Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Blaðsíða 6
8
10. Að honum loknum skýrði sami maður frá tilraunum
Ræktunarféiagsins og árangri þeirra á síðastliðnu ári.
11. Lesin upp beiðni frá Sigurði búfræðingi Pálmasyni
um 300 króna styrk til utanfarar.
Vísað til fjárhagsnefndar.
12. Hallgrímur búfræðingur Porbergsson sækir fyrir hönd
Reykdæla um 50 króna styrk til girðinga.
Vísað til sömu nefndar.
13. Formaður skýrði frá því, að. skipulagsskrá fyrir gjafa-
sjóði Magnúsar Jónssonar væri ekki samin enn vegna
fjarveru Sigurðar skólastjóra. Skal skipulagsskráin satn-
in fyrir næsta aðalfund.
Formaður bar upp tillögu um það, að myndaður
væri sérstakur sjóður af lífstíðartillögum félagsins. Skal
sá sjóður jafnan óeyddur, en vöxtum hans varið í
þarfir félagsins.
Var tillagan samþykt í einu hljóði.
Enn fremur skýrði formaður frá, að amtsráð Norður-
amtsins hefði samþykt á síðasta fundi sínum, að Bún-
aðarsjóður amtsins skyldi falinn Ræktunarfélaginu til
umráða samkvæmt skipulagsskrá, er síðar yrði samin.
Fundi frestað til næsta dags.
* *
*
Næsta dag kl. 10 f. h. var fundur settur aftur. Full-
trúar hinir sömu á fundi, nema síra Eyjólfur Kolbeins.
Oerðir fundarins voru þessar:
14. Formaður las upp aðalreikning félagsins fyrir síðasta
ár, athugasemdir endurskoðenda og svör reiknings-
haldara, ásamt úrskurðartillögum nefndar þeirrar, er
fundurinn kaus í gær til að yfirfara reikningana.
Tillögur nefndarinnar voru samþyktar í einu hljóði
og voru þær þessar:
1. gr. Lagfærist í næsta ársreikningi.
2. — Sömuleiðis.
3. — Lagfærist í næsta ársreikningi samkvæmt at-
hugasemd endurskoðenda.