Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Síða 34
34 He/C) o rb lo c) jov LAUGARDAGUR 10. MAf 2003 var orðinn aðalatriðið - Atla Eðvaldssyni, fráfarandi landsliðsþjálfara, fannst réttast að stíga til hliðar vegna neikvæðrar umræðu Atli Eðvaldsson, sem stjórnað hefur íslenska landsliðinu síðan síðla árs 1999, sagði í gær upp störfum sem landsliðsþjálfari. Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnsambands íslands, las upp sameiginlega yfirlýsingu Atla og sambandsins á blaða- mannafundi sem boðað var til í gær og hljóðaði hún svona: „Atli Eðvaldsson hefur ákveðið að draga sig í hlé og láta af starfi sínu sem þjálfari A-landsliðs karla. Mikil og neikvæð umræða hefur verið um störf Atla með landsliðiö sem í raun hefur haft slæm áhrif á gengi liðsins. Atli dregur í hlé í þeirri von að liðinu takist að snúa blaðinu við og fá stuðning þjóðar- innar í komandi leikjum sem eru gríðarlega mikil- vægir fyrir ís- lenska knatt- spyrnu." Svo mörg voru þau orð og DV- Sporti lék for- vitni á að vita hvað Atli hefði um þessa ákvörð- un sína að segja. Af hverju hœtt- ir þú sem landsliösþjálfari? „Umræðan í kringum liðið hef- ur verið neikvæð í nokkuð lang- an tíma og hefur eiginlega stig- magnast að undanförnu. Mér hef- ur fundist menn missa sjónar af því sem skiptir máli. í allri um- ræðu í kringum landsliðið var ég aðalmaðurinn í stað þess að landsliðiö sjálft og leikmenn þess fengju að njóta sín. Baráttan fyr- ir leiki var farin að snúast gegn baklandinu en ekki gegn and- stæðingunum. Það var þróun sem mér fannst ekki vera rétt og sá fram á að myndi ekki breytast á meðan ég væri við stjórnvöl- inn. Því ákvað ég að stíga til hlið- ar og get sagt þér að ég er mjög sáttur við þessa ákvörðun," sagði Atli Eðvaldsson. Af hverju fékk liöiö ekki stuön- ing á meöan þú varst viö stjórn- völinn? „Það er hlutur sem ég á erfitt með að útskýra. Ég tel sjálfan mig vera viðkunnalegan og heið- arlegan mann sem er þægilegur í umgengni. Einhverjir aðilar hafa hins vegar haft horn í síðu minni allt frá upphafi og á endanum var mælirinn fullur. Ég eiginlega skil þetta ekki og það versta var að liðið þjáðist út af þjálfaranum. Því varð að linna.“ Geðbilun að standa í þessu „Ég hef mikið þrek 'og þol og hef þurft að nota það allt til að þola þá gagnrýni sem á mér hef- ur dunið. Það má eiginlega segja að það sé hálfgerð geðbilun að standa í þessu og ég óska engum landsliösþjálfara þess að standa í þeirri orrahríð sem ég hef staðið í þennan tíma sem ég hef stjórn- að landsliðinu. Menn hafa verið duglegir við að gagnrýna mig og undir suma gagnrýnina get ég al- veg skrifað en mikið af því sem sagt hefur verið um mig hefur ekki verið málefnalegt og til þess fallið að hjálpa knattspyrnunni á íslandi. Menn mega segja sínar skoðanir en þeir þurfa að rök- styðja þær til að hægt sé að taka mark á þeim.“ Er ekki Guðjón Þórðarson Nú hefur veriö talaö um aö þaö vanti harðjaxl eins og forvera þinn, Guöjón Þóröarson, viö stjórnvölinn á landsliöinu. Er ekki nœgur agi hjá þér og ertu oröinn of góöur vinur leikmann- anna? „Ég hef minn stjórnunarstíl og get ég sagt þér það að hann felst ekki í því að lemja menn til hlýðni eða hóta þeim öllu illu. Ég er ekki Guðjón Þórðarson, hef aldrei verið hann, mun aldrei verða hann og hef satt að segja engan sérstakan áhuga á því. Ég hef reynt að skapa traust og trúnað á milli þjálfara og leik- manna, rætt við þá á jafnréttis- grundvelli og eiginlega eftirlátið hópnum að halda uppi aga. Það er langsterkasti aginn sem kem- ur innan frá og ég trúi því ekki að menn, sem hafa atvinnu af því að spila knattspyrnu, kunni ekki að undirbúa