Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Page 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003
DV
farþega sem soguöust út úr lljúsjín
flutningavél yfir Kongó á fimmtudag.
Farþegar soguðust út
úr flugvál í hátoftunum
Óttast er aö vel á annað hund-
rað manns manns hafi týnt lífi
þegar þeir soguðust út úr flutn-
ingaflugvél eftir aö afturhleri
hennar opnaðist hátt yfir
Kongólýðveldinu um 45 mínútum
eftir brottfor frá höfuðborginni
Kinshasa á fimmtudagskvöld.
Hermaður sem komst lífs af úr
slysinu sagði fréttamanni Reuters
að um 200 manns, hermenn, kon-
ur þeirra og böm, hefðu verið í
vélinni en að ekki nema um tutt-
ugu hefðu komist lífs af.
Landvarnaráðherra Kongó,
Irung Awan, staðfesti í gær að
slysið hefði orðið en sagði að sér
væri ekki kunnugt um dauðsfóll
af þess völdum. Haft var eftir
lækni á aðalsjúkrahúsi Kinshasa
að níu karlar og konur væru þar
til meðferðar vegna minni háttar
meiðsla og andlegs áfalls.
Flugvélin var af gerðinni Iljú-
sjín 76 og rússneskri áhöfn henn-
ar tókst að lenda henni aftur í
Kinshasa. Vélin var á leiðinni til
næststærstu borgar Kongó, Lub-
umbashi, þegar óhappið gerðist.
Vörulistarnir
Sími/Fax 565 9991
www.otto.is
Allir listamir fást í Bókabúflinni Grimu,
Garðatorgi, Bókabúð Máls og menningar,
Mjódd, og Pennanum, Keflavik.
Lokaöur fundur um írak í Öryggisráöi SÞ í gær:
Frakkar tilbúnir að ræða
tillögu Bandaríkjamanna
Frakkar eru reiðubúnir að ræða
tillögu Bandaríkjamanna um að
aflétta viðskiptaþvingunum Sam-
einuðu þjóðanna á Irak á „upp-
byggilegan og fordómalausan"
hátt, að því er Jacques Chirac
Frakklandsforseti sagði í gær.
Aftur á móti sagði Chirac, sem
var andvígur stríðsrekstri Banda-
ríkjanna og bandamanna þeirra í
írak og vill ekki að þeir einoki
endureisn landsins, að Frakkar
vildu að SÞ ættu að gegna lykil-
hlutverki við að endureisa írak.
Bandaríkjamenn lögðu fram til-
lögu í Öryggisráðinu í gær, með
stuðningi Breta og Spánverja, þar
sem gert er ráð fyrir að öllum við-
skiptaþvingunum, sem settar voru
á Irak eftir innrásina í Kúveit
1990, yrði aflétt, að undanskildu
vopnasölubanni. Þá vilja Banda-
ríkjamenn að þeir og bandamenn
þeirra verði einráöir um hvernig
verja beri tekjum af olíusölu íraks
REUTERSMYND
Hraöar sér á fundinn
SirJeremy Greenstock, sendiherra
Bretlands hjá SÞ, hraöar sér á fund
Öryggisráösins í New York í gær.
í að minnsta kosti eitt ár.
Tillagan gerir ráð fyrir að Sam-
einuðu þjóðimar og aðrar alþjóða-
stofnanir muni aðeins hafa eftirlit
með því hvernig tekjunum af olíu-
sölimni verði varið.
Bandarísk stjórnvöld treysta á
að Rússar, Frakkar, Þjóðverjar og
Kinverjar, sem allir hafa neitunar-
vald í Öryggisráðinu, muni fallast
á tillöguna. Þessi ríki voru í for-
ystu þeirra ríkja sem lögðust gegn
stríðinu í írak. Embættismenn
sögðu hins vegar í gær að lítill
áhugi væri á að endurtaka slaginn
sem varð í Öryggisráðinu áður en
til innrásarinnar í írak kom.
Ekkert hafði frést af fundinum
áður en blaðið fór í prentun. Fyr-
ir fundinn sagðist rússneski sendi-
herrann myndu hafa fjölmargar
spurningar fyrir sendiherra
Bandaríkjanna. Rússar, rétt eins
og Frakkar, vilja að SÞ gegni lyk-
ilhlutverki við endurreisnina.
REUTERSMYND
Synir fórnarlambsins huggaöir
Fjölskylduvinur reynir aö hugga syni írasks manns, Khaleds Ahmeds, viö tikhús sjúkrahúss í Bagdad. Bandarískir her-
menn í írösku höfuöborginni skutu Ahmed til bana þegar hann sveigöi bíl sínum upþ á gangstétt nærri mosku
snemma ígær. Ekki er vitaö hvers vegna hermennirnir hófu skothríö.
Breskt limarit segir
Berlusconi óhætan
Breska tíma-
ritið Economist
kom róti á
ítalskt stjóm-
málalíf í gær
með því að halda
því fram að Sil-
vio Berlusconi
forsætisráðherra
væri óhæfur til að vera í forystu
fyrir Evrópuríkin þegar ítalar
taka við formennsku í Evrópu-
sambandinu 1. júlí.
