Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Side 34
34
Helqarbloö JO"V" LAUGARDAGUIÍ 30. NÓVEMBER 2002
Hj ónin
syngja saman
Þóra Einarsdóttir og Björn Jónsson eru
sgngjandi hjón sem búa í Wiesbaden í
Þgskalandi. Hún er fastráðin við óperuna
þar en hann sgngur ílausamennsku um all-
ar álfur. Þau hafa gefið útsinn fgrsta
sameiginlega disk sem heitir einfaldlega
Björn og Þóra.
ísland er landið
- Þótt lýsing Þóru á dagskránni við óperuna i Wies-
baden hljómi eins og meira en fullskipuð dagskrá þá legg-
ur hún áherslu á að hver söngvari verði að varðveita
rödd sína og gæta þess að honum sé ekki falin of erfið og
margvísleg verkefni sem ef til vill hæfa ekki hans eða
hennar rödd.
„Það verður hver að gæta sín sjálfur," segir Þóra sem
fór og söng á tónleikum í Sviss í haust og stefnir til Eng-
lands seinna í vetur þar sem hún ætlar að syngja í
Töfraílautunni hjá hinni rómuðu Opera North í Bret-
landi. Þóra segir að þótt vistin í Wiesbaden sé góð þá sé
nauðsynlegt að láta sjá sig annars staðar og spreyta sig á
ólíkum verkefnum.
- En hugurinn er alltaf heima og Þóra og Björn stefna
heim seinna í vetur þegar Björn kemur um páskana og
syngur með Kór Langholtskirkju, þangað til er ekkert ís-
land í sjónmáli.
„Það hefði verið óskaplega gaman að geta komið og
kynnt diskinn með tónleikum en annríki okkar leyfir það
einfaldlega ekki. En auðvitað er maður alltaf með heim-
þrá og það er ekkert annað land en ísland sem kemur til
greina fyrir framtíðina," segir Þóra að lokum.
PÁÁ
Þaö gekk ekki alveg þrautalaust að koma diskinum á
þrykk en upphaflega stóð til að taka hann upp í byrjun
sumars 2001 og hugðust hjónin njóta krafta Helgu Bryn-
dísar Magnúsdóttur píanóleikara sem þótti öðrum pí-
anistum líklegri til að ráða við þær illspilanlegu strófur
sem er að finna í undirleik sumra einsöngslaga. En í þann
mund sem upptökur skyldu heíjast datt Helga Bryndís af
hestbaki og varð fyrir nokkru hnjaski og gat lítt sinnt pí-
anóleik um hríð. Þetta varð til þess að upptökur frestuð-
ust fram í nóvember 2001 og í framhaldi af því var afráð-
ið að fresta útgáfu disksins um eitt ár.
Þóra Einarsdóttir lærði söng við Guildhall School of
Music and Drama í London eins og Björn eiginmaður
hennar. Eftir útskrift fyrir um fjórum árum söng hún í
óperuuppfærslum hér og þar á Bretlandi og fékk yfirleitt
sérlega góða dóma fyrir söng sinn. Sérstaklega er vert að
nefna söng hennar í Falstaff veturinn 2000 en um þá sýn-
ingu sagði gagnrýnandi The Times að hún væri í hæsta
gæðaflokki og þar væri enginn veikur hlekkur. Hann
sagðist í rauninni ekki geta hrósað sýningunni meira en
að segja að hann hefði gleymt sér algerlega.
Sú uppfærsla var á vegum Opera North í Leeds sem er
eitt af yngstu en virtustu óperufélögum á Bretlandseyjum.
Það er talinn mikill heiður meðal ungra söngvara að fá aö
spreyta á fjölunum þar en Þóra söng í tveimur uppfærsl-
um Opera North. Söngur Þóru hér heima á íslandi, hvort
sem hefur verið á fjölum óperunnar eða einkatónleikum,
hefur jafnan vakið verðskuldaða hrifningu.
Fjölskyldan stældíar
Þóra er um þessar mundir búsett í Wiesbaden ásamt
Birni Jónssyni, eiginmanni sínum, sem er tenórsöngvari
og syngur í lausamennsku um allar álfur. Og fjölskyldan
Hjónin Björn Jónsson og Þóra Einarsdóttir gefa út
sinn fyrsta geisladisk með íslenskum og evrópskum
sönglögum fyrir þessi jól. Þau una sér vel í Wiesbaden
ásamt syninum Einari. Þau búa rétt hjá óperuhúsinu í
Wiesbaden og þar er kjörið að fara í gönguferðir í
garðinum.
DV-inyndir BJ
Þóra Einarsdóttir söngkona er fastráðin við óperuna í Wiesbaden og svngur þar í þremur óperuuppfærslum um
þessar mundir.
hefur stækkað um einn því þeim hefur fæðst sonurinn
Einar sem var rétt ókominn í heiminn þegar umræddur
diskur þeirra hjóna var tekinn upp. Hann hlýtur eigin-
lega að hafa fæðst raulandi Schumann eða Sigfús Ein-
arssson og má segja með nokkrum rétti að hann hafi ver-
ið viðstaddur upptökurnar.
