Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Side 43
~~r' . dmaK
LAUCARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
/7 e / c) cj rb l ct ö DV
■A7
ákvarðanir. Eftir þetta hætti for-
maðurinn upplestraræfingum sín-
um fyrir nefndarmenn. Sú þing-
nefnd, sem bar af öðrum í fagleg-
um vinnubrögðum á minni tíð á
Alþingi, var efnahags- og við-
skiptanefnd, undir forystu Vil-
hjálms Egilssonar hagfræðings."
Svona hefur þetta
alltaf verið
Jón Baldvin rekur einnig veru
sína í fjárlaganefnd haustið 1978
þar sem hann tók sæti sem vara-
maður Sighvats Björgvinssonar.
Formaður nefndarinnar var Geir
Gunnarsson, þingmaður Alþýðu-
bandalagsins úr Reykjaneskjör-
dæmi: „Fjárlaganefndarmenn sátu
alla morgna og kölluðu fyrir sig
fulltrúa ríkisstofnana, sveitar-
stjórna og hagsmunaaðila og
hlustuðu á þá fara með óskalista
um meiri fjárveitingar í hitt og
þetta, sem undir þá heyrði. Þing-
menn hripuðu niður hjá sér töl-
urnar. Ef óskalistinn var ættaður
úr þeirra kjördæmi settu þeir á
innblásnar ræður um hina brýnu
nauðsyn sem bar til að verða við
ýtrustu óskum og hældu bæna-
gjörðarmönnum á hvert reipi. Að
lokum var ég orðinn svo leiður á
þessu að ég bað nefndarformann
og fundarstjóra að gera fundarhlé
og ræða vinnubrögð. Ég benti á að
miðað við stöðu ríkisfjármála
væri engin innistæða til fyrir
þessum óskalistum. Ég bað for-
mann að beita sér fyrir því að fjár-
málaráðherra legði fyrir nefndina
forsendur og fjárhæöir tekjuáætl-
unar næsta árs, áður en áfram
yrði hlustað á bróderingar óska-
listamanna. Þá fyrst, þegar niður-
stöður tekjuáætlunar lægju fyrir,
væri hægt að huga að forgangsröð
varðandi óskalista - ef eitthvað
væri þá afgangs. Svar formanns-
ins, Geirs Gunnarssonar, var mér
minnisstætt: „Svona hefur þetta
alltaf verið og svona verður þetta,
meðan ég er formaður."
Svarta skýrslan
Jón Baldvin Hannibalsson setti
saman „svarta skýrslu" um Al-
þýðuflokkinn haustið 1984 þar
sem hann lagði meðal annars til
að skipt yrði um kallinn í brúnni
og felldi nokkrum vikum síðar
Kjartan Jóhannsson í formanns-
kjöri á flokksþingi Alþýðuflokks-
ins. Skýrslan er birt í fyrsta sinn
opinberlega í ævisögu Jóns Bald-
vins.
Þetta haust hafði fylgi Alþýðu-
flokksins verið á stöðugri niður-
leið frá kosningasigrinum mikla
1978 þegar hann hlaut 22% at-
kvæða og fjórtán þingmenn. Hann
var orðinn minnsti stjómmála-
flokkurinn samkvæmt skoðana-
könnunum, minni en Bandalag
jafnaðarmanna og Samtök um
kvennalista. „Metnaði mínum fyr-
ir hönd jafnaðarstefnunnar á ís-
landi var stórlega misboðið. Ég
minntist þess að átta árum áður
hafði birst svört skýrsla fiskifræð-
inga um yfirvofandi hrun helstu
nytjastofna á fiskimiðunum í
kringum landið. Nú settist ég nið-
ur og samdi „svarta skýrslu" þar
sem ég braut til mergjar orsakir
og skýringar á óforum flokksins
og velti upp spurningunni um yf-
irvofandi hrun „kratastofnsins".
