Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Blaðsíða 64
HelQarhlað 33 V LAUGARDACUR IV. MAÍ 2003
íslendingaþættir_____________
Umsjón
Kjartan Gunnar
Kjartansson
Pétur Tyrfingsson
sálfræðingur verður 50 ára á morgun
Pétur Tyrfingsson sálfræðingur, Háaleitisbraut 101,
Reykjavík, verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Pétur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá MT 1974.
Pétur stundaði barnakennsiu í tvo vetur, í Súðavík
og í Fellaskóla í Reykjavík, en var svo við nám í félags-
og stjórnmálafræði við HÍ á árunum 1976-78. Hann
stundaði nám við Háskólann í Lundi í Svíþjóð 1978-81
og nam þar félagsfræði og hugmynda- og lærdómssögu.
Þegar heim kom 1981 stundaði Pétur verkamanna-
vinnu í Reykjavík næstu fimm árin en hóf svo störf
hjá SÁÁ 1986 og starfaði þar til 1999. Hann hóf nám í
sálfræði við HÍ 1994, lauk BA-prófi frá HÍ 1997 og Cand.
psych.-prófi frá sama skóla 2001. Hann rekur nú eigin
sálfræðistofu og starfar jafnframt á geðsviði Landspít-
ala Háskólasjúkrahúss.
Pétur var í forystu Fylkingarinnar á árunum
1975-86, i samtökum herstöðvaandstæðinga á sama
tima og um tíma í samninganefnd hafnarverkamanna
hjá Dagsbrún.
Pétur söng og lék blús meö hljómsveit sinni, Trega-
sveitinni, frá 1989 og framan af síðasta áratug og var
með útvarpsþætti um blús 1991-97, fyrst á Aðalstöð-
inni og síðan á Rás 2.
Fjölsltylda
Pétur kvæntist 27.12.1974 Svövu Guðmundsdóttur, f.
21.8. 1955, d. 21.10. 1987, sagnfræðingi. Hún var dóttir
Guðmundar Magnússonar, verkfræðings í Reykjavík,
sem nú er látinn, og Margrétar Tómasdóttur, fyrrum
starfsmanns Alþýðubandalagsins.
Núverandi kona Péturs er Kolbrún Jónsdóttir, f.
13.8. 1959, bankastarfsmaður. Hún er dóttir Jóns Más
Gestssonar, skrifstofumanns í Reykjavík, sem nú er
látinn, og Ásgerðar Jónasdóttur, skrifstofumanns á
Akureyri.
Synir Péturs og Svövu eru Guömundur, f. 6.12. 1972,
tónlistarmaður í Reykjavík; Gunnlaugur Már, f. 24.7.
1983, menntaskólanemi í Reykjavík.
Bræður Péturs eru Þórður, f. 17.1. 1944, tæknifræð-
ingur hjá Vegagerð ríkisins, kvæntur Mittu Bæhrenz,
starfsmanni Landspitalans Háskólasjúkrahúss, og eiga
þau þrjú börn; Þórarinn, f. 20.5. 1947, forstöðulæknir
SÁÁ, kvæntur Hildi Björnsdóttur, kennara og leik-
skólakennara, og eiga þau fimm börn.
Foreldrar Péturs; Tyrfingur Þórarinsson, f. 27.12.
1916, d. 14.4. 1985, húsasmiður í Reykjavík og síðar eft-
irlitsmaður hjá Landsvirkjun, og Lára Þórðardóttir, f.
4.8. 1922, fyrrum starfsstúlka hjá Hrafnistu, nú búsett
í Reykjavík.
Ætt
Tyrfingur var sonur Þórarins, trésmiðs og múrara í
Borgarnesi, Ólafssonar, b. á Einifelli í Stafholtstung-
um, Ólafssonar. Móðir Ólafs var Guðríður Magnús-
dóttir, b. í Ausu í Andakíl, Ólafssonar og Ingibjargar
Jónsdóttur, b. í Efraskarði, Magnússonar. Móðir Jóns
var Þórunn Jónsdóttir, systir Steins biskups. Móðir
Þórarins var Ólöf Sigurðardóttir, b. á Mófellsstöðum í
Skorradal, Sigurðssonar, pr. i Vatnsfirði, Þorbjarnar-
sonar, gullsmiðs á Lundum, Ólafssonar, föður Ólafs,
afa Ragnhildar, ömmu Bjarna Benediktssonar forsæt-
isráðherra og Tómasar Helgasonar yfirlæknis. Ólafur
var einnig langafi Jóns, föður Þorsteins frá Hamri.
