Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 12.JÚU 2003 OTGÁFUFÉLAG: Otgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRl: örn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRrrSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setnlng og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. EFNI BLAÐSINS Umdeildar uppsagnir - innlendar fréttir bls. 4 Þéttara símnet -innlendarfréttir bls. 8 CIA gaf grænt Ijós - erlendar fréttir bls. 12 Fáránleg reglutúlkun -fréttir bls. 10 Konur Ijúga um kynlífiö - Betri helmingurinn bls. 22 Ekur Þróttur forskotið? - DV-Sport bls. 41 DV Bingó Það er komið , bingóá O-röðina ) og því spilum við nú allt spjaldið. ___Athugið að sam- hliða einstökum röð- um hefur allt spjaldið verið spil- að þannig að tölurnar sem dregnar hafa verið í bingóleik DV til þessa gilda á allt spjaldið. Fjórða talan sem kemur upp á allt spjaldið er 25. Þeir sem fá bingó láti vita (síma 550 5000 innan þriggja daga. Ef fleiri en einn fá bingó er dregið úr nöfnum þeirra. Verðlaun fyrir bingó á allt spjaldið eru afar glæsileg, vikuferð til Portúgals meðTerra Nova Sól. Ingibjörg í boði Blairs Tóku mikið magn tóbaks STJÓRNMÁL Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir fór í gær til Lundúna þar sem hún tekur þátt í ráðstefnu stjórnmála- manna og stjórnmálaleiðtoga jafnaðarmannaflokka en það erTony Blairforsætisráðherra Bretlands sem býður til ráð- stefnunnar. Ráðstefnan ber heitið „Progressive Govern- ance". Að sögn KarlsTh. Birg- issonar, framkvæmdarstjóra Samfylkingarinnar, hafa for- ystumenn jafnaðarmanna- flokka beggja vegna At- lantsála komið reglulega saman til að ræða brýnustu verkefni samtímans. Sam- hliða ráðstefnunni fer fram fundur leiðtoga jafnaðar- manna sem stýra ríkisstjórn- um ífimmtán löndum. SMYGL Tollgæslan í Hafnar- firði framkvæmdi í gærkvöld leit í rússneskum togara við Hafnarfjarðarhöfn og gerði í kjölfarið upptækt gríðarlegt magn af sígarettum sem voru faldar um borð. Alls var um 94 þúsund sígarettur að ræða, eða 470 lengjur, og voru þær að sögn tollgæsl- unnar í Hafnarfirði mjög vel faldar. Áætlað söluvirði tó- baksins hér á landi er talið vera nálægt fimm milljónum króna en þetta er með því mesta sem gert hefur verið upptækt af sígarettum í einu og sama smyglmálinu hér á landi. Mega þeir sem eiga hlut að máli eiga von á því að fá á sig kærur vegna málsins og háar fjársektir. Hundur af stóra-dana-kyni í Hafnarfirði réðst á fjögurra ára stúlku: Læsti skoltunum í höfuðið HEUAR FLYKKI: Hundur af stóra-dana-kyni í Hafnarfirði réðst á fjögurra ára stúlku. Hundarnir á myndinni tengjast ekki málinu. Stór hundur af kyninu stóri- dani (Great Dane) réðst á fjög- urra ára stúlku sem var gest- komandi í Hafnarfirði í fyrra- kvöld og beit hana í andlitið. Að sögn föður stúlkunnar urðu áverkar mestir á vör og í munnholi er hundurinn læsti skoltum sínum í höfuð stúlkunnar. Stúlkan var strax flutt á sjúkrahús í Reykjavík til aðgerðar og reyndust áverkar minni en virtist í fyrstu. Stúlkan er þó mjög hvekkt, en fjöl- skyldan hélt heim á leið til Blöndu- óss í gær. Faðirinn, Einar Evensen húsa- smiður, segir að gin hundsins haf! verið þvílíkt að hann hefði hæglega getað náð utan um allt höfuð stúlkunnar. Hundurinn var á stærð við kálf og um 90 sentímetrar upp á herðakamb. Eigandinn mun aðeins hafa verið búinn að eiga hundinn í nokkra Þrátt fyrir nafnið stóri-dani, eða Great Dane, er hann ekki frá Danmörku heldur Þýska- landi og er hann líka þekktur undir nöfnunum Deutsche Dogge og German Hound og talinn vera kominn af Massif og Irish Greyhound. Nafnið kemur upphaflega frá Frakklandi en enginn veit nánari skýringu á því hvers vegna það var valið en ekki eitt af þýsku nöfnun- um. Great Dane var upphaflega notaður sem veiði- og varðhund- ur en er nú aðallega fjölskyldu- og varðhundur. Hann er lfka not- aður sem lögreglu- og hjálpar- hundur. Þrátt fyrir stærð er hann daga þegar atburðurinn átti sér stað. Að sögn lögreglu í Hafnarfirði talinn afar góður heimilishundur og mjög þolinmóður gagnvart bömum. Great Dane á það þó til að vera mjög þrjóskur. „Þeir em mjög góðir varðhundar og geta ráðist á óboðna gesti, og þá þarf ekki að spyrja að leikslokum. Þetta em mjög hugrakkir hundar og hræðast fátt.