Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Blaðsíða 14
74 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ2003
Síamstvíburarnir létust
SKURÐAÐGERÐ: Irönsku
síamstvíburasysturnar Ladan
og Laleh Bijani létust á skurð-
arborðinu á sjúkrahúsi í Singa-
púr í vikunni þegar skurðlækn-
ar reyndu að aðskilja þær. Syst-
urnar, sem voru 29 ára, voru
samvaxnará höfði.
Umdeild aðgerðin reyndist
mun erfiðari en læknar reikn-
uðu með þar sem heilar systr-
anna höfðu runnið saman,
nokkuð sem ekki var talið að
hefði gerst.
Læknunum tókst að skilja heil-
ana endaniega að eftir rúm-
lega tveggja sólarhringa vinnu
en þá misstu systurnar svo
mikið blóð að lífi þeirra varð
ekki bjargað. (ranska þjóðin
varð harmi slegin þegar fréttist
af andláti systranna.
Varaðir við ósannindum
ÍRAK: Meint gjöreyðingar-
vopnaeign (raka og réttlæting
stríðsins gegn Saddam Hussein
voru mikið í fréttum í vikunni.
Þannig greindi bandaríska
sjónvarpsstöðin CBS frá því að
húsbændur í Hvíta húsinu
hefðu kosið að hunsa óskir
leyniþjónustunnar CIA um að
Bush forseti hefði ósannar
staðhæfingar um tilraunir (raka
til úrankaupa í Afríku ekki með
í stefnuræðu sinni í ársbyrjun.
Þá viðurkenndi Donald Rums-
feld landvarnaráðherra að ekki
hefðu legið fyrir neinar nýjar
upplýsingar um gjöreyðingar-
vopnaeign íraka þegar ákveðið
var að fara í stríð.
Tony Blair, forsætisráðherra
Breta, vísaði á bug að hann
hefði villt um fyrir þjóðinni.
Hótar afsögn
PALESTÍNA: Mahmoud Abbas,
forsætisráðherra palestínsku
heimastjórnarinnar, hótaði í
vikunni að segja af sér emb-
ætti vegna gagnrýni á stöðuna
í friðarumleitununum við ísra-
el. Yasser Arafat forseti bættist í
hóp gagnrýnendanna undir
vikulok og sagði að Abbas
hefði svikið hagsmuni palest-
ínsku þjóðarinnar.
Mætti með Ku Klux
Klan-hettu í vinnuna
FRÉnAUÓS
Erlingur Kristensson
erlingur@dv.is
Lögreglan í Meridian í Miss-
issippi í Bandaríkjunum rann-
sakar nú hvað kunni að hafa
orðið til þess að einn starfs-
manna Lockheed Martin flug-
vélaverksmiðjunnar í borginni
tók sig til og skaut fimm sam-
starfsmenn sína til bana og
særði níu aðra í glórulausri
skotárás sl. þriðjudagsmorgun.
Morðinginn, hinn 48 ára gamli
Doug Williams sem var hvítur á
hörund og þekktur fyrir hatur sitt á
þeldökkum, stormaði þá inn í fund-
arsal verksmiðjunnar, vopnaður
skammbyssu og sjálfvirkum riffli,
og hóf skothríð á samstarfsmenn
sína þar sem þeir voru að ljúka
venjubundnum starfsmannafundi.
Sjálfur hafði Williams setið fund-
inn ásamt tólf vinnufélögum sínum
og hlustað á yfirmenn sína hvetja
starfsmenn til þess að sýna heiðar-
leika og ábyrgð í starfi og lýsa mikil-
vægi þess að halda uppi góðum
samstarfsanda á vinnustað.
Þið getið setið undir þessu
Þegar langt var liðið á fundinn
tóku samstarfsmenn Williams eftir
því að hann var orðinn órólegur í
sæti sínu og að lokum hafði hann
auðsjáaniega fengið nóg af fundar-
setunni því að hann stóð upp og
gekk á dyr. Á leiðinni út heyrðu
vinnufélagarnir hann segja: „Þið
getið setið undir þessu en ekki ég.“
„Fátt bendir tilþess að
kynþáttafordómar hafi
ráðið ferðinni en átta
afþeim fjórtán, sem
hann skaut á, voru
blökkumenn."
Nokkrum mínútum síðar birtist
Williams í dyragættini grár fyrir
járnum, klæddur svörtum skyrtubol
og hermannabuxum, vopnaður 12
mm skammbyssu og 223 kalíbera
sjálfvirkum riffli með úttroðið skot-
belti á annari öxlinni.
