Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Page 57
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
Helcjorblaö JOV
e
Ásta Vigdís Bjarnadóttir
fyrrv. matráðskona í Reykjavík verður 70 ára í da£
Ásta Vigdís Bjarnadóttir, fyrrv. matráðskona við
Völvuborg, Torfufelli 31, Reykjavík, er sjötug í dag.
Starfsferill
Ásta fæddist að Gautshamri í Kaldrananeshreppi á
Ströndum og ólst þar upp og á Drangsnesi. Hún var
húsmóðir að Drangsnesi, matráðskona í Klúkuskóla í
Bjarnarfirði og húsmóðir á Framnesi í Bjamarfirði.
Ásta flutti til Reykjavíkur 1978 og starfaði eftir það
lengst af á dagheimilinu Völvuborg í Breiðholti.
Fjölskylda
Ásta giftist 7.4. 1953 Ingimar Elíassyni, f. 12.3. 1928,
íþróttakennara og fyrrv. skólastjóra Klúkuskóla. Hann
er sonur Elíasar Bjarnasonar, verkamanns í Drangs-
nesi, og Jakobinu Halldórsdóttur húsfreyju sem bæði
eru látin.
Börn Ástu og Ingimars eru Bjarni Jónas, f. 31.12.
1952, skrifstofumaður í Innri-Njarðvík, kvæntur Söru
Harðardóttur, f. 12.9. 1952, kennara, og eiga þau tvö
börn; Þorbjörg Eyrún, f. 20.12. 1953, matráðskona við
Völvuborg, búsett i Reykjavik, gift Árna Ingasyni, f.
15.12. 1953, verslunarmanni, og eiga þau eitt barn auk
þess sem Eyrún á tvö börn með Helga Nielsen; Elías
Jakob, f. 22.6.1956, starfrækir eiglð fyrirtæki í Reykja-
vík, var kvæntur Jóhönnu Harðardóttur, f. 4.11. 1953,
hjúkrunarfræðingi, og eiga þau þrjú börn auk þess
sem Elías á barn með Sjöfn Magnúsdóttur en sambýl-
iskona Elíasar er Magnea Guðný Róbertsdóttir, f. 8.11.
1954; Ástmar, f. 25.6. 1959, verkamaður í Reykjavík;
Ingi Vífifl, f. 27.9. 1962, útvegsbóndi á Kaldrananesi og
á hann tvö börn með Brynju Brynjarsdóttur én sam-
býliskona hans er Birna Ingimarsdóttir, f. 20.6.1973 og
eiga þau tvö börn.
Ásta átti tólf systkini en á nú einn bróður á lífi. Sá
er Áskell Bjarnason, lengst af verkamaður í Vest-
mannaeyjum og síðar i Þorlákshöfn.
Foreldrar Ástu voru Bjarni Bjarnason, f. 23.4. 1889,
d. 29.8. 1952, bóndi og verkamaður að Gautshamri og
Drangsnesi, og k.h., Anna Áskelsdóttir, f. 6.3. 1896, d.
20.10. 1980, húsfreyja.
Ætt
Bjarni var bróðir Sigurbjargar, ömmu Hreins Hall-
dórssonar, frjálsíþróttamanns og fyrrv. Evrópumeist-
ara í kúluvarpi. Bjarni var sonur Bjarna, b. á Bólstað,
Bjarnasonar, b. á Klúku, Sigfússonar, b. i Skarði, Guö-
mundssonar. Móðir Bjarna á Klúku var Agata Jóns-
dóttir. Móðir Bjarna i Bólstað var Maria Bjarnadóttir,
b. í Ósi, Bjarnasonar.
Móðir Bjarna í Gautshamri var Björg, hálfsystir
Guðjóns, föður Magnúsar, föður Þórólfs flugmanns og
Lofts, augnlæknis á Akureyri, fóður Margrétar Jó-
hönnu læknis og Magnúsar Steins óperusöngvara.
Björg var dóttir Siguröar, b. í Skeljavík, bróður Guð-
rúnar, langömmu Sigríðar, móður Magnúsar Frið-
geirssonar, forstjóra Iceland Seafood Corporation. Sig-
urður var sonur Guðmundar, b. á Þiðriksvöllum, Jóns-
sonar, og Ingibjargar Sigurðardóttur, systur Sigurðar,
afa Stefáns frá Hvítadal og langafa Jakobs Thoraren-
sen skálds. Móðir Bjargar var Sigríður Sigurðardóttir.
