Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Blaðsíða 36
40 DVHELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 12.JÚLÍ2003
>
Karl Malone og Gary Payton ganga til liðs við Kobe Bryant og Shaquille O'Neal
Los Angeies Lakers mætir gífurlega
sterkt tii leiks á komandi leiktíð í NBA-
deildinni - í það minnsta á pappírun-
um. Tveir af betri leikmönnum deild-
arinnar undanfarin ár, bakvörðurinn
Gary Payton og framherjinn Karl
Malone, eru gengnir til liðs við Lakers
og hitta þar fyrir stórstjörnurnar Kobe
Bryant og Shaquille O'Neal. Hljómar
vel en geta þessir fjórir leikmenn
virkilega spilað saman sem lið og unn-
ið titil? Er ekki einni stórstjörnunni of-
aukið í þessum félagsskap? Hvernig
eiga þeir að fara að því að deila einum
bolta? Marc Stein, sérfræðingur
bandaríska netmiðilsins espn.com,
spyr hins vegar á móti: Af hverju að
spyrja?
Stein segir að það skipti engu máli hvort
þessir fjórir einstaklingar geta unnið saman
r eins og lið, hvort þeir vinna meistaratitil eða
hvort þeim nægir einn bolti á vellinum í hvert
sinn sem þeir eru íjórir saman.
Ekki stætt að hafna þeim
„Lið hafa áður verið með margar stór-
stjömur innanborðs en ekki unnið neitt
þannig að með það að leiðarljósi þá er titill-
inn ekki í höfn hjá Los Angeles Lakers. For-
ráðamönnum Lakers-liðsins var hins vegar
ekki stætt á því að hafna því þegar þeim buð-
ust þessir tveir snjöllu leikmenn á þeim laun-
um sem um var samið. Þeir lækkuðu sig báð-
" ir gífurlega í launum til að geta spilað með
Lakers og ef til vill fengið það eina sem þá
vantar til að ljúka farsælum ferli í NBA-deild-
inni - nefnilega meistarahring á Fingur," segir
„Frábærir leikmenn hafa yfir-
leitt gaman afþví að spila
með öðrum frábærum leik-
mönnum. Allir þessir fjórir
leikmenn eru með mjög góðar
sendingar."
Stein í grein sinni og bætir við að hann hafi
fengið það staðfest hjá einum af yfirmönnum
eins liðs í vesturdeildinni að ekkert lið hefði
a hafnað þeim félögum á þessu verði.
Stein fer sfðan ofan í saumana á hvort nýju
leikmennirnir munu passa inn í liðið og
kemst að þeirri niðurstöðu að spilalega séð
muni þessir reyndu menn ekki eiga í erfiðleik-
um með að sætta sig við önnur hlutverk en
þeir höfðu hjá sínum gömlu félögum þar sem
þeir voru aðalmennirnir.
Stein segir að þessir fjórmenningar muni
ekki eiga í erfiðleikum með laga sig að því að
þeir hafi aðeins einn bolta.
„Frábærir leikmenn hafa yfirleitt gaman af
því að spila með öðrum frábærum leikmönn-
um. Allir þessir íjórir leikmenn eru með mjög
góðar sendingar og þeir munu hafa jafn gam-
an að því að spila sín á milli eins og hlutlaus-
ir áhorfendur munu hafa gaman af því að
horfa á þá,“ segir Stein og bendir á að einn
- þjálfari í deildinni hafi sagt við hann að þess-
ir snjöllu leikmenn muni geta spilað í hvaða
sóknarleik sem er.
Shaq fær hvíld
Einhverjir hafa áhyggjur af því að Karl
Malone muni eiga í vandræðum með að
sætta sig við það að hlutverk hans í sóknar-
leiknum muni óhjákvæmilega minnka hjá
Lakers miðað við hlutverk hans hjá Utah Jazz.
