Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Side 32
32
H&Igarblað 33"Vr LAUGARDACUR 30. NÓVEMBER 2002
Ast Hitlers á Geli frænku sinni
var eigingjörn, ofstopafull
og í henni birtist óeðli
sem foringinn
var lialdinn.
Morð, sjálfsmorð eða slys?
Hver drap
hina stóru
ást Hitlers?
Foringinn hreifst meira af frændkonu
sinni en nokkurri annarri manneskju
fyrr eða síðar
Ávallt er álitið að Eva Braun
hafi verið hin eina og sanna
ást Adolfs Hitlers, enda qift-
ust þau og létu lífið saman.
En konan ílífi forinqjans var
önnur og minna þekkt, enda
var allt gert til að breiða gfir
líf hennar og sambandið við
Hitler. Geli var kornunq
frænka Hitlers og hún dó
áður en hann komst til æðstu
valda. Hvort stúlkan framdi
sjálfsmorð eða var mgrt
verður ekki vitað með nein-
um ógggjandi hætti. En saqt
er að dauði hennar hafi haft
meiri áhrif á Hitler en öll þau
mannslát önnur sem hann
hafði á samviskunni.
Árið 1927 flutti Adolf Hitler, þá 38 ára gamall, til bæjarins
Obersalzenberf í bajemsku ölpunum. Þar ætlaði hann að
íhuga og móta framtíðaráform nasista og skrifa um hugsjón-
ir sínar. Hann bauð hálfsystur sinni, Angelu, að gerast ráðs-
kona, sem var nokkur upphefð vegna þess að hún var þá
ekkja og starfaði sem stofustúlka í Vínarborg. Hún flutti með
tveimur ungum dætrum sínum á heimili Hitlers. Elfriede var
ósköp venjuleg stúlka sem ekki vakti neina sérstaka athygli.
Hið sama var ekki hægt að segja um hina dótturina, Geli,
sem þegar á unga aldri hafði mikla útgeislun.
Nasistaflokkurinn var ungur að árum á þessum tíma og
einkennist þá þegar af persónuleika leiðtogans. Harðjaxl eins
og Göring sagðist alltaf verða eins og litli karlinn í námunda
við Hitler og Göbbels skrifaði í dagbók sína að hann yrði
alltaf taugastrekktur í félagsskapnum.
Það hlýtur að hafa haft mikil áhrif á Geli að koma úr einu
af fátækari hverfum Vinar og verða heimilisfost hjá áhrifa-
miklum flokksforingja. Hún hafði engan áhuga á stjómmál-
um.
Geli var falleg stúlka, óstýrilát og stundum eins og stráks-
leg í framkomu og frá henni geislaði óútskýrðum kynþokka,
eftir því sem vinkona hennar lýsti síðar. Sjálfur sagði Hitler
að honum hefði fundist Geli vera fremur bam en stúlka. En
ekki fór á milli mála að hann kunni vel við sig í námunda við
frænku sína. Samstarfsmönnum sínum til undrunar kallaði
hann Geli „litlu prinsessuna“ og sjálf fékk hún að kalla hann
„Alf frænda“. Annars vom gælunöfn óhugsandi í námunda
við foringjann.
Næsta haust er farið að hitna í kolum stjómmálalífsins og
Hitler flytur til Múnchen. Systir hans og dætur verða eftir en
brátt flytur Geli lika til Múnchen og hefur nám i læknisfræði.
Hún fær herbergi í námunda við bústað Hitlers. Hún gefst
upp á náminu um miðjan vetur.
Hitler kynnti hana fyrir nokkrum flokksfélögum sínum og
fer ekki leynt með vinskap sinn og frænkunnar. Hann fer
með henni í innkaupaferðir í tískuhúsin, í leikhús og tekur
hana með sér á uppáhaldsveitingahús sitt og býður henni
með sér á óperuhátíðina í Bayreuth og á flokksþingið í Num-
berg.
Óeðlilegar hvatir
Þegar Geli var orðin 19 ára var ekkert opinberað um hvaða
hug þau bára hvort til annars, Hitler og hún. En til var bréf
þar sem hún segist vera í trúlofunarhugleiðingum. Er hallast
að því að hún hafi orðið ástfangin af manni sem hún og
Hitler vora meira samvishnn við en nokkum annan. Það var
einkabílstjóri foringjans, Maurice. Hann hafði gegnt þvi
starfi síðan 1919 er hann gekk í flokkinn. En þegar grunur lék
á að samband væri á milli Geli og Maurice hætti Hitler að
greiða bílstjóranum laun og neyddi hann til að ganga úr sinni
þjónustu, Hann þoldi enga keppinauta, hvorki í ástarmálum
né pólitík.
