Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
H&t<ga rblctcf H>V
55
vinna fylgi og sjá áhrif þeirra meiri i samfélaginu.
Ég tel að ég hafi fengið kosningu út á mínar skoð-
anir.“
- Sigurður er þarna að vísa til þess að hann er
fulltrúi frjálshyggjumanna í Sjálfstæðisflokknum
eða frjálslyndra íhaldsmanna eins og hann kýs að
kalla þá.
„Ég held að ég vilji ganga miklu lengra í því að
minnka ríkisafskipti en margir félagar mínir í
þingflokknum. Það er nauðsynlegt og gott, ekki
bara fyrir almenning heldur velferðarkerfið í
heild.“
- Hefur þá núverandi ríkisstjórn ekki aðhafst nóg
í þessum efnum?
„Nei, alls ekki. Ef Sjálfstæðisflokkurinn væri
einn í ríkisstjórn hefðum við áreiðanlega gengið
lengra í frjálsræðisátt en raun hefur orðið á. Það er
eðli samsteypustjórna að gera málamiðlanir. Það
sem gert hefur verið er gott en það hefði átt að
ganga enn lengra."
Seljum Landsvirkjun
- Hvar þarf að ganga lengra?
„Það þarf að einkavæða Landssímann þegar í
stað og það er mjög mikilvægt að fara að huga að
einkavæðingu í orkugeiranum. Til dæmis með því
að selja Landsvirkjun."
- Er eitthvað af hinu opinbera kerfi sem ætti ekki
að einkavæða?
„Ég sé ekki að neinn hafi áhuga á að kaupa spít-
alana, svo dæmi sé tekið, en ég vil gjarnan koma
þar á einkarekstri meira en verið hefur. Við eigum
að standa vörð um heilbrigðiskerfið og menntakerf-
ið en margt í heilbrigðiskerfinu kallar á breytingar.
Það er alveg sama hvað ríkið setur mikinn pening
i heilbrigðiskerfið, endar ná aldrei saman og það
hlýtur eitthvað að vera að.“
- Sigurður segist telja að þessum hugmyndum sé
að vaxa fylgi innan Sjálfstæðisflokksins.
„Andstæðingar einkareksturs, eins og t.d. Ög-
mundur Jónasson, virðast algerlega misskilja hug-
tökin einkavæðing og einkarekstur og blanda því
saman að vild. Ég tel að hugmyndir um einkarekst-
ur í heilbrigðismálum og breytingar á yfirstjórn
heilbrigðismála eigi góðan hljómgrunn innan Sjálf-
stæðisflokksins."
Étur bylting börn?
- Um þessar mundir eru 30 ár síðan ungir menn
ruddust inn í Sjálfstæðisflokkinn undir slagorðinu
Báknið burt og einn þeirra er nú forstjóri Lands-
virkjunar sem þú segist vilja selja. Eru þessar hug-
myndir ekki uppreisn ungra manna sem virðist
dæmd til að daga uppi?
„Þetta er alrangt. Þeir sem vildu báknið burt hafa
fengið miklu áorkað síðan þeir komust til valda.
Samfélagið hefur breyst mikið síðan og búið að
einkavæða ríkisfyrirtæki í stórum stíl. Ég held að
Friðrik Sophusson styðji mig hvað varðar einka-
væðingu í orkugeiranum."
- Úrslit prófkjörsins hafa kallað fram umsagnir
eins og aö jafnréttissjónarmið hafi látið i minni
pokann og uppeldisstöðvar flokksins framleiði ein-
ungis unga lögfræðinga sem séu allir eins. Er þetta
rétt?
Að gjalda karlmennskunnar
„Þetta er algerlega óréttmæt gagnrýni. Viö erum
tveir lögfræðingar sem komum nýir inn, ég og Birg-
ir Ármannsson, og það heldur þvi enginn fram að
við séum eins. Það er ekkert skrýtið þótt lögfræð-
ingar sæki inn á Alþingi þar sem það er æðsta
stofnun löggjafarvaldsins. Það felst mikil pólitík í
lögum. Þegar menn lesa eignarétt og stjórnskipun-
arrétt og frelsisákvæði af ýmsum toga þá fer ekki
hjá þvi að þeir fari að hugsa um pólitík. Þetta er
innbyggt í fagið.
Hvað varðar jafnréttið þá hefur á rúmlega 70 ára
sögu Heimdallar og SUS aðeins ein kona gegnt for-
mennsku í hvoru félagi. Ástæðan er ekki sú að kon-
ur séu verri en karlar heldur sú að karlar taka
miklu meiri þátt í þessu pólitíska starfi og taka
óhræddir slaginn þegar svo ber undir. Konur hafa
verið ragari við að koma sér á framfæri og þær
hafa verið hvattar til þess að taka virkari þátt en
eiga samt dálítið í land. Ég myndi vilja sjá meira
frumkvæði kvenna á þessu sviði. Þetta eru allt ein-
staklingar en ekki karlar og konur.
