Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Page 61
63
Þá fræinu er sáð með hendinni, er bezt að hafa flösku.
Tappinn í flöskunni þarf að vera með hæfilegastóru gati, tii
þess að fræin geti komist út um það. Fyrst er gerð hæfi-
lega djúp rák þar sem á að sá træinu, og því síðan dreift
j^fnt eftir allri rákinni. Þá er jafnað yfir rákina með hrífu
og fræið hulið á þann hátt.
Sáðvélar eru til bæði litlar handvélar og stórar vélar, sem
hestar ganga fyrir; þær sá í margar raðir í senn. Með hand-
vélum w að eins sáð í eina röð í senn, sáðmaðurinn ýtir
vélinni á undan sér, hún býr til rákina hæfilega djúpa, sáir
fræinu og hylur það — alt í senn. Þessar handvélar eru af
ýmsri gerð og kosta frá 12 til 50 krónur. Ein af beztu vél-
unum er talin Ameríkensk, »New Model,< sem kostar um 37
krónui Fóðurrófnafræ má hylja með x/4—'/2 þumlungs þykku
moldarlagi. Til útsæðis á eina dagsláttu þarf 2—4 pd. af
fræi.
Þegar land er undirbúið til að sá í það rófnafræi, er það
annað tveggja gert á þann hátt, að svæðið er sléttað og
jafnað sem bezt, eða að búnir er til hryggir, sem fræinu er
sáð í.
Þar sem þurviðrasamt er, eins og á norðurlandi og jarð-
vegurinn er djúpur, er bezt að sá á siéttlendi. Jarðvegurinn
verður þá rakari en það er nauðsynlegt til þess að rófurnar
geti náð góðum þrifum. Hinsvegar er það ókostur að erfið-
ara er að verja sléttlendi fyrir illgresi. A þeim stöðum, þar
sem veðrátta er úrtellasöm, eins og vfða á Suður- og Aust-
urlandi, mun betra að _sá í hryggi. Þessir hryggir eru búnit
til með sérstökum plógi (Drilplov). Hann er að því leiti frá-
brugðinn. vanalegum plógum, að á honum eru tvö moldverpi.
Með þessum plógi eru plægðar rákir með því milli-bili, sem
á að vera á milli rófnaraðanna. I rákina er borinn húsdýra-
áburður. Hryggirnir á milli kloínir á ný með plógnum og
lendir þá áburðurinn í miðjum hryggnum, sem nú er jafnað-
ur að ofan með valta, og fræinu sáð eftir honum miðjum.
Kostir við að sá í hryggi eru aðallega þeir, að jarðvegurinn
verður lausari. Það helzt hæfilegur raki í honum, sé mjög
votviðrasamt. Illgresi festir síður rætur, eða það er hægra