Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2003, Page 40
44 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ2003 JK Jóladagar í júlí Jólahúsinu Kópavogi laugardag og sunnudag 12. og 13. júlí. Stórútsala, 50% afsl handverksfólk, jólaveitingar og jólasveinninn kemur. jólahappadrætti úr sölustrimlum . Jólahúsið í Kópavogi Smiðjuvegi 23a sími 568 8181, www.jolahusid.com ath ný aðkoma um Stjörnugróf frá Bústaðavegi Opið 10-18 ÍCELANDAIR m www.icelandair.is Pleasure Crér^g™ Fyrir konur yCáttúruíey/ Árem /jf að auÁa unað í Áynfij-j. Pleasure Créme frá Dermaláge er af nýrri kynslóð örvunar- og unaðskrema. Kremið nýtist öllum konum, hvort sem þær eru að leita eftir nýrri kynferðislegri upplifun, auknum líkum á fullnægingu og raðfulínægingu eða til að skerpa á kynhvötinni. í! leasure Créme inniheldur 15 náttúruleg efni og er í hæsta gæðaflokki. hverri krukku eru 10 ml sem duga í 20-30 skipti. Fcest í apótekum og í Fríhöfninni —j www.pleasurecreme.is Saumað Útsaumur er deyjandi listgrein, jafnt hér á landi sem annars staðar. Ríkey Kristjánsdóttir hefur þó trú á handverkinu og hefur varið síðustu þremur árum í það að iæra listina. Nú er hún komin heim, útlærð í kross- saumi, keðjusaum og kontór- sting og hyggst nýta kunnátt- una á ýmsa vegu. „Ég hefði getað verið þarna þrjú ár í viðbót, því það er svo margt sem hægt er að læra varðandi út- sauminn," segir Ríkey Kristjáns- dóttir sem hefur varið síðustu þremur árum í það að læra bróderí við Haandarbejdets Fremme sem- inarium í Kaupmannahöfn. Þar lærði hún m.a. krosssaum, flat- saum, perlusaum, harðangurs- og klaustursaum, húllsaum, kontór- sting og keðjusaum, auk ýmissar textflvinnu. „Skólinn var stofnaður af Ingiríði heitinni, móður Margrétar drottn- ingar, og þetta var mjög virtur skóli. Ég var þó í síðasta árganginum sem útskrifaðist af útsaumsbraut því að skólinn hafði breyst og nú er búið að loka honum. Svona fer nú aftur- haldssöm stjórn með listrænt handverksfólk," segir Ríkey og dæs- ir. Það er greinilegt að hún telur fúlla þörf á því að viðhalda hand- verkinu enda segir hún of fáa kunna að sauma út og útsaumur- inn sé því deyjandi listgrein. „Þvf er ekki saman að jafna, útsaum úr vél og því sem er gert í höndunum. Það sést langar leiðir hvað er ekta og ég hef trú á því að fólk kunni að meta gæðin í því handgerða." Lúxus nærfatnaður Ríkey er búsett á Seyðisfirði ásamt manni og börnum og þar rekur parið glænýtt hótel, ölduna. Hún hefúr ýmsar hugmyndir varð- andi nýtingu námsins hér heima. Ekki er ólfldegt að grunnskólabörn á Seyðisfirði verði látin sauma eitt- hvað út næsta vetur því að Ríkey mun sjá um kennsluna í jafnt handmennt sem myndmennt við grunnskóla bæjarins. „Maður er glaðari í lund efmaður er í ein- hverju lekkeru. Þetta er kannski hégómi að langa til að vera í ein- hverju fallegu en í al- vöru talað þá held ég að það sé gott fyrir egóið." Með fram hótelstarfmu mun Rík- ey svo búa til töskur og klúta prýdda útsaumi og stefnir að því að þeir hlutir verði til sölu í lítilli minjagripaverslun á hótelinu. Nærfatnaður hefur lertgi heillað hana og hún segir tilvalið að nota bróderískunnáttuna til að punta slíkan fatnað. Lokaverkefni hennar í skólanum úti gekk einmitt út á það en þar hannaði hún nærfata- línu frá grunni sem hún svo saum- FALLEG NÆRFÖT: Nærföt Ríkeyjar eru kvenleg og rómantísk. f Danmörku fór hún á sérstakt nærfatanámskeið og lærði allt um fyllingu í brjóstarhöldum, járnspangir og slíkt. DEYJANDI LISTFORM: Ríkey segir að útsaumur sér kjörinn á alls konar fylgihluti eins og töskur og klúta. Hann gerir einnig mikið fyrir nærfatnað en því miður fer þeim fækkandi sem kunna að sauma út. aði út í. Nærföt þessi kallar hún Sans og hefur í hyggju að setja upp heimasíðu þar sem hægt verður að panta línuna. „Sans er gömul dönsk sletta; við Islendingar tölum t.d. um að hafa sans fyrir einhverju. Og ég hef trú á því að konur hafi sans fyrir fallegum nærfötum," seg- ir Ríkey og tekur fram ljósan nær- bol þar sem búið er að sauma kærastanafn við brjóstið. „Ég vil trúa því að þetta sé nokk- urt tilfmningamál fyrir konur. Mað- ur er glaðari í lund ef maður er í einhverju lekkeru. Þetta er kannski hégómi að langa til að vera í ein- hverju fallegu en í alvöru talað þá held ég að það sé gott fyrir egóið. Þó svo að enginn nema þú vitir af því að það er dálítið englaryk á brókinni þinni getur það alveg gert útslagið. Við konur borgum ótrú- legar upphæðir fyrir ýmsa hiuti sem eru algjört pjatt. Þess vegna held ég að það sé alveg markaður fyrir svona lúxus nærföt," segir Rík- ey sem fór á sérstakt nærfatanám- skeið í Danmörku þar sem hún lærði kúnstina við fyllta brjósta- haldara og slíkt. FJÖLBREYTNI: Ríkey lærði m.a. krosssaum, flatsaum, perlusaum, harðangurs- og klaustursaum, húllsaum, kontórsting og keðjusaum, auk ýmissar textílvinnu í skólanum í Köben. Gert við gamalt handverk Þeir sem heimsækja hótel Öld- una á Seyðisfirði geta kíkt inn í vinnustofú Ríkeyjar því úr matsal hótelsins er opið þangað inn. „Útsaumur er kjörinn á alls kon- ar fýlgihluti eins og klúta, töskur og skó og ég sé fyrir mér að ég muni að

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.