Hann hóf þegar skothríð á fólkið,
sem reyndi að forða sér í skjól eða
hlaupa út úr fundarsalnum og linnti
hann ekki látum fyrr en tveir lágu í
valnum.
Því næst hljóp hann yfir í verk-
smiðjubygginguna þar sem hann
hélt skothríðinni áfram með þeim
afleiðingum að þrír til viðbótar létu
lífið áður en yfir lauk, en strax eftir
skotárásina tók Williams eigið lff
með því að skjóta sig í hjartastað.
Valdir af handahófi?
Það er mönnum enn hulin ráð-
FJÖLDAMORÐINGINN WILUAMS: Skaut fimm vinnufélaga til bana í reiöikasti.
gáta hvað raunverulega varð til þess
að Williams greip til þessa hörmu-
lega grimmdarverks og hefur lög-
reglan í Meridian unnið hörðum
höndum að því að upplýsa málið,
sem er það síðasta í röð íjölda
vinnustaðamorða í Bandarfkjunum
á síðustu mánuðum og árum og það
mannskæðasta síðan sjö starfs-
menn tölvufyrirtækis á Boston-
svæðinu í Massachusetts voru
skotnir til bana af sturluðum sam-
starfsmanni í desember 2000.
Flestir þeirra 138 starfsmanna
sem vinna í Lockheed-verksmiðj-
unni hafa verið yfirheyrðir en að
sögn Billy Sollie, lögreglustjóra í
Meridian, sem er um 40 þúsund
manna borg með mjög lága glæpa-
tíðni, virðist sem Williams hafi valið
fórnarlömbin af handahófi.
„Fátt bendir til þess að kynþátta-
fordómar hafi ráðið ferðinni en átta
af þeim íjórtán, sem hann skaut á,
voru blökkumenn og þar af fjórir af
þeim látnu,“ sagði Sollie f viðtali við
CNN-fréttastofuna skömmu eftir at-
burðinn.
Williams var þó þekktur fyrir allt
annað en ljúfmennsku og að sögn
eins vinnufélaganna mikill kyn-
þáttahatari sem sífellt átti í útistöð-
um og deilum við yfirmenn og
vinnufélaga, bæði svarta og hvíta.
Gins og Jekyll og Hyde
Hubert Threat, sem unnið hefur
hjá Lockheed Martin-verksmiðj-
unni síðan á níunda áratugnum,
sagði að Williams, sem hóf störf í
verksmiðjunni árið 1984, hafi verið
reiður út í allt og alla, allan heiminn.
„Hann virtist í fyrstu vera hjarta-
hlýr maður en svo allt í einu um-
turnaðist hann og varð eins og J ekyll
og Hyde,“ sagði Threat og bætti við
að Williams hefði átt í endalausum
illdeilum við vinnufélagana. „Þetta
snerist ekki bara um kynþáttahatur
hjá honum. Ég held að það hafi að-
eins veriðyfirvarp," sagði Threat.
Að sögn Jims Paytons, fyrrum
starfsmanns sem kominn er á eftir-
laun, kom það fáum á óvart að það
skyldi vera Williams en ekki einhver
annar sem átti hlut að máli. „Hann
var sá fyrsti sem kom upp í huga
minn þegar ég heyrði af þessu.
Hann var vægast sagt bráðlyndur,"
sagði Payton.
Sótti tíma hjá félagsráðgjafa
Þrátt fyrir að lögreglan telji að
kynþáttafordómar hafi ekki verið
SYRGJENDUR: Makar og ættlngjar starfsmanna
Lockheed Martin-verksmiðjunnar í Meridian
streymdu á vettvang þegar fréttist af árásinni.
ástæðan fyrir verknaðinum þá er
nokkuð ljóst að hatrið kraumaði
undir niðri í hugarskoti Williams.
Hann lét ekki duga að hóta
þeldökkum vinnufélögum heldur
mætti hann í þrígang til vinnu með
heimatilbúna Ku Klux Klan-hettu á
höfðinu, síðast fyrir þremur vikum,
og þegar yfirmaður hans skipaði
honum að taka hana niður fór hann
heim í fýlu.
Að sögn eins vinnufélaga var
Williams að minnsta kosti einu
sinni gert að sækja tíma hjá félags-
ráðgjafa fyrirtækisins vegna fram-
komu sinnar við þeldökka starfs-
menn sem hann sagði njóta meiri
réttinda í hvítir í samfélaginu.
Á leiðinni út heyrðu
vinnufélagarnir hann
segja:„Þið getið setið
undir þessu en ekki ég."
