Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Side 58
tirt • MSHSIKGiSTOFA
62
Helqarblað I>V LAUCARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
PHILCO
Traustar og ódýrar þvottavélar
Skákþátturínn
Umsjón
Sævar Bjamason
m
8 • SÍMI 569 1500
.. I ^—
Efhún
erekki
E 1 Ð F A X 1
Hestaheilsa
eftir Helga Sigurösson,
dýralækni er firábær
handbók b'l gjafia fyrir
alla þá sem áhuga
hafia afihestum og
heilsufiari þeirra.
Verð 6.900.-
WILDLIFE
THI lUIOflAN NATUII
EUROPE
MIM rllIIVAl IN IWIOfN
1. verðlaun f flokknum
Maður og náttúra
á . MeritAward
Isaldarnestuririii
Margverölaunað myndband eftir Pál Steingrimsson.
Góö gjöf til vina og ættingja heima og erlendis.
lVleö íslensku og ensku tali.
Verð 3.990.-
www.eidfaxi.is
Sími 588 2525 • eidfaxi@eidfaxi.is
Hvað varð um Bobby Fischer?
Fullur beiskju og
haldinn gyðingahatri
Robert James Fischer, eins og
hann heitir, verður 60 ára i mars á
næsta ári! Og það eru rúm 30 ár síð-
an hann varð heimsmeistari í skák í
Laugardalshöllinni og bókstaflega
hvarf að mestu af yfirborði jarðar.
Allir héldum við skákmenn að þá
væri að hefjast nýtt tímabil í skák-
inni og vissulega hófst það, en án
þátttöku meistarans. Nú nýlega hafa
þó verið aö birtast greinar í virtum
bandarískum blöðum, eins og t.d.
The Philadelphia Inquirer og netrit-
inu The Atlantic on Line, þar sem
hulunni er svipt af ýmsum leyndar-
málum sem varða líf Fischers. Það
hefur komið í ljós að FBI fylgdist
lengi með móður hans, Reginu
Fischer, sem nú er látin, og meistar-
anum sjálfum.
Móðir skákmeistarans var mjög
sérstök kona og róttæk í skoðunum.
Hún aðhylltist kommúnískar skoð-
anir á sínum yngri árum og dvaldi í
nokkur ár í Sovét fyrir seinni heims-
styrjöldina. Skjöl þessi, sem voru
stimpluð sem leyniskjöl, komust í
hendur bandarískra fjölmiðla vegna
þess að ákveðinn tími er liðinn frá
andláti Regínu og FBI því ekki leng-
ur stætt á því að halda þeim leynd-
um samkvæmt bandarískum lögum.
Fullkoimnn stríðsmaður
Bobby Fischer var hinn fullkomni
stríðsmaður kalda stríðsins. Hann
niðurlægði hinn mikla sovéska skák-
skóla og helstu meistara hans með
því að ná af þeim þeim titli í grein
sem þeir voru óumdeUanlega bestir
í. Á því tímabili, einmitt þar sem
keppnin við Sovétmenn var mæld í
geimskotum og fjölda kjarn-
orkuflauga, þá vann Bobby þann tit-
U sem Sovétmönnum var verst við að
tapa, í þeirra eigin leik eða keppni,
skák. Þvílíkur sigur! En hans eigin
stjórnvöld njósnuðu um hann og
móður hans og komust að ýmsu.
Fischer fór aðeins einu sinni tU
Sovétríkjanna, Moskvu, 1958. Sjálfur
var hann lítt hrifinn af þeirri fór,
enda aðeins 15 ára gamaU, og hringdi
í móöur sína, sem var frumkvöðuU
ferðarinnar, og vildi koma heim sem
fyrst. „Ég fæ bara að tefla við ein-
hverja liðléttinga!" Það er þó ekki al-
veg rétt því hann tefldi hraðskákir
við Tigran Petrosjan sem varð
heimsmeistari 1963. En Bjarmalands-
förin varð sem sagt ekki löng. FBI
hélt þó áfram og athugaði gaumgæfi-
lega hvort Rússarnir hefðu reynt að
fá unglinginn til að njósna fyrir sig.
Um hvað er mér þó reyndar spurn.
