Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Page 6
6
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
DV
Fréttir
Framtíðarhorfur í efnahagslífinu:
Stjórnendur bjartsýnni
en almenningur
„Menn eru meö timburmenn eftir velgengni síöustu ára, ef kalla má þaö vei-
gengni. Fyrirtækin halda aö sérhöndum ogeru allmörg yfirmönnuö, “ Þórir
Þorvaröarson hjá Hagvangi
IMG Gallup hefur í samstarfi við
fjármálaráðuneytið og Seðlabanka
íslands gert könnun um stöðu og
framtíðarhorfur 400 stærstu ís-
lensku fyrirtækjanna. Slíkar kann-
anir hafa lengi tíðkast erlendis og til
stendur að framkvæma slíkar kann-
anir tvisvar á ári, í febrúar og sept-
ember. Niðurstöður könnunarinnar
voru þær helstar að stjómendur
vom almennt bjartsýnir á efnahags-
ástandið og framtíðarhorfur í efna-
hagslífmu. 53,5% stjómenda telja
efnahagsástandið verða betra eftir
sex mánuði en það er nú í dag, 41%
telur að það verði óbreytt og 5,5%
stjómenda verra. Þannig virðast
stjórnendur almennt vera mun
bjartsýnni en almenningur. Vísitala
um mat stjórnenda á efnahagslífinu
er 167 stig en hjá almenningi er vísi-
talan 130 stig.
Frekari fækkun
Þrátt fyrir að stjórnendur séu
bjartsýnir á framtíðina em þeir ekki
jafn bjartsýnir um rekstur eigin fyr-
irtækja og búast við að fækka frekar
starfsmönnum á næstu Sex mánuð-
um en fjölga. Jafnframt búast þeir
við að framlegð fari minnkandi þar
sem þeir reikna með að verð á að-
föngum hækki um 1,7% en verð eig-
in vara hækki um 0,8%. Þessi niður-
staða gefur þá vísbendingu að verð-
bólguþrýstingur verði lítill á næsta
ári og að stjómendur telji erfitt að
velta kostnaðarhækkunum út í verð.
Einnig búast stjómendur við að
raunsamdráttur verði í veltu fyrir-
tækja þeirra á þessu ári upp á 1,6%.
Væntingar um álver
Væntingar um álver skipta miklu
máli og gætu að einhverju leyti út-
skýrt þann mun sem er á vænting-
um stjómenda um efnahagsástand
og stöðu eigin fyrirtækja. Einnig er
líklegt að mörg fyrirtæki standi nú
frammi fyrir hagræðingaraðgerðum
sem skýrir að fleiri fyrirtæki búast
við að fækka frekar starfsmönnum
en Qölga og sum hafa þegar fækkað
starfsmönnum sem kunnugt er. í
ljósi þessarar niðurstöðu er liklegt
að atvinnuleysi eigi enn eftir að
vaxa en það er nú um 3%. Spá Al-
þýðusambands íslands og tölur frá
Vinnumálasambandinu staðfesta
það óyggjandi.
Fjöldi um hvert starf
Þórir Þorvarðarson hjá Hagvangi
segir að fjöldi manns sæki um nán-
ast öll störf sem losni og í mörgum
tilfellum sé einfaldlega ekki þörf á
því að auglýsa því það séií raun
bara aukin vinna hjá ráðningar-
þjónustum að svara þeim sem eru á
skrá og eru að leita sér að vinnu.
Sum opinber störf ber þó áð aug-
lýsa lögum samkvæmt.