Skýrslan hefur allt til þessa dags
verið því sem næst leyniskjal;
allavega komu fjölmiðlar á þess-
um tíma ekki höndum yfir hana.
Ég gerði mér fullkomlega ljóst að
ég var með sprengiefni í höndun-
um. Það var ekki reynt að fela
neitt. Staðreyndir mála voru ein-
faldlega settar á blað og látnar
tala sínu máli og gat hver tekið til
sín þá sök sem honum eða henni
bar. Ég var á þessum tíma farinn
að velta því alvarlega fyrir mér að
nú væri rétti tíminn og tækifærið
Fræga fólkið
Nicholas Cage og Lisa Marie Presley hafa
skilið eftir þriggja inánaöa hjónaband.
skilur
Ef það er eitthvað sem
vekur meiri athygli en brúð-
kaup fræga fólksins þá eru
það skilnaðir þess. Það má
reyndar heita að jafnt og
þétt berist fréttir af skilnuð-
um þeirra sem stíga í
hnapphelduna í skini sviðs-
ljóss fjölmiðlanna.
Það vakti mikla athygli
fyrr á þessu ári þegar þau
giftu sig, leikarinn Nicholas
Cage og Lisa Marie Presley,
dóttir rokkgoðsins Elvis
Presleys sem flestir telja að
sé látinn. Nicholas hafði árum
saman safnað minjagripum, tengd-
um EÍvis, af mikilli ástríðu og söng
mjög eftirminnilega vel að hætti
goðsins í kvikmyndinni Wild at
Heart fyrir mörgum árum.
Þegar hann síðan giftist Lisu
fannst mörgum að með hjónaband-
inu væri hann annaðhvort búinn
að missa stjórn á söfnunarástríðu
sinni eða að hann hefði fullkomnað
hana meö næstum því óhugnanleg-
um hætti. Hvorugt þeirra hjóna
tjáði sig reyndar neitt um tengsl
ástarsambandsins við arfleifð fóð-
ur brúðarinnar.
Nú er þessi draumur á enda því
Cage og Presley hafa skilið að
skiptum og hvort í sínu lagi hafa
þau lýst því yfir við fjölmiðla að
hjónaband þetta hafi verið einn
herfilegur misskilningur og mis-
tök, nema þá sambland af hvoru
tveggja. Hér mætti rifja upp að
næsti eiginmaður Presleys á und-
an Cage var Michael Jackson svo
það er auðvitað full ástæða til þess
að efast um dómgreind hennar á
þessu sviði. Michael og Lisa voru
gift alllengi en eignuðust ekki böm
saman og þeir voru reyndar til sem
efuðust um að hjónaband þeirra
væri nema orðið eitt. Engar slíkar
efasemdir heyrðust um hjónaband
Cage og Lisu enda kynlifsímynd
Cage mun heilsteyptari og hefð-
bundnari en ímynd Jacksons í
þeim efnum.
„Ólafur Ragnar Grímsson var at-
vinnumaður í pólitískum áróðurs-
brögðum og hikaði aldrei við að
snúa staðreyndum á haus, ef það
mátti verða til framdráttar röngum
málstað."