Hann stefnir ótrauður að því að bæta stiga-
met Kareems Abdul Jaabar og það er hætt við
því að dvöl hans hjá Lakers muni hægja eitt-
hvað á honum í átt að því. Stein bendir hins
vegar á að Malone þurfi ekki að skora meira
* en tólf stig að meðaltali næstu tvö tímabil til
að komast yfir Jaabar og verða stigahæsti leik-
maður NBA-deildarinnar frá upphafi og að
það eigi ekki að vera mikið mál fyrir hann. Að
auki bendir Stein á að með tilkomu Malone
muni Shaquille O’Neal geta fengið þá hvíld á
tímabilinu sem hann hefur ekki getað fengið
hingað til án þess að leikur liðsins verði al-
„ gjörlega á herðum Kobe Bryant eins og verið
STJÖRNUM PRYTT UÐ LA LAKERS
TVEIR AF FJORUM: Kobe Bryant og Shaquille O'Neal geta ekki kvartað yfir frammistöðu forráðamanna
liðsins á leikmannamarkaðnum í sumar. Reuters
hefur.
Jackson ræður við stjörnurnar
Los Angeles Lakers er líka með snjallan
þjálfara að nafni Phil Jackson og þeir sem til
hans þekkja vita að það eru fáir þjálfarar betri
Þetta er mikil áskorun fyrir
Jackson og gerir það senni-
lega að verkum að hann mæt-
ir til leiks í haust með enn
meiri metnað en áður, hungr-
aður í að vinna sinn tíunda
meistaratitil.
í að ráða við margar stórstjörnur í einu. Hann
hafði Michael Jordan, Scottie Pippen og
Dennis Rodman í Chicago Bulls á sínum tíma
og átti aldrei í vandræðum með að ráða við
þá. Honum hefur gengið betur að vera með
eldri og reyndari menn, þótt þeir hafi verið
þrjóskar stjörnur, heldur en að koma ungum
leikmönnum inn í liðið. Þetta er mikil áskor-
un íyrir Jackson og gerir það sennilega að
verkum að hann mætir til leiks í haust með
enn meiri metnað en áður, hungraður í að
vinna sinn tíunda meistaratitil.
Að þessu sögðu er ljóst að Los Angeles
Lakers verður sterkt á næsta tímabili og
spurning hvað önnur lið gera núna. San Ant-
onio Spurs, nýkrýndir meistarar, þurfa að
bretta upp ermarnar og þessi nýi liðsstyrkur
Lakers gæti orðið til þess að forráðamenn
Spurs muni róa öllum árum að því að fá Jason
Kidd, leikstjórnanda New Jersey Nets, og
Alonzo Mourning, miðherja Miami Heat, í
sínar raðir. Takist það er San Antonio orðið
samkeppnishæft við Lakers, bæði á vellinum
og á pappírunum. oskar@dv.is
Verður liðið, sem Los Angeles Lakers stillir upp
næsta vetur, það stjörnum prýddasta í sögu
deildarinnar?
Los Angeles Lakers 2003-2004
Karl Malone
NBA-titlar 0
Besti leikmaðurdeildarinnar 2
f l.liði deildarinnar 11
(stjörnuliði NBA-deildarinnar 14
Besti leikmaður Stjörnuleiksins 2
Meðal stigaskor á ferli 25,4
Meðal fráköst á ferli 10,2
Gary Payton
NBA-titlar 0
(l.liði deildarinnar 2
(stjörnuliði NBA-deildarinnar 7
Meðal stigaskor á ferli 18,7
Meðal fráköst á ferli 4,3
Meðal-stoðsendingar á ferli 7,6
Kobe Bryant
NBA-titlar 3
(l.liði deildarinnar 2
(stjörnuliði NBA-deildarinnar 4
Besti leikmaður Stjörnuleiksins 1
Meðal stigaskor á ferli 21,5
Meðal fráköst á ferli 5
Meðal-stoðsendingar á ferli 4,2
Shaquille O'Neal
NBA-titlar 3
Besti leikmaðurdeildarinnar 1
Besti leikmaður úrslitakeppninnar 3
(l.liði deildarinnar 5
í stjörnuliði NBA-deildarinnar 10
Besti leikmaður Stjörnuleiksins 1
Meðal-stigaskor á ferli 27,6
Meðal-fráköst á ferli 12,1