Móðir Tyrfings var Jónína Kristín Jónasdóttir, sjó-
manns í Skáholti í, Reykjavík Ólafssonar, b. í Efraseli
á Stokkseyri, Jónssonar. Móðir Jónínu var Kristín,
systir Magnúsa.r „rokkadrejara", langafa Megasar.
Kristín var dóttir Ásbjarnar, húsmanns á Grímars-
stöðum, Magnússonar, og Kristínar Magnúsdóttur.
Lára er dóttir Þórðar, b. á Högnastöðum í Þverár-
hlíð, bróður Helgu, ömmu Pálma Gíslasonar, fyrrv.
formanns Ungmennafélags íslands. Þórður var sonur
Jóns, skálds á Háreksstöðum, bróður Jóhanns, alþm. í
Sveinatungu. Jón var sonur Eyjólfs, skálds i Hvammi,
Jóhannessonar og Helgu Guðmundsdóttur, b. á Sáms-
Elín Jónsdóttir
húsfreyja í Breiðási verður 70 ára á
Elín Jónsdóttir, húsmóðir og fyrrv. aðstoðarmat-
ráðskona, Breiðási í Hrunamannahreppi, verður sjötug
á mánudaginn.
Starfsferill
Elín fæddist í Reykjavík en ólst upp á Hrepphólum í
Hrunamannahreppi. Hún var í barnaskóla á Flúðum
og stundaði nám við Húsmæðraskólann á Varmalandi
í Borgarflrði.
Á unglingsárunum aðstoðaði Elín móður sína við
heimilisstörfin. Er hún gifti sig varð hún húsfreyja og
bóndakona í Breiðási í Hrunamannahreppi til 1976.
Hún starfaði síðan við mötuneytið við Búrfellsvirkjun
frá 1976-2000.
Fjölskylda
Elín giftist 1956 Baldri Loftssyni, f. 5.10. 1932, bónda
í Breiðási. Hann er sonur Lofts Loftssonar, f. 8.10.1896,
d. 14.3. 1978, bónda á Sandlæk í Gnúpverjahreppi, og
k.h., Elínar Guðjónsdóttur, f. 14.9. 1991, d. 2.2. 1991,
húsfreyju. Elín og Baldur skildu 1976.
Börn Elínar og Baldurs eru Jón, f. 23.10. 1955, vinnu-
vélastjóri í Þorlákshöfn, kvæntur Ingibjörgu Sigríði
Árnadóttur húsmóður og eiga þau tvö börn; María, f.
4.4.1957, starfsmaður hjá Lyfjadreifingu, búsett í Kópa-
vogi, maður hennar er Sævar Hjálmarsson, starfsmað-
ur hjá Lyfjadreifingu, og eiga þau tvö börn; Elín Elísa-
bet, f. 19.12. 1958, baövörður og húsvörður í Reykjavík,
maður hennar er Jón Marinó Guðbrandsson, skipstjóri
og starfsmaður hjá Tækjatækni, og eiga þau þrjú börn;
Bryndís, f. 22.8. 1960, dagmóðir í Reykjavík en maður
hennar er Eyþór Brynjólfsson, gæslumaður á Kleppi og
eiga þau þrjú börn; Halla, f. 12.11. 1966, framreiðslu-
maöur á Selfossi, en maður hennar er Ómar Þór Bald-
mánudaginn
ursson rafmagns-
iðnfræðingur og
eiga þau þrjú börn.
Seinni maður El-
ínar var Guðmund-
ur Sigurðsson, f.
11.2. 1920, d. 26.11.
1984, iðnaðarmaður
og starfsmaður
BYKO. Hann var
sonur Sigurðar
Böðvarssonar,
verkamanns í Reykjavík, og Steinunnar Magnúsdóttur,
húsmóður í Kópavogi.
Núverandi sambýlismaður Elínar er Ámundi Hjör-
leifs Elísson, f. 2.8. 1946, fyrrv. vagnstjóri hjá SVR.