fyrir mig til þess að bjóða mig
fram til formennsku. Alþýðuflokk-
urinn væri einfaldlega svo að-
framkominn að trúnaðarmenn
flokksins, sem kjörnir væru á
flokksþing, yrðu aö horfast í augu
við sjálfa sig, hvort þeir kysu
óbreytt ástand sem leiddi til hæg-
færa dauða? Eða væru þeir reiðu-
búnir að taka áhættu, sem gæti þó
gefið flokknum von um uppreisn
æru?“
Jón Baldvin leitaði til Birgis
Dýrfjörö „og ræddi ítarlega við
hann efni svörtu skýrslunnar,
sem eftir atvikum gat skoðast sem
„dánarvottorð“ eða „sjúkdóms-
greining og læknisráð" fyrir Al-
þýðuflokkinn. Niðurstaða okkar
Birgis varð sú að við efndum til
fundar í Félagsmiðstöð jafnaðar-
manna (Rósinni) í Alþýðuhúsinu,
þar sem Birgir flutti efni svörtu
skýrslunnar, þótt hann lagaði það
í hendi sér eftir þörfum. Þar með
var þeirri hættu bægt frá, ef
skýrslan læki út, að ég yrði sakað-
ur um allsherjarárás á flokksfor-
ystu og trúnaðarmenn Alþýðu-
flokksins. Skýrslan var svo áhrifa-
mikil í flutningi Birgis að fundar-
menn setti næstum hljóða. Síðar
spunnust um hana miklar umræð-
ur. Þegar nær dró flokksþingi
hcifði efni hennar borist víða svo
að Birgir ákvað að lokum að
senda hana, ásamt trúnaðarbréfi,
til líklegra flokksþingsfulltrúa, en
sem algert trúnaðarmál."
í skýrslunni er m.a. spurt að því
hvers vegna fylgi flokksins hafi
hrunið, hverjir beri ábyrgðina og
síðan: „Hvað er gert til sjós ef
skipstjóri fiskar ekki? a) Áhöfnin
rekin. b) Skipstjórinn rekinn. c)
Hætt að gera út?“
Athyglisvert er að ekki er sett
spurningamerki við það að skipt
verði um kall í brúnni en
nokkrum vikum síðar hafði það
gerst - Jón Baldvin Hannibalsson
hafði fellt Kjartan Jóhannsson úr
sæti formanns Alþýðuflokksins á
flokksþingi hans.
til miðvikudags 4. dés
Pioneer DV-350 DVD spilarí AC-3. DTS, MP3
Verö áöur 34.300.- nú kr. 27.920,- afsláttur 20%
Pioneer DEH-1400 Bílgeislaspilari 4x4sw
Verö áöur 29.300.- nú kr. 23.920,- afsláttur 20%
Beko 20" sjónvarp
Black matríx lampi, Islenskt textavarp, scarttengi, Ijarstýríng
Verð áöur 25.900,- nú kr.22.900,- afsláttur 1
Sharp XL-1500 hljómtækjastæða
Geislaspilari og útvarp, 2 xlOW magnarí, fjarstýring
Verö áöur 29.300,- nú kr.23.920,- afsláttur 20%
Sharp UX-P400 faxtæki & sími
Prentar á A4 pappír, 10bl fmmritamatari. SObl pappírsbakki
Verö áður 24.300,- nú kr.19.920,- afsláttur 20%
AEG Eldavél F 5003 V-w keramik
Verð áöur kC9fc€€B. - nú kr. 74.900, - afláttur 23%
AEG Þvottavél L-1230 12001600 snúninga
Verö áður kr.'8S?9143- nú kr. 64.900, - afsláttur 24%
AEG Frystikista EC 39HL 401 lítrar
Verö áður krTS&SOO. - nú kr. 45.520, - afsláttur 20%
AEG Ryksuga CE 235,1 1700 wött
Verö áöur kr.T4í€313- nú kr. 10.900, - afsláttur 26%
AEG Uppþvottavél Favorít
40210 U-w tjögur kerfi tvö hitastig
Verð áður kr.~B*#t6: - nú kr. 54.653, - afsláttur 20%
Þetta eru bara smá sýnishorn af þeim vörum
sem við bjóðum meö góðum afmælisafslætti
Komdu og fáðu þér
bita afkökunni!
Þér er boðið til veislu !
Viðskiptavinum Bræðrannn Ormsson er boðið til
tertuveislu í dagí Lágmúla 8 og tilefnið er 80 ára
afmælis fyrirtækisins. Komdu í dag og fáðu þér
tertusneið, kaffisopa eða svaladrykk.
BRÆÐURNIR
©OEMSSON
LÁGMÚLA 8 • SÍMI 530 2800