Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Page 8
8
Útlönd
Osama bln Laden.
Efast um að rödd-
in sé bin Ladens
Svissneskir sérfræðingar, sem
starfa fyrir Dalle Molle-rannsóknar-
stofnunina í Lausanne á Sviss, draga
stórlega í efa að hljóðupptaka sem ný-
lega var send út á al-Jazeera sjón-
varpsstöðinni sé i raun af rödd
hryðjuverkaforingjans Osama bin
Ladens, eins og sérfræðingar banda-
ríku leyniþjónustunnar CIA og fleiri
hafa haldið fram.
Að sögn prófessors Herve Bourl-
ards, yfirmanns stofiiunarinnar, eru
95% líkur á því að þetta sé ekki rödd
bin Ladens. „Við bárum röddina sam-
an við tuttugu eldri upptökur með
rödd hans og komumst að þeirri nið-
urstöðu að nokkuð örugglega væri um
blekkingu að ræða,“ sagði Bourlard
en bætti við að upptakan hefði verið
légleg og því erfitt að færa sönnur á
það.
Svíar greiða at-
kvæði um evru
Leiðtogar helstu stjórnmálaflokka i
Svíðþjóð ákváðu á fundi sínum í gær
að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla
þann 14. september á næsta ári um
hvort Svíar gengju í Efnahags- og
myntbandalag Evrópu, EMU, og tækju
þar meö upp evruna í stað sænsku
krónunnar.
Þessi ákvörðun leiðtoganna þarf
samþykkti þingsins og er búist við að
hún renni þar lauflétt í gegn þar sem
aðeins tveir smáflokkar eru andvígir
þjóðaratkvæðagreiðslu..
Ný skoðanakönnun sýnir að þjóðin
er klofin í tvær jafnar fylkingar í af-
stöðu sinni til evrunnar þar sem 43%
eru með og á móti en 14% óákveðin.
I skoðanakönnun sem gerð var í
október voru 45% hiynnt evrunni en
39% á móti þannig að það virðist
stefna í spennandi kosningu.
Svíar eru aðilar að ESB en standa
fyrir utan myntbandalagið eins og
Danir og Bretar.
Ungfrú Suöur-Afríka.
Tvær fyrir eina á
Ungfrú alheimur
Fyrir einstæð mistök fegrunaryfir-
valda í Suður-Afríku voru tveir full-
trúar landsins sendir til þess aö taka
þátt í keppninni „Ungfrú alheimur"
sem fram fer í Lundúnum um aöra
helgi.
Mistökin urðu eftir að Ungfrú Suð-
ur-Afríka hafði tilkynnt að hún gæti
því miður ekki tekið þátt í keppninni
vegna mikilla anna og í kjölfarið
ákvað rétthafi keppninnar, Sun
Intemational, að senda ekki varafull-
trúa vegna stutts fyrirvara.
Þess í stað buðu aðstandendur
„Ungfrú alheims" „Ungfrú ungu kyn-
slóðinni" að taka þátt í keppninni og
þáði hún það með þökkum.
Eftir það mun rétthafinn hafa feng-
ið bakþanka og ákveðið að senda þá
sem varð númer tvö í keppninni
„Ungfrú Suður-Afríka" til Lundúna.
Hryðjuverkaárásirnar í Kenía:
Tólf manns hafa
verið handteknir
Tólf manns eru nú í haldi kenísku
lögreglunnar til yfirheyrslu vegna
gruns um aðild að hryðjuverkaárásun-
um tveimur sem beint var að ísraelsk-
um borgurum í hafnarborginni
Mombasa í fyrradag.
Tveir erlendir borgar voru hand-
teknir fljótlega eftir árásirnar og að
sögn talsmanns kenísku lögreglunnar
gáfu þeir mikilvægar upplýsingar sem
leiddu til handtöku tíu manns í viðbót.
Tvö hinna handteknu eru sögð hjón
sem höfðu bókað sig út af hóteli í
borginni skömmu eftir árásimar og
mun konan vera bandarískur borgari
en eiginmaðurinn spænskur. Að sögn
talsmanns lögreglunnar er ekki talið
líklegt að þau séu viðriðin árásimar.