Wiesbaden er 300 þúsund manna borg nálægt Frankfurt
í Þýskalandi. Borgin er frá fornu fari rómuð um alla Evr-
ópu fyrir heitar uppsprettur sem menn hafa öldum sam-
an sótt í sér til heilsubótar. Er enn í dag rekinn umfangs-
mikill iðnaður þeim tengdur á svæðinu og hefur reyndar
verið svo allt frá dögum Rómverja. í Wiesbaden er stórt
óperu- og leikhús sem hýsir allt í senn; óperu, ballett,
leikhús og sinfóníuhljómsveit. Þar eru bæði leiksvið og
tónleikasalir og Þóra sagði í samtali við DV að í nóvem-
bermánuði, sem nú er senn liðinn, hefðu verið 80 sýning-
ar í húsinu, þar af var 21á vegum óperunnar og alltaf fullt
út úr dyrum á hverjum atburði. Þetta ber í senn menning-
aráhuga Þjóðverja og skipulagsgáfu þeirra og alúð fagurt
vitni.
Annríki í óperunni
- En hvað ertu að syngja í óperunni um þessar mund-
ir?
„Ég er í fyrsta lagi að syngja Pamínu í Töfraflautunni
og einnig í Fidelió eftir Beethoven. Svo er verið að sýna
hérna franska barokkóperu sem heitir Plate og er eftir
tónskáld sem heitir Rameau. Þetta er nær óþekkt gam-
anópera með ballettatriðum í og hún hefur slegið svo
rækilega í gegn að sýningar eru orðnar miklu fleiri en
nokkur þorði að vona og ekkert lát á,“ segir Þóra þegar
hún ræðir við DV frá heimili sínu í Wiesbaden.
„Svo er ég að syngja í óperettu sem heitir Das Feu-
erwerk og er að fara að æfa Kátu ekkjuna."
Þetta hljómar eins og býsna stíf dagskrá enda viður-
kennir Þóra að það krefjist góðrar skipulagningar að
halda úti heimili þar sem hjónin eru bæði söngvarar og
Björn er iðulega á ferðalögum við söng hér og þar. Þóra
og Björn hafa verið búsett í Wiesbaden í eitt og hálft ár
og eru vel staðsett því heimili þeirra er rétt hjá óperunni
handan við stóran garð sem er vinsælt útivistarsvæði
borgarbúa. Þóra fór að vinna í óperunni þegar Einar hinn
ungi var aðeins nokkurra vikna gamall og þá kom sér vel
að búa rétt hjá vinnustaðnum.
„Það var oft komið með hann til mín i hléi svo ég gæti
lagt hann á brjóst,“ segir Þóra sem segir líka að ekkert óp-
eruhlutverk taki móðurhlutverkinu fram.
íslendingar gefa tóninn
- Á diskinum Björn og Þóra eru íslensk og evrópsk ein-
söngslög og forvitnilegt að vita hvað réð vali þeirra en
þetta er fyrsti diskur þeirra saman. Áður hafa raddir
þeirra heyrst á íslenskum diskum, m.a. íslenska ein-
söngslagið þar sem kraftmikill ílutningur Björns á
Hamraborginni vakti athygli.
„Það má eiginlega segja að íslendingarnir hafi gefið
tóninn. Mörg íslensk sönglög og þar á meðal sum sem við
völdum eru rómantísk og bera með sér áhrif sem tón-
skáldið hefur orðið fyrir af samtíöarmönnum sínum og í
námi. íslensk tónskáld lærðu aðallega í Skandinavíu og
Þýskalandi og t.d. má greina dönsk áhrif í tónlist Sigfús-
ar Einarssonar meðan Páll ísólfsson er þýskari að okkar
mati.
Við völdum síðan tónlist sem okkur fannst líklegt að
hefði haft áhrif á íslensku tónskáldin og þá eru það þýsk,
norræn og frönsk tónskáld sem verða fyrir valinu. Svo
má heldur ekki gleyma manns eigin smekk og því sem
manni finnst sjálfum áhugavert og fallegt.“
Auk hinna vinsælu íslensku tónskálda, Sigfúsar og
Páls, sem áður eru nefndir, er frekar sjaldséð tónskáld á
diskinum en það er Bjami Böðvarsson sem var afar
þekktur á sinni tíð fyrir að starfrækja geysivinsæla dans-
hljómsveit árum saman á íslandi undir eigin nafni. Sjálf-
sagt er hann líka nokkuð frægur fyrir að vera faðir hins
eina sanna Ragnars Bjarnasonar sem hefur dyggilega
haldið merki föður síns á lofti í dægurtónlistinni.
„Bjarni hefur augljóslega haft mikla hæfileika á þessu
sviði þótt hann færi seint að fást við lagasmíðar og það
má greina frönsk áhrif i tónlist hans að okkar mati en
verk hans hafa ekki mikið verið tekin upp,“ segir Þóra.