Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Page 30
30
/7 e l c) ci rb / ct ö 33'V LAUCARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
Stórleikur á Anfield Road
í hádeginu á sunnudaginn fer fram einn af leikjum
ársins í enska boltanum þegar erkifjendurnir í Liver-
pool og Manchester United mætast á heimavelli Liver-
pool, Anfield Road. Það er alltaf mikið um dýrðir þeg-
ar þessi tvö stærstu og vinsælustu félög Englands mæt-
ast.
Jafnar tölur
Liverpool hefur haft gott tak á Man. Utd. undanfar-
in ár og sigrað i fimm síöustu viðureignum liðanna.
Fjórir af þessum sigrum voru í deildinni og einn í
leiknum um Góðgerðarskjöldinn.
Áður en kom að þessari sigurhrinu Liverpool hafði
United haft álíka sterkt tak á strákunum úr Bítlaborg-
inni og ekki beðið lægri hlut fyrir þeim í ein fimm ár.
Leikur liðanna á Anfield í fyrra var eign Liverpool
sem vann sanngjarnan 3-1 sigur með tveim mörkum
frá Michael Owen og einu frá Norðmanninum John
Ame Riise með einu flottasta skoti sem sést hefur á
Anfield og rennur mönnum vafalítið seint úr minni.
Til marks um jafnræði liðanna er árangur þeirra í
innbyrðisviðureignum jafn en bæði lið hafa unnið 48
leiki í deildinni og 42 sinnum hafa leikir liðanna end-
að með jafntefli.
Mætiiig snemma
Það er ekki eins mikið um dýrðir hjá Manchester
United-klúbbnum á íslandi enda segjast þeir standa
frekar fyrir uppákomum þegar þessi viðureign fer
fram á heimavelli þeirra, Old Trafford.
„Við stefnum á að safnast saman á Champions Café
og er vonandi að menn mæti snemma og myndi góða
stemningu fyrir leikinn. Ég hef fulla trú á sigri minna
manna þrátt fyrir slæmt gengi gegn Liverpool undan-
farin ár og við vinnum 2-1. Van Nistelrooy og Paul
Scholes skora fyrir okkur en ætli Owen setji ekki fyr-
ir Liverpool," sagði Guðbjörn Ævarsson, formaður
Manchester United-klúbbsins, en formenn félaganna
munu mætast í sjónvarpssal fyrir slaginn mikla.
Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 12.15 og mað-
urinn sem kemur til með að stjórna umferðinni á An-
field Road er hinn góðkunni dómari Alan Wiley en
þetta verður fyrsti leikurinn með þessum félögum sem
hann dæmir í vetur.
Þess má síðan geta að þetta verður væntanlega tíma-
mótaleikur fyrir þýska landsliðsmanninn Dietmar
Hamann því ef hann byrjar inn á, sem fastlega má bú-
ast við, þá verður það hundraðasti leikur hans í byrj-
unarliði Liverpool.
-HBG
Misjafnt gengi
Gengi liðanna upp á síðkastið hefur þó verið gjöró-
likt því Man. Utd. hefur verið á góðri siglingu undan-
farið eftir frekar rólega byrjun í vetur og ekki tapað í
síðustu fjórum leikjum sínum, vann til að mynda góð-
an 5-3 sigur á Newcastle um síðustu helgi. Þeim sigri
var fylgt eftir með 1-3 sigri á Basel I Sviss en Basel
hafði einmitt slegið lið Liverpool út úr Meistaradeild-
inni á sama stað fyrir ekki löngu. Áður en Liverpool
lagði hollenska liðið Vitesse í Evrópukeppni félagsliða
á fimmtudaginn hafði liðinu ekki tekist að sigra í fjór-
um leikjum í röð. Þar af var leikurinn gegn Basel sem
lauk með 3-3 jafntefli og markaði endalok félagsins í
Meistaradeildinni þetta árið. Markalaust jafntefli gegn
Sunderland og tap gegn Fulham gerði svo lítið til þess
að styrkja sjálfstraust Rauða hersins.