Bandarískir og ísraelskir sérfræð-
ingar aðstoða nú kenísku lögregluna
við rannsókn málsins og er öll áhersla
lögð á að elta uppi þá sem taldir er
bera ábyrgðina en þó að óþekkt pal-
estínsk samtök hafi lýst ábyrgðinni á
hendur sér eru al-Qaeda-samtökin tal-
in hafa staðið á bak við árásirnar eins
og þá á Bali og fleiri slikar að
undanfómu.
Keníaforseti á vettvangi
Daniel Arap Moi, forseti Kenía,
heimsótti vettvang sprengju-
árásanna í Mombasa í gær.
Alls létust þrettán manns í fyrri
árásinni í Mombasa, auk þess sem
fjöldi slasaðist þegar þrír tilræðismenn
létu til skarar skríða í anddyri Parad-
ise-strandhótelsins sem er í eigu ísrael-
skra aðila en nokkrum mínútum siðar
var gerð misheppnuð eldflaugaárás á
ísraelska farþegaflugvél í flugtaki á
flugvelli borgarinnar.
í fyrstu var talið að átta manns
hefðu farist í hótelárásinni en sú tala
átti eftir að hækka í tólf og síðan í
þrettán eftir að björgunarliðar fundu
lík ungs Keníamanns í rústunum í
gær. Meðal hinna látnu voru þrír ísra-
elskir borgarar, 61 árs karlmaður og
tveir ungir drengir, 13 og 15 ára, auk
tíu kenískra dansara sem tóku á móti
hópi ferðamanna með þjóðlegri dans-
sýningu.
Tilræðismennimir óku upp að and-
dyri hótelsins á Pajero-jeppa hlöðnum
sprengiefni og hljóp einn þeirra með
sprengju inn í afgreiðslu hótelsins um
leið og jeppinn sprakk í loft upp. Ferða-
mannahópurinn var þá nýkominn á
hótelið þar sem verið var að skrá hann
inn eftir sýningu keníska danshópsins.
Borin hafa verið kennsl á einn til-
ræðismannanna sem Abdullah Ahmed
Abdullah, grunaðan al-Qaeda-liða sem
eftirlýstur hefur verið af bandarísku
alrikislögreglunni, FBI.
Af öryggisástæðum voru 235 ísra-
elskir ferðamenn fluttir heim til
ísraels strax í gær og þar á meðal
fimmtán særðir úr árásinni auk þeirra
þriggja sem létust.
REUTER&MYND
Chirac Frakklandsforseti sjötugur í gær
Jacques Chirac Frakklandsforseti, sem í gær hélt upp á sjötusafmæli sitt, gaf sér tíma til þess aö vera viöstaddur upphaf
úrsiitakeppni Rússa og Frakka í Davis-bikarkeppninni í tennis, sem þessa dagana fer fram í París. Þar hitti hann gamlan
_____kunningja, Boris Yeltsin, fyrrum Rússiandsforseta, sem kominn var til Parísar til aö fylgjast meö keppninni._
írakar ásaka Bandaríkjamenn um
að spilla fyrir vopnaeftirlitinu
íraska dagblaðið Ath-Thawra,
málgagn Baath-flokksins, flokks
Saddams Husseins íraksforseta,
ásakaði í gær bandarísk stjómvöld
um að reyna allt til þess að spilla
fyrir vopnaeftirlitinu í landinu og
jafnvel um tilraunir til að fá vopna-
eftirlitsmenn SÞ til að njósna fyrir
sig.
„Það er ljóst af hegðan Banda-
ríkjamanna að þeir gera sig alls
ekki ánægða með vopnaeftirlitið
eitt og sér og ætla sér að gera allt til
að spilla fyrir svo þeir geti réttlætt
árás á írak. Þeir munu því halda
áfram afskiptasemi sinni og að beita
ögrunum í trássi við ályktun
Öryggisráðsins. Þeir eru eina þjóðin
innan ráðsins sem túlkar
ályktimina á fjandsamlega hátt gegn
Vopnaeftirlitsmenn á ferö
írakar ásaka Bandaríkjamenn um aö
reyna aö fá eftirlitsmenn til njósna.
okkur í þeim eina tilgangi að
tryggja sér ástæðu til árásar. Þeir
munu því gera allt til að trufla
vopnaeftirlitið og reyna eftir megna
að rugla eftirlitsmennina í ríminu,
sérstaklega þegar þeir og allur
heimurinn uppgötvar að við höfum
ekki yfir neinum gjöreyðingarvopn-
um að ráða,“ segir í leiðara blaðs-
ins.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
írakar ásaka vopnaeftirlitiö um
njósnir því árið 1998 var fyrra
vopnaeftirliti hætt eftir að eftir-
litsmönnum hafði veriö vísað úr
landi fyrir njósnir. Þær ásakanir
voru studdar af Scott Pitter, fyrrum
vopnaeftirlitsmanni, sem ákaft hef-
ur gagnrýnt stefnu Bandaríka-
manna í íraksmálinu.