“ Allt að 90 kíló eða þyngri 8 vikna gamall getur hvolpur- inn verið um 12-13 kfló og á þá eftir að sexfalda þyngd sína Hæð: 65-80 cm upp á herða- kamb. Geta verið stærri. Þyngd: Frá 60 upp í 90 og jafn- vel þyngri. Litir: Flestir litir leyfðir en svartur og gráblár algengastir. Aldur: 7-10 ár. hkr@dv.is var farið með hundinn í kjölfarið á dýralæknastofnunina í Lyngási til aflífunar. Ægilegur skrokkur „Þetta er ægilegt bákn og um 80 kíló. Við vomm þarna með okkar hund og þá kom þessi og við vomm svona að skoða hann. Barnið stóð rétt hjá hundinum en maður var með honum og hélt í ól hans. Allt í einu stökk hundurinn af stað og maðurinn flaug ineð honum eins og fis. Hundurinn beit framan í andlitið á barninu og reif upp munninn og inn í góm. Vörin rifn- aði upp að nefi og hakan er líka slæm. Maðurinn sem hékk í hund- inum náði þó að vama því að ekki fór verr en þetta.“ Hundurinn beit framan í andlitið á barninu og reifupp munninn og inn í góm. Einar segir stúkuna hafa orðið fyrir miklu áfalli. Sjálf eiga þau lít- inn hund, en nú þorir stúlkan ekki að koma nálægt honum. Hann kærði atburðinn til lögreglu en seg- ir að fyrri eigendur hundsins hafi ekki linnt látum og hringt í hann margsinnis og m.a. heimtað kenni- tölu barnsins. Hann sagði hundinn hafa verið áberandi taugaveiklað- an. Nokkuð er fjallað um þetta mál á spjallrás hvuttar.net. Þar er fullyrt að hundar af tegundinni Great Dane séu hin mestu gæðablóð. Á síðunni má þó líka finna nákvæmar upplýsingar um gagnstæða eigin- leika þessarar stóru hundategund- ar sem m.a. hefur verið notuð sem varðhundar af lögreglu og fleiri úti í hinum stóra heimi. hkr@dv.is Stóri-dani HVERJIR ERU ÓDÝRASTIR? UTSALA 40% TIL 90% SLÁTTUR Opnunartími: Virkir dagar kl. 10-18 Laugardagar kl. 11-16 Sunnudagar kl. 12-16 Fákaffenl 9 • Reykjavík Ishraun 11 • Hafnarfirði OBBOBOBB: Athugasemdir hafa verið gerðar við að á færibandinu sem er í baksýn á þessari mynd séu engar öryggishlífar. Eins og sjá má eru börn við vinnu rétt hjá. DV-mynd Hari Kartöfluupptaka landbúnaðarráðherra: Börn án öryggishlífa Frétt DV á fimmtudag um að byrjað væri að taka upp kart- öflur í Þykkvabænum vakti talsverða athygli og ekki bara af góðu. Birtist þar mynd af Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra þar sem hann vann ásamt þremur börnum við kartöfluupptökuvél. í baksýn á myndinni, rétt hjá börn- unum, sést í færiband sem á að vera með hlífum á en er það hins vegar ekki. Herdís Storgaard, framkvæmda- stjóri Árvekni, átaksverkefnis um slysavarnir barna og unglinga, hafði samband við DV og benti á þetta. Hún sagði að sjálf hefði hún ekki tekið eftir þessu en að sam- band hefði verið haft við sig f kjölfar birtingarinnar og athugasemd gerð við þetta. „Mér finnst að ráðherra land- búnaðar verði að vera góð fyrir- mynd og stuðla að öruggum vinnu- brögðum í landbúnaði. Hann ætti því alls ekki að láta taka mynd af sér með börnum við vél sem ekki stenst gildandi kröfur um öryggi heldur hafa augun opin fyrir slíkum hlutum og gera athugasemdir ef misbrestur er á þvf," segir Herdís. „Við verðum öll að sameinast um að reyna að gera allt umhverfi okk- ar sem öruggast, sérstaklega þar sem börn vinna. Því beini ég þeim tilmælum eindregið til þeirra kart- öflubænda sem ekki eru með þessi mál á hreinu að gera bragarbót þar á,“ segir Herdís. kja@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.