FBI njósnar
Þetta byrjaði allt með móður
Bobby Fischers, Regínu. FBI-menn
skoðuðu og rannsökuðu vel og lengi
uppruna hennar, fæðingarvottorð,
lásu allan hennar póst, „spjölluðu"
við nágranna hennar og kunningja
o.s.frv. Þeir fengu það á hreint að
lokum að hún væri varla njósnari en
komust að ýmsu öðru sem hún vUdi
fyrir alla muni halda leyndu. Faðir
Fischers hefur verið talinn efnafræð-
ingurinn og Þjóðverjinn Hans-Ger-
hardt Fischer, enda var hann giftur
móður hans. FBI fylgdist gaumgæfi-
lega með honum líka. En þeir
komust einnig-að því að hann var
ekki faðir Bobbys heldur allt annar
maður.
Hans-Gerhardt Fischer hafði
barist gegn fasistum í borgarastyrj-
öldinni á Spáni og var að auki gyð-
ingur. LeynUegur ástmaður Regínu
var Ungverjinn og gyðingurinn Paul
Nemenyi og báðir þessir menn voru,
ð íHi
i é v-i
Bobby Fischer
Óumdeilanlega einn inesti skák-
maður sem uppi hefur verið.
líkt og Regína, sannir vinstrimenn
og „vinveittir" Sovét. Paul Nemenyi
var betur menntaður en Hans-Ger-
hardt Fischer. Hann var efnaverk-
fræðingur og sérfræðingur í hvernig
hlutir hreyfast í vökva, allt frá blóð-
kornum til eldsneytis eldflauga!
Regína, móðir Bobbys, var stórgáfuð
kona, talaði 8 tungumál en þjáðist af
vænisýki (paranoid) er niðurstaða
geðlæknis sem talaði við hana 1943.
Faðir Fischers
1942 fór FBI að gramsa í skjölun-
um hennar og hringdi í aðalskrifstof-
una. Athygli FBI var vakin og fylgd-
ust menn þar með henni eftir það.
1957 sáu þeir á eftir henni inn í Sov-
éska sendiráðið í Washington og
ráku upp stór augu. Hún fór til að
biðja um skákaðstoð fyrir fermingar-
barnið og skákmeistara Bandaríkj-
anna, son sinn! En bjöllunum var
hringt. Það var fylgst vel með Bobby
í Sovét og það eina sem þeir komust
að var að Bobby var mjög einþykkur
og skapmikill unglingur! FBI lét þó
ekki þar við sitja. Af skjölunum má
ráða að þeir fóru að rannsaka hver
faðir hans væri.
Hans-Gerhardt Fischer og Regína
Wender giftu sig í Moskvu 1933. Þau
skildu 1945 í stríðslok (!) tveimur
árum eftir fæðingu Bobbys. En FBI-
menn eru sannfærðir um að þau hafi
ekki haft samband síðan 1939, er hún
fluttist heim til Bandaríkjanna. Eig-
inmaður hennar dvaldi allan stríðs-
tímann í Chile. Hann vann þar sem
ljósmyndari og sölumaður. FBI fékk
áhuga á ástmanni Regínu, Paul Nem-
enyi. Hann kom til Bandaríkjanna í
kreppunni miklu og kenndi í byrjun
stæðfræði í ýmsum háskólum. Hann
hitti Regínu fyrst 1942. Paui Nem-
enyi var mjög annt um Bobby. Þótt
hann byggi ekki með móður hans þá
borgaði hann með drengnum og
kvartaði yfir við barnaverndaryfir-
völd hvernig högum og uppeldi
Bobbys væri háttað.
Ömurlegt endatafl
Eftir 1972 er saga Fischers enn
furðulegri. Hann bjó í Kalifomíu en
vel var tekið á móti kappanum eftir
sigurinn í Reykjavík. Hann var gerö-
ur að heiöursborgara í New York en
var sár yfir að vera ekki boðið í
Hvíta húsið. Seinna sagði Bobby:
„Enginn einstaklingur hefur gert
meira fyrir Bandarikin en ég. Ég
náði dýrmætasta djásninu úr hönd-
um Rússa. Þegar ég vann heims-
meistaratitilinn i skák héldu allir að
það eina sem Bandaríkjamenn gætu i
íþróttum væri að keppa í okkar
furðulega fótbolta og hafnabolta! En
að við værum gáfaðir, nei!“
Næstu 20 ár fóru í það að eyða
peningunum í fyrirbæri sem heitir á
ensku „Church of God“, sértrúar-
söfnuði sem heldur því fram að
heimsendir verði innan 4-7 ára og
hefur haldið þessu fram mun lengur
en það. Fischer dró sig enn meira
inn í skel sína, varð alvarlega væni-
sjúkur og þjáðist sennilega af geð-
klofa líka, en af og til bráði þó af
honum.