Sterkir heima
Liverpool er gríðarlega erfítt heim að sækja og það
hefur ekki tapað í deildinni á heimavelli síðan rétt fyr-
ir síðustu jól, samtals 18 leikir án taps á heimavelli í
deildinni. Vörn liðsins er gríðarlega sterk, því hefur
tekist að halda marki sínu hreinu 8 sinnum í vetur og
ekkert annað lið í ensku úrvalsdeildinni getur státað
af slíkum árangri. Sóknarleikur United hefur að sama
skapi verið að batna mikið undanfarið og hefur liðinu
tekist að skora í níu leikjum í röð í deildinni þannig
að eitthvað verður undan að láta á morgun.
Heitur Hollendingur
Ef Liverpool á að takast að leggja United þriðja árið
í röð á heimavelli verður það að stöðva einn heitasta
framherja deildarinnar þessa dagana, Hollendinginn
Michael Owen hefur verið að leika vel með Liverpool í vetur og hann verður í sviðsljósinu í stórleiknum á
Anfield á morgun. Reuter
Ruud Van Nistelrooy, en hann hefur verið óstöðvandi
undanfarið með þrjú mörk um síðustu helgi gegn
Newcastle og svo tvö gegn Basel í Meistaradeildinni á
þriðjudaginn. Þrátt fyrir mikil meiðsl lykilmanna á
borð við Beckham, Keane og Rio Ferdinand hefur
United haldið ágætlega velli. Helsta vandamál liðsins
er eins og oft áður varnarleikurinn en það hefur feng-
ið á sig mark í síðustu sex leikjum í deildinni.
Öflug vöm
Aðalsmerki Liverpool hefur aftur á móti verið
varnarleikurinn þar sem Finninn sterki, Sami Hyypia,
fer fyrir sínum mönnum. Hinn ungi Djimi Traore hef-
ur einnig verið að koma á óvart með afbragðs frammi-
stöðu. Á milli stanganna stendur síðan Pólverjinn
Jerzy Dudek sem hefur undanfarið ár stimplað sig inn
sem einn öflugasti markvörður heims. Hann hefur ver-
ið að sýna veikleikamerki undanfarið sem er svolítið
sem Liverpool á ekki að venjast. Mikil pressa var á
Gerard Houllier, stjóra Liverpool, að gefa hinum efni-
lega Chris Kirkland tækifæri en Houllier hefur ákveð-
ið að standa með Dudek og hann verður örugglega í
markinu á morgun.
Fánadagur á Altureyri
Það er mikið í gangi hjá Liverpool-klúbbnum á ís-
landi í tilefni leiksins en þó er óhætt að segja að
stemningin verði einna mest á Akureyri. Þar verður
svokallaður Fánadagur þar sem stuðningsmenn félags-
ins eru hvattir til þess að mæta í fullum herklæðum
með trefla, fána og annað sem þeim dettur i hug. Horft
verður á leikinn í stóra sal Nýja Biós og byrjar dag-
skráin þar klukkan 11 með léttri upphitun þar sem
sýnd verða vel valin atriði úr leikjum Liverpool.
Liverpool-klúbburinn ætlar ennfremur að gera vel við
norðlenskar konur að þessu sinni og þær sem mæta í
búningi félagsins í Nýja Bíó fá glaðning frá klúbbnum.
í Reykjavík hittast stuðningsmenn Liverpool á Ölveri,
eða litla Anfield, eins og venjulega og opnar húsið þar
væntanlega um tíu leytið en öruggara er fyrir áhuga-
sama að mæta snemma því iðulega er húsið orðið fullt
klukkutíma fyrir leik.
Owen og Gerrard skora
„Það verður mikið um dýrðir á Akureyri og vonandi
verður góð mæting. Það hefur verið mikil gróska í fé-
lagsstarfinu hjá okkur undanfarið sem er skila góðum
árangri. Ég á ekki von síðri stemningu á Ölveri eins
og venjulega en þó má búast við því að húsið fyllist
fljótt eins og oft áður þvi mæli ég með því að menn
mæti snemma á svæðið. Þetta verður skemmtilegur
leikur en við vinnum 2-0 með mörkum frá heimalning-
unum Owen og Gerrard, ekki spurning," sagði Sigur-
steinn Brynjólfsson, formaður Liverpool-klúbbsins á
íslandi.
Liðsmenn Man. Utd. hafa skorað í síðustu 9 leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og hér sjást þeir Ryan Giggs, Ole Gunnar
Solskjær og Paul Scholes fagna einu niarka United í Meistaradeildinni í vetur. Reuter