Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________py
Skýringar
Heildarfj Idi fullor inna og barna
sem lifa me HlV/aln mi. -
Hlutfall fullor inna* sem lifir
me HlV/aln mi.
Hlutfall milli kynjanna --------
(HlV-j kv ir fullor nir)
Alnæmi hefur oröið meira en 25 millj. manna aö bana frá því aö sjúk-
dómurinn uppgötvaðist á sföari hluta áttunda áratugar síöustu aldar.
Œ sumum Afr kur kjum, ar sem fj r ungur e a ri jungur b anna er smita ur af HIV
veirunni, sj kd murinn sinn tt urrkum og hungursney sem ar eru. K na og
Indland g tu reynst tifandi t masprengja komandi rum.
tla ur fj Idi
n smita ra 2002'
'15-49 ára "fullorðnir og börn
3,5 milljónir
2,4 milljónir
SHiBk
REUTERS # Heimild: UNAIDS, WHO
UTBREIÐSLA HIV/ALNÆMIS 2002
0,55 0,3% 45#55 83.000 ■ 37.000
Alnæmisfaraldurinn hefur orðið 25 milljónum manna að bana á tuttugu árum:
G j örey ðingarvopn
sem látið er óáreitt
„Þetta er gjöreyðingarvopn og
það er látið óáreitt.“
Hinn 42 ára gamli Tymm Walker
frá Filadelílu er hér ekki að tala um
sýklavopn eða efnavopn eða kjarn-
orkuvopn sem eru á allra vörum
þessa dagana heldur alnæmi.
Tymm Walker smitaðist af HIV-
veirunni, sem veldur alnæmi, fyrir
átján árum. Bróðir hans er einnig
smitaður og annar bróðir lést úr
sjúkdóminum fyrir sjö árum.
„Ég vil ekki horfa upp á móður
neins ganga í gegnum það sem móð-
ir mín hefur mátt þola,“ sagði Walk-
er þegar hann tók þátt í kröfugöngu
í Washington, höfuðborg Bandaríkj-
anna, í vikunni til að krefja stjóm-
völd um meiri framlög til barátt-
unnar gegn alnæmi.
Tilefni mótmælaaðgerðanna er al-
þjóðlegi alnæmisdagurinn á sunnu-
dag, 1. desember.
Andlit konu í Afríku
Gjöreyðingarvopn er svo sannar-
lega réttnefni á þessum sjúkdómi
sem fyrst gerði vart við sig fyrir rétt
rúmum tuttugu árum, og þá meðal
samkynhneigðra karlmanna í
Bandaríkjunum og víðar. Á þessum
tíma hefur sjúkdómurinn orðið um
tuttugu og fimm milljónum manna
að aldurtila. Og lif mörgum sinnum
fleiri hefur verið lagt í rúst.
„Enn einu sinni er þetta sorgar-
saga. Andlit faraldursins er sí-
breytilegt. Andlit faraldursins er í
auknum mæli konuandlit, einkum
þó í Afríku,“ sagði Peter Piot, fram-
kvæmdastjóri UNAids, þeirrar
stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem
glímir við alnæmisfaraldurinn, þeg-
ar stofnunin hafði kynnt nýjustu
tölur. Og þær voru svo sannarlega
enginn skemmtilestur.
í fyrsta sinn í tuttugu ára sögu
sjúkdómsins er nú svo komið að
konur standa jafnfætis körlunum
hvað fjölda smitaðra áhrærir. í Afr-
íku sunnan Sahara eru konurnar
hins vegar þegar komnar í meiri-
hluta smitaðra, eða um sextíu pró-
sent þeirra.
Visindamenn UNAids telja að 42
mUljónir manna í heiminum séu
með HIV eða alnæmi; og þar af
smituðust um fimm milljónir
manna bara á þessu ári.
Alnæmi eykur hungursneyð
Um tvær milljónir kvenna og um
átta hundruð þúsund börn smituð-
ust af HlV-veirunni á árinu; lang-
flest þeirra í sunnanverðri Afríku
þar sem matarskortur og hungur
hafa verið viðvarandi um langa
hríð. Sjúkdómurinn gerir síðan illt
verra þar sem það eru aðallega kon-
ur sem vinna úti á ökrunum og afla
matar fyrir fjölskyldur sínar.
„Þar sem milljónir manna hafa
látist úr sjúkdóminum og milljónir
til viðbótar eru veikar hafa heOu
samfélögin staðið uppi vamarlaus
þegar þurrkurinn kemur,“ sagði
Peter Piot. „Við verðum að grípa til
aðgerða núna og miklu viðtækari
en nokkru sinni fyrr; ekki aðeins til
að aðstoða þær þjóðir sem þegar eru
hart leiknar heldur einnig til að
stöðva ógnarhraða útbreiðslu al-
næmis í þeim hlutum heimsins þar
sem faraldurinn er að skjóta upp
kollinum."