Nokkrum mínútum
síðar birtist Williams í
dyragættinni, grár
fyrir járnum...
Honum mun einnig hafa verið í
nöp við yfirmenn sína og hélt því
stöðugt fram að gengið hefði verið
fram hjá sér vegna stöðuhækkana.
Það er ljóst að Williams hefur átt
við slæm sálræn vandamál að stríða
og uppsafnaða heift sem fengið
hefur að krauma óáreitt allt of lengi
með þessum skelfilegu afleiðing-
um. Ef önnur fjöldamorð á banda-
rískum vinnustöðum eru skoðuð
ofan í kjölinn kemur líka í ljós að
hatrið og heiftin eru oftar en ekki
ástæðan eins og glögglega má sjá í
upptalningunni hér til hliðar.
VINNUSTAÐAMORÐ í BNA
Fjöldamorðum á bandarískum
vinnustöðum fer sífellt
fjölgandi og virðist hatur og
heift, sem brýst út í
stundarbrjálæði, oftar en ekki
vera ástæðan eins og sést hér á
listanum yfir nokkur þau
mannskæðustu á undan-
förnum árum og mánuðum.
2. JÚLf 2003: Starfsmaður í bfla-
varahlutaverksmiðju í Jefferson í
Missouri skýtur fjóra samstarfsmenn
til bana og særir aðra fimm áður en
hann fremur sjálfsmorð.
25. FEBR. 2003: Emanuel Burl
Patterson, 23 ára atvinnuleysingi frá
Huntsville í Alabama, skýturfjóra at-
vinnulausa til bana og særirfimm í
einni vinnumiðlun borgarinnar.
10. SEPT. 2001: Joseph Ferguson, 20
ára fyrrum starfsmaður ör-
yggisþjónustufyrirtækis í Sacramento
í Kaliforníu, skýtur fjóra fyrrum
samstarfsmenn til bana og þar á
meðal fyrrum kærustu sína, eftir að
hafa verið rekinn frá fyrirtækinu.
Hann lagði á flótta og skaut fimmta
fórnarlambið til bana áður en hann
tók eigið líf.
5. FEBR. 2001: Willie Baker, 66 ára
fyrrum starfsmaður vélaverkstæðis í
nágrenni Chicago, skýtur fjóra fyrrum
samstarfsmenn til bana sex árum eftir
að honum var sagt upp störfum á
verkstæðinu. Hann skaut sjálfan sig til
bana.
20. MARS 2000: Robert Harris, 28 ára
brottrekinn starfsmaður
bílaþvottastöðvar f Dallas, skýtur
fimm fyrrum samstarfsmenn til bana.
Hann var dæmdur til dauða.
26. DES. 2000: Michael McDermott,
42 ára starfsmaður tölvufyrirtækis á
Boston-svæðinu, skýtur sjö
samstarfsmenn sína til bana eftir að
hafa komist að því að til stóð að
draga af laununum hans vegna
skattaskuldar. Hann hlaut
lífstíðardóm án skilorðs.
30. DES. 1999: Siivio Izquierdo-Leyva,
36 ára gamall húsvörður á Radisson-
hótelinu íTampa í Flórida, skýtur
fimm samstarfsmenn til bana. Drap
sjötta manninnn við flóttatilraun og
bíður nú dóms.
2. NÓV. 1999: Bryan Uyesugi, 40 ára
starfsmaður Xerox-umboðsins f
Honolulu á Hawaii, skýtur sjö
samstarfsmenn tii bana f vinnunni.
Hann bar við óhamingju og hlaut
lífstíðardóm.
14. SEPT. 1999: Dung Trihn, 40 ára
Kaliforníubúi, aðframkominn af sorg
vegna dauða móður sinnar, skýtur þrjá
starfsmenn sjúkrahúss í Anaheim til
bana eftir að móðirin hafði látist þar.
5. AGÚST. 1999: Alan E.Miller, 35 ára
flutningabílstjóri frá Pelham f
Alabama, skýtur yfirmann og tvo
samstarfsmenn til bana eftir að hafa
verið sagt upp störfum í fyrirtækinu.
Hann hlaut dauðadóm.
29. JÚLÍ. 1999: Mark Barton, 44 ára
verðbréfabraskari, skýtur nfu
starfsmenn tveggja verðbréfa-
fyrirtækja f Atlanta í Georgfu til bana
áður en hann tekur eigið líf.
Skilaboð hans til lögreglunnar voru
að hann hataði lífið og tilveruna en
tveimur dögum áður hafði hann
drepið konu sína og tvö börn.