ítalskir stjórnarandstæðingar
sögðu að harðorö grein Econ-
omist sýndi að Berlusconi skað-
aði orðspor Ítalíu á alþjóðavett-
vangi og ætti að segja af sér. Um
þessar mundir standa yfir réttar-
höld yfir Berlusconi í Mílanó
vegna ákæru um spillingu.
Samverkamenn forsætisráð-
herrans gerðu lítið úr grein
breska tímaritsins en ljóst þykir
að margir hafa áhyggjur af for-
mennskutíð ítala.
Friöarviöleitnin fyrir botni Miðjarðarhafs:
Heimsókn Colins Powells
um helgina gagnslítil
Lítill árangur verður af
heimsókn Colins Powells,
utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, til Mið-Austur-
landa um helgina vegna
tregðu Ariels Sharons, for-
sætisráðherra ísraels, til
að fallast á tilraunir
manna til að koma á friði.
Þetta sagði Nabil Shaath,
utanríkisráðherra palestínsku
heimastjórnarinnar, eftir fund
með franska utanríkisráðherran-
um, Dominique de Villepin.
Ariel Sharon hefur ekki enn
fallist á svokallaðan vegvísi Vest-
urveldanna að friði fyrir botni
Miðjarðarhafs, þar sem meðal
annars er kveðið á um stofnun
sjálfstæðs ríkis Palestínumanna
fyrir árið 2005.
Shaath sagði að Sharon
hefði gefið til kynna að
hann myndi bíða eftir að
taka afstöðu til vegvís-
isins þar til eftir fund meö
George W. Bush Banda-
ríkjaforseta 20. maí.
Powell kemur til Jer-
úsalem í dag og ræðir
við Mahmoud Abbas, nýjan for-
sætisráðherra Palestínumanna, á
sunnudag. Þá verður liðið meira
en ár síðan Powell beitti sér per-
sónulega til að binda enda á átök-
in milli Palestínumanna og ísra-
ela sem nú hafa staðið i 31 mánuð.
Shaath sagði að Palestínumenn
myndu ítreka stuðning sinn við
friðaráætlunina.
Colin Powell.
Afganistan gleymist ekki
Richard Armita-
ge, aðstoðarutan-
ríkisráðherra
Bandaríkjanna,
fullvissaði ráða-
menn í Afganistan
þegar hann heim-
sótti þá í Kabúl í
gær að stjórnvöld
í Washington myndu ekki skjót-
ast undan ábyrgð í Afganistan,
þrátt fyrir atburðina í írak.
Ekkert skjól tyrir ökufanta
Þess verður ekki langt að bíða
að ökufantar innan Evrópusam-
bandsins geta ekki lengur flúið
hraðaksturssektimar úr sumar-
leyfinu með því einu að bruna yf-
ir landamærin til síns heima.
Sektirnar munu elta þá alla leið-
ina heim að dyrum.
Verkfall í Færeyjum
Um tólf þúsund launþegar úr
öllum verkalýðsfélögum Færeyja
lögðu niður vinnu á fimmtudag
og er athafnalif á eyjunum lamað.
Engin mjólk er keyrð út og skip
eru ekki losuð.
Masað og flakkað á Netinu
Grænlendingar eru orðnir svo
duglegir við að masa í síma og
flakka mn Netið að hagnaður er
af rekstri Grænlandssíma.
Al-Qaeda klár í aðgerðir
Hryðjuverkaliðar í al-Qaeda
hafa náð að endurskipuleggja sig
og eru aö undirbúa stórárásir á
Bandaríkin, að því er talsmaður
samtakanna segir í samtali við
arabískt dagblað í London.
Erdogan vill afnám þvingana
Tayyip Erdogan,
forsætisráðherra
Tyrklands, hvetur
til þess að við-
skiptaþvingunum
verði aflétt af
tyrkneska hluta
Kýpur. Viðskipta-
þvinganir hafa
verið í gildi í 40 ár en fyrir
skömmu slökuðu grískir Kýpur-
búar aðeins á klónni.
íranar samvínnuþýöir
írönsk stjórnvöld hétu því í
gær að vinna náið með Alþjóða-
kjarnorkumálastofnuninni til að
sýna fram á að kjarnorkuáætlun
þeirra sé í friðsamlegum tilgangi.
Veljum ekki, veljum ekki
Gerhard
Schröder Þýska-
landskanslari
sagði í gær aö
Þjóðverjar myndu
ekki láta þvinga
sig til að velja
milli vináttu
Bandaríkjamanna
eða Frakka. Samskiptin við
Bandaríkin hafa verið stirð upp á
síðkastið vegna andstöðu Þjóð-
verja við stríðið í írak en kansl-
arinn er að reyna að gera þar
bragarbót á.
Eftirlit á ítalíu
ítölsk stjómvöld hafa ákveðið
að taka upp eftirlit með öllum
farþegum sem koma til Ítalíu frá
löndum þar sem hætta er á að
smitast af bráðalungnabólgu og
setja alla þá í sóttkví sem sýna
einhver merki um smit.