í september 1929 leigði Hitler sér níu herbergja íbúð í
Múnchen. Tveimur mánuðum síðar flutti Geli þangað inn. Þá
var ákveðið að Geli gerðist Wagner-söngkona. Kennarinn
sem hún hóf nám hjá sagði að hún væri einn lélegasti nem-
andi sem hann hefði kynnst. Hún mætti illa í tíma og þegar
hún loks lét sjá sig hafði hún ekkert æft og ekkert lært. Samt
sem áður sækist Hitler eftir að mæta í söngtímana og hlusta
á nemandann sýna hæfileikaleysi sitt á sviði
Nú var samband foringjans og frænku hans orðið svo
þvingað að þegar hann var ekki í námunda við hana urðu
einhveijir af hans nánustu samstarfsmönnum að vera með
henni og hún gat ekki farið út fyrir dyr nema hafa einhvem
úr þjónustuliðinu með sér. Ekki fór á mili mála að Hitler var
haldinn sjúklegri afbrýðisemi.
Innan nasistaflokksins var farið að pískra um samband
foringjans, sem orðirrn var 41 árs, við komunga frænku sína.
Þau voru saman öllum stundum og sögusagnir voru á kreiki
um að flokkurinn hefði þurft að greiða allháar upphæðir fyr-
ir myndir sem fjárkúgarar komust yfir. Það voru miður sið-
legar teikningar af Geli sem frændi hennar teiknaði sjálfur
en hann var ágætur teiknari og ætlaði í fyrstu að gerast list-
málari. Líka var pískrað um bréf sem Hitler skrifaði Geh en
hún fékk aldrei í hendur en flokkurinn varð að kaupa. I bréf-
inu lýsir hann masókiskum draumórum um samband sitt og
stúlkunnar. Ef gögn af þessu tagi kæmu í dagsljósið ylli það
flokknum og foringja hans miklum skaða. Því var ekki um
annað að gera en að borga þegar fjárkúgarar komust yfir
plöggin.
Otto Strassner hét blaðamaður sem var í miklu afhaldi hjá
flokknum en bilaði síðar í trúnni og flúði til Bandaríkjanna.
Þegar hann var enn í náðinni bauð hann Geli eitt sinn út. Á
heimleiðinni stöldraðu þau við í almenningsgarði og Geli
létti á hjarta sinu.
Hún sagði að henni þætti vænt um frænda sinn en hann
væri henni erfiður. Væri svo komið að hún þyldi ekki meira
af samskiptunum við hann. Afbrýðiköstin væra ekki hið
versta þótt slæm væra. Það sem hún átti erfiðast með að þola
vora viðbjóðsleg tiltæki sem hann ætlaðist til að hún geröi.
Hún hafði ekki getað ímyndað sér að slíkt væri hægt. Hitler
ætlaðist til að hún afklæddist og hann lagðist á gólfið og hún
átti að beygja sig yfir hann og þegar leikur stóð sem hæst hjá
honum átti hún að pissa
yfir hann. Geli sagðist
hafa mikla andstyggð á
svona athöfnum og alls
ekki geta þolað að taka
þátt í þeim.
Morð eða sjálfs-
morð?
Eftir verðbréfahrunið
í New York 1929 var
stórskuldugt Þýskaland
nær gjaldþrota og í
kosningunum næsta ár
fékk Nasistaflokkurinn
6,4 milljónir atkvæða og
107 þingmenn en hafði
12 áður. Eftir kosninga-
sigurinn þótti æðstu
mönnum flokksins að
þeirra tími væri að
koma og þeir mundu ná
völdum í Þýskalandi.
Nú fyrst gátu nasistam-
ir farið að sýna veldi sitt
og aðrir stjómmála-
flokkar börðust hat-
rammlega gegn þeim.
Adolf Hitler var orðinn
mest áberandi persóna
Þýskalands.
Ekki er vitað hvort
það var að ráðum hans
nánustu samstarfs-
manna í flokknum eða
af öðrum orsökum að
tímabært þótti að Geli
hyrfi úr lífi foringjans,
sem nú losaði tökin á
henni. Til stóð að hún
flytti til Vínar með
haustinu.
