Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Side 16
16
LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________PV
Gerald og Sara Murphy. Vellauöug, töfrandl hjón sem Francis Scott Fltzgerald notabl sem fyrirmyndlr
aö aöalpersónunum í elnni bestu bók slnni, Tender Is the Night.
Töfrandi fyrirmyndir
Skáldsaga Francis Scott Fitsgeralds, Tender Is the
Night, kom út áriö 1934. HOn fékk ekki góöa dóma en
þykir nú meö athyglisveröustu verkum hans. Fyrirmyndir
Fitzgeralds aö aöalpersónunum voru vinir hans, Gerald
og Sara Murphy. Bókin kom út í íslenskri þýöingu Atla
Magnússonar áriö 1998 undir heitinu Nóttin blíö.
Þegar Francis Scott Fitzgerald byrjaöi að
vinna að skáldsögunni Tender Is the Night not-
aði hann í upphafi vin sinn Gerald Murphy
sem fyrirmynd að aðalpersónunni, Dick Diver,
en í miðri bók breyttist Diver í Francis Scott
Fitzgerald. Þetta gerðist líka, í minni mæli þó,
með kvenhetjuna Nicole Diver sem bar svip af
Söru Murphy, eiginkonu Geralds, en breyttist
síðan í Zeldu, eiginkonu Fitzgeralds.
Fitzgerald var átta ár að skrifa bókina og
endurskrifaði hana margsinnis. Skáldsagan
kom út árið 1934 og var tileinkuð hjónunum.
Skömmu síðar skrifaði Ernest Hemingway
Fitzgerald bréf þar sem hann sakaði hann um
svik með því að nota Murphy-hjónin sem fyrir-
myndir en breyta þeim síðan í aðrar manneskj-
ur. Gerald Murphy kom með svipaðar athuga-
semdir þegar hann hafði lesið skáldsöguna.
Fitzgerald svaraði honum með orðunum: „Inn-
blásturinn kom frá ykkur Söru og tilfinningum
mínum til ykkar og lífsstíls ykkar. Síðasti hluti
verksins er um Zeldu og mig vegna þess að þið
Sara eruð sömu manneskjur og við Zelda.“
Sara Murphy sagði að þessi orð Fitzgeralds
bæru vott um að hann vissi afar lítið um fólk
og alls ekkert um Murphy-hjónin.
Mörgum árum seinna, þegar Gerald las bók-
ina í annað sinn, tók hann eftir því sem hafði
farið fram hjá honum við frumlestur, að á
fyrstu hundrað blaðsíðunum var lýst atburð-
um og samtölum sem höfðu raunverulega átt
sér stað þegar Fitzgerald-hjónin og Murphy-
hjónin dvöldu saman í París og á Rívíerunni.
Fullkomið líf
Þegar Fitzgerald-hjónin komu til Frakklands
árið 1924 höfðu Murphy-hjónin dvaliö þar í
þrjú ár. Sara og Gerald Murphy voru banda-
rísk, bæði af vellauðugum ættum og höfðu
þekkst í ellefu ár áður en þau giftust. Fyrstu
árin bjuggu þau í New York en ákváðu svo að
flytja til Evrópu með börnin sín þrjú. Þau sett-
ust að í Frakklandi og bjuggu í París og á Ríví-
erunni. Vinir hjónanna lýstu hjónabandi
þeirra og lífi sem fullkomnu. Þetta var
áhyggjulaust líf þar sem lifað og hrærst var í
listastraumum samtímans. Hjónin eignuðust
fjölmarga vini úr listaheiminum, þar á meðal
Cole Porter, Hemingway og Picasso. Scott og
Zelda Fitzgerald voru einnig meðal bestu vina
Murphy-hjónanna.
Gerald var ekkert sérlega hrifinn af Fitzger-
ald sem höfundi og þótti tO dæmis ekki mikið
til þeirrar bókar koma sem talin er meistara-
verk hans, The Great Gatsby. Gerald sagði að
þau hjón hefðu litið á vin sinn Ernest Hem-
ingway sem alvöru rithöfund en ekki Fitzger-
ald. Fitzgerald var heillaður af Söru og gat set-
ið tímunum saman og starað á hana. Aðdáun
hans var henni til nokkurs ama. Þegar hann
ákvað að nota hjónin sem fyrirmyndir í skáld-
sögu sinni fór hann að yfirheyra þau um
smæstu atriði í lífi þeirra. Spurningar hans
fóru í taugarnar á Söru en Gerald trúði því
ekki að Fitzgerald væri alvara með því að gera
þau að skáldsagnapersónum.
