Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Page 56
5«
Á síðari helming síðast liðinnar aldar hefir rófnarækt auk-
ist mjög og þó einkum ræktun fóðurrófna. En fóðurrófna-
tegundir eru einkum tvær: turnips og runkelrófur (Beta vul-
garis campestris). Hinar síðarnefndu vaxa bezt í mildu og
heitu loftslagi. Þær munu því vart geta þrifizt hér á landi.
Turnips þolir betur kulda og hráslagalegt loftslag; vex því
mjög norðarlega, sem sfðar mun sagt verða.
Sem dæmi þess, hve rófnarækt hefir aukist mikið í ná-
grannalöndunum, má nefna.
Uppskera af rófum var í Danmörk að meðaltali árlega.
Árin 1875 — 78 33/4 milj. tn.
— 1895—98 36V2 —
Árið 1906 80 —
Megin hlutinn af þessum rófum er notaður til fóðurs. Nær
jafnmikið er ræktað af turnips og runkelrófum. Þá er allmikið
ræktað af hinum svonefndu sykurrófum, sem sykur er búinn
til úr. Uppskeran af þeim var í Danmörku 1906 um 8V2
miljón vættir (taldar í áðurnefndum 80 miljón tunnum). Danir
búa árlega til 85 milj. pd. af sykri úr sykurrófum.
Fóðurrófnarækt hefir og mjög aukist í Svíþjóð og Noregi
á síðari árum, þótt eg eigi hirði um að nefna tölur því til
sönnunar. I þessu sambandi má geta þess, að samkvæmt
landhagsskýrslunum var uppskera af rófum hér á landi:
Árin 1886—90 meðalt. árl. 8,400 tn.
— 1891—00 — - 13,000 -
— 1901—05 — - 17,100 *
Meiri hluti þessara rófna er gulrófur, sem notaðar eru til
manneldis.
Utbreiðsla. Turnips er nú ræktaður um alla Evrópu. Jafn-
vel norður að 71.0 norðlægrar breiddar í Svíþjóð. Hann þrífst
bezt í röku og hlýu loftslagi eins og á Englandi, þar geta
rófurnar náð afarmiklum þroska. Turnips er einnig ræktaður
í Norður-Afríku, Ameríku og Asíu alt austur í Kína.
Einkenni og afbrigði. Turnips heyrir til krossblómaættar-
innar og er talið að öll hin ræktuðu afbrigði eigi kyn sitt að
rekja til einnar tegundar, er vex enn víða óræktuð og nefnd