Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Side 102
104
Síðari ára skýrslur um unnar jarðabætur hafa komið fram
í tvennu lagi, aðrar hafa komið frá hreppstjórunum, en hin-
ar frá Búnaðarfélögunum. Af hreppstjóraskýrslunum sést hve
mikið er unnið utan félaganna, og er það tilfært sérstak-
lega í landhagsskýrslunum. Þessar unnu jarðabætur eru auð-
vitað mikið minni en þær sem búnaðarfélögin hafa látið gera,
en samt eru það talsvert háar tölur þegar það er alt komið
saman, eins og eg mun leitast við að sýna síðar.
Þessar skýrslur sem hér eru færðar sýna að eins þær
jarðabætur, sem unnar hafa verið innan félaganna. Þessi jarða-
bóta- og búnaðerfélög eru orðin 1906 129 að tölu og fé-
lagarnir 2442. Af þessu sézt að félagsskapur er altaf heldur
að aukast og fá meiri viðurkenningu hjá almenningi, sem
nauðsynlegt lífsefni og starfs fyrir land og þjóð.
Þessar skýrslur sýna að sléttaðir hafa verið árið 1904
511041 Q faðmur í búnaðarfélögunum, en þar að auki sýna
aðrar skýrslur að utan þeirra hafa verið sléttaðir 35741 Q
faðmur svo að til samans verður það alls á öllu landinu 546782
] faðmar. Arið 1905 er þúfnasléttun talsvert mikið meiri
en árið áður einkum utan félaga. í félögunum eru þá slétt-
aðir 538960 []] faðmar en þar að auki 118913 [[] faðmar
og verður það þá til samans 657873 [Zl faðmar. En viðvíkj-
andi þessu skal þess getið að á þessu ári hefir verið nákvæm-
ara eftirlit með jarðabótum utan félaganna en hingaðtil hefir
verið, og í því mun liggja sumt af hækkuninni. Frá 1860 til
1905 er talið að sléttaðar hafi verið 9050 vallardagsláttur,
eða sem svarar 16 °/o af öllum túnum á landinu, en það sézt
einnig að túnin hafa verið grædd mjög mikið út bæði með
sléttum og á annan hátt, því árið 1886 eru öll tún talin
33,000 dagsl. en 1905 eru þau orðin 56,635 dasl. Sama er
að segja um kálgarða og annað sáðland. Arið 1861 er það
talið 382 dagsl. en 1904 er það orðið 895 dagsl.
Svo að eg sýni ofurlítið betrr þær jarðabætur, sem unnar
hafa verið utan búnaðarfélaganna þá er talið að 1904 hafi
túngarðar verið gerðir 4772 faðmar að lengd og munu þeir
vera úr ýmsu efni þó það sé ekki tilgreint. Sama ár hafa
vatnsveitingaskurðir verið gerðir 2115 faðmar að lengd. 1905