„Þess eru dæmi, og i vaxandi
mæli, að fólk er að ráða sig í störf
sem gerðar eru minni menntunar-
kröfur til en það býr yfir, t.d. við-
skiptafræðingur i verslun eða sam-
bærilegt. Þetta ástand nú minnir
mig töluvert á það ástand sem rikti
á árunum 1992 til 1994, þetta minn-
ir á aðdraganda þess, en 1995 komst
atvinnuleysi í hámark. Ég sé engin
teikn á lofti um það að þeirri þróun
verði snúið við, því miður. Menn
eru með timburmenn eftir vel-
gengni síðustu ára, ef kalla má það
velgengni. Fyrirtækin halda að sér
höndum og eru allmörg yfirmönn-
uð. Ráðningarþjónusta eins og Hag-
vangur hefur auðvitað ekki tilfinn-
ingu eða yfirsýn yfir nema hluta
markaðarins, en við vitum að það
er verulegur samdráttur í störfum á
skrifstofum, í verslunum og stjóm-
un, og þó er hann ekki allur sýni-
legur því margt af þessu háskóla-
menntaða fólki á engan rétt, vill
ekki fara á atvinnuleysisbætur og
tekur kannski ákvörðun um að fara
í framhaldsnám þegar uppsögn ligg-
ur fyrir. Það er kannski framhalds-
nám sem lengi hefur staðið til að
fara í - nú er tækifærið. Atvinnu-
leysið getur því verið talsvert dulið.
Það er því talsvert af góðu og vel
menntuðu fólki sem gengur um at-
vinnulaust. Ef af stórvirkjunum á
hálendinu verður hefur það auðvit-
að jákvæð áhrif á atvinnulífið," seg-
ir Þórir Þorvarðarson. -GG
Islendingar erlendis:
Frestur til að tryggja sér
kosningarótt að renna út
í vikulokin rennur út sá frestur
sem íslendingar, sem búið hafa
langdvölum erlendis, hafa til að
tryggja sér kosningarétt við alþing-
iskosningar 10. maí 2003. Reglan er
sú að menn halda kosningEuétti í 8
ár eftir flutning af landinu og er
miðaö við 1. desember næstan á
undan kjördegi. Þetta þýðir að þeir
sem flutt hafa fyrir 1. desember 1994
hafa ekki kosningarétt við komandi
alþingiskosningar.
Hins vegar öðlast menn kosninga-
réttinn að nýju - án þess að lög-
heimili breytist - með þvi að skila
til Hagstofu tiltekinni umsókn þess
efnis. Sú umsókn þarf að berast fyr-
ir 1. desember nk., eða í síðasta lagi
í dag, fostudag, þar sem 1. desember
ber upp á sunnudag. Eyðublað fyrir
þessa umsókn má nálgast á vef Hag-
stofu íslands, www.hagstofa.is, með
því að fara á undirsíðuna „Deildir &
þjónusta", þaðan á undirsíðuna
„Þjóðskrá - eyðublöð" og þá er það
neðsta eyðublaðiö sem þar er að
finna. Þetta eyðublað þurfa menn
svo að prenta út, fylla út og senda
Hagstofu i faxi í númer (354) 562
3312, fyrir 1. desember nk. -GG
Frá undirskrift samnlngsins
Halldór Guömundsson, útgáfustjóri Eddu útgáfu, Pétur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri SÍBS, og Páll Bragi Kristjónsson, framkvæmdastjóri Eddu útgáfu.
bttp://simnet. is/bomedecorl928/
Skoðið heimasíðuna
okkar og kíkið á tilboðin
Nýkotnin sending
qfhinum
heimsfrægu
safndúkhum
frá Arianna.
A homi Laugavegar og Klapparstígs
SÍBS semur viö Eddu útgáfu um bókakaup:
Káupa bækur fyrir
70 milljónir
Happdrætti SÍBS og Edda útgáfa
hafa gert með sér samkomulag um
að íslensk bókmenntaverk verði
hluti af vinningaskrá Happdrættis-
ins árið 2003. Um er að ræða tvö
meistaraverk sem komu út í haust,
bækumar íslensk orðabók sem hef-
ur hlotið fádæma góðar viðtökur og
ritsafh Snorra Sturlusonar, áhuga-
vert safn sem einnig sætir tíöind-
um.
Happdrætti SÍBS hefur í meira en
hálfa öld aflað fjár fyrir uppbygg-
ingu endurhæfingar að Reykjalundi
og víðar. Uppbyggingin og starfið að
Reykjalundi hefur vakið eftirtekt
langt út fyrir landsteinana og árlega
njóta á annað þúsund íslendingar
endurhæfmgar þar vegna sjúkdóma
eða slysa. Að leggja rækt við and-
lega velliðan er nauðsynlegt jafn-
hliða þeirri líkamlegu. SÍBS hefur
aUt frá upphafi lagt rækt við is-
lenska menningu og með þessum
samningi leggur Happdrættiö sitt af
mörkum til ræktar hennar á heimil-
um landsmanna.