Ungar konur í hættu
Ekki er talið líklegt að hlutfallið
miUi smitaðra kvenna annars vegar
og karla hins vegar í sunnanverðri
Afríku muni breytast á næstunni.
Tíðni HlV-smits meðal stúlkna á
aldrinum 15 til 24 ára er um það bil
tvisvar sinnum meiri en meðal pilta
á sama aldri, eða ellefu prósent á
móti sex prósentum.
Fjölmargar ástæður eru fyrir því
að afrískar stúlkur eru í meiri smit-
hættu. Makar þeirra eru yfirleitt
eldri en þær og þar af leiðandi eru
meiri líkur á því að þeir séu smitað-
ir af HIV. Þá segir í skýrslu UNAids
að margar stúlknanna, þar á meðal
þær giftu, eigi erfitt með að krefjast
þess af bólfélögum sinum að þeir
stundi öruggt kynlíf, til dæmis með
því að nota smokka. Þá gera líf-
fræðilegir þættir ungar konur við-
kvæmari fyrir smiti en þær sem
eldri eru.
Milljónir munaðarlausar
Vísindamenn UNAids telja að al-
næmisfaraldurinn í sunnanverðri
Afriku hafi ekki enn náð hámarki.
Þeir hafa þó tekið eftir jákvæðum
breytingum á kynhegðun unga
fólksins. Tíðni HlV-smits meðal suð-
ur-afrískra kvenna undir tvítugu
sem koma í mæðraskoðun er byrjuð
að lækka sem þykir benda til þess
að fræðsluherferðirnar séu famar
að bera árangur.
Afrísk börn hafa að vonum orðið
illa úti vegna alnæmisfaraldursins.
Talið er að tólf milljónir bama hafi
misst annað foreldri eða bæði af
völdum sjúkdómsins.
Bamahjálp Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF) fór í vikunni fram á
aukna aðstoð fyrir böm sem hafa
orðið munaðarlaus vegna alnæmis.
Samtökin telja mikla hættu á að af-
leiðingamar verði aukin vinnu-
þrælkun barna, aukið vændi og að
heimilislausum bömum eigi eftir að
fjölga til muna.
Þá segja forráðamenn UNICEF að
mUljónir bama til viðbótar eigi eft-
ir að verða munaðarlausar af völd-
um alnæmis á allra næstu árum.
Fulltrúar tuttugu og tveggja Afr-
íkulanda hittust í Windhoek, höfuð-
borg Namibíu, í vikunni til að ræða
viðbrögð sín við því sem Carol
Bellamy, forstöðukona UNICEF,
kallar versta ástand munaðarleysis
í sögu mannkynsins.
Bellamy sagði í yfirlýsingu sem
hún sendi frá sér í vikunni að mun-
aðarleysingjar af völdum alnæmis
væru oft útskúfaðir, vannærðir,
fengju litla menntun og væru skað-
aðir á sálinni. „Athafnir sem þeir
hafa enga stjórn á og eiga engan
þátt i bitna á þeim,“ sagði Bellamy.
Aukning í Asíu
Ástandið er slæmt víðar en í Afr-
íku. Alnæmi hefur farið eins og eld-
ur í sinu um lönd Austur-Evrópu og
sérfræðingar eiga von á því að inn-
an tíðar verði gífurleg aukning á
fjölda smitaðra í Asíu, einkum í fjöl-
mennustu löndunum, Kina, Ind-
landi og Indónesíu.
Nærri hálf milljón manna lést úr
alnæmi í Asíu og löndunum við
Kyrrahafið í fyrra. Hugsanlegt er að
fyrir lok þessa áratugar verði ellefu
milljónir manna í þessum löndum
smitaðar af HlV-veirunni. Bara á
þessu ári smitaðist um ein milljón
manna.
Þótt tíðni smits á landsvísu sé
kannski ekki mikil í þessum fjöl-
mennu löndum gefur það þó ekki
rétta mynd af ástandinu. Bæði í
Kína og á Indlandi er alnæmisfar-
aldurinn á alvarlegu stigi á ákveðn-
um svæðum og hefur áhrif þar á líf
miiljóna manna, að því er fram
kemur í skýrslu UNAids og Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar.
„Ástandið er mjög ógnvekjandi,"
sagði Werasit Sittitrai, deildarstjóri
hjá UNAids, þegar skýrslan var
kynnt í Bangkok á Taílandi.