Anna var dóttir Áskels, b. á Bassastöðum, Pálsson-
ar, b. á Kleifum, Jónssonar. Móðir Áskels var Ingveld-
ur Sigurðardóttir, systir Ólínu, langömmu Jónu Val-
Hafsteinn Ragnarsson
tryggingaráðgjafi í Reykjavík verður 50 ára á morgun
Hafsteinn Ragnarsson tryggingaráðgjafi, Kleifarseli
43, Reykjavík, verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Hafsteinn fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar
upp. Hann flutti til Reykjavíkur í gosinu 1973 þar sem
hann hefur búið síðan.
Eftir að skyldunámi lauk nam Hafsteinn húsasmíði
í Iðnskólanum í Vestmannaeyjum og starfaði við það
tfl 1987. Þá hóf hann störf hjá Samvinnutryggingum
og síðar hjá Vátryggingafélagi íslands hf. þar sem
hann gegnir í dag stöðu tryggingaráðgjafa í Atvinnu-
tryggingadeild.
Hafsteinn var einn af stofnfélögum J.C. Árbæjar og
sinnti þar ýmsum félagsstörfum í fimm ár.
Fjölskylda
Hafsteinn kvæntist 26.12. 1972 Steinunni Hjálmars-
dóttur, f. 29.4. 1951, móttökuritara. Hún er dóttir
Hjálmars Sigmarssonar, bónda í Hólkoti í Hofshreppi
í Skagafirði, og k.h., Guðrúnar Hjálmarsdóttur, hús-
freyju þar.
Börn Hafsteins og Steinunnar eru Guðrún Vilhelm-
ína Hafsteinsdóttir, f. 2.3. 1971, húsmóðir, gift Aðal-
steini Ingólfssyni tæknifræðingi og eru börn þeirra
Elvar Þór Aðalsteinsson, f. 20.10. 1994, og Kristófer
Axel Aðalsteinsson, f. 15.1. 1996; Hjálmar Rúnar Haf-
steinsson, f. 30.6. 1974, húsasmiöur í sambúð með
Kristrúnu Gunnarsdóttur, f. 7.7. 1975, húsmóður og
eru börn þeirra Halla Líf Hjálmarsdóttir, f. 14.6. 1996,
og Jökull Mar Hjálmarsson, f. 30.1. 2001; Hafsteinn El-
var Hafsteinsson, f. 13.9.1978, verktaki, í sambúð með
Stefaníu Önnu Sigurjónsdóttur, f. 8.1. 1981, fram-
reiðslumanni og er sonur þeirra Sigursteinn Már Haf-
steinsson, f. 11.3. 2002.
Systkini Hafsteins eru Friðrik, f. 12.2. 1941, bif-
reiðastjóri, kvæntur Erlu Víglundsdóttur, f. 4.9. 1944,
fiskvinnslukonu en þau búa í Vestmannaeyjum og
eiga Sigurð Vigni, f. 21.3. 1964, sjómann í Vestmanna-
eyjum, og Vilborgu f. 23.11. 1965, húsmóður og verka-
konu í Vestmannaeyjum, í sambúð með Sigmari
Þresti Óskars-
syni, f. 24.12.
1961, sjó-
manni, og eiga
þau börnin
Friðrik Þór, f.
30.9. 1989, Erlu
Rós, f. 2.11.
1996, Daníel
Mar, f. 26.4.
2000; Anna
Bima, f. 18.9.
1948, sjúkra-
liði, búsett i
Reykjavík, og
á hún synina
Ragnar Vil-
berg Gunnars-
son, f. 26.5.
1968, Hákon Pálsson sem er kvæntur Valgerði Jensen
og eiga þau Maríu Dögg, f. 29.8. 1998, og Aron Loga, f.
29.9. 2001, og Grétar Mar Sigurðsson, f. 14.4. 1988;
Ómar, f. 14.7. 1958, d. 22.11. 2000, var skrifstofumaður,
búsettur í Ósló í Noregi.
Foreldrar Hafsteins voru Ragnar Axel Helgason, f.
20.2. 1918 að Kálfa-tjörn á Vatnsleysuströnd, d. 27.1.
1995, sjómaður og síðan lögreglumaður í Vestmanna-
eyjum, og k.h„ Vilborg Hákonardóttir, f. að Nýja-
Bjargi í Höfnum 1.6. 1917, d. 3.4. 1995, húsmóðir. Þau
búa í Vestmannaeyjum.
Ætt
Foreldar Ragnars voru Helgi Jónsson í Tungu við
Suðurlandsbraut og kona hans, Friðrika Þorlákssína
Péturdóttir, en þau áttu þrettán börn.
Foreldrar Vilborgar voru Hákon trésmiður Krist-
jánsson, verkamaður í Höfnum og síðar í Vestmanna-
eyjum, og kona hans, Guðrún Vilhelmína Guðmunds-
dóttir húsmóðir.
gerðar Kristjánsdóttur, fyrrv. alþk og Guðjóns Arnar,
togaraskipstjóra og alþm.