Heildarverðmæti vinninga Happ-
drættis SÍBS árið 2003 verður yfir
hálfur milljarður króna og að jafn-
aði verða dregnar út 40-50 milljónir
króna á mánuði.
Pétur Bjamason, framkvæmda-
stjóri SÍBS, segir þennan samning
ánægjulegt framhald af starfi Happ-
drættis SÍBS í þágu menningar og
velferðar landsmanna. „í mörg ár
hefur happdrættið verið með vinn-
inga tengda íslenskri list en árið
sem nú er að líða var hins vegar
helgað útivist og hreyfingu. Á kom-
andi ári verður með þessum samn-
ingi lögð áhersla á gildi bókarinnar,
íslenskrar tungu og menningararfs
okkar sem þjóðar,“ segir Pétur
Bjamason. -aþ
MafjílVll/ÆJJ
REYKJAVIK AKUREYRi
Sólariag í kvöld 15:50 15:20
Sólarupprás á morgun 10:45 10:45
Síðdegisflóð 15:04 19:24
Árdegisflóð á morgun 03:42 08:02
Austanátt og blautt
Austanátt, víða 8-13 m/s, dálítil
væta sunnan og austan til á landinu
en skýjað meö köflum og þurrt að
mestu annars staðar. Vaxandi
austanátt suðvestan til í nótt
Rigning og skúrir
Vestlæg eða breytileg átt, 3 til 10
m/s. Dálítil rigning eða skúrir en
léttir til á Austurlandi. Hiti á bilinu 2
til 7 stig.
Mánudagur Þriöjudagur Miðvikudagur
Hiti 1“. Hiti 2°
til 5- til 8“ til 9“
Vindur: Vindur: Vindur:
5-13 m/8 5-13 “V* 7-10 m's
•b t *
Norölæg átt Sunnanátt og Suövestanátt og
5-13 m/s. rigning. elnkum fremur hlýtt.
Dálítii rtgning sunnan- og Skúrir sunnan-
eöa slydda vestaniands. og vestanlands,
noröan- og Hlýnandi veöur. Cn léttskýiaö
austanlands en austaniands.
skýjaö meö
kögum sunnan-
og vestanlands.
Hltl 1 til 6 stlg.
Logn
Andvari
Kul
Gola
Stinningsgola
Kaldi
Stinningskaldi
Allhvasst
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
10.8- 13,8
13.9- 17,1
Hvassviðri
17,2-20,7
Stormur Rok Ofsaveður Fárvlðri 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7
AKUREYRI rigning 9
BERGSSTAÐIR alskýjað 9
BOLUNGARVÍK alskýjað 10
EGILSSTAÐIR súld 7
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 9
KEFLAVÍK rigning og súld 8
RAUFARHÖFN þoka 5
REYKJAVÍK skúr 9
STÓRHÖFÐI rigning 8
BERGEN rigning 3
HELSINKI snjókoma -13
KAUPMANNAHÖFN súld 5
ÓSLÓ alskýjaö 1
STOKKHÓLMUR 0
ÞÓRSHÖFN skúr 9
ÞRÁNDHEIMUR skýjað 2
ALGARVE heiðskírt 8
AMSTERDAM skýjað 7
BARCELONA heiðskírt 9
BERLÍN þokumóöa 5
CHICAGO hálfskýjað 1
DUBLIN léttskýjaö 5
HALIFAX iéttskýjað -6
FRANKFURT rigning 9
HAMBORG þokumóöa 7
JAN MAYEN skýjaö 3
LONDON rigning 8
LÚXEMB0RG skýjaö 6
MALLORCA heiðskírt 6
MONTREAL alskýjaö -4
NARSSARSSUAQ skýjað . 8
NEW YORK léttskýjaö 0
ORLANDO heiöskírt 9
PARÍS skýjað 9
VÍN þoka 6
WASHINGTON skýjaö -3
WINNIPEG skýjað 4
—aiaaAJ'18iAMmiJrJiilLMv.,lll:L-W,;áHI.'l>J.'l,M