Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 12.JÚLÍ2003
til skemmri tíma
Dínamítið enn ófundið
Líklega samið
KJARASAMNINGAR: Um næstu
áramót verða allmargir kjara-
samningar á almennum mark-
aði lausir. Greining íslands-
banka telur líklegt að samið
verði um hækkanir sem raska
ekki jafnvægi í hagkerfinu.
Aukið atvinnuleysi slær á
launakröfur og hátt gengi
krónunnar takmarkar getu
margra fyrirtækja til að mæta
kostnaðarhækkunum. Þá eru
laun og tengd gjöld sögulega
séð há um þessar mundir sem
hlutfall af innlendum þátta-
tekjum. Því má ætla að svig-
rúm sé nú minna en oft áður
til launahækkana. Einnig er
sennilegt að gildistími kjara-
samninga verði nú skemmri en
í samningum síðustu ára
vegna þeirrar óvissu sem aðilar
vinnumarkaðarins standa
frammi fyrir á næstu árum.
Þrátt fyrir að vinnumarkaður
einkennist um þessar mundir
af atvinnuleysi eru líkur á að úr
því dragi á næstunni. Líkleg
niðurstaða í þessum efnum
eru samningar til u.þ.b.
tveggja ára og að samnings-
bundnar árlegar launahækkan-
ir verði um 3,5% á tímabilinu.
ÞJÓFNAÐUR: Nú er rúm vika
síðan brotist var inn í sprengi-
efnageymsluna í Hólmsheið-
inni og stolið þaðan 245 kíló-
um af sprengiefni. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni
liggur enginn undir grun. Að
sögn lögreglunnar er rann-
sóknin í fullum gangi og eru
allir þeir sem kunna að hafa
orðið varir við grunsamlegar
mannaferðir við eða í ná-
grenni sprengiefnageymsl-
unnar beðnir um að gefa sig
fram við lögregluna. Þá eru
allir sem einhverjar upplýsing-
ar geta veitt eða verða varir
við óeðlilega meðhöndlun
sprengiefnis sömuleiðis hvatt-
ir til að hafa þegar í stað sam-
band við lögregluna. Lögregl-
an hefur sent öllum fjölmiðl-
um myndir sem sýna ná-
kvæmlega hversu mikið
sprengiefnið var til þess að
fólk geti betur áttað sig á því,
en um var að ræða dínamít,
bæði venjulegar túpur og
mjóar leiðslur á rúllum, sem
stolið var, en hins vegar var
hvellhettum eða öðrum
kveikibúnaði ekki stolið.
Konu og tveimur körlum í álverinu í Straumsvík sagt upp í eineltismáli:
Smjöttuðu á „helgasta"
útliti samstarfskvenna
Þremur starfsmönnum álvers-
ins í Straumsvík var á dögunum
sagt upp störfum vegna einelt-
ismáls sem þar kom upp. Kven-
kyns starfsmaður hafði dreift
viðkvæmum upplýsingum um
„helgasta" útlit kynsystra sinna
sem hafðar voru í flimtingum.
Konan hafði verið með sam-
starfskonum sínum í búningsklef-
um og sturtum álversins. Barst
orðrómurinn um „leýndardóma"
kvennanna um vinnustaðinn og til
yfirmanna álversins, Þeir brugðust
við með því að vísa konunni sem
dreifði hinum viðkvæmu upplýs-
ingum af vinnustað. Fær hún
greidd laun út sumarið en það var
sá tími sem hún var ráðin til.
Tveir þeirra sem höfðu heyrt
þessar frásagnir og haft þær í flimt-
ingum fengu tiltal og munnlega
áminningu hjá framkvæmdastjóra í
kerskála þar sem þeir störfuðu.
Nokkrum dögum síðar var þeim af-
hent uppsagnarbréf en gert að
vinna eins mánaðar uppsagnar-
frest í öðrum vakthópum.
Eftir því sem DV kemst næst
munu þessir tveir menn vera hinir
einu sem hægt var að staðfesta að
hefðu haft hinar viðkvæmu upplýs-
ingar um konurnar eftir.
„Okkur hefur alveg verið haldið
utan við þetta mál og fengið þau
ÁHÁLUMÍS: Þremur starfsmönnum í
álverinu í Straumsvík var sagt upp eftir að
hafa haft „helgasta „ útlit samstarfskvenna
fflimtingum.
Samsett mynd DV.
svör að okkur varði ekkert um
þetta," sagði Tryggvi Skjaldarson,
starfandi aðaltrúnaðarmaður í ál-
veriiju, í samtali við DV.