sig undir leik. Ég get ekki verið á vaktinni allan sólar- hringinn og það segir sig sjálft að ef ég eyddi hverri nótt í að gægj- ast undir herbergisdyrnar hjá mönnum þá sýndi ég þeim ekki mikiö traust. Ef ég treysti þeim ekki til að undirbúa sig fyrir leiki þá treysti ég þeim varla til að standa sig inni á vellinum. Gagnkvæmt traust verður að ríkja og þú átt aldrei eftir að sjá mig með blöðru á æfingu á sunnudagsmorgni til að fram- kvæma áfengispróf á leikmönn- um. Það væri niðurlægjandi fyrir leikmennina og ekki minn stíll og ef ég hef lagt of mikið traust á þá og verið of náinn þá verð ég bara að lifa með því.“ Ekki lélegur árangur „Ég er ekki sammála því að lið- ið hafi náð lélegum árangri und- ir minni stjórn. Við höfum unnið marga góða sigra, meðal annars gegn Tékkum og Svíum, farið upp um styrkleikaflokk [innsk. blm. ekki eingöngu vegna árang- urs liðs'ins heldur einnig vegna fjölgunar þjóða í hverjum styrk- leikaflokki] og verið á sama tíma að móta nýtt landslið. Auðvitað hafa slæm töp litið dagsins ljós en við verðum aö muna að við er- um engin stórþjóð hvað varðar fólksfjölda og verðum að hafa væntingar og kröfur eftir því. Við eigum enn möguleika á því að ná því markmiði sem við sett- um okkur - að halda okkur í þriðja styrkleikaflokki - og það væri frábært ef það næðist. Til þess að það geti gerst þá þarf þjóðin að styðja landsliðið og von- andi gerist það í næstu leikjum. Við erum það lít- il að við náum engum árangri ef við erum sundruð.“ Elílíi hættur að þjálfa Ætlar þú aö 'halda áfram þjálfun? „Ég lifi fyrir fótbolta. Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri og er í blóðinu. Ef ég hefði ætlað að hætta að þjálfa þá hefði ég sennilega haldið áfram með liðið út undankeppnina og síðan sagt bless. Ég er hins vegar með mikla reynslu sem leikmaður, hef eytt drjúgum tíma í að mennta mig sem þjálfari og tel að mín þjálfun- arheimspeki gangi upp. Ég veit hins vegar ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér. Núna er ég að melta þessa ákvörðun sem ég tók og framhaldið verður síðan að koma í ljós.“ Líst vel á Ásgeir „Ég styð stjórn KSÍ heilshugar í því að hafa ráðið Ásgeir Sigur- vinsson sem landsliðsþjálfara. Ásgeir nýtur mikillar virðingar, hann þekkir liðið út og inn og er góður maður til að leiða liðið í næstu leikjum, þangað til fram- tíðarmaður finnst. Ég fagna því líka að stjórn KSÍ skuli ætla að leita út fyrir landsteinana að þjálfara. Það lýsir metnaði og vonandi kemur sá hinn sami með nýtt og ferkst blóð inn í íslenska knattspyrnu. Ég vona bara að þjóðin taki vel á móti honum og hlífi honum við því sem ég þurfti að þola - annars verður hann ekki langlífur í starfi. Annars óska ég Ásgeiri alls hins besta í starfinu og vona að honum takist að sameina þjóðina á bak við lið- ið. Ef það gerist þá fá leikmenn- irnir meira sjálfstraust og liðið getur komist á skrið. Það býr ým- islegt í þessu liði en margir þætt- ir hafa orðið til þess að það hefur ekki náð að sýna sitt besta.“ Þungu fargi létt „Það er ekki hægt að segja ann- að en að þungu fargi sé létt af mér eftir að ég tók þessa ákvörð- un. Áreitið hefur á tíðum verið ótrúlegt, sérstaklega fyrir mann eins og mig sem hefur engan áhuga á því að vera í sviðsljós- inu. Mér finnst ég vera frjáls maður og ég mjög sáttur við að hafa tekið þessa ákvörðun. ,,£q hef minn stjórnunarstíl oq qet éq saqt þér það að hann felst ekki íþvíað lemja menn til hhjðni eða hóta þeim öllu illu. Éq er ekki Guðjón Þórðarson, hef aldrei verið hann, mun aldrei verða hann oq hefsatt að seqja enqan sér- stakan áhuqa á því. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.