Hann er sonur Elísar Kristins Valgeirs Meyvantsson-
ar, bryta í Reykjavik, og Jónu Guðríðar Hjörleifsdótt-
ur húsmóður.
Systkini Elínar eru Sigurður, f. 28.10.1934, minka- og
skógræktarbóndi í Ásgeröi í Hrunamannahreppi; Stef-
án, f. 13.4. 1937, bóndi í Hrepphólum; Guðjón, f. 28.10.
1938, bifreiðarstjóri á Selfossi; Guðmundur Kristján, f.
27.10. 1942, húsasmiður á Selfossi; Gunnar, f. 12.1. 1944,
bifreiðarstjóri á Selfossi; Sólveig, f. 3.3. 1946, húsfreyja
í Svíþjóð; Anna, f. 19.2. 1954, húsmóðir i Danmörku.
Hálfbróðir Elínar, samfeðra, var Sigurjón, f. 24.6.
1929, d. 19.6. 1930.
Foreldrar Elinar voru Jón Sigurðsson, f. 5.4. 1899, d.
31.8. 1990, bóndi í Hrepphólum, og k.h., Elísabet Krist-
jánsdóttir, f. 12.5.1909, nú búsett á hjúkrunarheimilinu
Ási í Hveragerði.
Elín verður að heiman á afmælisdaginn.
stöðum, bróður Sigurðar, afa Jóns Helgasonar prófess-
ors. Guðmundur var sonur Guðmundar, ættfóður Háa-
fellsættar, Hjálmarssonar. Móðir Þórðar var Ragnhild-
ur Þórðardóttir, b. á Brekku i Norðurárdal, Jónssonar
og Halldóru Tímotheusdóttur. Móðir Láru var Gunn-
vör Magnúsdóttir, sjómanns á Akranesi, Helgasonar,
og Guðrúnar Jónsdóttur eldra, b. í Síðumúla, Sveins-
sonar, bróður Jóns yngra, afa Guðmundar Böðvarsson-
ar, skálds á Kirkjubóli. Móðir Guðrúnar var Þórdis
Jónsdóttir, b. á Tóftarhring í Hvitársíðu, Jónssonar og
Guðrúnar, systur Jóns, langafa Halldórs H. Jónssonar
stjórnarformanns, fóður Garðars arkitekts.
Afmæli
Laugardagurinn 17. maí Sunnudagurinn 18. maí
90 ÁRA__________________
Ingibjörg Þórarinsdóttir,
Austurvegi 5, Grindavík.
85 ÁRA________________
Helga Stefánsdóttir,
Víðilundi 24, Akureyri.
85ÁRA
Benedikt Franklínsson,
Austurvegi 55, Selfossi.
80 ÁRA___________________
Halldór Þ. Ólafsson,
Hverfisgötu 121, Reykjavik.
Pétur Hallgrímsson,
Hraunbæ 107, Reykjavík.
75 ÁRA
Carol Hendrickson Pazandak,
Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.
Sigrún Sæmundsdóttir,
Víkurbraut 28, Höfn.
70ÁRA
Eiríkur Sigurður Ormsson,
Sogavegi 30, ReykjaVík.
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Gullsmára 7, Kópavogi.
Kristinn Oddsson,
Vesturbergi 4, Reykjavik.
Sonja Hulda Einarsdóttir,
Laufvangi 12, Hafnarfirði.
Örn Eriksen,
Reynivöllum 3, Höfn.
60 ÁRA __________________
Kristján Óskarsson,
Baldursgötu 12, Reykjavik.
Samúel Samúelsson,
Garðarsbraut 67, Húsavík.
50ÁRA____________________
Sigríður
Samsonardóttir,
Eyjabakka 6,
Reykjavik.
Agnar Ebenesersson,
Holtastíg 15, Bolungarvík.
Eiríkur Tómasson,
Vesturbraut 8, Grindavík.
Guðjón Halldórsson,
Nýbýlavegi 38, Hvolsvelli.
Guðni Hjörleifsson,
Túngötu 16, Reykjavík.
Halldór Ólafur Sigurðsson,
Hólmgaröi 51, Reykjavík.
Ingólfur Vestmann Einarsson,
Skeiðarvogi 85, Reykjavík.