Það liti betur út miðað við stemningu í samfélag-
inu ef það væru fleiri konur á listanum en ég held
að karlar geti verið jafnmiklir jafnréttissinnar og
konur.
Hvaða umræða er þetta eiginlega um slakan hlut
kvenna i þessu prófkjöri? Á að refsa mér fyrir að
vera karl af því það eru færri konur en karlar á
þingi? Ég á bara að njóta minna verðleika og það
eru bæði konur og karlar sem kjósa i þessu próf-
kjöri," segir Sigurður Kári og telur að pólitísk og
strategísk mistök hafi átt sinn þátt í því hvernig
fór.
„Karlar eru fylgnari sér en konur en auðvitað
snýst þetta um það sem fólk hefur að segja frekar
en það hvernig það er skapað.“
Hælavík og „Djöflaeyjan“
- Það er ekki hægt að skiljast við unga frambjóð-
endur án þess að forvitnast um ætt þeirra og upp-
runa. Það kemur í ljós að Sigurður er eldri bróðir
sem á eina systur og er alinn upp frá tveggja ára
aldri í blokk í Breiðholtinu, hluti af mannmörgum
fjölskyldum. Það fólk hallaðist frekar til vinstri í
stjórnmálum en er upprunnið vestan af Snæfells-
nesi og reyndar allar götur vestan úr Hælavík á
Hornströndum þar sem fólk ólst upp við svo harð-
neskjuleg skilyrði að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
var aldrei hægt að rækta þar kartöflur. Þar ólst
Bjarney, amma Sigurðar, upp sem kenndi honum
að tefla og hann segist hafa verið orðinn fullorðinn
þegar hann fór að hafa í fullu tré við ömmu sína í
skákinni.
“Það var geysilega gaman að alast upp í Breið-
holtinu þar sem voru stórir árgangar og mikið
íþróttastarf."
Sigurður og vinir hans spiluðu fótbolta með
Fram vegna þess að Marteinn Geirsson, faðir Pét-
urs Marteinssonar fótboltakappa, var Framari og
duglegur að aka strákunum á æfingar.
Faðir Sigurðar er forstöðumaður við Sundlaug-
arnar í Laugardal en móðir hans er sjúkraliði.
Kristján, faðir Sigurðar, ólst upp á Skólavörðuholt-
inu i jaðri þess fræga braggahverfis sem Einar
Kárason og Friðrik Þór Friðriksson gerðu ódauð-
legt í sögum og kvikmyndum um Djöflaeyjuna. Það
er sagt að faðir hans sé fyrirmyndin að Lúí Lúi í
sögunni en Sigurður vill ekki meina að það sé alls
kostar rétt.
“Hann hefur oft sagt mér frá þessum tíma og
besti vinur hans var líklega fyrirmynd Danna í sög-
unni og fórst í flugslysi en hét Robbi í raunveru-
leikanum. Hann var hluti af þessum heimi og um-
gekkst mikið þá sem er lýst í bókinni en ég held að
hann sé þar ekki sjálfur.
Þetta voru erfiðir tímar og fólk þurfti virkilega
að hafa fyrir lífsbaráttunni. Afi og amma voru
verkafólk með sex börn og þetta var harður heim-
ur. Ég hef aldrei skilið þá fátæktarrómantík sem
margir vinstrimenn vilja sveipa þessa tfma og lífíð
í bröggunum. Það er ekkert rómantískt við fátækt
og engin dýrð yfir bröggunum heldur óregla, fátækt
og erfiðleikar."
Framboð og eftirspum
Sigurður er ólofaður og telur ekki að velgengni
sín í kvennamálum muni aukast viö frama í stjórn-
málum og segist reyndar ekki hyggja á nein stóra-
frek á því sviði og skopast að þessum málum i heild
sinni.
“Fram til þessa hefur verið meira framboð af mér
á þessu sviði en eftirspurn. Það hlýtur að fara að
koma að því að fjölskylduhagir mínir breytist."
- Sigurður Kári sást í blöðunum á dögunum sem
einn málsvara Regnbogabarna sem Stefán Karl Stef-
ánsson stofnaði til gegn einelti.
“Stefán er góður kunningi minn og ég hef lagt
þessu góða málefni lið með lögfræðiþjónustu. Ég sá
þetta oft í Breiðholtinu i gamla daga þótt það héti
þá ekki einelti heldur voru menn einfaldlega lamd-
ir og þeim var strítt. Við vorum svo sterkur vina-
hópur sem gekk vel þannig að við vorum hvorki
fórnarlömb né gerendur.“ -PÁÁ
m. grind
Rekkjan hf.
Skipholti 35 • Sími 588 1955
Verð frá
Bergþór Pálsson
Söngvari
^ota^
„Margir heillast af útliti og
Established in Switzerland 1895
fegurö ROTARY úranna.
Bræðumir Ormsson verða 80 ára í þessarí viku.
Komdu og fáðuþérsneið afkökunni.
Fjöldi vörutegunda með 20% afmælisafslætti!
©OKMSSON________
EXPO