Fjölskylduharmleikir
Skáldsagan Tender Is the Night segir frá
bandarískum geðlækni, Dick Diver, sem kynn-
ist ungri konu, Nicole, á heilsuhæli. Þau giftast
og eyða tíma sínum á Rívíerunni og víðar í
Evrópu. En Nicole er ekki í andlegu jafnvægi
og það fer að síga á ógæfuhliðina í sambandi
þeirra.
Þaö var ekki mikil gæfa í hjónabandi Fitz-
geralds og Zeldu konu hans, hún varð geðveik
og lést í bruna á geðveikrahæli. Hjónaband
Geralds og Söru var hins vegar innilegt. Líf
þeirra var lengi vel fullkomið en svo reið ógæf-
an yfir. Áriö 1929 greindist yngsti sonur þeirra,
Patrick, þá níu ára, með berkla. Hjónin fluttu
með Patrick til Sviss þar sem hann dvaldist á
heilsuhæli og þar bjuggu þau í átján mánuði.
Vinir þeirra komu í heimsókn: Hemingway,
Dorothy Parker og Fitzgerald. Gerald og Sara
keyptu bar sem þau gerðu upp og réðu þýska
hljómsveit til að leika þar um helgar. En hið
hamingjuríka líf Murphy-fjölskyldunnar var
senn á enda. Eldri sonur þeirra hjóna, Baoth,
fékk heilahimnubólgu þar sem hann dvaldist á
heimavistarskóla. Hann lést áður en foreldrar
hans komust til hans. Einu og hálfu ári síðar
lést Patrick.
Hjónin sneru aftur tU Bandaríkjanna þar
sem Gerald tók viö stjórn fyrirtækis fóður síns
en reksturinn var í molum. Hann kom þvi aft-
ur á kjöl en sagði sjálfur að sér heföi fundist
eins og hann gengi í svefni.
Bók með töfra
Hjónin bjuggu vel og ríkmannlega. Þau
héldu tryggð við Fitzgerald og lánuðu honum
peninga svo að einkadóttir hans, Scottie, gæti
stundað framhaldsnám. Árið 1940 skrifaði Fitz-
gerald þeim frá HoUywood: „Oft fannst mér að
sú aðstoð sem þið Sara veittuð mér væri það
eina ánægjulega sem gerðist í heimi sem mér
fannst hafa brugðist mér og gleymt mér aUtof
snemma." Nokkrum mánuðum seinna voru
hjónin viðstödd jarðarför hans.
Þegar kvikmyndaútgáfa af Tender Is the
Night kom á markað áriö 1962, með Jason
Robards og Jennifer Jones í aðalhlutverkum,
neitaði Sara að sjá hana. Gerald fór einn. Og
hann var einn í kvikmyndahúsinu, fyrir utan
gamla ræstingakonu sem var að sópa gólflð aft-
arlega í kvikmyndasalnum. Honum fannst
kvikmyndin ómerkileg. Eftir sýningu keyrði
hann heim: „Þá sá ég Scott greinUega fyrir
mér, eins og hann var fyrir mörgum árum þeg-
ar ég skilaði honum bókinni og sagði honum
hversu góðir mér þættu nokkrir hlutar hennar
vera - án þess að segja honum skoðun Söru.
Scott tók við bókinni með sínu sérkennUega,
fjarræna augnaráði og sagöi: „Já, hún hefur
töfra. Hún hefur töfra.“
Dýrmæt bók
Brennu-Njálssaga
Njála í nýrri
útgáfu. Hér er
fylgt texta
Reykjabókar
þar sem er að
finna fleiri vís-
ur en í ýmsum
öðrum handrit-
um sögunnar.
Gunnar á Hlíð-
arenda er hér tU
dæmis óvenju skáldmæltur. Það
þarf svo sem ekkert sérstaklega að
mæla með Njálu - þeir sem hafa
einu sinni lesið hana hljóta að
lesa hana aftur. Ein af fáum bók-
um sem fylgja manni alla ævi. -
Skarphéðinn er sannur töffari og
HaUgerður er alltaf sama leiðinda-
ótuktin!
Það er undarlegt að maður
skuli alltaf verða að vinna
sér inn peninga, eins og
maður hafi ekki nóg ann-
að að gera.
Gisli Brynjólfsson
Bókalisti Eymundssonar
Allar bækur
1. Synir duftsins.
Arnaldur Indriðason
2. Hver tók ostinn
minn? Spencer Johnson
3. Mðmmur - Litla qjafabókin
4. Leggðu rsekt við sjálfan þig.
Anna Valdimarsdóttir
5. Reisubók Guðríðar Símonar-
dóttur. Steinunn Jóhannesdóttir
6. fsland í aldanna rás - pakki.