Sveinn Pálsson,
Laufskógum 33, Hveragerði.
40ÁRA
Anna Hulda Long,
Gerðisbraut 2, Vestmeyjum.
Ásgeir Ásgeirsson,
Einigrund 21, Akranesi.
Davíð Gíslason,
Nátthaga 5, Sauöárkróki.
Haukur Þór Þorgrímsson,
Þingási 36, Reykjavík.
Helgi Jóhannsson,
Beijarima 35, Reykjavík.
Hlín Guðjónsdóttir,
Reykási 41, Reykjavík.
Inga Hulda Sigurgeirsdóttir,
Fannafold 110, Reykjavík.
Nenad Krstic,
Hringbraut 105, Reykjavík.
Pashar Almoualiem,
Kleppsvegi 24, Reykjavík.
Halldór Rafn
Ottósson
Reykjabraut 20,
Þorlákshöfn varð
fimmtugur í gær,
16. apríl. Af því tilefni tekur
hann á móti gestum í dag, 17.
maí, frá kl 19-23 í Versölum,
Ráðhúsi Þoriákshafnar.
50 ÁRA
75 ÁRA
Guðmundur Kristjánsson,
Mánasundi 2, Grindavík.
Helga Jóhannesdóttir,
Laugarnesvegi 94, Reykjavík.
Jakob Brekkmann Einarsson,
Brekku, Hofsósi.
Sigrún Kristbjörnsdóttir,
Birnustööum 2, Selfossi.
Sólrún Þorbjörnsdóttir,
Lækjargötu 4, Reykjavík.
70ÁRA
Guðmunda Jóhannsdóttir,
Rauðalæk 45, Reykjavík.
Þorbjörg Þórisdóttir,
Miðgaröi 4, Egilsstöðum.
60 ÁRA____________________
Edda S. Kristinsdóttir,
Blásölum 24, Kópavogi.
Hjálmar Freysteinsson,
Dugguijöru 4, Akureyri.
Hreinn Eyjólfsson,
Rjúpufelli 25, Reykjavík.
Ingunn Guðbjartsdóttir,
Greniteigi 19, Keflavík.
Jón Arnar Barðdal,
Klapparstíg 3, Reykjavík.
Pálmi Stefánsson,
Einbúablá 40, Egilsstööum.
Sigurður Halldórsson,
Jöklaseli 17, Reykjavik.
Stefán Jónsson,
Seftjörn 4, Selfossi.
Sæmundur Sigurðsson,
Heiðarbæ 1, Reykjavík.
50 ÁRA____________________
Áslaug Anna Jónsdóttir,
Árnesi, Húsavík.
Ásta Árný Einarsdóttir,
Hátúni 10, Reykjavík.
Edda Axelsdóttir,
Bankastræti 14, Reykjavík.
Einar Hjartarson,
Hringteigi 9, Akureyri.
Katrín Sighvatsdóttir,
Langholtsvegi 108e, Reykjavík.
Ómar Wieth,
Meiseli 2, Reykjavík.
Þórarinn Óðinsson,
Túngötu 11, Fáskrúðsfirði.
Þórdis Bjarnadóttir,
Byggðavegi 116, Akureyri.
40ÁRA______________________
Ásrún Árnadóttir,
Sólbrekku 27, Húsavík.
Bopit Kamjorn,
Hraunbraut 14, Kópavogi.
Celestina Escleto,
Miklubraut 72, Reykjavík.
Hallgrímur E. Vébjömsson,
Litluvöllum 10, Grindavík.
Jón Ágúst Sigurðsson,
Bólstaðarhlíö 56, Reykjavík.
Kristín Hauksdóttir,
Hjallabrekku 27, Kópavogi.
Kristín Ingvarsdóttir,
Fagrahjalla 44, Kópavogi.
María Úlfarsdóttir,
Haga, Patreksfirði.
Ólöf Hjartardóttir,
Vesturbergi 57, Reykjavik.
Vilhjálmur Hjörleifsson,
Sigluvogi 12, Reykjavík.
Þóra Guðný Sigurðardóttir,
Rituhólum 3, Reykjavík.
Þórir Bjöm Hrafnkelsson,
Stafnesvegi 1, Sandgerði.