Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Síða 74
76
þúfnanna, því þar verður vatnið of djúpt nái það upp yfir
þúfnakollana og þúfurnar séu háar. A seitlveitulandi hafa þúfna-
kollarnir engi not vatnsins eða mjög lítil.
Púfurnar koma í veg fyrir það, að full not verði að vatns-
veitingum.
Þúfurnar tefja Allir vita, hve seinlegt er að vinna heyvinnu
heyvinnu og á þýfðum túnum og engjum. Sláttur og rakstur
rýra heyfeng. gengUr ag mjnst kosti hálfu seinna en á sléttu,
sé þýfiið krappt. Og þegar svo þar við bætist, að eftir verður
alloftast talsverður hluti af grasinu óslegið, og að mjög sein-
legt er að raka þúfur svo vel, að ekkert verði eftir, þá er
auðsætt, að þetta rýrir heyfenginn af þúfunum. Ofan á þetta
bætist nú enn fremur, að illt er að þurka hey í þýfi. Það er
bæði seinlegt og svo verður nýting heysins sjaldan góð, af
því svo örðugt er að fá það jafnþurt. Heyið verður því all-
oft fremur lélegt.
Þúfurnar orsaka að heyvinna gengur seint, og að heyfengur-
inn verður rýr að vöxtum og verðmœti miðað við tilkostnað.
Þúfurnar # * Afleiðingarnar af þeim ókostum þúfnanna, sem
stytta tímann nú eru taldir hafa orðið þær:
til jarðabðta. j að bóndinn, sem varð að vinna á þýfða
landinu, fékk hvorki lokið ávinnslu á vorum né heyvinnu á
sumrum nema með löngum tíma eða auknum mannafla, og af
þessum sökum hefir hann mist af tíma, sem hann að öðrum
kosti hefði getað varið til jarðabóta.
Þúfurnar tak- 2. að hann, sökum þess að heyaflinn er rýr
marka bústofn að vöxtum og gæðum, verður að láta sér
bœnda. » # * nægja mjög takmarkaðan bústofn miðað við
tölu verkmanna, en þetta gerir búhag hans þröngan.
Af þessum atriðum verður augljóst, að þúfurnar eiga oft
drjúgan þátt í því, hve lítið er unnið að jarðrækt og að bú-
hagur bændanna er þröngur.
Vegurinn til að Það er því engin furða, þó bændurnir hafi
sigra þúfurnar eigi litið þúfurnar hýru auga, og öll von til
er þúfnasle'ttan. þess> að þejr hafi reynt að taka þær þeim
tökum, sem sigurvænlegust voru í viðureigninni við þær, en
það hafa þau ein tök reynzt, sem leggja þær að velli. Þúfna-