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
PV
mmmmm
Sjálfsvígsplága í Kína
Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun í
Kína eru sjálfsvíg
helsta dánarorsök
ungs fólks í land-
inu. í könnuninni
kemur fram að -
meira en fjórðungur
milljónar Kínverja
styttir sér aldur ár-
lega og það skelfilega er aö dauði
þriðjungs ungra kvenna, sem búa í
sveitum landsins, er af völdum sjálfs-
víga. í heildina eru sjálfsvíg fimmta
algengasta dánarorsök þjóðarinnar en
það segir þó ekki alla söguna því ár-
lega reynir um milljón Kínverja að
stytta sér aldur með misjöfnum ár-
angri eins og fram kemur í könnun-
inni.
Lögga drap nítján manns
Fyrrum lögreglumaður í Úkraínu
hefur viðurkennt að hafa drepið nítj-
án manneskjur síðastliðin þrjú ár og
voru þrjú af fómarlambanna félagar
hans i lögreglunni. Maðurinn var
handtekinn í maí á þessu ári en það
var fyrst nú að hann gekkst við morð-
unum.
Hann gaf þá skýringu að öll fómar-
lömbin hefðu reynt að klína á hann
morði sem hann segist hvergi hafa
komið nærri.
Morðinginn sleppur með lífstíðar-
fangelsi þar sem dauðarefsing var af-
lögð í Úkraínu fyrir tveimur árum.
Gengur vel og illa
Talsmenn
gæslusveita Sam-
einuðu þjóðanna í
Afganistan segja
að vel hafi gengið
að afvopna sveitir
stríðsherra í
Kunduz-héraði í
norð-austurhluta
landsins en ekki
gangi eins vel að
þá sem halda uppi
vopnuðum sveitum annars staðar í
landinu.
„Við höfum tekið yfir um það bO
sex þúsund léttvopn og þrjátíu
skriðdreka síðan þann 10. nóv. sl.,“
sagði Manuel da Silva, talsmaður SÞ,
en bætti við að í norðurhluta landsins
hefðu aðeins skilað sér nokkur
hundruð rifflar og önnur léttvopn.
Læknar fengu 20 ár
Tveir ítalskir læknar, sem eru
bræður, voru nýlega dæmdir í tuttugu
ára fangelsi fyrir að hafa framkvæmt
fjölda óleyfilegra fóstureyðinga á
einkastofu sinni í Róm á árunum 1995
til 1997. Bræðurnir vom fundnir sekir
um morð að yfirlögðu ráði þar sem
sum fóstrin voru allt að sex mánaða
gömul en á Ítalíu er bannað að eyða
fóstrum eldri en tólf vikna.
Til að bæta gráu ofan á svart þá
voru nokkrar kvennanna á móti fóst-
ureyðingunum sem bræðurnir fram-
kvæmdu eftir beiðni annarra fjöl-
skyldumeðlima.
Sextíu látnir í Marokkó
Að minnst kosti
60 manns hafa lát-
ist og 30 er saknað
eftir skyndileg
flóö sem urðu í
nokkrum héruð-
um Marokkó í
dag. Að sögn tals-
manns björgunar-
sveita hafa meira
en 20 hús hrunið til grunna og að
minnsta kosti 1400 heimili skemmst
alvarlega í flóðunum sem eru þau
mestu 1 landinu í manna minnum
eftir linnulausar rigningar í tvær
vikur.
VIII banna reykingar
Dagfinn Hoybraaten, heilbrigðis-
ráðherra Noregs, kynnti í gær hug-
myndir sínar um að banna allar reik-
ingar á veitinga- og skemmtistöðum í
Noregi frá og með árinu 2004 og verða
þar með fyrsta landið í heiminum til
að banna slíkt.
„TUgangurinn með þessu er að
vernda jafnt starfsfólk sem gesti frá
þeim skaða sem reykingar geta vald-
iö,“ sagði Hoybraaten.