Árið 1931 var Geli 23
ára gömul og hið síðasta sem hún skildi eftir sig var hálfskrif-
að bréf til vinkonu sinnar þar sem hún sagðist hlakka mjög
til að fara til Vínar.
En að morgni 18. september fann þjónustustúlka Geli liggj-
andi á gólfinu í herberginu hennar. Hún var látin og við hlið
hennar var skammbyssa sem var í eigu Hitlers. Sjálfur hafði
hann yfirgefið íbúðina kvöldið áður.
Um nóttina svaf Hitler á hóteli í Númberg og hélt þaðan
áleiðis til Hamborgar um morguninn. Á leiðinni var honum
sagt frá láti Geli og var bílnum þegar snúið aftur til
Múnchen. Kvöldið áður var bíll Hitlers stöðvaður af umferð-
arlögreglumanni fyrir of hraðan akstur. Var sektarmiðinn
síðar talin sönnun þes að Hitler hefði hvergi verið nærri þeg-
ar frænka hans dó.
Þar sem Hitler var ekki í húsinu þegar Geli fannst látin lét
þjónustufólkið nokkra æðstu menn flokksins vita og komu
nokkrir þeirra þangað til skrafs og ráðagerða. Haft var sam-
band við upplýsingadeild flokksins og þaðan var send út
fréttatilkynning um að foringinn væri djúpt hrærður vegna
sjálfsmorðs frænku sinnar. Tuttugu mínútum síðar var aftur
tilkynnt að Geli hefði látist af slysforam en það var of seint.
Fréttatilkynning flokksins var þegar send út þar sem dánar-
orsökin var tilgreind sem sjálfsmorð. Eftir að fréttatilkynn-
ingin var send var lögreglunni tilkynnt um lát stúlkunnar.
Hvemig lát hennar bar að verður að líkindum aldrei fylli-
lega upplýst.
Þeim sem þekktu Geli best þótti með miklum ólikindum að
hún hefði framið sjálfsmorð og dagana fyrir dauða sinn benti
ekkert í fari hennar tfl að hún væri þunglynd eða í sjálfs-
morðshugleiðingum. Lík hennar var flutt til Vínar og þar var
hún jarðsett að kaþólskum sið og sagðist presturinn sem
framkvæmdi athöfhina aldrei óhlýðnast þeirri skipun kirkj-
unnar að jarða sjálfsmorðingja í vígðri mold. Meira gat hann
ekki sagt vegna þagnarskyldu sinnar.
Sporin hulin
Fyrst eftir dauða Geli varð Hitler eins og viti sínu fjær og
hótaði að taka eigið líf. Göring tók við flestum pólitískum
skyldum foringjans og hann var sendur með trúnaðarvini
sínum, Hoftmann, á afskekktan sveitabæ. Þar óð hann svefh-
vana um gólf og neitaði að éta eða drekka. Byssa hans var
tekin af honum. Einu sinni var honum smyglað á laun til
Austurríkis þar sem hann dvaldi í hálftíma við leiði Geli.
Smám saman sætti Hitler sig við dauða Geli og fór í her-
bergið hennar, þar sem allt var óbreytt, daglega. Hann lét
gera styttu af sinni heittelskuðu og þegar hann flutti skrif-
stofu sína í Riksdagen var styttan sett upp þar.
16 mánuðum eftir dauða Geli tóku nasistar völdin í land-
inu og þá var öllum gögnum, sem álitin voru að komið gætu
flokknun illa, eyðilögð. Þar á meðal mun margt af gögnum
um samskipti Hitlers og Geli hafa farið forgörðum.
Dauði stúlkunnar sem Hitler unni verður ávallt hulinn
einhverjum leyndardómi en margt bendir til að þótt hún hafi
í fyrstu hrifist af frænda sinum hafi næstum ómennskar kröf-
ur sem hann gerði til hennar orðið óbærilegar og hún aldrei
verið annað en fangi hugaróra marmsins sem fyrirskipaði
dauða milljóna manna en syrgði dauða ungu stúlkunnar sem
hann tók að sér svo að lá við örvinglan.
(Grein þesi styðst við frásögn í Politiken
en heimildir eru sóttar í fimm bækur þar sem getið er um Geli
og samband hennar við Adolf Hitler.)