíma litið
og verða góður byr í seglin.-GG/NG