Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Blaðsíða 26
26 DVHELGARBLAO LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ2003
Ævintýri og fróðleikur í ferðalaginu:
Á ferð um landið eykur það gjaman á ánægju ferðalanga að
þekkja til staðhátta og helstu kennileita. Fyrir marga fær ferðalag-
ið nýja vídd með þvf. í skemmtiiegri getraun DV geta lesendur nú
spreytt sig í landafræðinni en myndimar hér á síðunni em í raun
ákveðin gáta.
Hverri mynd fylgir spuming og svarið við hverri þeirra er sér-
nafn; bæjarheiti eða ömefni. Fyrsti stafurinn í hverju þeirra er lyk-
ill að lausnarorðinu, sem er þrettán stafir. Tekið skal fram að 9.
stafurinn í getrauninni er séríslenski starfurinn Ð - og engin
spuming fylgir þeim staf.
Verðlaunin í getrauninni em ekki af verri endanum. Eddu-hót-
elin bjóða einnar nætur gistingu á tveggja manna herbergi í sum-
ar á einhverju af þeim fimmtán hótelum sem keðjan starfrækir
víða um landið. Þá gefúr Edda - miðlun og útgáfa bókina Um víð-
emi Snæfells, eftír Guðmund Pái Ólafsson. Er þar að finna glæsi-
legar mynd af hálendinu norðan Vamajökuis sem teknar em af
þeim Friðþjófi Helgasyni, Jóhanni ísberg og Ragnari Axelssyni.
Hér neðst á síðunni er svarseðillinn sem klippa má út og senda
blaðinu ellegar senda lausnina í tölvupósti til blaðsins. Skilafrest-
ur er til fimmtudagsins 17. jtílí en úrslitin verða birt í blaðinu degi
síðar.
Margar eru perlurnar á hálendinu norðan Vatnajökuls og ein af þeim er
Dyngjufjöll. (þeim er sigdæld þessi sem er jm 50 ferkílómetrar og er eitt
stærsta stöðuvatn landsins. Miklar eldstöðvar eru á þessum slóðum og
síðast varð þarna eldgos árið 1961. Hvert er stöðuvatn þetta?
Við suðurströndina eru nokkur kauptún - og eitt þeirra var helsti verslun-
arstaður landsins um aldir. Danskir kaupmenn sátu þá staðinn og sér
minja þeirra og menningar ýmsan stað enn í dag og ber þar hæst Húsið
sem byggt var 1765. Þar er nú Byggðasafn Árnesinga. Hvert er byggarlag-
ið?
Þetta litla kauptún er á norðanverðum Vestjörðum og kúrir undir fjallinu
Spilli sem er um 900 metrar á hæð. Fjörðurinn sem kauptúnið stendurvið
er Súgandafjörður og utanvert við hann er Gölturinn, eitt formfegursta
fjall lands. Smábátaútgerð er hryggstykkið í atvinnulífi þessa byggðarlags.
Hvað heitir það?
Náttúruvættin á þessari mynd þykja einstök í sinni röð en drangarnir þrír
heita heita Landdrangur, Langsamur og Skessudrangar. Þeir setja sterkan
svip á Víkurkauptún í Mýrdal og standa þar i sjónum skammt undan landi.
Drangarnir standa undir háum hlíðum Reynisfjalls, en hvað heita þeir ann-
ars einu nafni?
Austurland er það svæði á landinu þar sem nú er hvað mest umleikis
vegna virkjunar og stóriðjuframkvæmda. Ekki síst verða umsvifin mikil í
byggðarlagi því sem þessi mynd er af. Forðum var það nefnt Búðareyri.
Þarna skammt frá mun álver Alcoa rísa. Hvað er umrætt byggðarlag nefnt
í daglegu tali nú?
Biskupsbrekka heitir staðurinn það-
an sem þessi mynd er en þar varð
Jón biskup Vídalín bráðkvaddur árið
1920. Brekka þessi stendur ör-
skammt frá þjóðveginum sem ligg-
ur frá Þingvöllum og í Lundarreykja-
dal í Borgarfirði en þar á milli er góð
og greiðfarin leið. Hvað heitir sá
vegur?
Kirkjustaður þessi er skammt frá
Reykjavík. Þar býr í dag Sigríður
Anna Þórðardóttir, verðandi um-
hverfisráðherra, og sr. Jón Þor-
steinsson, eiginmaður hennar.
Þekktastur er þó staðurinn fyrir
að fornar sögur herma að þar
hafi Egill Skallagrimsson grafið
silfursjóð sinn. Hver er staður-
inn?
Árið 1919 kvaddi Davíð Stefánsson sérfyrst hljóðs á skáldaþingi með
Ijóðabókinni Svörtum fjöðrum sem þá þegar skóp honum nafn sem þjóð-
skáldi. Bæði í Ijóðum sínum og lífi var Davíð alltaf mjög tengdur æsku-
slóðum sínum og raunar kenndi hann sig við bæinn alla tíð. Bærinn þessi
er við utanverðan Eyjafjörð en hvað heitir hann?
Þingvellir eru helgasti reitur (slendinga og samkomustaður á þjóðhátíð-
um. Þar var Alþingi Islendinga háð allt frá árinu 930 og fram á 19. öldina.
Sitthvað hefur tekið breytingum á þessum stað í tímans rás, svo sem að
áður lá vegurinn á Þingvelli niður um þá gjá þaðan sem þessi mynd er.
Hvað heitir gjáin?
Þessi gamli torfbær stendur norður í Eyjafirði en þar hefur um langa hríð
verið kirkjustaður og prestssetur. í gamla bænum var búið langt frarg á
síðustu öld. Ýmsir þekktir klerkar hafa setið staðinn en sá sem nú gegnir
þar þjónustu í drottins nafni er sr. Pétur Þórarinsson. Hver er þessi kirkju-
staður?
12
(laginu er sungið um að kátir hafi karlar róið fýrr á tíð frá útgerðarstað
þeim sem þessi mynd er af. Skipaskagi er hann gjarnan nefndur, enda er
þar blómleg skipaútgerð og fiskvinnsla, Einnig er byggðin vel þekkt fyrir
fótbolta, sement og Dúmó og Steina, Hver er þessi kaupstaður sem er ör-
skammt frá Reykjavík?
Minnismerki þetta
er kennt við Ásdísi
þá sem forðum bjó
á bænum þar sem
merkið stendur.
Þetta er norður í
Miðfirði og bærinn
er Bjarg. Staðurinn
er kunnur fyrir að
þar ól Ásdís son
sinn sem ein (s-
lendingasagna
fjallar raunar um.
Sonurinn var bald-
inn með afbrigð-
um, draugahrædd-
ur og var að lokum
veginn í Drangey.
Hvervarhann?
Vinningar
HÓTELGIST1NG
Gisting á tveggja manna herbergi með baði í
eina nótt á Hótel Eddu, ásamt morgunverði
fyrir tvo. Hótelin eru fimmtán talsins og í öll-
um landshlutum
UM VÍÐERNISNÆFELLS
Bókin Um víðerni Snæfells eftir Guðmund Pál
Ólafsson. Ljósmyndir af svæðinu norðan
Vatnajökuls, eftir Ijósmyndarana Friðþjóf
Helgason, Jóhann (sberg og Ragnar Axelsson.
fc
t;