Lyfjafyrirtæki hafa sætt harðri
gagnrýni fyrir hátt verð á alnæmis-
lyfjum um langa hríð. Og enda þótt
þau hafi lækkað verðið á lyfjum
þessum í ýmsum löndum sagði Pet-
er Piot að aöeins litill hluti sjúk-
linga fengi lyf. „Verðlækkunin er
raunveruleg en þótt lyfin kosti bara
einn dollar á dag verður einhver að
borga fyrir þau,“ sagði Peter Piot,
framkvæmdastjóri UNAids.
Byggt á efni frá Washington
Post, Independent, Reuters og
BBC.
Árásir á ísraela í Keníu
Þrír ísraelskir
borgarar og níu
Keníumenn létu líf-
ið þegar þrír hryðju-
verkamenn
sprengdu sjálfa sig
og bO sinn í loft upp
við ferðamannahót-
el í strandbænum
Mombasa í Keníu á fimmtudags-
morgun. Hópur ísraelskra ferða-
manna var þá nýkominn á hótelið.
Skömmu áður var tveimur flug-
skeytum skotið á ísraelska farþega-
þotu eftir flugtak frá Mombasa.
Flugskeytin hæfðu ekki og engan
um borð sakaði. Áður óþekkt sam-
tök, Her Palestínu, lýstu ábyrgð á
tilræðunum á hendur sér. Ariel
Sharon, forsætisráðherra ísraels,
hét því að ísraelar myndu hafa
hendur í hári hinna seku. Kenísk
yfirvöld handtóku þrjá erlenda
borgara vegna málsins.
Vopnaeftirlit hafið í írak
Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna eru byrjaðir að starfa aft-
ur í írak eftir fjögurra ára hlé. Þeim
er ætlað að kanna hvort írakar eigi
gjöreyðingarvopn, eins og George
W. Bush Bandaríkjaforseti og ýmsir
aðrir ráðamenn á Vesturlöndum
halda fram. Sjálfir segjast írakar
ekki eiga nein slík vopn og ekkert
hafa að fela. Eftirlitið hefur gengið
snurðulaust til þessa, að sögn starfs-
manna SÞ. Bresk blöð fullyrtu á
föstudag að Saddam Hussein íraks-
forseti hefði skipað hundruðum
starfsmanna sinna að fela hluti úr
gjöreyðingarvopnum heima hjá sér
til að villa um fyrir eftirlitsmönn-
um.
Sharon kjörinn leiðtogi
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, sigraði keppinaut sinn,
Benjamin Netanyahu utanríkisráð-
herra, með mikl-
um yfirburðum í
kjöri um leiðtoga
hægriflokksins
Likud á fimmtu-
dag. Hryðju-
verkaárásirnar í
Keníu og árás
heima í ísrael
skyggðu hins veg-
ar á kosningamar. Talið er næsta
vist að Sharon verði áfram forsætis-
ráðherra eftir þingkosningamar i
lok janúar þar sem ísraelskir kjós-
endur hafa snúið sér æ meir að
hægriflokkunum vegna tíðra sjálfs-
morðsárása Palestínumanna.
Skuggi á vináttuna
Bandarískir ráðamenn þrýsta nú
mjög á stjómvöld i Sádi-Arabíu að
leggja sig harðar fram í baráttunni
við hryðjuverkamenn. Ásakanir
hafa komið fram um fjárstuðning
háttsettra manna í Sádi-Arabíu við
hryðjuverkasamtök. Ari Fleischer,
talsmaður Hvíta hússins, neitaði í
vikunni að Sádum hefðu verið sett-
ir úrslitakostir um að koma bönd-
um á fjárhagslega bakhjarla hryðju-
verkamannanna, ella myndu Banda-
ríkjamenn sjálfir grípa til sinna
ráða. Hann sagði að Sádar væru
traustir bandamenn.
Haider tapaði stórt
Frelsisflokkur hægriöfgamanns-
ins Jörgs Haiders galt mikið afhroð
í þingkosningun-
um í Austurríki
um síðustu helgi
og missti tvo
þriðju hluta fylg-
is síns. Haider,
sem ekki gegnir
lengur for-
mennsku í
flokknum, sagði
eftir að úrslitin lágu fyrir að hann
væri búinn að fá nóg af stjórnmál-
um og að hann ætlaði að segja af sér
héraðsstjóraembætti. Æðstu ráða-
mönnum flokksins tókst hins vegar
að telja honum hughvarf.
Spenna á Grænlandi
Jafnræði er með tveimur stærstu
stjórnmálaflokkunum á Grænlandi,
jafnaðarmönnum og vinstrisinnuð-
um sjálfstæðissinnum, fyrir kosn-
ingarnar á þriðjudag. Útlit er því
Frelsisflokkur
ins Jörgs Haiders