Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Blaðsíða 15
25. Landsmót UMFI verður haldið á 100 ára afmæli Ungmennafélags Islands árið 2007.
26. Landsmót UMFÍverðurhaldið árið 2009, en þá verða liðin 100 árfrá þvífgrsta Landsmót UMFÍfórfram,
Ungmennafélag íslands óskarhérmeð eftirumsóknumfrá sambandsaðilum og sveitarstjórnum um að
taka að sér undirbúning ogframkvæmd þessara Landsmóta.
Fyrsta Landsmót UMFI fór fram á Akureyri 1909, en Landsmótin
eru orðin tuttugu og þrjú talsins. Síðasta Landsmót var haldið
á Egilsstöðum 2001. Næsta Landsmót UMFÍ verður haldið á
Sauðárkróki 8.-11. júlí 2004.
Þar mun fremsta íþróttafólk landsins keppa í flestum greinum
íþrótta, en auk þess verður keppt í starfsíþróttum eins og t.d.
pönnukökubakstri, dráttavélaakstri og lfnubeitingu.
Á Landsmótum UMFI er boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem
öll fjölskyldan geturverð saman. Aukin áhersla hefurverið lögð
á þátttöku almennings í ýmsum íþróttagreinum á síðari árum.
Landsmót UMFI hafa jafnan verið mikil lyftistöng fyrir byggðar-
lögin þarsem þau hafa verið haldin. Kröftug uppbygging íþrótta-
mannvirkja hefur átt sér stað og starf ungmenna- og íþrótta-
félaga eflst.
Umsóknum um að halda 25. eða 26. Landsmót UMFI 2007 og
2009 skal skilað á þjónustumiðstöð UMFÍ að Fellsmúla 26,108
Reykjavík fyrir 1. nóvember 200B.
Landsmót UMFI eru stærstu íþrótta- og menningarhátfðir sem
haldnar eru hér á landi og vekja þjóðarathygli. Á Landsmótunum
sem haldin verða 2007 og 2009 má gera ráð fyrir meira en tvö
þúsund þátttakendum sem keppa í um tuttugu íþróttagreinum.
UNGMENNAFELAG
ÍSLANDS
UMFI
L 1k/ - 4HL * " jI ' *1.
sjjÉu 1 ":'wW M HL v',' ,