Illuqi Jökulsson
7. Einfaldaðu líf þitt.
Elaine St. James
8. Lögmálin sjö um velgengni.
Deepak Chopra
9. Þú getur grennst og breytt
um lífsstíl. Asmundur Stefánsson
oq Guðmundur Bjðrnsson
10. Niður með kolvetnin.
Amanda Cross
Bókalisti Máls & Menningar
Allar bækur
1. Hver tók ostinn minn? Dr.Spencer Johnsson
2. Lost in lceland. Siqurqeir Siqurjónsson
3. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason
4. Þú getur grennst og breytt um lífsstíl.
Ásmundur Stefánsson
5. Island í aldanna rás - pakki. Illuqi Jökulsson
6. Reisubók Guðríðar Símonardóttur.
Steinunn Jóhannesdóttir
7. Learning lcelandic. Auður Eínarsdóttir
8. Ferðakort MM.
9. Aurora - liqht of the northern.
10. Amazing lceland. Siqurqeir Siqurjónsson
Skáldverk:
1. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason
2. Reisubók Guðriðar Símonardóttur.
Steinunn Jóhannesdóttir
3. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason
4. Napóleonsskiölin. Arnaldur Indriðason
5. Mýrin. Arnaldur Indriðason
6. Kantaraborgarsdgur. Geoffrey Chauser______________
7. Sérstakur dagur. Kristin Ómarsdóttir
8. Hvar sem ég verð. Inqibjðrq Haraldsdóttir
9. Grafarþöqn. Arnaldur Indriðason
10. Ævintýri qóða dátans Sveijk. Jaroslav Hasek
Metsölulisti Bókabúöa Máls og menningar 7. til 14. mal
Hjálparsveit hlátra
Sigtryggur Magnason, fjölmiðlamaður og skáld, segirfrá uppáhaldsbókum sínum.
„Æi, ég er þónokkuð mikill
geðklofi þegar kemur að því
að segja hverjar eftirlætis-
bækurnar mínar eru. Best að
byrja á því að taka fram að ég
er í seinni tíð enginn bóka-
sjúklingur. Tíminn er oftast
naumur og fjölskyldan og
leikhúsið ofar í forgangsröð-
inni. Ég las mikið þegar ég
var barn og eftirminnilegasta
bókin er um dverginn Rauð-
grana. Ofboðslega hræðileg
bók og varla boðleg börnum.
Las hana samt fyrir börnin
mín um daginn og þau urðu,
held ég, jafnhrædd og ég,
framreiknað og miðað við
hræðsluvísitölu. Kannski er
það vegna hrifningar minnar
á Rauðgrana, Dísu ljósálfi og
Alfinni álfakóngi sem ein eft-
irlætisbóka minna á síðari
árum er Gangandi íkomi eft-
ir Gyrði Elíasson. Myrkrið og furðuleikinn í
„íkornanum" vekur líklega þessa gömlu
hræðslu. Og talandi um
skepnur: Hamskipti Kafka
þótti mér mögnuð bók og
Hundshjarta Búlgakovs
einnig.
Húmor er mér lífsnauðsyn-
legur og í þunglyndisleið-
öngrum er fátt betra en vita
af Hjálparsveit hlátra í start-
holunum. Þar er Woody
Men stallari og formaður
skemmtinefndar. Fyndnasta
bók sem ég hef lesið er sam-
safn prósaskrifa hans sem
nefnist einfaldlega The
Complete Prose of Woody
Allen. Þar er að finna stuttar
sögur, ritgerðir og undarlega
texta - til dæmis ráðlegging-
ar um borgaralega óhlýðni,
frásagnir af rakara Hitlers
og heimspekilegar hugleið-
ingar. Ein sú besta án efa:
„Það er ekki bara það að Guð
sé ekki til heldur er ómögulegt að fá pípara um
helgar“.“
Skáldverk
1. Synir duftsins.
Arnaldur Indriðason
2. Reisubók Guðríðar Símonar-
dóttur. Steinunn Jóhannesdóttir
3. Mýrin. Arnaldur Indriðason
4. Napóleonsskjölin.
Arnaldur Indriðason
5. Anna, Hanna, Jóhanna.
Marianne Fredriksson
6. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason
7. Dumasarfélagið.
Arturo Perez-Reverte
8. Crazy. Benjamin Lebert
9. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason
10. Alkemistinn. Paulo Coelho
Barnabækur
1. Herra Latur. Roqer Harqreaves
2. Herra Fyndinn. Roqer Harqreaves
3. Geitungurinn 1.
Árni Árnason oq Halldór Baldursson
4. Úti að leika - galdramyndabók
5. Herra Sterkur. Roqer Harqreaves
Metsölulisti bókabúöa Eymundssonar 7.-13. mal