Hann telur það miður, enda hafi
í síðustu kjarasamningum verið
lögð á það áhersla að auka allt sam-
ráð milli fyrirtækis og starfsmanna.
Jafnframt telja trúnaðarmenn að
starfsmönnum sem hér eiga hlut að
máli hafi ekki verið gefinn kostur á
að skýra mál sitt fyrir eineltisteymi.
„Við erum alls ekki að bera blak
af kynferðisáreiti en við viljum að
réttur starfsmanna sé virtur.
Vinnubrögðin eiga að tryggja sann-
girni," segir Tryggvi.
Konan hafði verið
með samstarfskonum
sínum í búnings-
klefum og sturtum
álversins.
Sigurður Briem, starfsmanna-
stjóri álversins, sagði í samtali við
DV að hann teldi að eðlilega hefði
verið að uppsögnum þessum stað-
ið. Þær hefðu verið með eðlilegum
fyrirvara og í samræmi við þær til-
Iögur sem eineltisteymið hefði
gert.
Vísaði Sigurður áðurnefndum
sjónarmiðum trúnaðarmannaráðs
á bug og lagði áherslu á að trúnað-
ar yrði að gæta í vandmeðförnum
málum sem þessum. sigbogi&dv.is
Veðríð á morgun
Norðaustan 5-10 m/s og dálitil rigning norðanlands en suðaustan 3-5 og
—j-i-í-i-—»— ■ j-j.-Ti ... ■$.Hiti 8 til 15 stig,hlýjast f
innsveitum.
Sólarlag í
kvöld
Rvík 23.34
Ak. 23.53
Sólarupprás á
morgun
Rvík 03.33
Ak.03.12
Síðdegisflóð
Rvík 17.26
Ak. 21.59
Ardegisflóð
Rvfk 04.53
Ak. 09.06
Veðriðídag
*
Veðriðkl, 12ígær
Akureyri skýjað 9
Reykjavík hálfskýjað 11
Bolungarvík alskýjað 8
Egilsstaðir skýjað 9
Stórhöfði léttskýjað 14
Kaupmannah. skýjað 21
Ósló súld 16
Stokkhólmur 23
Þórshöfn skúr 13
London skýjað 22
Barcelona heiðskirt 30
NewYork súld 18
París léttskýjað 31
Winnipeg alskýjað 16
23 ára maður dæmdur fyrir kynferðisbrot:
Mátti vita að stúlkan
var aðeins 13 ára gömul
Héraðsdómur Norðurlands
eystra hefur dæmt 23 ára pilt í
tíu mánaða fangelsi, þar af átta
mánuði skilorðsbundna, fyrir
að hafa kynferðismök við
stúlku árið 2002 þegar hún var
13 ára.
Pilturinn játaði sök sína en sagð-
ist ekki hafa vitað að stúlkan væri
aðeins 13 ára. Hann sagðist hafa
boðið henni og vinkonu hennar
heim til sín og gefið þeim áfengi.
Stúlkan hefði orðið ölvuð og hefði
hann lagt hana inn í herbergi. Hann
sagði að þau hefðu farið að sýna
hvort öðru blíðuhót og að hann
hefði ekki neytt hana til neins.
Hann sagðist ekki muna eftir því að
aldur stúlknanna hefði komið til
tals en kannaðist þó við að eitthvað
hefði verið talað um að þær væru að
fara að fermast. Pilturinn sagði
einnig að þetta hefði verið óvart og
harmaði hann það mjög. Hann
kvaðst síðan hafa tilkynnt stúlkun-
um að hann vildi ekki slíka háttsemi
og að þær hefðu þá fljótlega farið úr
íbúðinni.
Stúlkan lýsti málsatvikum í öllum
aðalatriðum á sama veg og piltur-
inn en staðhæfði að hann hefði
spurt hana um aldur og hún sagt
honum að hún væri 13 ára.
Dóminum þótti nægilega sannað
að pilturinn hefði vitað eða mátt
vita að stúlkan væri yngri en 14 ára
en samkvæmt hegningarlögum er
bannað að hafa samræði eða önnur
kynferðismök við böm, yngri en 14
ára, þótt þau hafi sjálf veitt sam-
þykki sitt. Tekið var fram f dómin-
um að brot piltsins væri alvarlegt.
Hins vegar var litið til þess að hann
hefði aldrei áður verið dæmdur fyrir
refsiverða hegðun. Var honum gert
að greiða foreldmm stúlkunnar 350
þúsund krónur í miskabætur. -EKÁ