Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Side 8
8 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 12.JÚLÍ2003 Otbreiðsía GSM dreifikerfis Og Vodafone GSM farsímakerfíð Farsímakerfin efld og styrkt svo allir megi tala: Símnetið er alltaf að þéttast Símafyrirtækin tvö, Síminn og Og Vodafone, vinna að því í sumar að þétta enn frekar far- símanet sitt fyrir GSM-kerfið. Talsmenn fyrirtækjanna segja að á milli 97 og 98% landsmanna geti í heimaranni verið í GSM-sambandi, þó svo að á ýmsum fjallvegum sé ekki samband. Áfram verður unnið að því að fylla í eyðumar þótt búast megi við að NMT-kerfl símans verði í mörgum tilvikum látið nægja, enda öflugra og langdrægara. Kerfin sameinuð Pétur Pétursson er forstöðumað- ur upplýsinga- og kynningarmála Og Vodafone. „Eftir sammna ís- landssíma og Tals þurfum við líka að sameina í eitt kerfin sem áður tilheyrðu tveimur fyrirtækjum," sagði Pétur. Undanfarið hefur verið unnið í Eyjaflrði og Suður-Þingeyj- arsýslu á vegum Og Vodafone svo þar á að vera komið enn þéttriðn- ara og öflugra kerfi en áður. Fram undan er, að sögn Péturs, að sameina kerfl á Suðumesjurh, höfuðborgarsvæðinu og á Suður- landi. Á vegum Og Vodafone er unnið að því þessa dagana að setja upp um 10 senda á Suðurlandi og fleiri svæði em á dagskrá. Hins veg- ar em engar fyrirætlanir á vegum fyrirtæksins um að koma upp GSM-sambandi í Hvalfjarðargöng- unum. „Það er gott samband við báða gangamunnana. Þetta er ekki lang- ur vegarspotti og á þessum tíma- punkti fmnst okkur ekki forsvaran- legt að leggja í tugmilljóna króna kostnað til þess að koma á farsíma- sambandi á þeirri örstuttu leið. Við emm hins vegar stöðugt að leita hagkvæmari leiða til að efla kerfið á þessum stað og öðmm - viðskipta- vinum til góða," segir Pétur. Síminn fjölgar sendum Víðast hvar þar sem Og Vodafone er ekki með farsímasenda tekur kerfí Sfmans við, þá í krafti reiki- samninga sem em í gildi milli fyrir- tækjanna. Að sögn Evu Magnús- dóttur hjá upplýsinga- og kynn- ingadeild Landssímans hafa starfs- menn Símans unnið að því í sumar að styrkja kerfið, svo sem á stöðum þar sem kerfið er nú þegar, svo sem á ísafirði og í Hnífsdal. „f maí var sett upp ný stöð í Grímsey, en Grímseyingar vom ekki áður í GSM-sambandi. Einnig var sett upp ný stöð í Hrauneyja- fossvirkjun til að bæta sambandið þar. Búið er að setja upp tvær stöðvar á Kárahnjúkasvæðinu og er von á því að það svæði verði styrkt frekar í náinni framtíð," segir Eva. Hún bætir við að nýlega hafi einnig verið settar upp stöðvar við Blönduvirkjun, Laxá í Aðaldal, í Fnjóskadal og víðar. Þá kosti Sím- inn einnig kapps um að setja upp sendistöðvar þar sem útihátíðir em haldnar á hverjum tíma, eins og til dæmis Höfn í Hornafirði og Ólafs- vík, eins og var um sl. helgi. sigbogi@dv.is Keyptu smáaug- lýsingu á smáar.is og unnu stórt Arnór Jónsson og Stefanía Stefánsdóttir, bæði úr Reykja- vík, duttu í lukkupottinn þeg- ar dregið var í annað sinn í sumarhappdrætti smáauglýs- ingadeildar DV. Þau keyptu bæði smáauglýsingu á vefnum www.smaar.is á 500 krónur og voru þar með komin í happ- drættispottinn. Voru nöfn þeirra dregin úr pottinum á þriðjudag. Arnór vann gjafabréf á Café Sól- on, tvo kassa af Princess- súkkulaði og 8 bíómiða. Stefanía vann gjafabréf á Thor- valdsen Bar, tvo kassa af Princess- súkkulaði og 8 bíómiða. Bæði fengu þau tveggja mánaða áskrift að DV. Sérstök sumarverðskrá gildir nú fyrir smáauglýsingar í DV. Kostar 4ra línu textaauglýsing, sem pönt- uð er á www.smaar.is, 500 kr. Sams konar auglýsing, sem keypt er með símtali eða í afgreiðslu smáauglýsinga í DV-húsinu, kost- ar hins vegar 700 kr. Myndaaug- lýsing kostar síðan 950 krónur, hvort sem hún er keypt í á www.smaar.is, með símtali eða í DV-húsinu. Allir sem kaupa smáauglýsingu á www.smaar.is lenda í happ- drættispotti. Dregið verður alla þriðjudaga í júlí og ágúst og munu nöfn vinningshafa birtast í DV á föstudögum. Aðalvinningurinn, sem dreginn verður 2. september, er flugmiði frá Iceland Express. Sá misskilningur varð við vinnslu fréttar af síðustu vinn- ingshöfum að maðurinn og konan á meðfýlgjandi mynd voru sögð hjón. Það eru þau hins vegar ekki. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirð- ingar á mistökunum. Bitið í turn tlMINH SÍMINN: GSM-net Símans er þéttriðið og nær orðið til allra helstu þéttbýlisstaða landsins. Á fjallvegum verður NMT-kerfið þó látið duga. OG VODAFONE: Víðast hvar þar sem Og Vodafone er ekki með farsímasenda tekur kerfi Símans við - þá í krafti reikisamninga. DV-HÚSIÐ: Þeir sem kauþa smáauglýsingu á www.smaar.is lenda í happdrættisþotti. Ef heppnin er með bíða þeirra glæislegir vinningar í DV-húsinu við Skaftahlíð. TMnogilqíAn'p' ÚtteeiM. Snatuit tM >***&*» ÞéHbýtisMdów þjönusta *» c evðkMii Síríus rjómasúkkulaði er ferðafélagi íslendinga númer eitt. Þér standa fimm freistandi tegundir til boða i sigildum lOOg og 200g umbúðum. Hvernig sem þú velur að bita í uppáhalds Sírius rjómasúkkulaðið pitt skaltú njóta pess og hafa pað gott í sumar. NÓl SÍRÍUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.