Tefldi aftur við Spassky
Fischer hreifst ungur mjög af Ad-
olf Hitler - í fyrstu ekki vegna gyð-
ingahaturs hans heldur sterks per-
sónuleika. Þetta gyðingahatur hefur
síðan vaxið með árunum og er nú
orðið að algjörri þráhyggju. Á þess-
um árum var reynt að bera ógrynni
fjár á kappann til að tefla en alltaf
varð eitthvað furðulegt í veginum að
lokum. Það voru margar miljónir
dollara sem hann hafnaði á þessum
árum en 1992 tefldi hann svo loks aft-
ur við Borís Spasskí í Stefi Svetan í
Júgósiavíu.
Eftir að Bobby Fischer mætti til
leiks í Júgóslavíu braut hann bæði
viðskipta- og keppnisbann Samein-
uðu þjóðanna og Bandaríkjastjórn
lýsti því yfir að hann yrði dreginn
fyrir dómstóla þegar hann sneri
heim aftur. Með furðulegri fram-
komu sinni - m.a. hrækti hann á
bréf dómsmálaráðuneytis Bandaríkj-
anna - braut hann allar brýr að baki
sér. Enginn hefur t.d. ásakað Boris
Spasski um neitt sem hann naut
þarna góðs af og komst loks í þokka-
legar álnir. Og samband Zitu
Rajcsanyi og Bobbys varð ekki lang-
vinnt. Hann settist þó að lokum að í
Búdapest og þar til nýlega er lítið
vitað um ferðir hans þar. Hann var
þó til heimilis hjá gyðingafjölskyld-
unni Polgar og kom ágætlega saman
við stelpurnar þrjár, Szuzu, Sofíiu og
Judit, og móður þeirra og tefldi löng-
um stundum við þær. Pabbi þeirra
gerði þá skyssu að ræða pólitík við
Fischer, þraut að lokum þolinmæð-
ina og rak meistarann á dyr.
„Þetta eru gyðingaræflar!" sagði
Bobby. Judit Polgar segir hann þó
vera geðþekkan mann, enda hún
næstum því (?) jafnoki hans i skák-
inni, sennilega þá í hraðskák. Einnig
virðast þær systur vera umburðar-
lyndar með afbrigðum, og þó -
kannski sjá þær eitthvað í fasi
Fischers sem hann dylur svo vel fyr-
ir umheiminum. Síðastliðinn áratug
hélt Bobby mest til í Ungverjalandi
og Mið-Evrópu en stórmeistaranum
Eugene Torre tókst þó að lokka hann
til Filippseyja af og til og viti menn:
það voru ekki bara furðulegar yfir-
lýsingar í útvarpsviðtölum sem hann
dundaði sér við, hann eignaðist
stúlkubarn með 20 ára filippseyskri
stúlku, Justine, árið 2000.
Ekki sinnir hann þó þeim mæðg-
um mikið enda illa sinnaður uppeld-
islega. Hann er fullur beiskju út í
Bandaríkin. Hann hafði náð nokkurs
konar sáttum við Regínu, móður
sína, og systur, Joan, en þær létust
fyrir fáeinum árum og komst Bobby
ekki í jarðarfarirnar vegna handtök-
unnar sem yfir honum vofir. Hann
er mislyndur sem fyrr og gerði þá
vitleysu 11. september 2001 að fagna
árásunum á Tvíburaturnana í fæð-
ingarborg sinni, New York, örfáum
tímum eftir þær í útvarpsviðtali svo
ekki bætir það úr skák.
Skáksnillingurinn Bobby Fischer
er víst búsettur í Tokyo í Japan
þessa dagana og hefur fundið þar
aðra fylgdarkonu. Hann kann mjög
vel við sig í þeirri borg - engir gyð-
ingar að þvælast fyrir honum nema
hann sjálfur auðvitað. Ekki er öll vit-
leysan eins.