Móðir Önnu var Guðríður Jónsdóttir, b. á Svans-
hóli, Arngrímssonar, b. á Krossnesi, Jónssonar. Móðir
Jóns á Svanshóli var Elísabet, dóttir Jónasar Jónsson-
ar í Litlu-Ávík, eins hirðmanna Jörundar hundadaga-
konungs. Móðir Elísabetar var Ingibjörg blinda Guð-
mundsdóttir, prests í Árnesi, Bjamasonar. Móðir Guð-
ríðar var Guðríður, systir Jórunnar, ömmu Bjarna,
langafa Sigríðar Ellu Magnúsdóttur söngkonu, Bjarna
P. Magnússonar, sveitarstjóra í Reykhólahreppi, og
Gunnars Þórðarsonar tónskálds. Önnur systir Guðríð-
ar var Soffia, langamma Ingimars Elíassonar, eigin-
manns Ástu, en bróðir Guðríðar var Guðmundur, afi
Símonar Jóhanns Ágústssonar prófessors og Sveins-
inu, móður Skúla Alexanderssonar alþingismanns.
Guðríður var dóttir Páls, b. í Kaldbak í Nessveit, ætt-
föður Pálsættarinnar yngri Jónssonar, b. í Stóru-Ávík,
bróður Sigurðar, b. í Horni, langafa Sigurðar, b. á
Læk, afa rithöfundanna Jakobínu og Fríðu Sigurðar-
dætra. Jón var sonur Páls, b. í Reykjarfirði og Hlöðu-
vík, ættföður Pálsættarinnar eldri, Björnssonar, b. og
járnsmiðs á Þórustöðum í Önundarfirði, Sveinssonar,
hálfbróður Brynjólfs biskups.
Móðir Guðríðar var Sigríður, systir Jóns, b. á Saur-
hóli, afa Stefáns frá Hvítadal. Sigríður var dóttir
Magnúsar Jónssonar, b. í Hafnarhólmi, og Ingibjargar
Jónsdóttur Glóa, galdramanns í Goðdal, ættfoður Glóa-
ættarinnar.
Ásta Valdís verður að heiman á afmælisdaginn.
Höfuöstafir nr. 55
Bókaútgáfan Hólar hefur sent frá sér bókina í frétt-
um er þetta helst, gamansögur af íslenskum fjölmiðla-
mönnum. Þar eru m.a. nokkrar góðar vísur og
skemmtilegar sögur sem fylgja eins og gengur. Þar
segir t.d. frá því þegar Ómar Ragnarsson kom á síð-
ustu stundu inn í Sjónvarpshús hundblautur eftir ein-
hverja svaðilför og náði ekki að ljúka við að hafa fata-
skipti heldur varð að setjast berlæraður í settið þar
sem hann sagði fréttirnar. Ólína Þorvarðardóttir vann
þá í sjónvarpinu og seinna þegar þau rifiuðu söguna
upp á hagyrðingamóti orti Hjálmar Jónsson:
Ólína beiö á brettinu
býsna sperrt.
En Ómar sat í settinu
meö settið bert.
í bókinni segir líka frá því að Stefán Jónsson frétta-
maður orti vísu um séra Emil Björnsson, en báðir
unnu þeir þá hjá RÚV:
Séra Emil giftir og grefur,
glatt er í himnaranninum;
eru á ferli úlfur og refur
í einum og sama manninum.
Séra Emil svaraði:
Heldur vil ég hýsa rebba
og huggulegan úlfafans
en fénaöinn, sem Frétta-Stebba
fylgir eins og skugginn hans.
Hér er líka saga af því að Lárus Salómonsson, sem
þá hafði þann starfa að fara um borgina og skjóta
flækingshunda, leit við á fréttastofunni og baö Stefán
að yrkja um þetta starf sitt. Það gerði Stefán:
Langt af sínum brœörum ber,
betri verka nýtur.
Lítiö yfir lœtur sér
Lárus hunda skýtur.
Og svo að öðru.
Enn verð ég að biðja lesendur að liðsinna
mér við að finna höfund að vísu. Hún hljóð-
ar þannig:
Arkar karlinn út í fjós
Ingibjörgu aö finna.
Ekki þarf hann alltaf Ijós
til útiverka sinna.
(
Umsjón
Ragnar Ingi
Aðalsteinsson
ria@ismennt.is
• A
V
)
Við endum á vísu eftir Hauk Hafstað:
Helvíti er Heröurbreiö
hrikalega ferleg.
Einhvern tíma alla leiö
upp á hana fer ég.
: fcf
J
%